Morgunblaðið - 15.05.2008, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BJÖRGUNARMENN fluttu hjálp-
argögn á jarðskjálftasvæðið í Kína í
gær og leituðu að tugum þúsunda
manna sem saknað er eftir mesta
jarðskjálfta í landinu í þrjá áratugi.
Kínverska fréttastofan Xinhua
sagði að björgunarmenn, sem könn-
uðu ástandið í bænum Yingxiu,
hefðu komist að því að það væri
„miklu verra en búist var við“. Af um
10.000 íbúum bæjarins komust að-
eins 2.300 lífs af og þar af slösuðust
um þúsund þeirra illa.
Xinhua sagði að nær 15.000
manns hefðu beðið bana í skjálft-
anum en ekki var ljóst hvort mann-
tjónið í Yingxiu væri þar talið með.
Að sögn fréttastofunnar voru nær
26.000 manns grafin í húsarústum í
Sichuan-héraði og hermt var að
30.000 manna væri saknað í borginni
Shifang. Heilu bæirnir eru rústir
einar eftir hamfarirnar. „Í sumum
bæjanna standa nánast engin hús
lengur. Þeir hafa allir jafnast við
jörðu,“ sagði Wang Yi, talsmaður
lögreglusveita á skjálftasvæðinu.
Sjúkrahús eyðilögðust í skjálft-
anum og læknar og hjúkrunarfræð-
ingur þurftu því að hlynna að slös-
uðu fólki á götunum. Þyrlur sveim-
uðu yfir hamfarasvæðinu og vörp-
uðu niður matvælum og lyfjum til
bæja sem einangruðust. Óttast var
að heil kynslóð barna í bænum Juy-
uan hefði farist.
Í kínverskum dagblöðum hafa
vaknað spurningar um hvort spilling
og léleg hús vegna brota á bygging-
arreglugerðum hafi stuðlað að miklu
manntjóni í jarðskjálftanum. Athygli
hefur vakið hversu margar skóla-
byggingar hrundu í hamförunum.
Talið er t.a.m. að hundruð barna í
Yuyuan séu grafin í rústum skóla
sem hrundi þótt nálægar byggingar
hafi þolað skjálftann. „Ég get sagt
þér hvers vegna skólinn hrundi,“
sagði gamall maður nálægt rústum
skólans. „Hann var illa byggður.
Einhver vildi spara peninga.“
Ólíkt fyrri náttúruhamförum í
Kína hafa ríkisfjölmiðlar landsins
fjallað ýtarlega um náttúruhamfar-
irnar. Kínverska ríkissjónvarpið af-
lýsti venjulegri dagskrá til að fjalla
um jarðskjálftann allan sólarhring-
inn. Talið er að markmiðið með þess-
ari miklu umfjöllun sé að fullvissa
kínverskan almenning um að stjórn-
völd bregðist rétt við skjálftanum og
aðrar þjóðir um að Kínverjar séu
fullfærir um að takast á við slíkar
náttúruhamfarir. | Miðopna
Reuters
Sorg Kona syrgir barn sitt við skóla sem hrundi á skjálftasvæðinu í Kína.
Grunur um að barnaskólar hafi hrunið vegna brota á byggingarreglugerðum
Heilu bæirnir rústir einar
Umræður um
spillingu í kín-
versku blöðunum
1 &"")""" 6
)7
8
9
6
:
8
)
! " !
! ""
"
"
""#$
;
! 5
"
#$!$%! &
<
'
(
5
)
*
(
1 = > ?
HÁTTSETTIR fulltrúar erlendra
ríkja reyndu í gær að fá herforingja-
stjórnina í Búrma til að opna landið
fyrir mikilli erlendri aðstoð en svo
virðist sem tilraunir þeirra hafi engan
árangur borið. Var koma útlendinga
til landsins takmörkuð enn frekar í
gær og sérstaklega að mestu ham-
farasvæðunum.
