Morgunblaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 21
|föstudagur|18. 4. 2008| mbl.is daglegtlíf Ég fór fyrst og fremst íLéttsveitina til að syngja.Ég söng heilmikið semkrakki og unglingur og hef verið í félagsskap þar sem mikið hefur verið sungið. Ég hafði lítið sungið eftir að ég átti börnin og löngunin til að fara í kór dró mig út í þetta,“ segir sú elsta í hópnum, frænkan Ingibjörg Margrét Gunn- laugsdóttir, sem hefur verið lengst í kórnum eða frá því haustið 2000. „Ég valdi Léttsveitina vegna laga- valsins hjá þeim en ekki síður vegna orku Jóhönnu Þórhallsdóttur stjórn- anda sem höfðaði til mín. Ég var ekki í þörf fyrir félagsskap, heldur fór ég fyrst og fremst til að fá útrás fyrir söngþörfina. Aftur á móti hef ég eignast margar góðar vinkonur í kórnum.“ Grátandi upp að altarinu Frænka hennar Elísabet söng með henni í barnakirkjukór þegar þær voru litlar. Ingibjörg Margrét hefur áfram orðið: „Við sungum hjá séra Árelíusi og ég söng meira að segja einsöng frá átta til tíu ára ald- urs í þeim góða kirkjukór. Ég fór grátandi upp að altarinu í fyrsta skiptið sem ég átti að syngja ein- söng, ég kveið svo fyrir,“ segir hún og skellihlær að minningunni. Sú yngsta í hópnum, nafna hennar Ingibjörg og systir Elísabetar, seg- ist aftur á móti ekki hafa sungið mikið fyrr en hún gekk til liðs við Léttsveitina. „Íþróttir áttu hug minn allan áður og mestur frítíminn fór í þær. Ég söng þó eitthvað í framhaldsskóla og tók tónlistar- áfanga í Kennaraháskólanum þar sem við stofnuðum kór. Mér hefur alltaf fundist mjög gaman að syngja.“ Þær frænkur eru hógværar og segja að engar tónlistarstjörnur sé að finna í stórfjölskyldunni. „En það er mikil og almenn sönggleði.“ Elísabet segist fyrst hafa heyrt í Léttsveitinni þegar hún sá hana og heyrði í fertugsafmæli Ingibjargar Margrétar frænku sinnar. „Ég heill- aðist algjörlega og vildi strax ganga í kórinn en þurfti að vera á biðlista í heilt ár. Við Ingibjörg systir skellt- um okkur í kórskóla hjá Kvennakór Reykjavíkur á meðan en 2002 fékk ég loksins að vera með og Ingibjörg kom ári síðar til liðs við okkur.“ Stutt er á milli frænknanna Ingi- bjargar Margrétar og Elísabetar í aldri og áttu þær mikið saman að sælda á uppvaxtarárunum en Ingi- björgu yngri kalla þær skottuna. „Það er rosalega gaman að vera all- ar þrjár saman í kór og það styrkir mikið tengslin á milli okkar enda förum við á hverjum þriðjudegi sam- an á söngæfingar auk þriðja hvers fimmtudags.“ Tuktar okkur stundum til Þær eru afskaplega ánægðar með kórstjórann Jóhönnu. „Auðvitað þarf að halda uppi aga þar sem koma saman hundrað konur, en gleðin er alltaf í fyrirrúmi. Jóhanna leggur áherslu á að við höfum gam- an af því sem við erum að gera og ef einhverjir hnökrar koma upp tökum við líka á því með gleði. Þótt hún tukti okkur stundum til er það bara nauðsynlegt og hollt fyrir okkur. Við erum að glíma við verk eftir Atla Heimi sem heitir Kvennarapp og það er heilmikið hjakk á meðan við erum að ná því en það er frábært þegar það smellur saman.“ Þær segja Aðalheiði Þorsteinsdóttur pí- anóleikara einnig eiga stóran þátt í því hvernig Léttsveitin er. „Samspil þeirra Jóhönnu skiptir miklu máli og það hvernig þær vinna saman á æf- ingum.