Morgunblaðið - 15.05.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2008 17
MENNING
MÁLVERKIÐ Benefits Super-
visor Sleeping eftir listmálarann
Lucian Freud var selt á uppboði í
Christie’s í New York í fyrradag
fyrir 33,6 milljónir dollara, um
2.684 milljónir króna og er það
metverð sem fengist hefur á upp-
boði fyrir verk lifandi listamanns.
Fyrra met átti myndlistarmað-
urinn Jeff Koons, verk hans
Hanging Heart seldist á 23,5
milljónir dollara í nóvember í
fyrra.
Málverkið málaði Freud árið
1995 af yfirmanni hjá fyrirtækinu
Jobcenter, Sue Tilley, sofandi uppi
í sófa. Uppboðshúsið Christie’s
segir verkið sýna slagkraftinn í
raunsæismálverkum Freud. Freud
er orðinn 85 ára.
Tilley sat fyrir hjá Freud í ein
fjögur ár og segir í samtali við
BBC að það hafi verið undarleg
tilfinning að sitja nakin fyrir.
Henni þyki það skondið að mynd
af sér sé svo verðmæt sem raun
ber vitni. Hún hafi ekki átt von á
því og ekki Freud heldur. Mál-
verkið sé eins og hvert annað verk
málarans.
Fyrra sölumet á verki eftir mál-
arann er 19,3 milljónir dollara en
það verð var greitt fyrir verkið IB
and Her Husband árið 1992.
Heimsmet
slegið
Dýrasta verk nú-
lifandi listamanns
Dýrt verk Málverkið Benefits
Supervisor Sleeping eftir Freud.
Fær nýtt
hlutverk
County Hall Gamla ráðhúsið.
TIL stendur að opna sviðslistamið-
stöð með þremur sýningarsölum í
byggingu þeirri í London sem áður
hýsti Saatchi-galleríið og þar áður
ráðhús borgarinnar.
Factory theatre leikhópurinn
sýndi Hamlet í húsinu fyrr á þessu
ári í fundarsal byggingarinnar og
mun sá salur að öllum líkindum
verða nýttur undir stærstu upp-
færslurnar. Fyrirtækið Weird &
Wonderful heldur úti sýningu í hús-
inu á leikmunum sem notaðir hafa
verið í ýmsum kvikmyndum en hef-
ur í hyggju að reka lítið leikhús, s.k.
black box eða svartan kassa, og jafn-
vel sýna utandyra einnig, enda mik-
ið pláss fyrir framan bygginguna.
Arkitektinn Ralph Knott teiknaði
bygginguna og Georg V. konungur
vígði hana árið 1922. Hún stendur
við Thames-á á besta stað í suður-
hluta borgarinnar, skammt frá par-
ísarhjólinu mikla, London Eye.
Húsið var selt fjárfestum á tíunda
áratug síðustu aldar og margvísleg
starfsemi fer fram í því, m.a. sæ-
dýrasafn og listasafn helgað Salva-
dor Dalí. Menningarmiðstöðin kem-
ur til með að heita Greater London
Theatre.
TRÍÓIÐ Delizie Italiane held-
ur útgáfutónleika í Gyllta saln-
um á Hótel Borg í kvöld kl. 20.
Þar leikur tríóið lög af nýút-
komnum geisladiski sínum sem
ber einfaldlega nafnið Delizie
Italiane. Tríóið skipa þeir
Leone Tinganelli, gítarleikari
og söngvari frá Napolí, Jón
Elvar Hafsteinsson gítarleik-
ari og Jón Rafnsson kontra-
bassaleikari, en þeir hafa starfað saman frá árinu
2000.
Í kvöld leika þeir tónlist frá ýmsum héruðum
Ítalíu. Flest laganna voru í upphafi alþýðusöngvar
en eru nú orðin klassísk sönglög sem eru flutt
jafnt í virtum óperuhúsum sem á götuhornum.
Tónlist
Ítölsk stemning
í Gyllta salnum
Jón Rafnsson
HUGLEIKUR setur enda-
punktinn á leikárið 2007 til
2008 með leikdagskrá í Þjóð-
leikhúskjallaranum annað
kvöld, föstudagskvöld. Flutt
verða fimm leikverk eftir fé-
lagsmenn, þar af eru fjögur
frumflutt. Samkvæmt venju er
leikstjórn í höndum liðsmanna
Hugleiks. Verkin sem sýnd
verða eru Ári síðar e. Árna
Friðriksson, Eldhúsið e. Fríðu
Bonnie Andersen, Gilitrutt e. Þórunni Guðmunds-
dóttur, Keisarinn e. Sigríði Láru Sigurjónsdóttur
og Sessunautar e. Sigurð H. Pálsson. Húsið verð-
ur opnað kl. 20.30, en sýning hefst kl. 21. Almennt
miðaverð er 1.000 kr. Nánar á hugleikur.is.
