Morgunblaðið - 11.05.2008, Síða 62
■ Fim. 15. maí kl. 19.30
Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna
Hinn heimsþekkti sönghópur Swingle Singers hefur fyrir löngu sann-
að að honum er ekkert ómögulegt og efnisskráin er vægast sagt fjöl-
breytileg. Það mun ekki fara framhjá áheyrendum á þessum tónleik-
um: Bach, Mozart, Berio, Lennon og McCartney munu hljóma í með
förum meistanna. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af.
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Söngvarar: Swingle Singers
■ Lau. 17. maí kl. 14
Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda
bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri
endurflutt. Tryggið ykkur miða!
■ Fim. 22. maí kl. 19.30
Tveir básúnuguðir Þegar tveir virtúósar eins og Christian
Lindberg og Charlie Vernon leiða saman hesta sína verður útkoman
göldrum líkust. Ómissandi fyrir áhugamenn um flugeldasýningar.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Ég hef þroskast mikið
og ég er orðin miklu
rólegri en ég var… 67
»
reykjavíkreykjavík
Með Valgeiri á tónleik-unum og út ferðalagiðverður Bandaríkjamað-urinn Sam Amidon, en
plata hans, All is Well, er nýjasta út-
gáfa Bedroom Community, útgáfu-
fyrirtækis sem Valgeir er í forsvari
fyrir en það var stofnsett af honum
árið 2006 og þá í kringum plötu Ni-
cos Muhlys, Speaks Volumes, sem
kom þá út um haustið. Fyrirtækið
hefur síðan verið í stöðugum vexti,
ekki þá í skilningi magns, heldur
hefur orðspor og umtal um þær fáu
gæðaútgáfur sem fyrir liggja aukist
með hverju misserinu.
„Það er ólíklegasta fólk sem er farið
að þekkja útgáfuna,“ segir Valgeir
og brosir í gegnum símann. „Þetta
er að verða sæmilega þekkt nafn í
ákveðnum kreðsum, greinilega.“
Blaðamaður spyr þá hvort 700 jap-
anskar stúlkur hafi vaktað hann og
Muhly þegar þeir gengu út úr Merk-
in-tónleikastaðnum, þar sem tónleik-
arnir fóru fram. Valgeir skellihlær.
„Nei, það var kannski ekki alveg
þannig.“
Loksins sóló?
Á téðum tónleikum flutti Muhly
ásamt aðstoðarfólki efni af vænt-
anlegri plötu sem kemur út í þessum
mánuði. Platan mun innihalda þrjú
„stór“ verk þar sem söngvararnir
Sam Amidon, Helgi Hrafn Jónsson
og bandaríska söngkonan Abigail
Fischer koma við sögu. Talsverð eft-
irvænting er eftir plötunni, enda hef-
ur Speaks Volumes fengið gríð-
argóða dóma hjá gagnrýnendum,
bæði hjá þeim sem telja klassíkina
sinn heimavöll og líka hjá þeim sem
stöðugt að í listinni.
„Ben Frost er að vinna að nýrri
plötu,“ segir Valgeir og verður
hugsi.
„Það er … allsvakalegt stöff, verð
ég að segja. Mjög lofandi og á eftir
að taka fyrstu plötunni hans fram ef
eitthvað er.“
Ýmsir aðrir hlutir eru í uppsigl-
ingu, og Valgeir vinnur nú að plötu
með Kronos-kvartettinum, einum
þekktasta – og framsæknasta –
strengjakvartett heims. Kvartettinn
hefur unnið með nútímatónskáldum
á borð við Arvo Pärt, Henryk Gó-
recki, Steve Reich, Philip Glass,
Terry Riley og flutt lög eftir Frank
Zappa, Sigur Rós og Television.
„Við erum að skoða hvar sú plata
myndi koma út,“ segir Valgeir.
