Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 41
MIKIL umræða hefur skapast
vegna ályktunar frá Þingi Land-
sambands lögreglumanna þess efnis
að lögreglumenn vilji fá að nota Ta-
ser valdbeitingartæki. Hinir ýmsu
aðilar hafa verið reiðubúnir til að
tjá sig um þetta tæki
og því miður hefur
blasað við okkur sem
höfum lagt okkur fram
við að kynna okkur
tækið að það hefur oft
verið gert af mikilli
vanþekkingu.
Þess vegna langar
mig að koma á fram-
færi nokkrum stað-
reyndum um Taser
valdbeitingartækið.
Yfir 11.000 lög-
gæslustofnanir í 45
löndum nota nú Taser
valdbeitingartæki og
eru þau notuð í þúsundum tilfella á
hverju ári.
Taser tækið vinnur þannig að
tveimur pílum er skotið í þann sem
yfirbuga á og eru örgrannar raf-
leiðslur fastar við pílurnar. Tækið
gefur frá sér 0,0021 Ampera straum
og dugar það til að hafa lömunar-
áhrif á þann sem er verið að yf-
irbuga. Til þess að fá þessi löm-
unaráhrif fram er spenna tækisins
höfð 50.000 volt í 1 sekúndu en svo
lækkar hún niður í 1.200 volt. Þess
má geta að straumurinn sem tækið
gefur frá sér er mörgum sinnum
lægri en straumurinn sem lætur
ljósin loga á jólatrénu þínu eins og
sést á meðfylgjandi mynd. Rann-
sóknir hafa sýnt að auka þarf
orkuna sem tækið gefur 15x til að
möguleiki sé á því að tækið geti
skaðað fólk.
Þær spurningar sem oftast vakna
hjá fólki þegar það er að kynna sér
Taser valdbeitingartækið eru eft-
irfarandi:
Er auðvelt að misnota tækið?
Svar: Tækin skrá mjög nákvæm-
lega alla notkun og
gerir það rannsókn á
hugsanlegri misnotk-
un mun auðveldari en
t.d. misnotkun á öðr-
um valdbeiting-
artækjum lögreglu.
Þar fyrir utan er hægt
að fá tækin með lítilli
myndavél sem byrjar
upptöku um leið og
tækið er tilbúið til
notkunar.
Hefur tækið áhrif á
hjartagangráð? Svar:
Nýlega var gerð rann-
sókn á áhrifum Taser
á hjartagangráði og kom í ljós að
tækið hefur engin áhrif á þá.
Er tryggt að lögreglumennirnir
sem kæmu til með að nota tækið
kunni með það að fara? Svar: Allir
lögreglumenn sem nota Taser vald-
beitingartækið þurfa að undirgang-
ast strangt námskeið þar sem notk-
un þess er kennd. Á þessu
námskeiði eru lögreglumennirnir
m.a. sjálfir yfirbugaðir með tækinu.
Hvaða áhrif hefur innleiðing tæk-
isin haft þar sem það hefur verið
tekið í notkun? Svar: Í öllum til-
fellum hefur það haft þær afleið-
ingar að slysum á lögreglumönnum
hefur fækkað um tugi prósenta. Það
hefur einnig haft þær afleiðingar að
slysum á hinum handteknu hefur
fækkað um allt að 80%.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International hafa varað við notkun
tækjanna og segja að dauðsföll sem
hafa orðið eftir að tækið hefur verið
notað séu komin í 300. Amnesty seg-
ir ekki að þessi dauðsföll hafi orðið
af völdum tækjanna, heldur draga
samtökin í efa hlutleysi þeirra rann-
sókna sem hafa sýnt fram á skað-
leysi tækisins þrátt fyrir að fjöldinn
allur af rannsóknum hafi verið
gerðar án aðkomu framleiðandans.
Það er óumdeilt að tækið hef-
ur bjargað mörgum manns-
lífum þar sem tekist hefur að
koma í veg fyrir sjálfsvíg.
Það er líka óumdeilt að þar
sem tækið hefur verið tekið í
notkun hefur slys á lög-
reglumönnum fækkað um tugi
prósenta.
Það er óumdeilt að þar sem
tækið hefur verið tekið í notk-
un hefur slysum á hinum
handteknu fækkað um tugi
prósenta.
Það er einnig óumdeilt að Tas-
er er mest rannsakaða vald-
beitingartæki sem lögregla
notar.
Aðeins Taser býður upp á ná-
kvæma skráningu á notkun
valdbeitingartækisins. Tækið
skráir tímasetningu notk-
unnar, fjölda púlsa og lengd.
Jafnframt er möguleiki á
hljóð- og myndbandsupptöku.
Taser skapar mesta öryggið af
öllum þeim valdbeiting-
artækjum sem notuð eru.
Bæði fyrir lögreglumennina
og þá sem þarf að yfirbuga.
Vanlíðunartími eftir notkun
Taser er sá stysti af valdbeit-
ingatækjum lögreglu sam-
anborið við 30 mínútur til
klukkutíma eftir piparúða og
daga, jafnvel vikur vegna
brotinna beina eftir kylfur. Og
til lífstíðar eftir skotvopn.