Leiklist
Hugleikur sýnir
fimm verk
Fríða Bonnie
Andersen
HELGA Óskarsdóttir opnar
sýningu í Gallerí Dvergi,
Grundarstíg 21, frá kl. 19 til 21
í kvöld. Helga hefur fengist við
ýmiss konar landslag í mynd-
list sinni og dregið upp á yf-
irborðið fegurð falinna smáat-
riða í umhverfi mann-
eskjunnar. Þar má nefna
sprungur í veggjum og gamlar
tyggjóklessur. Í sýningarým-
inu Gallerí Dvergi sýnir Helga nýtt, staðbundið
verk. Á þessari sýningu nálgast hún viðfangsefni
sitt hinum megin frá. Í stað þess að stækka og
fara alveg upp að þeim til að sjá smáatriðin, þá
minnkar hún viðfangsefnið og horfir á það utan
frá. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Myndlist
Helga opnar í
Galleríi Dvergi
Helga Óskarsdóttir
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík verður
sett í kvöld. Næstu daga munu augu
listunnenda beinast að Hafnarhús-
inu en Tilraunamaraþonið sem þar
fer fram á föstudag og sunnudag er
einn hápunkta dagskrárinnar. Og
víst er listinn yfir þátttakendur
glæsilegur og
dagskráin for-
vitnileg; það má
spyrja hvað svo
ólíkt fólk sem
Brian Eno, Thor
Vilhjálmsson,
John Baldessari,
Þorsteinn I. Sig-
fússon, Dr. Ruth,
Rirkrit Tirav-
anija og Gabríela
Friðriksdóttir
hafa til málanna að leggja.
Tilraunamaraþonið er unnið í
samstarfi við Serpentine Gallery í
London. Hinn kunni sýningastjóri
þeirrar stofnunar, Hans Ulrich
Obrist, stýrir dagsskránni ásamt
Ólafi Elíassyni. Maraþonið stendur
til 17. ágúst en um nú helgina verð-
ur Hafnarhúsinu breytt í tilrauna-
stofu þar sem ýmsar tilraunir verða
framkvæmdar, gjörningar sviðsett-
ir, kvikmyndir sýndar og hver veit
hvað. Það kemur í ljós.
Sýningastjórinn Hans Ulrich
Obrist var önnum kafinn á skrifstof-
unni í London í gær, er hann ræddi
við blaðamann, en virtist þó vera
ágætlega að sér um hvernig gengi,
enda hefur fjöldi manna unnið langa
vinnudaga við undirbúninginn. En
hvað munu gestir upplifa?
„Gestir verða vitni að einhverju
sem snýst um tilraunir í opinberu
rými,“ segir Obrist. „Ég hef lengi
unnið að maraþonum. Viðtala-
maraþonum með arkitektinum Rem
Koolhaas og tilraunamaraþonum
með Ólafi Elíassyni. Með Koolhaas
þróaði ég maraþonin út frá sam-
tölum. Í fyrra var Ólafi boðið að
hanna Serpentine-skálann og um
leið buðum við honum að gera til-
lögu að dagskrá í stofnuninni. Hann
var hrifinn af maraþonhugmynd-
inni, en í stað þess að tala saman
vildi hann bjóða fólki að koma og
gera eitthvað, að vinna að til-
raunum. Við Ólafur höfum báðir
verið áhugasamir um tengsl mynd-
listar og vísinda, sérstaklega hvern-
ig myndlistarmenn og vísindamenn,
sem og arkitektar og vísindamenn,
geta unnið saman. Við vildum biðja
listamenn úr ýmsum geirum, arki-
tekta, tónskáld, rithöfunda og
myndlistarmenn, að gera tilraunir
opinberlega. Þess vegna buðum við
stórum hópi að gera tilraunir í
London í fyrra og nokkur þúsund
manns fylgdust með.
Hugmyndin var að skapa nýtt
maraþon sérstaklega fyrir Reykja-
vík, algjörlega nýtt verk, en einnig
að sýna útkomu tilraunamaraþons-
ins í London. Og á sama tíma að
sýna úr gögnum verkefnisins
„Laboratorium“ sem ég vann að
með Barbara Vanderlinden árið
1999. Þar var einnig tekist á við
hugmyndir um tilraunir í opinberu
rými.
Ótal óvæntir hlutir
Okkur þótt áhugavert að sýna
þessar fyrri tilraunir í safninu, og
einnig að bjóða sumum listamönn-
unum að vinna að innsetningum.
Uppfinningamaðurin Einar Þor-
steinn, sem vann með Ólafi í mörg
ár, skapar til dæmis lítinn skála inni
í safninu, þar sem verður haldið
áfram með hugmyndirnar úr skál-
anum í London. Svo verða margir
nýir spennandi hlutir.
Þessi uppákoma á Listahátíð í
Reykjavík hefur alla burði til að
verða áhugavert fyrirbæri. Þetta er
bæði sýning og röð af uppákomum.
Á föstudag og sunnudag fá gestir,
íslenskir sem erlendir, tækifæri til
að upplifa og taka þátt í öllum þess-
um tilraunum.
Og til að svara spurningunni
hverju fólk megi búast við, þá má
segja: ótal mörgum óvæntum hlut-
um! Þetta er allt annað en fyr-
irlestur eða kynning. Margt af þess-
um uppákomum krefst þátttöku
viðstaddra, og það á jafnt við samtal
Marinu Abramovic við Dr. Ruth og
vísindatilraunir.
