Morgunblaðið - 18.04.2008, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
20% FÓLKS á aldrinum 40 til 60
ára eru heyrnarskert á einn eða ann-
an hátt. Ótrúlega margir í þessum
hópi vita ekki af heyrnarskerðingunni
eða halda að sá vandi, sem þeir verða
varir við, stafi af einhverju öðru.
Hafir þú ekki heyrt fuglana syngja
undanfarið getur það stafað af heyrn-
arskerðingu. Þú getur að sjálfsögðu
tekið þá afstöðu að af því þurfi ekki að
hafa áhyggjur. Óháð því hversu mikil
heyrnarskerðingin er mun koma í ljós
að lífsgæði þín batna verulega ef þú
gerir eitthvað strax við því.
Heyrnarskerðing hefur margs kon-
ar vanda í för með sér:
Þú heyrir ekki í dyrabjöllunni,
missir af mikilvægum upplýsingum á
fundum, tapar þræði í samræðum o.fl.
Það getur þýtt að mörg hljóð hafa
horfið – þytur í laufi, fuglasöngur,
barnshjal – hljóð sem gefa lífinu gildi.
En hjálpin er ekki langt undan. Á
örfáum árum hafa heyrnartæki
þróast og batnað mjög mikið. Nú-
tímaheyrnartæki búa yfir fjölmörgum
eiginleikum sem gera þér kleift að
greina betur talmál.
Helen Adams Keller (1880-1968),
bandarískur rithöfundur og fyrirles-
ari, var bæði heyrn-
arlaus og blind frá því
hún var eins árs göm-
ul. Þrátt fyrir það
lærði hún bæði að tala
og skrifa. Hún sagði:
„Við að missa sjónina
tapast samband við
hluti en við að missa
heyrnina missir maður
samband við fólk.“
Hvernig finnurðu
hvort þú eigir við
heyrnarskerðingu að
etja?
Svör þín við eftirfar-
andi spurningum geta
gefið vísbendingu:
1. Áttu erfitt með að
heyra sömu hljóð og
aðrir heyra svo sem
fuglasöng?
2. Hváirðu oft?
3. Hækkarðu oft það mikið í sjón-
varpi eða útvarpi að öðrum finnist það
óþægilegt?
4. Finnst þér aðrir muldra?
5. Hefurðu són í eyrunum?
6. Biðurðu aðra stundum að segja
þér hvað sagt var á fundum sem þú
varst á?
7. Áttu erfitt með að skilja þegar þú
talar í síma?
8. Ef kliður er áttu þá
erfitt með að ná því sem
er sagt?
9. Hefurðu verið að
staðaldri í miklum há-
vaða og þá sérstaklega í
vinnunni?
10. Heyrirðu varla
þegar dyrabjallan eða
síminn hringja?
11. Finnst þér auðveld-
ara að skilja raddir karla
en kvenna?
Hafirðu svarað játandi
einhverjum af þessum
spurningum þá getur
ástæða þess verið
heyrnarskerðing.
Til að fá úr því skorið
er mælt með því að þú
farir í greiningu hjá
heyrnarfræðingi eða
háls-, nef- og eyrnalækni.
Hvers vegna hrakar heyrninni?
Heyrnarskerðing er af nokkrum
gerðum en henni er oftast skipt í tvo
flokka: leiðni- og skynheyrnarskerð-
ingu (leiðslutap og skyntaugatap).
Þegar um er að ræða leiðniskerðingu
þá ná hljóðbylgjur ekki að berast inn í
innra eyrað. Vandinn stafar af meini í
hlust eða miðeyra þar sem þrjú smá-
bein leiða hljóðið inn í innra eyrað.
Tappi af eyrnamerg, gat á hljóð-
himnu, bólga í miðeyra, brotin beina-
keðja í miðeyra eða galli í gerð beina
miðeyrans geta valdið leiðniheyrn-
arskerðingu. Oftast má ráða má bót á
leiðniheyrnarskerðingu með lyfjum
eða skurðaðgerð.
