Morgunblaðið - 05.05.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 05.05.2008, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigríður Ingi-marsdóttir var fædd í Reykjavík 1. október 1923. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi aðfara- nótt 28. apríl síðast- liðinn. Foreldrar henn- ar voru Ingimar Hallgrímur Jóhann- esson skólastjóri, f. 13.11. 1891 að Meira-Garði í Dýra- firði, d. 2.4. 1982, og Sólveig Eugenia Guðmunds- dóttir húsfreyja, f. 26.2. 1893 að Stóru-Háeyri á Eyrabakka, d. 25.1. 1971. Ingimar átti ættir að rekja til Vestur-Barðastrand- arsýslu og í Önundarfjörð og Sól- veig til Eyrarbakka og Vestur- Skaftafellsýslu. Systkini Sigríðar eru: Sólveig, f. 1925, búsett í Reykjavík, maki Kristinn Gunnarsson. Guðmundur, f. 1927, búsettur í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, maki Ásthild- ur Sigurðardóttir. Ásgerður, f. 1929, búsett í Reykjavík, maki Vic- tor Ágústsson. Sigríður giftist Vilhjálmi Árna- syni hæstaréttarlögmanni 21.6. 1946. Vilhjálmur var frá Hánefs- stöðum í Seyðisfirði, f. á Skálanesi 15.9. 1917, d. 8.3. 2006. Foreldrar hans voru Árni Vilhjálmsson (1893-1973) frá Hánefsstöðum og Guðrún Þorvarðardóttir (1891- 1957) úr Keflavík. Sigríður og Vil- hjálmur bjuggu lengst af í Njörva- sundi 2 í Reykjavík. Börn Vilhjálms og Sigríðar eru : 1) Sólveig, f. 10.3. 1947, d. 26.7. 1995, vistmaður að Skálatúni. 2) Guðrún, f. 31.5. 1949, verk- efnastjóri dvalarheimilinu Grund. Maki: Pétur Björnsson, f. 1949, að- alræðismaður Ítalíu. Börn: a) Marta Sigríður, f. 1983, sambýlis- maður Guðmundur Thoroddsen. b) Valgerður, f. 1985 og c) Svava, Ungmennafélags Reykjavíkur á námsárunum. Auk húsmóðurstarfa var hún ritstjóri kvennablaðsins Feminu 1946 til 1948, í stjórn Kvenstúd- entafélags Íslands 1950 til 1960. Hún starfaði sem dönsku- og enskukennari við Samvinnuskól- ann. Hún var stofnfélagi í Styrkt- arfélagi vangefinna og var ritari stjórnar frá stofnun félagsins 1958 til 1975. Hún var í stjórn Ör- yrkjabandalags Íslands frá 1961 til 1986, í stjórn dagheimilisins Lyngáss 1961-1971 og stjórn- arformaður þjálfunarheimilisins Bjarkaráss 1971-1981. Hún var stjórnarformaður Þroskaþjálfa- skólans 1971-1976. Hún var í stjórn Nordisk Forbund Psykisk Udviklingshæmning (NFPU) 1963- 1983 og fulltrúi Öryrkjabandalags Íslands hjá Alþjóða-endurhæfing- arsamtökunum (Rehabilitation International) 1978-1988. Hún var í undirbúningsnefnd og fram- kvæmdastjóri Árs fatlaðra 1980- 1981. Hún var í stjórn og vara- stjórn Bandalags kvenna í Reykja- vík 1971-1981 og varaforseti Kvenfélagasambands Íslands 1987-1991. Hún var í ritnefnd tímaritsins Húsfreyjunnar 1977 til 1991 og ritstjóri 1981-1989. Sigríður hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 1971 og var heiðursfélagi í Kvenfélaga- sambandi Íslands og í Styrkt- arfélagi vangefinna og hlaut einn- ig heiðursmerki Landssamtakanna Þroskahjálpar. Sigríður var vel ritfær og hag- yrðingur góður og orti og þýddi m.a. fyrir barnatíma ríkisútvarps- ins á 6. og 7. áratugnum og urðu nokkrir texta hennar kunnir eins og „Við litum og við litum“ og „Dýrin úti í Afríku“. Hún var vel lesin og unni kveðskap, innlendum sem erlendum. Útför Sigríðar verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 13. Jarðsett verður í Lágafellskirkjugarði í Mosfellsbæ. f. 1986, sambýlis- maður Ísak Jarl Þór- arinsson, þeirra son- ur er Vilhjálmur Jón, f. 2008. 3) Árni f. 4.11. 