Morgunblaðið - 29.04.2008, Side 20

Morgunblaðið - 29.04.2008, Side 20
daglegt líf 20 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sigríður Jónsdóttir einkamarkþjálfi ogGuðrún Brynjólfsdóttir faglegurskipuleggjandi tóku sig saman nýlegaog hófust handa við undirbúning á fyrirlestri sem fjallar annars vegar um það hver sjálfsmynd okkar er og hins vegar hvern- ig við getum skipulagt okkur sem best. Báðar starfa þær við að aðstoða fólk sem hefur misst stefnu í lífinu og þá sem búa við óreiðu, drasl og óskipulag. Þær styðjast við 12 spora kerfið sem þær segja að gefi sér ákveðna lífssýn og hafi dýpkað skilning þeirra á sjálfum sér og umhverfinu. Á næstunni stefna þær að því að heimsækja fyrirtæki og kynna starf sitt. Sjálfsmyndin oft rót vandans Sigríður, Sirrý eins og hún er oftast kölluð, hefur starfað sem markþjálfi í tvö ár og sótti menntun sína til Bandaríkjanna. „Markþjálfi hjálpar fólki að komast á þann stað í lífinu sem það vill vera á,“ útskýrir hún. „Mitt hlutverk er að hjálpa fólki sem hefur misst stefnu í líf- inu. Það geri ég með því að komast að því hver manneskjan er í raun og hvað hún hefur fram að færa.“ Til þess að útskýra starf sitt betur gefur Sirrý okkur dæmi. „Ég hef t.d. unnið með manneskju sem gekk illa í vinnunni og taldi sig þurfa aðstoð við skipulagningu. Ég skynj- aði strax að það var eitthvað meira um að vera. Viðkomandi átti í vandræðum með sjálfsmynd sína en var ekki tilbúinn að kafa svo djúpt,“ lýsir hún. „Við komumst ekkert áfram með vinnuna og það var ekki fyrr en að viðkomandi sá að ekkert gekk að hann var tilbúinn til að viðurkenna að kannski var hann ekki á réttum stað í tilverunni.“ Sirrý segir mjög algengt að fólk taki ákvarðanir um starfsferil út frá tekjum og geri það sem öðr- um finnst það eiga að gera í stað þess sem það sjálft velur. Kaupum mikið, hendum litlu Guðrún fæddist skipulögð, fékk þann eig- inleika í vöggugjöf eins og hún segir sjálf. Hún starfar í dag sem svokallaður faglegur skipu- leggjandi (e. professional organizer) og hjálp- ar fólki að breyta sjálfu sér bæði heima og á vinnustaðnum. „Ég fer með fólki í gegnum gagnlegar aðferðir til að einfalda lífið,“ segir hún og á þar t.d. við að fara í gegnum fata- skápa, skrifborð og pappíra og kenna fólki að minnka draslið. Hún kennir fólki m.a. að nota flokkunarkerfi sitt, Gefa, henda, geyma, sem ætti að geta nýst vel á mörgum heimilum. Guðrún telur eitt helsta vandamál fólks vera stöðug kaup á nýjum hlutum án þess að henda einhverju í staðinn. Einnig segir hún fólk ekki vera nógu duglegt við að ganga frá eftir sig. Guðrún og Sirrý eru sammála um að það fylgi því oft mikil skömm að geta ekki hugsað um heimilið. Fólk taki jafnvel upp á því að hætta að hleypa vinum og ættingjum heim til sín. Mikilvægt að sleppa tökum En hvernig vinnur Sirrý með skjólstæð- ingum sínum? „Fyrst bið ég fólk um að sleppa tökum á því sem aðrir segja um það. Sleppa tökum á því sem það heldur um sjálft sig sem og hugmyndum um tekjur og titla,“ lýsir hún. Því næst þarf fólk að hugsa um hvað það hefur gaman af að gera. „Fólk þarf að leyfa sér að vera til og upplifa sjálft sig,“ segir hún. „Síðan getur fólk farið að huga að hvaða stefnu það vill taka í lífinu. Þetta er visst ferli og tekur tíma en það skiptir öllu máli að leggja til hliðar gamlar hugmyndir og skoða nýjar.“ Sirrý segist skynja margt með því einu að tala við fólk og að það sé t.d. mikill munur á því hvernig fólk tjáir sig um skemmtilega hluti heldur en eitthvað sem íþyngir því. Hún segir vinnu með markþjálfa hjálpa fólki að leggja hornsteina að nýju og betra lífi. „Það er ólýs- anlega góð tilfinning að sjá fólk snúa lífi sínu við með því einu að hlusta á sjálft sig og hafa trú á sjálfu sér.“ Taka lítið fyrir í einu „Góðir hlutir gerast hægt,“ segir Guðrún og telur best að byrja á því að taka lítið fyrir í einu. „Ef verkefni heimilisins eru fólki ofviða er gott að byrja t.d. á því að taka til í 10 mín- útur á dag. Stilla klukku og þegar hún hringir þá er fólk búið þann daginn.“ Hún segir skipu- lagða einstaklinga þurfa að vera iðna og hafa sjálfsaga en einnig sé mikilvægt að fólk breyti hugsunarhættinum og vilji virkilega breyta til. Fólk þarf að flokka tilfinningarnar líkt og hlutina og semja við sjálft sig um hverju skal halda og hverju skal henda. „T.d. ef barnið mitt teiknar ótalmargar myndir á leikskól- anum, þá ákveð ég að eiga tvær,“ lýsir Guð- rún. „Það þarf að finna milliveg.