Í 90% tilvika er um skynheyrn-
arskerðingu að ræða. Orsakir hennar
eru oftast þær að hin örfínu skynhár í
innra eyranu hafa annaðhvort brotnað
eða skaddast. Skynhárin nema hljóð-
bylgjur og breyta þeim í rafboð sem
berast til heilans um heyrnartaugina
en heilinn túlkar rafboðin sem hljóð.
Skynheyrnarskerðing er oftast tengd
öldrun en getur einnig stafað af há-
vaðaálagi, höfuðáverkum, sýkingum,
aukaverkun lyfja eða verið arfgeng.
Hvorki er unnt að lækna skynheyrn-
arskerðingu með lyfjum né læknis-
aðgerðum.
Sumir geta verið bæði skyn- og
leiðniheyrnarskertir en slík flokkast
sem blönduð heyrnarskerðing.
Menn geta heyrt þrátt fyrir skyn-
heyrnarskerðingu en þeir heyra ekki
allt hljóðrófið. Oft dofna eða hverfa
veikir hátíðnitónar svo sem fugla-
söngur. Skerðing á hátíðnihljóðum
talmáls svo sem /s/ rýrir talskilning.
Ekki bætir það úr skák að hávær
hljóð, t.d. frá viðmælanda sem hrópar,
hljóma jafnhávær í eyrum þess heyrn-
arskerta og þess sem hefur fulla
heyrn.
Sem betur fer geta heyrnartæki í
flestum tilvikum hjálpað heyrnar-
skertum og gert þeim kleift að heyra
hljóð sem annars væru þeim glötuð.
Það leiðir einnig til þess að sú þrúg-
andi einangrun, sem oft er afleiðing
heyrnarskerðingar, hverfur.
Rannsóknir sýna að fullorðnir, sem
nota heyrnartæki, njóta lífsins á
margan hátt betur, sjálfsmat þeirra
vex og þeir eiga auðveldara með að
umgangast annað fólk.
Hvað er til ráða?
Mikil framför hefur orðið í gerð
heyrnartækja, allt önnur hljóðvinnsla
en fyrir nokkrum árum.
Nútímaheyrnartæki, sem eru afar
fullkomin, geta verið smágerð og lítið
áberandi. Þökk sé stafrænni tækni en
með henni má sníða virkni þeirra full-
komlega að þörfum notandans. Sum
heyrnartæki eru meira að segja það
fyrirferðarlítil að þau hverfa á bak við
eyra eða inn í hlust.
Bætt lífsgæði geta verið á næstu
grösum. Og með því að leita hjálpar
gefurðu þér, fjölskyldu þinni og
starfsfélögum veglega gjöf þegar
þeim finnst ekki lengur erfitt að tala
við þig.
Heyrirðu ekki lengur fuglana syngja?
Ellisif Björnsdóttir
skrifar um heyrn
»Hvernig finn-
urðu hvort
þú eigir við
heyrnarskerð-
ingu að etja?
Ellisif Björnsdóttir
Höfundur er heyrnarfræðingur hjá
Heyrn.
ÁHRIF vaktavinnu
hafa töluvert verið
skoðuð og benda nið-
urstöður rannsókna til
að henni fylgi ýmis lík-
amleg, félagsleg og
andleg vandamál.
Hærra hlutfall veik-
indadaga er hjá vakta-
vinnufólki en þeim sem
ekki stunda vaktavinnu.
Þegar verið er að kanna áhrif
vaktavinnu á líkamlega heilsu hjúkr-
unarfræðinga (sem og annarra sem
vinna vaktavinnu) skiptir máli að vita
hvers konar vaktir viðkomandi vinn-
ur, þ.e. hvort unnar séu svokallaðar
þrískiptar vaktir þ.e. morgun-, kvöld-
og næturvaktir og hvernig þær rað-
ast niður. Mestu neikvæðu áhrifin
eru ef allar þessar vaktir eru unnar
til skiptis og ef unnið er á nóttinni.
Skýringin á því er fyrst og fremst sú
að slíkt vinnufyrirkomulag gengur að
hluta til gegn lífeðlisfræðilegum takti
líkamans, líkamsklukkunni.