1952, lögmaður hjá LOGOS. Maki:Vigdís Einarsdóttir, f. 1953, d. 2006, líffræðingur. Börn: a) Hulda, f. 1974, maki Atli Björn Þorbjörnsson, þeirra dætur: Þórdís Huld, f. 2001, og Vigdís Helga, f. 2005. b) Sól- veig, f. 1981, sambýlismaður Tryggvi Hákonarson. 4) Stúlka, fædd andvana 17. september 1955. 5) Guðbjörg, f. 14.12. 1956, lekt- or í náms- og starfsráðgjöf við Há- skóla Íslands. Maki: Torfi H. Tul- inius, f. 1958, prófessor í frönsku og miðaldabókmenntum við Há- skóla Íslands. Börn: a) Kári, f. 1981, b) Sigríður, f. 1986. 6) Ar- inbjörn, f. 14.2.1963, arkitekt, skipulagsstjóri Garðabæjar. Maki: Margrét Þorsteinsdóttir, f. 1965, fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og fiðlukennari. Börn: a) Arna, f. 1986, barnsmóðir María Kristjánsdóttir b) Þorsteinn f. 1992. c) Steinunn f. 1994. 7) Þórhallur, f. 14.2. 1963, mark- aðs- og kynningarstjóri Portus hf., Tónlistar- og ráðstefnuhússins í Reykjavík. Maki: Glenn Barkan, f. í New York 1968, teiknari og graf- ískur hönnuður. Sigríður ólst upp á Eyrarbakka til 6 ára aldurs en fluttist að Flúð- um í Hrunamannahreppi 1928 þar sem faðir hennar gegndi starfi skólastjóra barnaskólans til ársins 1938 er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Sigríður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 17. júní 1944 og tók próf í forspjalls- vísindum frá HÍ 1945. Hún var í ritnefnd Skólablaðs MR, í stjórn Framtíðarinnar, í stjórn Góð- templarastúkunnar Sóleyjar og Sigríður tengdamóðir mín tók mér undir eins vel í fyrsta skiptið sem ég hitti hana fyrir ekki svo mörgum ár- um með tilgerðarlausri hlýju. Kímni- gáfa hennar og andríki gerði það að verkum að það var auðvelt að ná sambandi við hana. Hún hafði ein- staklega afslappaða nærveru og sem betur fer fyrir mig sem græningja í nýju landi talaði hún fullkomna ensku. Hún hvatti mig samt alltaf til þess að læra málið í mínu nýja landi. Sigríður skilur eftir sig arf inn- blásturs vegna baráttu sinnar fyrir rétti þroskaheftra, reisn þeirra sem á hallar í samfélaginu, ljóð sín og söngtexta en fyrst og fremst fyrir þann manndóm sem hún skilur eftir í börnum sínum og barnabörnum sem hvert af öðru eru einstakar mann- eskjur sem ég hef verið svo heppinn að kynnast. Styrkur hennar, viska, kímni og sköpunargáfa hennar renn- ur í æðum þeirra. Ég er þakklátur fyrir að fá að kynnast Sigríði og fylgja henni síð- ustu árin á langri ævi og ég er svo glaður yfir því að foreldrar mínir fengu að hitta hana og Vilhjálm fyrir nokkrum árum er þau voru í heim- sókn. Foreldrar mínir, Paul og Lorraine Barkan svo og systkini mín senda tengdafjölskyldu minni samúðar- kveðjur sínar frá New York, borg sem ég veit að Sigríður og Vilhjálm- ur unnu alveg síðan þau byrjuðu að koma þangað snemma á sjötta ára- tug síðustu aldar. Bless, momma, Glenn Barkan. Elsku Sigga mágkona hefur kvatt þetta jarðlíf. Enn einu sinni gerðu örlögin ekki boð á undan sér. Við kynntumst sumarið 1944 þegar Vil- hjálmur elsti bróðir minn kom aust- ur á Seyðisfjörð með unnustu sína og nýbakaðan lýðveldisstúdent, Sigríði Ingimarsdóttur. Ég var eina stelpan í fjölskyldunni og fannst strax eins og ég hefði eignast stóra systur. Þetta sumar var stórkostlegt, sólríkt og bjartsýnt og tíminn hefur engu breytt um það nema síður sé. Ekki skemmdi fyrir að við Sigga áttum sama afmælisdaginn, 1. október enda höfum við margoft fagnað hon- um saman. Við vorum farnar að skipuleggja stórafmæli okkar beggja í haust, skemmtum okkur vel