„Hugsanlega kemur hún út hjá
Bedroom Community.“
Viðhorfið skiptir öllu
Á komandi tónleikaferðalagi verð-
ur stoppað í Belgíu, Bretlandi, Dan-
mörku, Hollandi og Svíþjóð. „Þetta
er svona sameiginlegur túr, það er
enginn „aðal“,“ segir Valgeir. „Við
skiptumst á, enda er nokkurn veginn
sama fólkið sem spilar með okkur.“
Valgeir hefur unnið með fram-
sæknu tónlistarfólki, jaðarbundnu
og „utangarðs“ en poppið og rokkið
leikur einnig í höndum hans. Þannig
upptökustýrði hann plötu Sprengju-
hallarinnar, Tímarnir okkar, sem
var ein söluhæsta og vinsælasta
plata síðasta árs, auk þess sem
gagnrýnendur hlóðu hana lofi. Þá
vinnur Valgeir að næstu plötu ís-
firsku rokksveitarinnar Reykjavík!,
sem hefur surgandi, urgandi rokk til
grundvallar. Hvað veldur því að Val-
geir getur stokkið svona léttilega
öfganna á milli ef svo mætti segja.
„Ja...það er nú frekar einföld
skýring á því,“ segir hann. „Þetta
snýst fyrst og fremst um hvernig
fólkið sjálft er innréttað. Hvort mað-
ur nær til þess á persónulega svið-
inu. Viðhorfið, ástríðan – hugmynd-
irnar skipta lykilmáli, formgerð
tónlistarinnar er aukaatriði.“
hafa dægurtónlist að aðalfagi.
Valgeir hefur nærfellt allan sinn
feril verið á bak við tjöldin ef svo
mætti segja, hefur unnið hljóðlega
að því að móta og höggva út hljóm
„skjólstæðinga“ sinna. Eftir um
tuttugu ár í bransanum steig hann
svo loks fram með sólóplötu á síðasta
ári, Ekvílibríum.
„Það var ekki þannig að ég hugs-
aði: „Nú ætla ég að hefja sólóferil,
loksins!“ Það lá bara fyrir efni og
það hentaði best að vinna það
svona.“
En Valgeir viðurkennir að honum
líði ekkert illa í skinninu með að
koma fram undir eigin nafni.
„Jú, maður hefur verið mest í því
að vinna að tjaldabaki en þetta hefur
verið að virka vel, þetta sólódæmi.
Það er meira að segja fullt af nýju
efni að gerjast innra með mér sem
maður á eftir að vinna úr.“
Enginn „aðal“
Vegferð Bedroom Community
liggur ekki síst í því að þeir sem út-
gáfunni „tilheyra“ eru afar virkir,
Í LEIT AÐ JAFNVÆGI
ÉG SEGI ÞAÐ OG SKRIFA, VALGEIR SIGURÐSSON ER EINN MERKASTI UPPTÖKUSTJÓRI SEM HÉRLENDIS HEFUR STARFAÐ, VERKASKRÁ HANS
VERÐUR TILKOMUMEIRI MEÐ HVERJU ÁRINU OG SÍÐUSTU TVÖ ÁR EÐA SVO HAFA VERIÐ EINSTAKLEGA GJÖFUL AÐ ÞVÍ LEYTINU TIL. VALGEIR HÓF
STUTT TÓNLEIKAFERÐALAG UM EVRÓPU HÉR HEIMA, MEÐ TÓNLEIKUM Á ORGAN Í GÆR, OG SAMANSTENDUR EFNISSKRÁIN AF FYRSTU SÓLÓ-
PLÖTU HANS, EKVÍLIBRÍUM, SEM KOM ÚT SÍÐASTA HAUST. ARNAR EGGERT THORODDSEN HRINGDI Í VALGEIR VEGNA ÞESSA, ÞAR SEM HANN
VAR STADDUR ÚTI Í NEW YORK, NÝBÚINN AÐ LEIKA Á TÓNLEIKUM MEÐ NICO MUHLY, SEM ER NÁINN SAMVERKAMAÐUR HANS.
Valgeir „Viðhorfið, ástríðan – hugmyndirnar skipta lykilmáli, formgerð tónlistarinnar er aukaatriði.“
arnart@mbl.is