Við getum einnig vænst þess að
upplifa ákveðin ferli, við munum sjá
eitt á föstudag, annað á sunnudag,
og ennþá eitthvað annað á meðan á
sýningunni stendur í sumar.“
– Sýningin heldur áfram eftir
helgi og byggist hún þá á innsetn-
ingum og gögnum úr maraþon-
unum?
„Já, og við setjum saman bók með
niðurstöðunum. Þetta verður allt
vandlega skrásett og bókin kemur
út eins fljótt og unnt er.“
Erró og Shneeman að nýju
– Er þessi uppákoma, þar sem þið
hrærið alls kyns hlutum saman, að-
ferð til að afbyggja viðteknar hug-
myndir um myndlist og hvernig eigi
að upplifa hana?
„Það eru margar leiðir til að upp-
lifa list. Hugmyndin um að sýn-
ingasalurinn sé kapella er fullgild,
eins og hugmyndin um hvíta rýmið,
og ég held að allir þessir möguleikar
séu í gildi. Okkur finnst hinsvegar
mikilvægt að þessir möguleikar séu
líka til og séu fullgildir. Svo margt í
listinni snýst um ferli, ekki bara um
hluti. Í samhengi Listahátíðar er
líka spennandi að sjá svo marga
spennandi listamenn koma saman í
Reykjavík, til að sýna verk sín og
skapa eitthvað sérstakt. Það gæti
orðið sögulegt! Listamenn, arkitekt-
ar, vísindamenn, skáld og rithöf-
undar koma alls staðar að úr heim-
inum. Ef þú vilt skilja myndlist í
samtímanum tel ég að það sé alltaf
mikilvægt að horfa einnig til ann-
arra listgreina og listinn yfir þátt-
takendur inniheldur vissulega mörg
óvænt nöfn. Frá Jonasi Mekas, sem
er merkur frumherji í bandarískri
kvikmyndagerð, að mjög ungum
listamönnum.
Við erum líka ánægðir með að
sýna óvænta hlið á verkum Errós. Í
Hafnarhúsi fer Erró venjulega með
afar stóra rullu, þarna er safnið
hans, og okkur Ólafi þótti áhugavert
að sýna hans verk því sérstaklega,
með því að sýna samband Errós við
vísindin. Í einum sal verða málverk
hans um vísindamenn og ljósmyndir
af samstarfi hans við Carolee
Schneeman, performans-listamann,
en Schneeman mun nú koma til
landsins og vinna að nýjum per-
formans. Við getum því sagt að
samtalið milli Errós og Schneeman
haldi áfram 30 árum eftir mikilvægt
verkefni þeirra í New York.
Fólk getur látið sig hlakka til
margra ólíkra hluta.“
Obrist hefur unnið að ýmsum
verkefnum hér á landi, meðal ann-
ars á Eiðum, og gefið út bækur með
viðtölum sem hann hefur tekið þar.
„Nokkur síðustu sumur hef ég
verið á Eiðum með Sigurjóni Sig-
hvatssyni og Ólafi Elíassyni. Það
verkefni hefur vaxið með hverju ári
og að því kemur einstakur hópur
listamanna og rithöfunda.
Ég hef hrifist af því hvað menn-
ingarsenan er lífleg á Íslandi. Þið
eigið alla þessa frábæru tónlist-
armenn, eins og Björk og Mugison,
og í bókmenntunum kynslóð eftir
kynslóð af frábærum skáldum og
rithöfundum. Ég hef lengi verið
aðdáandi íslenskra lista. Yngri lista-
menn taka þátt í maraþoninu en við
verðum líka með frumkvöðulinn
Thor Vilhjálmsson, sem tekur þátt í
tilraunum.“
Þetta gæti orðið sögulegt
Tilraunamaraþon með þátttöku fjölda lista- og vísindamanna verður í Hafnarhúsinu
Listahátíð í Reykjavík | Hátíðin sett í Listasafni Reykjavíkur í kvöld
Í HNOTSKURN
» Tilraunamaraþon, undirstjórn Listasafns Reykjavík-
ur og Serpentine Gallery, er einn
hápunkta Listahátíðar.
» Verkefninu er stýrt af HansUlrich Obrist, sýningarstjóra
Serpentine Gallery, og Ólafi
Elíassyni myndlistarmanni.
» Verkefninu er skipt í tvennt:maraþon þar sem hver at-
burðurinn rekur annan í Hafn-
arhúsinu á föstudag og sunnu-
dag, og fjölda innsetninga sem
standa í sumar.
» Að minnsta kosti fimm tugirlistamanna, úr hinum ýmsu
greinum, arkitekta og vísinda-
manna taka þátt í tilrauna-
maraþoninu.
List og vísindi Marina Abramovic, sem mun eiga samtal við bandaríska kynlífsfræðinginn Dr. Ruth á Tilrauna-
maraþoninu, tók þátt í sambærilegu maraþoni í Sepentine Gallery í London. Von er á fjölbreytilegum uppákomum.
Sýningarstjórinn
Hans Ulrich Obrist.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is