og hlógum mikið að ýmsu sem okkur datt í hug varðandi veisluhaldið. Sigga mágkona hefur verið stór- vinkona mín allar götur í 64 ár og það hefur aldrei fallið skuggi á vináttu okkar. Það mætti tala lengi um mannkosti og hæfileika Siggu sem voru svo ríkulegir, en ég læt mér nægja að þakka henni allt það gamla og góða. Það er svo ótal margt sem leitar á hugann þessa dagana og ljúf- sárt að rifja upp liðna tíð. Sigríðar Ingimarsdóttur er sárt saknað af fjölskyldu, stórfjölskyldu og stórum vinahópi sem syrgir sann- kallaða sómakonu. Ég geymi minn- ingu hennar innst í hjarta mér. Margrét Árnadóttir. Þegar ég var tíu ára og sem oftar í pössun hjá ömmu eftir að skóla lauk, bað hún mig um að skrifa aldrei um sig minningargrein sem byrjaði: „Það var svo gott að koma heim til ömmu og fá hjá henni grjónagraut.“ Hún átti til að vera ákaflega fyndin og var húmor hennar oft svartur. Einu sinni í sumarbústaðarferð sagði hún við mig: „Ef ég hefði verið lifandi fyrir hundrað árum, þá hefðu allir kallað mig ellikellinguna enda- lausu.“ Það var ekki fyrr en ein- hverjum árum seinna sem ég fór að skilja hvað þessar athugasemdir hennar voru fyndnar. Amma var ein af mínum helstu uppalendum og hafði sérstaklega gaman af því að segja mér sögur, bæði sannar og skáldaðar. Hún hélt að mér klassískum bókum, gaf mér til dæmis Þúsund og eina nótt í jóla- gjöf, eitt bindi á ári. Einn eftirmið- daginn eftir skóla hjálpaði hún mér að semja fyrstu tvö ljóðin sem ég skrifaði, í tilefni af einhverri sam- keppni, eitt um lóm, hitt um hest. Þetta voru mín fyrstu kynni af því að nota penna til einhvers annars en að klára heimavinnuna. Ást hennar og þekking á bók- menntum var mikil. Þegar ég var smákrakki sagði hún mér sögur sem hún hafði samið. Þær sem ég man best voru um þrjá dverga sem hétu Ljúfur, Stúfur og Stóri. Eftir því sem ég eltist fórum við meir og meir að tala um sögur í staðinn fyrir að segja þær, spjölluðum til dæmis allt- af saman um nýjustu jólabækurnar. Seinasta skiptið sem ég hitti ömmu mína sat ég hjá henni í tvo tíma og við ræddum um Jónas Hallgrímsson. Sömu vikuna og amma dó var ég að ljúka við að setja saman handrit að skáldsögu. Seinasta árið hafði sjón hennar hrakað mikið, en það skipti mig máli að hún læsi bókina. Ég hugsaði mikið um það hvernig ég ætti að koma sögunni til hennar. Ég hafði ákveðið að best væri að ég læsi textann inn á segulband og svo gæti hún hlustað. Satt að segja kveið ég dálítið fyrir því að lesa alla söguna upphátt, en nú sakna ég þess að hafa ekki lengur ástæðu til að gera það. Kári Tulinius. Ljósmynd af Siggu umkringdri fimm litlum frænkum. Það er afmæli og verið að gæða sér á kökum. Þó beinist athygli telpnanna öðru frem- ur að ömmu sem er að segja þeim sögu. Tengdamamma kunni listina að fanga barnshjartað með frjóu ímyndunarafli sínu og djúpri, hlýrri rödd sem seiddi hugann inn í æv- intýraheimana sem hún töfraði fram. Hún hafði unun af skáldskap, var sjálf hög á íslenskt mál, og eftir hana liggja ókjörin öll af vísum og kvæð- um, m.a. textar við sönglög sem enn heyrast í útvarpinu og fjalla um „Jól norður við pól“ eða „Dýrin út í Afr- íku, og apana og fleira“. Og rétt fyrir andlátið orti hún fyrir yngsta barna- barnið, Steinunni sem fermdist á sumardaginn fyrsta, yndislega vísu sem tjáir undurvel þá ríku væntum- þykju sem hún og „afi hinum megin“ báru til alls síns fólks. Sigríður gekk menntaveginn, sem enn var sjaldgæft fyrir konur af hennar