Gífurlegt manntjón varð þegar
fellibylurinn Nargis reið yfir landið í
upphafi mánaðarins og í gær hækk-
uðu Sameinuðu þjóðirnar áætlun sína
um fjölda þeirra sem eiga um sárt að
binda vegna hamfaranna úr 1,5 millj-
ónum í 2,5 milljónir manna.
Á sama tíma áætla stjórnvöld að
hátt í 38.500 manns hafi farist og að
minnst 27.838 sé saknað, tölur sem
sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna
óttast að séu mun hærri.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
sagði í gær, að yrði landið ekki opnað
strax fyrir alþjóðlegum hjálparstofn-
unum myndu aðrar hörmungar ríða
yfir landsmenn, hungur og sjúkdóm-
ar, en herforingjarnir virðast ætla að
skella skollaeyrum við því. Óttast er,
að annar hitabeltisstormur sé í upp-
siglingu úti fyrir ströndum Búrma og
muni fara inn yfir landið.
Fulltrúar alþjóðlegra hjálparsam-
taka skutu á neyðarfundi í gær í Taí-
landi en starfsmönnum þeirra hefur
verið neitað um vegabréfsáritun og
komast því ekki til Búrma.
Fram kom á fundinum, að þótt
töluverð hjálp, vistir og búnaður, væri
flutt með flugvélum til landsins, þá
væri það aðeins á færi sérfræðinga að
tryggja, að hún nýttist þurfandi fólki.
Sem dæmi var nefnt, að það þyrfti
reynda menn til að setja upp vatns-
hreinsistöðvar og ýmis önnur tæki.
Skelfilegt ástand
á hamfarasvæðunum
Minnst um tvær milljónir manna
líða fyrir skort á mat og drykkjar-
vatni og hafa ekkert húsaskjól en
mikið rigndi á hamfarasvæðunum í
fyrrinótt. Sagt er, að margt fólk sé að
því komið að örmagnast vegna hung-
urs og sjúkdóma en íbúar á Irra-
waddy-óshólmasvæðinu segja, að
þangað hafi engin aðstoð borist. Sett-
ir hafa verið upp vegartálmar við alla
vegi þangað og þar er öllum útlend-
ingum snúið við og raunar innlendu
fólki líka nema það eigi ættingja á
svæðinu.
Herforingjastjórnin heldur því
fram, að hún hafi full tök á ástandinu
og hjálparstarfinu, en fólk, sem lifði
hamfarirnar af, og þeir fáu frétta-
menn, sem komist hafa inn á ós-
hólmasvæðið, hafa aðra sögu að segja.
Þar fari um þúsundir manna án matar
og hreins vatns og mikið um sjúk-
dóma eins og iðraveiki. Hvarvetna
megi sjá rotnandi lík manna og dýra.
Herforingjastjórnin, sem verið hef-
ur við völd í Búrma í næstum hálfa
öld, óttast ekkert meira en erlend
áhrif og er hrædd um, að þau geti orð-
ið til að grafa undan allsherjartökum
hennar á samfélaginu. Hefur ríkis-
sjónvarpið í landinu ekki sýnt raun-
verulegar afleiðingar náttúruhamfar-
anna, heldur aðeins myndir af
herforingjum að útdeila mat og vatni
til þakklátra borgara.
Sameinuðu þjóðirnar áætla, að allt
að 100.000 manns hafi farist í storm-
inum 2. og 3. maí, Alþjóða Rauði
krossinn að allt að 128.000 hafi týnt
lífi í óförunum.
Talsmenn hjálparstofnana segja,
að engin aðstoð hafi borist 270.000
manns, og er herforingjastjórninni
einkum kennt um.
Nýr fellibylur í uppsiglingu?
Bandarísk veðurstofa, sem fylgist
sérstaklega með myndun fellibylja,
greindi frá því í gær, að verulegar lík-
ur væru á því, að stór hitabeltislægð
myndi myndast innan sólarhrings og
fara inn yfir Irrawaddy-óshólma-
svæðið.
