Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 58

Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 58
58 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Lögga, læknir og lögfræðingur Kippan ÉG ER MEÐ FRÁBÆRAR FRÉTTIR! SAKSÓKNARINN ER TILBÚINN AÐ BJÓÐA ÞÉR SKILORÐSBUNDINN DÓM EF ÞÚ JÁTAR Á ÞIG BROTIÐ? AF HVERJU ERU ÞAÐ FRÁBÆRAR FRÉTTIR?!? ÉG VERÐ SAMT Á SAKASKRÁ, ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA SAKLAUS! ÉG VISSI AÐ ÉG HEFÐI GLEYMT EINHVERJU ÞÚ VERÐUR AÐ RÉTTA ÚR FÆTINUM FYRST ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER EÐLILEGT AÐ SOFA Í ÁTTA TÍMA... EN EKKI Í VINNUNNI! NÁÐI EINNI! FLUGUVEIÐI FYRIR BYRJENDUR ÞESSI STAÐUR ER VÍST MEÐ BESTU RIFIN Í BÆNUM ÞAÐ ER MIKLU BETRA AÐ VERA SVONA ÞRÁÐLAUS MAMMA, DRÍFÐU ÞIG! PABBI ER BÚINN AÐ BRENNA KÓTELETTURNAR EINU SINNI ENN! dagbók|velvakandi Gleraugu í óskilum Í miðasölunni á strætóbiðstöðinni Hlemmi eru gleraugu í óskilum sem hafa verið þar í u.þ.b. tvær vikur. Gleraugun eru í svörtu hulstri og á því stendur Safíló, umgjörðin er svört og eru þetta létt gleraugu sem virðast splunkuný. Ef einhver sakn- ar þeirra er honum bent á að hafa samband í síma 540-2701. Mér er ekki sama MIG tekur alltaf sárt að sjá hvernig umgjörðin og styttan af Jóni Sig- urðssyni eru látin drabbast niður. Í garðinum umhverfis styttuna hafa mörg undanfarin ár verið nokkur blóm á stangli. Í mínu ungdæmi var þó þéttur og harðger blómarunni þar umkring og vonast ég til að svo verði aftur. Liggur í augum uppi að þá bæri minna á sígarettustubbum og glerbrotum sem óreiðufólk á til að henda þarna frá sér. Þvílík hneisa! Svo er stóra málið Er ekki að koma tími til að merkja styttuna nú þegar 200 ára ártíð Jóns Sigurðssonar nálgast. Og væri ekki við hæfi að sjá þar hin fögru ein- kunnarorð ,,Sómi Íslands, sverð þess og skjöldur“? Hvet ég ráðamenn til að ganga yfir götuna og virða dæmið fyrir sér. Hæpið finnst mér að leyfa ljósmyndasýningar á Austurvelli og álít að hann standi ekki undir slíkum ártoðningi. Því ekki að nýta t.d. Hljómskálagarðinn? Sem sagt, í mínum augum er Austurvöllur merkur staður, sem ber að safnast saman á, eingöngu við sérstök tæki- færi og njóta veðurblíðu þegar hún gefst. Sjöfn Haraldsdóttir Krafa til alþingismanna HVENÆR ætlar Alþingi að afnema græðgis- og ofbeldislög um eftirlaun alþingismanna og ráðherra? Sumir alþingismanna höfðu lofað því að þessi skömm yrði aftekin, en á hvaða leið er málið? Björn Indriðasson Vodafone ÉG vil líka geta þess sem gott er. Ég keypti hlut við tölvuna mína sem ég á engan hátt gat tengt. Svo ég hringdi í Vodafone og 2 menn hjá þeim reyndu í afar langan tíma að leið- beina mér símleiðis. En þó árangur yrði enginn hefði ég gjarnan viljað borga 2 sinnum mánaðargjaldið mitt sem er 4.350 kr. en ekki var minnst á neina greiðslu. Af hverju hefði ég samt viljað borga? Vegna þess að sú lipurð, kurteisi, hjálpsemi og ekki hvað síst þolinmæði við mig sjötuga konuna var alveg einstök og ég tel mig standa í þakkarskuld við þetta góða þjónustufyrirtæki. Kveðja og þakkir til ykkar hjá Vodafone. Margrét Sigurgeirsdóttir Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ENN eru beingarðar eða dálkar hengdir upp til þurrkunar á landsbyggð- inni. Þar safnast hrafninn saman til að kroppa í það sem hægt er að ná í. Það er upplifun að ganga um hjallana þótt lyktin sé ekki góð. Dálkar á hjalli FRÉTTIR SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla um örugga netnotkun barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir „train the trainers“ námskeiði um jákvæða og örugga netnotkun þann 13. maí kl. 15.30-16.50 í Kennarahá- skóla Íslands. Sérstakur gestur á námskeiðinu er Justin Berry[1] sem 13 ára gam- all lenti í klóm kynferðisafbrota- manna á netinu. Í kjölfarið hefur hann m.a. borið vitni fyrir FBI og ferðast um heiminn og barist fyrir öryggi barna á netinu. Fulltrúum grunn- og framhalds- skóla, félagsmiðstöðva, foreldra- félaga, og nemenda er boðið á nám- skeiðið. Tilefni námskeiðsins er að virkja þátttakendur í að skipu- leggja málþingið „Þú ert það sem þú gerir á netinu“. Einnig er þetta kjörinn vettvangur fyrir kennara, sem hafa áhuga á að nýta sér efni SAFT í kennslustundum um örugga netnotkun, til að viða að sér hugmyndum og efni. Þátttakendur vinna fyrst í tveim- ur málstofum en málþinginu lýkur með sameiginlegri málstofu nem- enda, foreldra og kennara þar sem gerð verður grein fyrir nið- urstöðum. Æskilegt er að hver skóli/félagsmiðstöð sem hefur áhuga á að setja upp málþingið sendi einn fulltrúa á námskeiðið. Hver fulltrúi fær í hendur geisla- disk með kynningarefni auk ít- arefnis sem hægt er að leggja til grundvallar uppsetningu málþings- ins á hverjum stað. Þátttaka tilkynnist með tölvu- pósti á saft@saft.is. Ekkert þátt- tökugjald. Net Þú ert það sem þú gerir á netinu er námskeið um örugga netnotkun. Námskeið í jákvæðri og öruggri netnotkun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.