kynslóð, og varð stúdent árið sem lýðveldið var stofnað. Stuttu síð- ar giftist hún Vilhjálmi og börnin komu hvert af öðru, sjö alls, sex sem lifðu. Hún bjó þeim gott og ástríkt heimili. Minnast börnin sagnanna og söngvanna en ekki síður hvað móður þeirra var lagið að skapa þeim skemmtilegar stundir bæði í hvers- deginum og á hátíðum. Hjartfólgn- ust voru henni jólin og sumardag- urinn fyrsti. Börn og heimili tóku tíma en Sigga gaf einnig mikið til samfélagsins, einkum í baráttunni fyrir mannrétt- indum fatlaðra. Sólveig, elsta barnið, var með Downs-heilkenni og sam- félagið illa í stakk búið til að hlúa að henni. Viðbrögð Siggu og Villa var að breyta þessu ófullnægjandi ástandi. Drjúgur hluti af ævi Sigríð- ar var helgaður því málefni og voru henni falin margvísleg trúnaðar- störf. Fjölskyldan er stolt af fram- lagi hennar, en aðeins tvær vikur eru síðan hún flutti ávarp á fimmtíu ára afmæli Styrktarfélags vangefinna, nú Áss styrktarfélags. Hún var einn af stofnendum þess, ritari fyrstu stjórnar og lengi síðan. Ellin var Siggu erfið vegna geð- hvarfasýki sem herti að síðustu árin. Þá gat lamandi þunglyndið lagst yfir hana eins og dimmt ský. Gott var þá að eiga Villa að og börnin, sem ávallt voru tilbúin að styðja hana. Nú þeg- ar hún hefur fengið lausn frá erfiðum sjúkdómi stendur eftir æðruleysi hennar í þjáningunum. Það er hugg- un að veikindin plöguðu hana ekki síðustu vikurnar og hún gat notið sumarkomunnar og góðra stunda með fjölskyldunni. Litlu stelpurnar á ljósmyndinni eru orðnar ungar konur sem hafa mikinn styrk af ömmu sinni, eins og barnabörnin öll. Samkennd hennar með öðrum og umbótavilji knúðu hana til góðra verka. Áhugi hennar á lífinu og ást á landinu, sögu þess og bókmenntum gerðu hana að óþrjót- andi lind fróðleiks og skemmtunar. Eins og allar miklar sálir bar hún heilan heim með sér og það gerði Vil- hjálmur raunar líka. Samspil þess- ara tveggja heima um sex áratuga skeið var auðugt og gæfuríkt. Nú býr heimur Siggu og Villa í ástvinum þeirra, dýrmætt veganesti á lífsins leið. Heimilis- og starfsfólki Dvalar- heimilisins á Dalbraut flyt ég kveðju fjölskyldu Sigríðar og þakkir fyrir góðar samvistir og aðhlynningu. Torfi H. Tulinius. Amma sagði einu sinni við mig: ,,ef minningargreinar um mig verða um kleinur og lummur þá geng ég aft- ur“. Ég held að amma hafi ekki þurft að hafa áhyggjur því þótt lummurn- ar hafi vissulega verið mjög góðar þá var amma svo mikill og skemmtileg- ur persónuleiki að það var ekki bragðið af lummunum sem sat eftir. Þegar ég var lítil skynjaði ég strax hvað amma mín var sérstök. Hún var algjör viskubrunnur, sagði okkur alls konar sögur, kynnti okkur hinar ýmsu bókmenntir, hjálpaði okkur með íslensku og dönsku og maður gat iðulega leitað til hennar ef maður átti í einhverjum vandræðum með námið. Við barnabörnin hennar vor- um svo heppin að fá að eyða miklum tíma með henni. Hún tók mikinn þátt í uppeldi okkar. Hún skammaði okk- ur rækilega ef við höguðum okkur illa og tók ekkert mark á neinu væli. En aftur á móti vissi maður ekkert betra en skríða upp í til hennar og afa og fá að kúra á milli þeirra í hol- unni meðan amma las og þýddi í senn ævintýri upp úr dönskum blöð- um. Eftir að ég varð eldri var það per- sónuleiki hennar sem heillaði mig. Amma leyfði bæði sínum sterku og veiku hliðum að skína. Hún reyndi aldrei að vera neitt annað en hún var, stórkostleg og ófullkomin allt í senn. Að því leyti hefur hún