Manninum hentar best að sofa á
nóttunni og vaka á daginn. Tilviljun
ein ræður ekki þessari skiptingu
heldur grundvallast hún á dæg-
ursveiflum ýmissa líffræðilegra ferla,
til að mynda dægursveiflu í önd-
unartíðni, meltingu og svefni. Svefn-
inn skiptist í nokkur stig og hefur
nánast sömu uppbyggingu og form
hjá þeim sem sofa eðlilega. Þegar
fólk vinnur á næturnar truflast þessi
svefnstig og er vaktavinnufólk í tals-
vert meiri hættu en aðrir á að þjást af
svefntruflunum. Þannig hefur verið
sýnt fram á að hjúkrunarfræðingar
sem sofa á daginn fá að meðaltali 1-4
klukkustunda styttri svefn en þeir
sem sofa á nóttunni, auk þess sem
gæði svefnsins eru minni. Þreyta er
vel þekkt sem afleiðing vaktavinnu
þar sem fólk fær ekki nægan svefn
eða hvíld og eykur það hættu á mis-
tökum.
Nýlegar rannsóknir benda til að
hætta á hjarta- og æðasjúkdómum sé
marktækt meiri hjá vaktavinnufólki
en dagvinnufólki. Orsakaþættir eru
taldir vera truflun á dægursveiflu,
streita, lélegt mataræði, kaffi-
drykkja, reykingar og skortur á
hreyfingu.
Tengsl krabbameins og vakta-
vinnu hafa einnig verið rannsökuð og
hafa niðurstöður leitt í ljós að hjúkr-
unarfræðingar sem vinna á næturn-
ar, og hafa gert það í nokkur ár, séu í
meiri hættu að fá brjóstakrabbamein
(hjá körlum er aukin tíðni blöðru-
hálskirtilskrabbameins) og rist-
ilkrabbamein. Það er talið vera vegna
breytinga á dægursveiflu og áhrifa
hennar á framleiðslu melótóníns.
Þá þjást hjúkrunarfræðingar sem
vinna næturvaktir frekar af brjóst-
sviða, meltingartruflunum og óþæg-
indum frá maga. Ástæða þess er talin
vera sú að líkaminn gerir ekki ráð
fyrir því að fólk borði á nóttunni.
Framleiðsla meltingarensíma er í
lágmarki og þá á líkaminn erfiðara
með að melta matinn. Jafnframt get-
ur vaktavinna aukið streitu, kvíða og
þunglyndi. Hjúkrunarfræðingar sem
vinna þrískiptar breytilegar vaktir
greina frá meiri streitu en hjúkr-
unarfræðingar sem vinna fastar
vaktir. Hjúkrunarfræðingar sem
vinna á sjúkrahúsum finna að auki
fyrir meiri streitu en hjúkrunarfræð-
ingar sem vinna utan sjúkrahúsa. Er
álag á vinnustað og fyrirkomulag
vaktavinnunnar talið vera meg-
inorsökin.
Rannsóknir hafa einnig leitt í ljós
að vaktavinna, þá sérstaklega næt-
urvinna, hafi slæm áhrif á konur á
barnsburðaraldri. Niðurstöður þess-
ara rannsókna leiða í ljós að hjúkr-
unarfræðingar sem vinna næt-
urvaktir hafa óreglu á tíðarhring
sem getur haft áhrif á frjósemi
þeirra. Konur sem vinna vaktavinnu
eru einnig í meiri hættu en aðrar
gagnvart fyrirburafæðingum og
fósturláti.
Aukið álag í erfiðu starfi
Fyrir 20-30 árum þótti hjúkr-
unarfræðingum yfirleitt kostur að
vera í vaktavinnu þar sem þeir gátu
eytt tíma með börnum sínum yfir
daginn og þar með sparað útgjöld til
barnagæslu. Á undanförnum árum
virðist þetta viðhorf hjúkrunarfræð-
inga hafa breyst þar sem meiri krafa
er nú en áður um jafnvægi milli
vinnu og fjölskyldulífs. Í dag þykir
hjúkrunarfræðingum vaktavinna
ekki fjölskylduvæn og sækja frekar í
störf sem einungis eru unnin á dag-
inn, meðal annars til að geta verið
heima hjá fjölskyldunni á kvöldin,
næturnar og á hátíðisdögum.