Meira en hálf milljón (500.000)
löggæslumanna hefur fengið
rafpúls í sig úr tækinu sem
hluta af þjálfun sinni. Engin
þeirra hefur slasast, hvað þá
látist. Í heildina hafa yfir
700.000 sjálfboðaliðar fengið í
sig rafpúlsa úr Taser tækjum.
Síðan árið 2000 hafa 5.600
manns látist við handtökur í
Bandaríkjunum. Taser var
notaður ásamt öðrum vald-
beitingartækjum í innan við
5% tilfella. Í 95% tilfella eru
önnur valdbeitingartæki not-
uð. Til samanburðar komu
handjárn við sögu í 100% til-
fella.
Og það er líklegt að þeir sem
hafa yfirgnæft umræðuna um
Taser valdbeitingartækið séu
akkúrat þeir sem eru stundum
í þeim aðstæðum að tækið yrði
jafnvel notað gegn þeim. Hin-
um almenna borgara er bara
umhugað um að lögreglan hafi
búnað til að geta yfirbugað
hættulega brotamenn.
Taser eða ekki Taser, það er ef-
inn.
Sannleikurinn um
Taser valdbeitingartækið
Óskar Þór Guðmundsson segir
frá Taser valdbeitingatækinu
» Taser skapar mesta
öryggið af öllum
þeim valdbeitingar-
tækjum sem notuð eru.
Bæði fyrir lögreglu-
mennina og þá sem
þarf að yfirbuga.
Óskar Þór
Guðmundsson
Höfundur er lögreglumaður og situr í
stjórn Landsambands lögreglumanna
Stærsti rauði hringurinn á myndinni sýnir 16 ampera straum (sbr. úr
venjulegri heimilisinnstungu), minni rauði hringurinn sýnir eitt amper
(sbr. straumur í ljósaperu í jólatré). Litli punkturinn lengst til hægri á
myndinni sýnir 0,0021 amera straum úr Taser-X26.
KAPP er best með forsjá, segir
gamalt máltæki. Þetta máltæki á
vel við þegar fylgst er með um-
ræðunni um flugvall-
armálið. Því er stöð-
ugt haldið á lofti að
þarna sé svo dýrt
byggingarland og eru
það ein aðalrökin fyr-
ir því að flugvöll-
urinn eigi að fara.
Einnig hefur verið
talað um að það sé
svo hættulegt að hafa
flugvöllinn á núver-
andi stað. En í sam-
anburði við flugvelli í
öðrum löndum er
þetta stórlega ofmet-
ið.
En hver eru rökin
fyrir því að Reykja-
víkurflugvöllur eigi
að vera á þessu
svæði sem hann er á
nú. Þau eru í raun
mun fleiri rökin fyrir
því að flugvöllurinn
eigi að vera í Vatns-
mýrinni. Reykjavíkurflugvöllur er
mikilvæg tenging við landsbyggð-
ina. Ekki bara fyrir fólk að koma
til Reykjavíkur í einhverjum
einkaerindum heldur einnig sem
öryggistæki í samgöngum og
sjúkraþjónustu. Nálægð flugvall-
arins við Landspítala – háskóla-
sjúkrahús er eitt af því sem er
mjög mikilvægt við staðsetningu
flugvallarins. Staðsetning flugvall-
arins á því svæði sem hann er nú
á er engin tilviljun. Staðurinn er
valinn með tilliti til veðurs og
vinda og er á þeim stað sem oftast
er hægt að lenda og taka á loft á
höfuðborgarsvæðinu. Aðrir kostir
sem hafa verið skoðaðir fyrir flug-
vallarstæði hafa ekki komið eins
hagstætt út. Ég tel það ekki sjálf-
gefið að auðvitað fari flugvöllurinn
einhvern tíma eins og kom fram í
Kastljósi 5. maí hjá Degi B. Egg-
ertssyni og Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur.
Hringbrautin ber
varla þann fólksfjölda
sem þarf að fara um
hana í dag. Það hlýtur
að þurfa að huga bet-
ur að því hvernig á að
leysa það áður en far-
ið er að hrúga niður
enn stærri íbúðabyggð
á þessu svæði.
Síðast en ekki síst
þá hjálpar flugbrautin
til við að vernda fugla-
líf í borginni.
Það er í raun og
veru ekkert einkamál
Reykvíkinga hvort
flugvöllurinn verður
eða fer, þar sem stað-
setning hans er lands-
byggðarmál. Mér
finnst spurningin um
það hvort flugvöll-
urinn fari eða verði
þar sem hann er sé sú hvort skipti
meira máli, fólkið sem byggir
þetta land og lífið sem nýtur góðs
af nærveru flugvallarins, eða
byggingarlóðir sem munu klárast
á skömmum tíma.
Það hlýtur því að vera skylda
borgarbúa að taka ákvarðanir út
frá hagsmunum allra landsmanna,
ekki bara fámenns hóps bygging-
arverktaka. Höfuðborgin ber
ákveðnar skyldur gagnvart lands-
byggðinni.
Ekki einkamál
höfuðborgarinnar
Hildur Halldóra Karlsdóttir
skrifar um staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar
Hildur Halldóra
Karlsdóttir
»Höfuðborgin
ber ákveðn-
ar skyldur
gagnvart öllum
landsmönn-
um...
Höfundur er bókasafns- og
upplýsingafræðingur.