Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 71
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞAÐ ætti ekki að hafa farið
framhjá neinum að Listahátíð í
Reykjavík er um það bil að bresta á,
hinn 15. maí nk. Það ætti heldur
ekki að hafa farið framhjá neinum
að halda á sk. tilraunamaraþon í
Listasafni Reykjavíkur í Hafn-
arhúsi.
Það getur enginn haldið því fram
að hann finni ekkert við sitt hæfi í
tilraunamaraþoninu, slík er fjöl-
breytnin. Tilraunir verða gerðar á
öllum mögulegum sviðum, ekki að-
eins á sviði lista, þátttakendur eru
ekki aðeins listamenn heldur einnig
vísindamenn, arkitektar, fræði-
menn margs konar, m.a. stjarneðl-
isfræðingur og stoðtækjasérfræð-
ingur.
Viðburðurinn skiptist í tvennt,
annars vegar maraþon þar sem
hver tilraunin er gerð á fætur ann-
arri um opnunarhelgi hátíðarinnar
og hins vegar sýningu sem standa
mun yfir í sumar, til 24. ágúst. Sýn-
ingunni og verkefninu er stýrt af
tveimur heimsþekktum mönnum úr
myndlistarheiminum, Hans Ulrich
Obrist, sýningarstjóra sem starfar í
Serpentine Gallery í London, og
hinum eina sanna Ólafi Elíassyni
myndlistarmanni.
Listin í vísindunum
og vísindin í listinni
„Þetta er í raun og veru rosalega
breiður vettvangur í kynningu á til-
raunum,“ segir Soffía Karlsdóttir,
kynningarstjóri Listasafns Reykja-
víkur, til frekari útskýringar. Í
raun megi segja að listir skarist við
ýmsar fræðigreinar og greinar sem
menn hafi talið til þessa ótengdar
listum. Sá gjörningur/tilraun sem
án efa mun vekja hvað mesta at-
hygli er sá sem hin heimsþekkta
myndlistarkona Marina Abramovic
mun gera og ber titilinn Sálkönn-
unarborðið. Þar mun hún leiða gesti
í sálarrannsóknarferð með aðstoð
kynlífsfræðingsins heimskunna Dr.
Ruth og Obrist.
En hver skyldi grunnhugmyndin
að þessu öllu saman vera, tilrauna-
maraþoninu? Að bylta hugmynd-
inni um hvað listasafn sé og til
hvers, hvort einhver skil séu á milli
vísinda og listar yfirleitt?
„Hvernig listin er í vísindunum
og vísindin í listinni, í raun og
veru,“ svarar Soffía. „Að þetta sé
ekki aðskilið og að þessi lærða
reynsla okkar kemur út frá þeim
tilraunum sem við gerum, meðal
annars. Hvernig skoðum við um-
heiminn? Við skoðum hann út frá
því sem við lærum og við lærum
með því að gera tilraunir og þannig
komumst við áfram. Þetta er líka
það sem listamenn hafa verið að
gera og blandast svolítið saman.
Sjáðu t.d. mann eins og Ólaf Elías-
son, maður veit aldrei alveg á
hvaða stað hann er. Hann blandar
þessu ótrúlega skemmtilega saman.
Maður notar hann svo oft sem dæmi
af því að fólk þekkir verk hans.“
Eno og Elíasson
Soffía segist mikið hafa velt því
fyrir sér hvaða gestum eða áhorf-
endum safnið geti átt von á og er
niðurstaðan líklega þessi: Hverjum
sem er. Einn þekktasti þátttakand-
inn í maraþoninu er án efa fjöl-
listamaðurinn og upptökustjórinn
Brian Eno, sem hefur m.a. unnið
með stórstjörnum á borð við David
Bowie og U2. „Brian Eno er hér
með risastóra hljóðinnsetningu sem
hann hefur verið að setja upp, rosa-
lega flotta, og hann verður líka með
gjörning eða tilraun með Ólafi Elí-
assyni. Það bara skarast öll svið
þarna,“ segir Soffía spennt. Um 60
manns taka þátt í maraþoninu og
því ómögulegt að gera því öllu skil í
einu viðtali eða umfjöllun.
Að þessu sögðu ætti að vera ljóst
að boðið verður upp á einstakan
listviðburð í Reykjavík eftir tæpa
viku og vart hægt að finna betra
tækifæri til að opna hug sinn fyrir
möguleikum listarinnar og sam-
tengingu við alla mögulega hluti.
Listahátíð í Reykjavík 2008
Listin í vísindunum
Hugmyndum bylt
á tilraunamara-
þoni í Hafnarhúsi
www.listasafnreykjavikur.is
Tilraunalistamenn Fjöllistamaðurinn Brian Eno, sem hefur m.a. unnið
með stórstjörnum á borð við David Bowie og U2, verður með risastóra
hljóðinnsetningu í Hafnarhúsinu, auk þess að vinna með Ólafi Elíassyni.
Soffía Karlsdóttir Kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Sálkönnuður Marina Abramovic gerir tilraun í tilraunamaraþoni Serpent-
ine-gallerísins í fyrrasumar. Spennandi verður að sjá upp á hverju hún tek-
ur með Obrist og Dr. Ruth á Sálkönnunarborðinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Stjórinn Ólafur Elíasson.
HEIMSFRÆGIR tónlistarmenn á
borð við Billy Joel, James Taylor,
Sting og Brian Wilson voru á meðal
þeirra sem lögðu sitt af mörkum við
verndun regnskóga Suður-Ameríku
á tónleikum í Carnegie Hall á
fimmtudaginn. Tónleikarnir eru
runnir undan rifjum hjónanna Sting
og Trudie Styler sem reka svokall-
aðan Regnskógasjóð (Rainforest Fo-
undation) en þetta mun vera í 20.
sinn sem styrktartónleikarnir eru
haldnir. Að þeim loknum var boðið
til hátíðarkvöldverðar á Plaza hót-
elinu. Eins og sjá má á myndunum
nutu stjörnurnar aðstoðar barna
sinna sem sýndu að listrænir hæfi-
leikar ganga svo sannarlega í erfðir.
Reuters
Söngleikur Sting syngur við undir-
leik leikarans Dustins Hoffman sem
þótti nokkuð lunkinn á slaghörpuna.
Eplið
og eikin
Fjölskylduband James Taylor ásamt börnum sínum, Sally og Ben.
Mæðgin Billy Joel og dóttir hans,Alexa Ray Joel, sungu saman nokkur lög.
Ungstirni Coco Sumner, dóttir tónlistarmannsins Sting, sýndi hvers hún er
megnug á tónlistarsviðinu. Ekki fylgir sögunni hvort hún tók „Roxanne“.
Einörð Sting og Styler stofnuðu styrktarsjóðinn fyrir um 20 árum og virð-
ast hvergi af baki dottin þrátt fyrir síaukinn ágang fólks á regnskógana.