Morgunblaðið - 18.04.2008, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Svona, hættu þessari fýlu, Dabbi, þú hlýtur nú að geta staðið að baki vini þínum í Lands-
bankanum.
Viðbrögð Ingimundar Sigurpáls-sonar, forstjóra Íslandspósts,
hér í Morgunblaðinu í gær, við sjálf-
sögðum og eðlilegum fréttaflutningi
Morgunblaðsins af því að grunur
léki á að kreditkort og pin-númer
hefðu horfið úr pósti, eru með öllu
óskiljanleg.
Sagði Ingimundur m.a. illa vegiðað þeim
starfsmanni, sem
ber út á um-
ræddu svæði, og
afleysingamanni
hans.
Þegar svo al-varlegir at-
burðir eiga sér
stað ætti forstjór-
inn að taka slík-
um upplýsingum fegins hendi og
einhenda sér í að breyta verklags-
reglum á þann veg, að slíkt geti ekki
gerst á ný, í stað þess að ráðast á
boðbera hinna slæmu tíðinda. Það
hefur aldrei verið líklegt til árang-
urs.
Finnandi annars póstburðarpoka íreiðileysi á Seltjarnarnesi lýsti
því svo í samtali við Morgunblaðið í
gær, að honum hefði mætt tómlæti í
þjónustuveri Íslandspósts þegar
hann tilkynnti um póstburðarpok-
ann. Er þetta boðlegt?
Varðandi fréttir af því að enn finn-ist póstburðarpokar á víðavangi
sagði Ingimundur að annaðhvort
væri um mistök að ræða eða vísvit-
andi brotnar reglur. Auðvitað, Ingi-
mundur! Þetta liggur í augum uppi!
ES. Staksteinar fullyrtu meira enþeim var stætt á á þessum vett-
vangi í gær, þegar sagt var að fimm
manna sendinefnd á vegum Reykja-
víkurborgar hefði farið á kaup-
stefnu í Hollywood. Vissulega var
sendinefndin fimm manna, en ein-
ungis tveir nefndarmanna voru á
vegum borgarinnar. Þetta leiðrétt-
ist hér með.
STAKSTEINAR
Ingimundur
Sigurpálsson
Er Ingimundur úti að aka?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
#
#
#
# #
#
#
#
*$BC
! *!
$$B *!
$%
&
%
"
! '!
<2
<! <2
<! <2
$" &
(
) *+,!-
$
62
"
$
/
B
$
%
! & '
(
./ !00 ! 1 ! ,!(
)
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Anna Ólafsdóttir Björnsson | 17. apríl
Þarf Vodafone ekki að
ættleiða Dr. Spock?
Þá er það ljóst að Euro-
vision er í raun barátta
á milli stóru símafyr-
irtækjanna. Mercedes
Clube myndbandið var
sumsvifalaust að síma-
auglýsingu (og sést mik-
ið og vel) og nú ætlar Nova að taka
Eurobandið að sér. Þar sem ég kaupi
hluta af minni símaþjónustu af Voda-
fone fer ég fram á að þar á bæ íhugi
fólk að ættleiða Dr. Spock, enda kúlið
mikið á þeim bænum. …
Meira: annabjo.blog.is
Baldur Kristjánsson | 17. apríl
Misheppnuð
Reykjavík!
Bæjarstæði Oslóar er
frábært eins og flestir
Íslendingar þekkja. Ég
er að hugsa um að gera
hana að höfuðborg
minni. Kaupmannahöfn
kemur annars til greina
líka. Reykjavík verður misheppnaðri
sem borg með hverju árinu sem líður.
Fyrst og síðast flugvallarsvæði sem
hefur byggst upp einhvern veginn.
Miðborgin hvorki gömul eða ný og ein-
hvern veginn án stefnu og tilgangs. ...
Meira: baldurkr.blog.is
Ómar Ragnarsson | 17. apríl
Þekkt fyrirbæri
Sú ályktun að Svína-
flóaklúðrið hafi verið
lyfjaneyslu Kennedys
að kenna er athyglis-
verð en þó vafasöm.
Ráðamenn heims hafa
ekki þurft slíkt til að
taka rangar ákvarðanir. Kennedy var
nýtekinn við afar krefjandi starfi og
reiddi sig á upplýsingar hers og leyni-
þjónustu. Vafasamt er að niðurstaða
Kennedys um að gefa grænt ljós á
hana hefði orðið önnur þótt hann
hefði verið heill heilsu.
