Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „MÉR finnst þessi mál hafa orðið út- undan í langan tíma,“ segir Jórunn Frímannsdóttir, formaður fram- kvæmda- og eignaráðs Reykjavík- urborgar, um aðstöðu á skólalóðum við grunnskóla borgarinnar. Víða er pottur brotinn þegar kemur að leik- aðstöðu barna við grunnskóla. Steypt plön, einmana leikkastalar og hálfónýtar körfur eru það eina sem er í boði í sumum skólanna, þótt í öðrum hafi verið tekið til hendinni, en Reykjavíkurborg á og rekur um 37 grunnskóla. Í desember 2006 samþykkti Reykjavíkurborg að leggja 150 millj- ónir króna á árinu 2007 í end- urbætur á lóðum við fimmtán skóla. Sums staðar hafa þessar end- urbætur tafist, til dæmis við Fella- skóla og Vesturbæjarskóla. Kristín Jóhannesdóttir, skóla- stjóri í Fellaskóla, segir að þar hafi frumteikningar vegna endurbóta verið kynntar fyrir kennarafundi og hún vonist til að framkvæmdir hefj- ist vorið 2009. „Það er kominn tími á end- urbætur. Lóðinni er ábótavant,“ segir Kristín. Á lóðinni séu fá leik- tæki og helsta leikaðstaðan fyrir börnin sé steypt plan. Mikill kostnaður Spurð um kostnað við að lagfæra einstaka skólalóð segir Jórunn Frí- mannsdóttir ljóst að hann sé mikill. Sé um endurhönnun lóðar að ræða segir Jórunn að hún kosti sennilega á bilinu 60-100 milljónir króna. Hún segir að 21. janúar sl. hafi í fram- kvæmdaráði verið samþykkt að verja 1,6 milljörðum króna til þess að endurhanna og bæta aðstöðu á lóðum grunnskóla borgarinnar. Jórunn segir að búið sé að tryggja 250 milljóna króna fjárframlag til endurbótanna í ár, en féð fer til end- urgerðar eða hönnunar á sjö skóla- lóðum. Áætlunin til ársins 2013 nær til alls 30 grunnskóla, en misjafnt er hversu miklu fé á verja til hverrar lóðar. Jórunn segir að meðal þess sem sums staðar sé ábótavant sé hönnun öryggissvæða við skóla, lýsing og girðing á göngusvæðum. Hún segir skoðun sína að jafnóðum eigi að halda skólalóðum í borginni við, fremur en að ráðast í átök. „Við þekkjum það öll hvernig körfurnar hafa verið orðnar lélegar og ekki við haldið og leiktækin gamaldags,“ seg- ir hún. elva@mbl.is „Skólalóðir útundan í langan tíma“ Morgunblaðið/RAX Fjör Krakkar að leik í frímínútum á endurbættri skólalóð grunnskólans í Hveragerði. Þar er fjölbreytt leikaðstaða fyrir nemendur. Morgunblaðið/RAX Endurgerð lóð Að sögn Guðjóns Sigurðssonar, skólastjóra grunnskólans í Hveragerði, nam kostnaður við framkvæmdir á skólalóðinni meira en 80 milljónum króna. Í HNOTSKURN »Reykjavíkurborg á og rekur37 grunnskóla. Áætlunin um 1,6 milljarða í skólalóðir til árs- ins 2013 nær til 30 skóla, en lóðir hinna hafa nýlega verið end- urgerðar. »Á þessu ári ver fram-kvæmdasvið 250 milljónum króna í undirbúning hönnun og framkvæmdir við Vogaskóla, Vesturbæjarskóla, Hólabrekku- skóla, Langholtsskóla, Lauga- lækjarskóla, Foldaskóla og Fellaskóla. »Að auki verður ráðist í und-irbúning og hönnun á örygg- issvæðum, lýsingu og girðingu á göngusvæðum á sjö öðrum grunnskólalóðum. Sparkvellir verða byggðir við Hólabrekku- skóla, Langholtsskóla og Folda- skóla á þessu ári. Misjafnlega er búið að leiksvæðum barna í grunnskólum. Elva Björk Sverrisdóttir kynnti sér aðbúnað barnanna. Morgunblaðið/Valdís Thor Fellaskóli Skólastjóri segir helstu leikaðstöðu nemenda steypt plan. Steypa Fótboltamark með rifnu neti og steyptur, ójafn völlur við Vest- urbæjarskóla í Reykjavík. GRÍÐARLEG ánægja er meðal nemenda í Grunn- skólanum í Hveragerði með lóð skólans, en lokið var við endurgerð hennar fyrir um tveimur árum. „Lóðin er meiriháttar góð,“ segir Guðjón Sigurðs- son, skólastjóri grunnskólans, en á lóðinni ættu flestir nemendur að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar er handboltavöllur, fótboltavöllur, gervi- gras og nokkrir körfuboltavellir. Að auki eru á lóð- inni fjölbreytt og aðlaðandi leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. Guðjón segir einu verki við lóðina ólok- ið, þar eigi enn eftir að koma fyrir rampi fyrir hjólabretti og línuskauta. Guðjón segir hina endurnýjuðu skólalóð hafa haft mjög góð áhrif á leik barnanna í frímínútunum. „Þetta hefur gjörbreytt öllu hvað varðar áreitni í frímínútum. Það eru miklu minni árekstrar í frímín- útum milli krakkanna, en þau dreifast um alla lóð- ina. Við skipuleggjum það svolítið hverjir hafa að- gang að hvaða svæðum á hverjum tíma,“ segir hann, en alls eru um 400 krakkar í skólanum. Það er ekki ókeypis að útbúa vandaða og aðlað- andi skólalóð. Guðjón segir aðspurður að kostnaður við endurgerð lóðar grunnskólans í Hveragerði hafi numið á bilinu 80-90 milljónum króna. „Lóðin er meiri- háttar góð“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.