Þrátt fyrir ókosti vaktavinnu
fylgja henni einnig ákveðnir kostir.
Vegna lágra dagvinnulauna hafa
ungir hjúkrunarfræðingar talið kosti
vaktavinnu vera efnislega, þ.e. í
formi hærra launa vegna álags-
greiðslna á kvöldin og um helgar, og
sé það ástæða þess að þeir kjósi
vaktavinnu frekar en dagvinnu.
Hjúkrunarfræðingar benda þó jafn-
framt á að álagsgreiðslur fyrir
vaktavinnu þurfi að hækka. Sumir
telja það líka kost að eiga frí á virk-
um dögum og einnig að gott sé að
vinna á þeim tímum sem erill er
minni. Fyrir nátthrafna eru kvöld-
og næturvaktir kjörinn vinnutími og
þeir eiga auk þess auðveldara með að
aðlagast vaktavinnu en morg-
unhanar.
Vaktavinna er og verður órjúf-
anlegur þáttur af hjúkrunarstarfinu.
Meta þarf það álag og þau vandamál
sem vaktavinna hefur í för með sér
til launa. Sú krafa hjúkrunarfræð-
inga til margra ára að 80% vakta-
vinna verði metin sem 100% vinna,
þarf að ná eyrum stjórnvalda og
verða viðurkennd. Hjúkrunarstjórn-
endur verða líka að axla þá ábyrgð
að gera vaktavinnu að heillandi
starfsumhverfi til að fá komandi
kynslóðir hjúkrunarfræðinga til
starfa við vaktavinnu.
Vaktavinna
hjúkrunarfræðinga
Árdís Rut Ámunda-
dóttir og Birna G.
Flygenring skrifar
um áhrif vakta-
vinnu á starfsfólk
» Víða innan heilbrigð-
isþjónustunnar er
krafa um að sjúklingum
sé sinnt allan sólar-
hringinn. Því er vakta-
vinna stór hluti af starfi
hjúkrunarfræðinga.
Árdís Rut
Ámundadóttir
Árdís er hjúkrunarfræðingur á
slysa- og bráðadeild. Birna er
framkvæmdastjóri hjúkrunar
á St. Jósefsspítala, Sólvangi, og
lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ.
Birna G.
Flygenring
LISTAHÁTÍÐIN
List án landamæra
verður nú haldin í
fimmta sinn og hefst
föstudaginn 18. apríl
með dagskrá og mynd-
listarsýningu í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Sam-
starfsaðilar í stjórn há-
tíðarinnar eru Fjöl-
mennt, fullorðins-
fræðsla fatlaðra, Átak,
félag fólks með þroska-
hömlun, Hitt húsið, Ör-
yrkjabandalag Íslands
og Landssamtökin
Þroskahjálp.
List án landamæra
er vettvangur þar sem
stór hópur fólks, fatlað-
ir og ófatlaðir, sýnir
listsköpun sína, mynd-
list, leiklist, tónlist og handverk. Sýni-
leiki ólíkra einstaklinga í samfélaginu
er mikilvægur og þátttakendur í hátíð-
inni gefa góða mynd af því fjölbreytta
og kröftuga listalífi sem hér þrífst.
Tengslum og samstarfi er komið á
milli ólíkra hópa, sem hefur síðan leitt
til aukins skilnings manna á milli með
ávinningi fyrir samfélagið í heild.
Hátíðin var fyrst haldin á Evrópuári
fatlaðra 2003. Nú er hátíðin orðin að
árlegum viðburði og sífellt fleiri bæt-
ast í hóp þátttakenda og njótenda. Há-
tíðin í ár er sérstaklega stór á lands-
byggðinni og erlendir gestir koma og
sýna í Norræna húsinu. Fyrir utan
beina listviðburði hefur List án landa-
mæra líka stuðlað að umræðu um
ímynd fatlaðra í listum og list fatlaðra.