Mér finnst uppljóstrunin um ástand
Nixons þegar Yom Kippur stríðið brast
á mun skelfilegri. Nixon var blindfullur
og menn neyddust til að taka ákvarð-
anir fyrir hans hönd á þann hátt að í
raun var hann sviptur völdum á með-
an á þessu ástandi hans stóð. Þar var
um að ræða forseta með hönd á
kjarnorkuhnappnum.
Vitað er að Winston Churchill skol-
aði niður að minnsta kosti viskíflösku
á hverjum degi og tók ýmsar rangar
ákvarðanir. Ein þeirra varð ein af
ástæðum þess að hann tapaði í kosn-
ingunum 1945, en það var þegar ...
Meira: omarragnarsson.blog.is
Svavar Alfreð Jónsson | 17. apríl
Glímt við drauga
Forfeður mínir vestur á
fjörðum voru alvörukarl-
ar. Lífsbaráttan var hörð
og ekki létti hana að
draugar léku lausum
hala á svæðinu. Víluðu
menn ekki fyrir sér að
ráðast gegn slíku skaðræði með ber-
um hnefunum.
Í Hornstrendingabók Þórleifs
Bjarnasonar er sagt frá því víkings-
lynda karlmenni og tryggðatrölli Jak-
obi Tómassyni (d. 1908).
Þar er meðal annars þessi saga af
glímu Jakobs við drauga:
„Haust eitt, meðan Jakob bjó á
Nesi í Grunnavík, kom hann kvöld eitt,
er tekið var að skyggja, út á hlað.
Hann var örlítið hýrgaður af víni. Á
hlaðinu voru þeir fyrir, Bjarni, sonur
hans, og mágur, er Ólafur hét. Niðri á
túninu stóðu móhrip tvö (rimlakassar
undir mó, innsk.), er notuð höfðu ver-
ið til þess að reiða í á völl.
Þegar Jakob kemur út á hlaðið,
starir hann um stund niður á túnið, en
snýr sér svo að syni sínum og mági og
segir, að helzt til mikið sé gert úr
vaskleika þeirra, þar eð þeir láti af-
skiptalaust, að draugar og forynjur
umkringi bæinn.
Spurði þá Bjarni, sonur hans, hvar
hann sæi nú drauga.
Jakob sagði, að minna mætti nú
sjá en þá djöfla tvo, er niðri á túninu
stæðu, og mundi hann ekki una því,
að þeir fengju óhindrað að leika sér
umhverfis bæinn, og skyldi hann nú
gera þeim yngri og vaskari skömm til
handa.
Bjarni glotti við, en svaraði engu,
þótt vel sæi hann, hverjir draugar þeir
væru, er hann talaði um.
Hljóp nú Jakob niður á túnið, tók
móhripin og kastaði þeim hátt í loft
upp, greip þau aftur og mölvaði, og
var jafnan mörg brot að sjá á lofti.
Sjálfur stökk Jakob hátt í loft upp, er
hann lék sér með spelabrotin (rimla-
brotin, innsk.), og hætti ekki við, fyrr
en bæði hripin voru mélmölvuð.
Kom hann þá heim hélaður af svita
og sagði að vart mundu djöflar þeir, er
hann hefði átt í höggi við, gera meiri
óskunda.
Daginn eftir var Jakob allsgáður.
Tíndi þá Bjarni saman stærstu spela-
brotin og færði föður sínum með þeim
ummælum, að hér væru nú leifarnar
af draugum þeim, er hann hefði barizt
við kvöldið áður.
Jakob horfði á brotin, glotti við og
sagði:
„Einhver ráð munu verða til þess
að bæta um þetta, Bési minn.““
Þessi saga er ekki bragðminni fyrir
þá sök að Bési, Bjarni Jakobsson, var
fyrri maður langömmu minnar, Pálínu
Guðrúnar Pétursdóttur. Þau eign-
uðust tvær dætur, Rebekku og Krist-
ínu. Bjarni dó ungur.
Langafi minn og seinni maður Pál-
ínu var Guðjón Kristjánsson, bóndi á
Langavelli á Hesteyri. Þeirra börn voru
tvíburarnir Jón Stefán og Bjarney Pál-
ína, amma mín. …
Meira: svavaralfred.blog.is
BLOG.IS
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
• til grenningar
• orkubætandi
• við gigt
• róandi
• o.fl.
hvernig er þín
heilsa?
Svarið fæst með
Kínverskri
púlsmælingu.
á heilsumeðferð
og heilsutei
TILBOÐ