“ Að lokum segja Guðrún og Sirrý: „Í samein- ingu hjálpum við fólki að byggja hús, en við notum þá myndlíkingu fyrir fólkið sjálft, og það er mikilvægt að líða vel með sjálfum sér. Grunnurinn þarf að vera mjög sterkbyggður og við aðstoðum fólk við að byggja traustar undirstöður.“ Morgunblaðið/Valdís Thor Skipulagt líf Sigríður Jónsdóttir einkamarkþjálfi og Guðrún Brynjólfsdóttir atvinnuskipu- leggjandi aðstoða fólk við að fóta sig í ysi og þysi nútímaþjóðfélags. Góðir hlutir gerast hægt  Byrjið vinnudaginn á að fara í gegnum tölvupóst og svara því sem liggur á  Ekki geyma tímarit í meira en tvo mánuði  Gott er að koma upp flokkunarkerfi varð- andi verkefni og pappíra. Gefa, henda, geyma  Tökum lítið fyrir í einu. Stillið klukku og takið til í 10 mínútur á dag  Veljið hinn gullna milliveg þegar kemur að því að ákveða hverju skal henda og hvað skal eiga  Finndu þína hæfileika og mótaðu stefnu þína í lífinu með þá í huga  Leggðu til hliðar hugmyndir úr lífi þínu sem hafa þjónað þér illa til þessa  Skoðaðu upp á nýtt hvað hentar þér og hvað þú vilt fá út úr lífinu  Ekki láta hugmyndir annarra eða neikvætt tal draga úr því sem þú vilt fá út úr lífinu  Finndu jafnvægi á milli þess að hugsa um sjálfa/n þig, maka, börn, vinnu og áhugamál Nokkur góð ráð Ertu á réttum stað í lífinu? Ertu ánægð/ur í vinnunni? Er allt í röð og reglu á skrifborðinu? Hefurðu nægilega orku til að taka til heima hjá þér? Ef þú, lesandi góður, svarar einhverjum af þessum spurningum neitandi gæti verið kominn tími til að fá aðstoð markþjálfa og faglegan skipuleggjanda. Vala Ósk Bergsveinsdóttir hitti tvo slíka og fékk nokkur góð ráð. Reglulegar, stuttar brjósta-gjafir eru árangursríkarien að láta barnið stjórna gjöfunum. Þetta eru niðurstöður breskrar rannsóknar sem BBC greinir frá á vefsíðu sinni. Undanfarin ár hefur nýbök- uðum mæðrum verið ráðlagt að leyfa barninu að stjórna brjósta- gjöfinni sjálfu, hvenær það vill drekka og hversu lengi. Rannsókn á 63 mæðrum í Bradford í Eng- landi leiddi hins vegar í ljós að þegar móðirin stýrði brjóstagjöf- inni eftir ákveðinni rútínu þyngd- ist barnið betur og brjóstagjöfin varði yfir lengra tímabil en ella. Vísindamennirnir, undir forystu heimilislæknisins Anne Walshaw, tóku eftir að þyngdaraukning ungabarna hefur dalað eftir að al- gengara varð að ráðleggja mæðr- um að leyfa barninu sjálfu að stýra tíðni brjóstagjafarinnar. Þeir ákváðu því að rannsaka mál- ið. Helmingur mæðranna fékk þær ráðleggingar að hafa barnið í mesta lagi í 10 mínútur á hvoru brjósti á u.þ.b. þriggja tíma fresti yfir dagtímann og ef nauðsyn krefði á næturnar. Hinum mæðrunum var sagt að gefa barninu brjóst þegar það vildi og eingöngu bjóða því seinna brjóstið ef það sýndi ennþá merki um að vera svangt. Eftir tólf vikur var innan við helmingur barnanna sem sjálf stjórnuðu brjóstagjöfinni enn á brjósti á meðan þrír fjórðu hluti barnanna í hinum hópnum var enn á brjósti. Að auki þótti fyrri aðferðin tengjast lélegri þyngd- araukningu fyrstu sex til átta vik- urnar. Barnið viti alltaf best Vísindamennirnir gefa þá skýr- ingu að barnastýrð brjóstagjöf trufli mjólkurframleiðslu lík- amans. Hormónið oxítósín sé nauðsynlegt til að koma mjólk- urlosunarviðbragðinu af stað hjá móðurinni, en það veldur því að mjólkin rennur frá mjólkur- kirtlum og fram í geirvörtuna. Sé barnið of lengi á brjóstinu truflist framleiðsla oxítósíns. Vísindamennirnir segja einnig að ef barnið er ekki lagt á seinna brjóstið verði til prótein í því sem stöðvi frekari mjólkurframleiðslu, sem aftur geti truflað mjólk- urgjöfina í klukkutíma og jafnvel daga á eftir. Rannsóknin, sem upphaflega var birt í Archives of Disease in Childhood, hefur þó mætt gagn- rýni ljósmæðra og annarra fag- aðila sem telja einsýnt að „barnið viti alltaf best.“ Alþjóða-heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með því að börn fái eingöngu brjóstamjólk í sex mán- uði áður en þau fá frekari fæðu að auki en aðeins ein af hverjum fjórum breskum mæðrum fylgja því ráði. Á mamman eða barnið að stjórna brjóstagjöfinni? Morgunblaðið/Brynjar Gauti Brjóstagjöf Sopinn er góður, hver svo sem stýrir flæðinu!                      ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.