Í undanfara hátíðarinnar eða þann 11.
apríl stóð Rannsóknarsetur í fötl-
unarfræðum við Háskóla Íslands fyrir
málþingi og umræðum í tengslum við
hátíðina um menningu, listir og fötlun.
En eins og áður sagði hefst dag-
skráin þann 18. apríl með dagskrá og
myndlistarsýningu í Ráðhúsi Reykja-
víkur og lýkur þann 10. maí í Vest-
mannaeyjum. Í ráðhúsinu kemur fram
fjöldi listamanna, meðal annarra,
Dansklúbbur Hins Hússins ásamt Páli
Óskari, Freyja Haraldsdóttir og Alma
Guðmundsdóttir lesa úr bók sinni
Postulín og Kór Fjölmenntar á Sel-
fossi treður upp ásamt Valgeiri Guð-
jónssyni. Í kjölfarið verður opnuð
myndlistarsýning í Austursalnum þar
sem fjölbreyttur hópur listafólks sýn-
ir.
Daginn eftir, þann 19. apríl, verður
gjörningur á vegum
Átaks við Alþingishúsið á
Austurvelli. Þar á að
„taka höndum saman“ í
kringum húsið og mynda
þar hringsamstöðu.
Þangað eru allir hvattir
til að mæta kl. 13 og
skella sér svo á Geðveikt
kaffihús, handverks-
markað og ljós-
myndasýningu í Kaffi
Rót í Hafnarstrætinu.
Sama dag verða þrjár
sýningar opnaðar á
Safnasafninu á Sval-
barðseyri og sunnudag-
inn 20. apríl verður opn-
uð sýning í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi hjá
hópi sem kallar sig
Outsider art hópinn.
Meðal annarra við-
burða á dagskránni á
höfuðborgarsvæðinu er
sýning listamanna frá
Finnlandi í Norræna
húsinu 1. maí en jafnframt sýnir þar
hópur frá Fjölmennt á Akureyri og
Reykjavík. Tónleikar verða á Organ í
samstarfi við tímaritið Monitor og
leiklistarveisla verður í Borgarleik-
húsinu. Guðrún Bergsdóttir verður
með einkasýningu á kaffihúsinu
Mokka og opið hús verður í fjölda
starfsstöðva, meðal annars í Ásgarði
og á Sléttuveginum. Atburðir teygja
sig víða í stór og lítil, almenn og meira
prívat rými sem gerir það að verkum
að fleiri hafa tækifæri á þátttöku.
Atburðir á hátíðinni eru flestir á
höfuðborgarsvæðinu en einnig er
dagskrá á Egilsstöðum, Akureyri, í
Borgarnesi og Vestmannaeyjum. Há-
tíðin er í sókn um allt land og verður
t.a.m stærri hátíð bæði á Akureyri og
á Egilsstöðum en nokkru sinni fyrr. Á
Akureyri verða tvær sýningar í
Safnasafninu á Svalbarðseyri, sýning
Rósu K. Júlíusdóttur og Karls Guð-
mundssonar í Ketilhúsinu, sýning
Fjölmenntar í Amtsbókasafninu og
sýning VMA í
DaLí gallery ásamt fleiru. Á Egils-
stöðum verða meðal annars myndlist-
arsýningar, prjónakaffihús og nám-
skeið í myndlist og ljósmyndun.
Af nógu er að taka og ætti hver og
einn að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Ég hvet fólk til þess að kynna
sér dagskrána betur á bloggsíðu há-
tíðarinnar á slóðinni: www.listan-
landamaera.blog.is og koma, sjá,
hlusta og njóta.
List án landamæra
Margrét M. Norð-
dahl segir frá
hátíðinni List
án landamæra
Margrét M. Norðdahl
» List án
landamæra
er vettvangur
þar sem stór
hópur fólks,
fatlaðir og ófatl-
aðir, sýnir list-
sköpun sína
Höfundur er framkvæmdastýra
Listar án landamæra