Ríkisfjölmiðlarnir í Búrma létu það
ógert að segja frá þessu en lands-
menn fengu fréttina í gegnum erlend-
ar útvarpsstöðvar og netið.
Hamfarasvæðin lokuð af
Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að 2,5 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda
Herforingjastjórnin í Búrma vill ekki að útlendingar segi fréttir af ástandinu
AP
Allsleysi Hópur barna réttir út hendur eftir banönum, sem dreift var meðal
þeirra á hjálparstöð í Yangon. Þúsundir barna eru nú munaðarlausar.
HERT löggjöf í Bretlandi gegn
hryðjuverkum og tölvuglæpum
veitir yfirvöldum aukinn rétt til
að afla sér upplýsinga. En nú hef-
ur komið í ljós að bæjarstjórnin í
Poole í Dorset túlkar lögin mjög
vítt, að sögn The Guardian.
Góðar skelfiskfjörur eru á
svæðinu, meðal annars í Dorset-
höfn. Eitt af því sem bæjaryfir-
völd gera er að láta njósna um
fjölskyldu á svæðinu til að kanna
hvort hún steli skelfiski á bann-
svæðum. Gerð var nákvæm
skýrsla um ferðir fjölskyldunnar.
Shami Chakrabarti, talsmaður
mannréttindasamtakanna
Liberty, sagði að líkja mætti
þessu athæfi yfirvalda við að not-
uð væri sleggja til að brjóta
hnetu. „Laga þarf lögin þannig að
leita beri dómaraheimildar, þá
geta trítilóðir skriffinnar ekki
farið sínu fram,“ sagði Chakrab-
arti.
Hermdarverk
gegn skelfisk-
inum í Dorset
HILLARY Clint-
on hyggst ekki
gefast upp í bar-
áttunni við
Barack Obama
um að verða til-
nefnd sem for-
setaefni demó-
krata í haust.
Clinton sigraði
með miklum yfir-
burðum í for-
kosningum í Vestur-Virginíu á
þriðjudag, hlaut um 67% atkvæða
en Obama aðeins 26%. Obama hefur
hins vegar tryggt sér mun fleiri
kjörmenn fyrir flokksþingið í
ágúst.
John Edwards, sem hætti þátt-
töku í baráttunni fyrir löngu, hlaut
7% atkvæða, en í gærkvöldi varð
ljóst að hann styddi Obama.
Clinton gefst
ekki upp
Hillary Clinton
Edwards kýs Obama
BRESKA varnarmálaráðuneytið
hefur aflétt leynd á skýrslum sem
gerðar hafa verið gegnum tíðina
um frásagnir ýmissa manna af
fljúgandi furðuhlutum. Um er að
ræða skýrslur frá árunum 1978 til
1987. Þar er m.a. sagt frá undar-
legum ljósum á himni og óút-
skýrðum hlutum á lofti, að sögn
fréttavefs BBC.
Tveir lögreglumenn úr banda-
ríska flughernum í Bretlandi sögð-
ust hafa séð „óvenjuleg ljós fyrir ut-
an bakhlið bækistöðvar breska
flughersins í Suffolk“ árið 1980.
Einn heimildarmannanna segir í
smáatriðum frá „andlegu og lík-
amlegu sambandi“ sínu við grænar
geimverur alveg frá því að hann
var barn að aldri. 78 ára gamall
maður sagðist hafa hitt geimveru
við Basingstoke-síkið í Aldershot í
Hampshire árið 1983. Hann segist
hafa farið um borð í geimskip og
lýsti því vandlega. Verurnar spurðu
hvað hann væri gamall. Síðan var
sagt við hann: „Þú mátt fara. Þú ert
of gamall og veikburða til að koma
okkur að gagni.“
Samband við
„grænar
geimverur“?