“ Þær segja Léttsveitina vera sér- stakt samfélag ótal ólíkra kvenna sem koma úr öllum þjóðfélags- hópum. „Margar okkar koma úr umönnunarstéttum og eru þar af leiðandi í störfum þar sem þær þurfa að gefa mikið af sér. Þess vegna er svo gott að vera í kór þar sem söngurinn gefur okkur mikið til baka. Það er alveg sérstök stemning að finna samhljóminn þegar við syngjum saman,“ segir Ingibjörg Margrét. „Þetta eru svo frábærar konur og dásamlegur félagsskapur. Innan hópsins er fjöldi nefnda og við lærum heilmikið af því starfi. Við höfum líka gefið út tvær mat- reiðslubækur með uppáhalds- réttunum okkar og einn geisladisk.“ Nafna hennar, skottan Ingibjörg, bætir við að það sé gott að eiga sitt eigið áhugamál. „Þegar maður er kominn með börn og fjölskyldu er svo gott að geta labbað út og slakað á með hinum konunum á söng- æfingu. Ef við erum þreyttar endur- nærumst við í söngnum enda finnur maður orkuna frá öllum þessum konum þegar maður gengur í sal- inn.“ Í bleika útrás til Berlínar Léttsveitin fer í tónleikaferðir til útlanda annað hvert ár en innan- lands hitt árið. „Við höfum til dæmis sungið á Kúbu, Ítalíu og Norð- urlöndunum. Silja Hauksdóttir gerði heimildarmynd um Ítalíuferðina okkar sem var sýnd í sjónvarpinu og hún gefur góða mynd af þessu systrasamfélagi. Það er svakalega gaman hjá okkur í tónleikaferðum og við verðum eins og stelpur í sum- arbúðum. Núna í apríl förum við í bleika útrás til Berlínar og ætlum að syngja í Admirals Palast, menning- arhúsinu sem Helgi Björns á þar ásamt fleirum. Maríus Sverrisson ætlar að syngja með okkur og við ætlum líka að halda árshátíðina okk- ar í þessari Berlínarferð,“ segja þær með tilhlökkun. „En við ætlum að prufukeyra útrásina okkar á tvenn- um vortónleikum í næstu viku í Bú- staðakirkju og þá ætlar Magga Stína að syngja einsöng með okkur í nokkrum Megasarlögum.“ khk@mbl.is Hundrað kvenna hljómur Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Söngglaðar F.v.: Elísabet, Ingibjörg systir hennar og Ingibjörg frænka við málverk frá Kúbuferðinni. Söngurinn hljómar Líf og fjör á tónleikum í Langholtskirkju 2004. Fjölmargar systur, frænkur og mæðgur má finna í Léttsveit Reykjavíkur, sem er hundrað kvenna kór. Kristín Heiða Krist- insdóttir hitti tvær systur og föðursystur þeirra, sem allar njóta þess ríkulega að syngja í stórum hópi kvenna. „Auðvitað þarf að halda uppi aga þar sem koma saman hundrað konur, en gleðin er alltaf í fyrirrúmi. Jóhanna leggur áherslu á að við höfum gaman af því sem við erum að gera.“ Vortónleikar Léttsveitarinnar verða 22. og 24. apríl kl. 20.00 í Bústaðakirkju. BÆTIEFNI í pilluformi lengja ekki lífið – heldur jafnvel þvert á móti. Þetta eru niðurstöður danskra vís- indamanna sem fóru í gegnum fyrri rannsóknir á efninu. Forskning.no greinir frá. Vísindamennirnir segja að A- og E-vítamín og betakarótín geti leitt til ótímabærs dauða þar sem þau trufli náttúrulegt varnarkerfi líkamans en niðurstöður þeirra fyrir C-vítamín og selen voru óskýrar. Niðurstöður þeirra eru að líta eigi á bætiefni sem lyfjavöru sem þurfi að ganga í gegn- um strangar prófanir áður en hún er markaðssett. Þeir fundu engar vísbendingar um að þessi bætiefni lengdu líf fólks sem annars var heilsuhraust en undir- strikuðu að rannsóknin næði ekki til sjúklinga sem hafa sérstaka þörf fyr- ir bætiefni, né til bætiefna sem eru í ávöxtum og grænmeti frá náttúr- unnar hendi. Vítamíntöflurnar óhollar? Morgunblaðið/Sverrir Bætiefni Áhöld eru um hvort vítamín í töfluformi séu holl eður ei. C O N C E P T S T O R E Laugavegi 7 • 101 Reykjavík Sími 561 6262 • www.kisan.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.