alltaf verið mikil fyrirmynd. Einu sinni spurði ég hana hvað hún gæti ráðlagt mér, ungri manneskju sem væri að taka sín fyrstu skref út í lífið. Eftir að hafa hugsað sig um stutta stund sagði hún mér að vera alltaf heið- arleg við sjálfa mig. Þannig var amma manneskja sem maður gat alltaf leitað til ef maður þurfti upp- lýsingar eða ráðleggingar og hún var fyrirmynd fyrir þá sem fengu að kynnast henni. Nú lifir hún jafn- sterkt í minningunni og hún var sterkur karakter. Daginn áður en hún lést vorum við fjölskyldan svo heppin að fá að vera með henni í veislu. Ég horfði á hana og var að virða hana fyrir mér. Hún var svo sérstaklega falleg og glæsi- leg þennan dag. Ég hélt að hún sæi mig ekki því sjónin hennar var byrj- uð að daprast en þá eins og svo oft áður kom hún mér á óvart og brosti svo blíðlega til mín og vinkaði mér. Þannig hugsa ég um hana núna uppi á himni með afa og Sollu vinkandi til okkar. Guð geymi þig, elsku amma mín. Þín nafna Sigríður. Sú minning sem fyrst kemur upp í hugann, nú þegar móðuramma okk- ar Sigríður Ingimarsdóttir er látin, er reyndar samsett úr mörgum minningum. Amma að segja sögur, amma að segja okkur sömu uppá- haldssöguna aftur og aftur, sögu sem er okkur svo hugleikin að við spurð- um hana um bókina sem hún var í, ,,Norsk ævintýri“ þegar við vorum hjá henni í síðustu heimsókninni. Það var ,,Sagan af svarta bola“ og bókin er núna týnd. En minningin um söguna, og ekki síst ömmu að segja okkur söguna lifir. Þannig var amma Sigga, óþrjótandi brunnur fróðleiks og sagna. Það var reyndar eins og umhverfið tæki oft á sig goð- sögulegar víddir með ömmu. Þegar hún fór með okkur í sund í lauginni í Efstaleitinu (sem var jafn oft og hún sagði okkur söguna af svarta bola) breyttist amma í dularfulla sjávar- veru sem bar okkur bakka á milli. Á leiðinni í Kringluna fórum við iðu- lega í gegnum ,,rauðhettuskóginn“ sem þurfti að fara sérstaklega var- lega í gegnum og helst fela sig á bak við hvert tré en hættuförin var á sig leggjandi vegna þess að hinum meg- in við skóginn beið manns ljúffengur ís. Einu sinni sátum við agndofa á meðan amma galdraði fram með skærum og Merrild kaffipoka gyllt- an ævintýrakastala sem lifnaði við í sögu sem hún sagði okkur um prinsa og prinsessur. Einn gamlársdaginn fór svo amma með allan barnabarna- skarann út í hraun að leita að álfum. Þegar við vorum orðnar eldri gát- um við leitað til ömmu fyrir íslensku- próf og hún þuldi með okkur mál- fræði- og stafsetningarreglur og yfirleitt fylgdi eitt eða tvö kvæði með. Við erum svo ótrúlega þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast ömmu Siggu svona vel því hún var að sönnu ótrúleg kona. Þrátt fyrir að hún hefði oft átt erfitt síðustu árin sökum veikinda sinna þá var nú oftar en ekki stutt í brosið og húmorinn hjá henni. En núna hvílir amma í friði og við yljum okkur við ljúfar minningarnar sem hjálpa okkur í gegnum sorgina. Við getum ekki að því gert, en þær eru hjúpaðar lokk- andi kleinu- og lummuilmi. Marta Sigríður, Valgerður og Svava. Sigríður Ingimarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sig- ríði Ingimarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dög- um. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta, þá helstu tryggð og vináttunnar ljós. Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir.) Guð blessi þig. Þín æskuvinkona, Guðrún Jónsdóttir, Stóra-Lambhaga. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.