Morgunblaðið - 13.06.2008, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Já, ráðherrann var tekinn með, það var víst honum að þakka að við skulum ekki öll vera
orðin steindauð.
Í ágætu viðtali Þorgríms Þráins-sonar við Davíð Oddsson seðla-
bankastjóra í tímaritinu Heilbrigð-
ismálum koma fram áhugaverð
sjónarmið um starf stjórnmála-
mannsins.
Vandamál stjórnmálamanns er aðhann þarf að taka ákvarðanir
þegar hann hefur 20-30% af æski-
legum upplýs-
ingum til stað-
ar,“ segir Davíð.
„En svo getur
sagnfræðingur
gagnrýnt við-
komandi harð-
lega þegar hann
löngu síðar hef-
ur sjálfur 70-80%
upplýsinganna
fyrir framan sig. Ef stjórnmála-
maður ætlar ekkert að aðhafast
fyrr en hann hefur sama upplýs-
ingamagn og sagnfræðingur, verð-
ur honum ekki mikið úr verki.“
Það eru ekki bara sagnfræð-ingar, sem oft telja sig geta
setzt í sæti dómara yfir gjörðum
stjórnmálamanna. Mörgum hættir
til að fordæma ákvarðanir í fortíð-
inni, sem virðast í ljósi sögunnar
augljóslega rangar, án þess að
taka tillit til þess hvernig málið
horfði við þeim, sem þurftu að
taka ákvörðunina.
Sumir stjórnmálamenn bíða meðákvarðanir, segjast vilja skoða
hvernig málin þróast, endurmeta
stöðuna eftir svo og svo langan
tíma o.s.frv.
Yfirleitt eru það þó betri stjórn-málamenn sem þora að taka
ákvarðanir, jafnvel þótt þeir eigi á
hættu að þær verði síðar taldar
rangar. Ef menn taka margar
ákvarðanir, er líka líklegra að ein-
hverjar þeirra verði réttar en ef
menn taka engar! Þegar vantar
upp á upplýsingarnar, skiptir
innsæi og dómgreind öllu máli.
Slíkt hafði stjórnmálamaðurinn
Davíð Oddsson til að bera í ríkum
mæli.
STAKSTEINAR
Davíð Oddsson
Að vera vitur eftir á
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
!"
#$
%
! &
'!" !
(
)
*
!!!
!" *!
$$B *!
!" #
$
%&
<2
<! <2
<! <2
!$#
'( )
'*
+ ,-('.
D2E
B
+!
!&
! ! , ! !
!
!
!"
*
"
$
!!"
*
-!
..
! !
!
!"
" !!
*
!"
(
/
(
+
!
!" !! (
)/
)
*
!!
/0(( " 11
'( %" 2
-% )
'*
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FÓLK
GUNNAR Hilmar Gíslason lækn-
ir varði doktorsritgerð sína við heil-
brigðisvísindadeild Háskólanns í
Kaupmannahöfn
16. maí sl. Rit-
gerðin ber heitið
„Long-term
compliance with
pharmacother-
apy in patients
with acute myoc-
ardial infarction
and chronic heart
failure“. Leið-
beinandi Gunnars var Christian
Torp-Pedersen prófessor og and-
mælendur við vörnina voru Gorm
Jensen lektor (formaður dómnefnd-
ar – Kaupmannahöfn), Mogens Lyt-
ken Larsen prófessor (Óðinsvéum)
og Niklas Hammer dósent (Svíþjóð).
Gunnar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1986 og embættisprófi frá lækna-
deild Háskóla Íslands 1992. Eftir
kandidatsár á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri og störf sem heim-
ilislæknir á Egilsstöðum hefur
Gunnar verið við framhaldsnám í lyf-
lækningum og hjartasjúkdómum í
Danmörku frá 1997. Gunnar sinnir
samhliða klínískri vinnu áfram rann-
sóknum í samvinnu við aðra vísinda-
menn í Danmörku og erlendis.
Foreldrar Gunnars eru hjónin
Gróa Alexandersdóttir og Gísli
Hilmar Hansen vélfræðingur. Gunn-
ar er kvæntur Gyðu Traustadóttur
grafískum hönnuði.
Doktor í
læknisfræði
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Robert Olaf Rih-
ter, pólskan ríkisborgara, til fimm ára fangelsis-
vistar fyrir tilraun til manndráps. Í dóminum segir
að með athæfi sínu hefði Roberti átt að vera ljóst
að mannsbani gæti hlotist af. Í árásinni sem átti
sér stað á heimili Roberts sló hann fórnarlamb sitt
ítrekað með brotinni flösku, m.a. í höfuð og háls.
Maðurinn kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjaness
lítið muna eftir kvöldinu afdrifaríka. Hann mundi
þó eftir því að hafa séð flösku í hendi fórnarlambs
síns og því sjálfur tekið upp flösku. Mundi hann
einnig eftir að hafa slegið fórnarlambið með flösk-
unni, en hafi ekki gert sér grein fyrir því að það
gæti leitt til dauða. Maðurinn kvaðst einnig sjá
mikið eftir árásinni en hann hefði staðið í þeirri trú
að fórnarlambið ætlaði að gera honum mein.
Vitni báru á annan veg og sögðu fórnarlambið
ekki hafa verið vopnað. Kom einnig fram hjá þeim
að árásin hefði verið því sem næst tilefnislaus en
fórnarlambið ætlaði að hringja á lögreglu eftir að
Robert gekk berserksgang í sameiginlegu eldhúsi.
Í vottorði læknis sem lagt var fram við aðal-
meðferð kom fram að árásin hefði verið lífshættu-
leg og hending að ekki hlaust af bani. Hlaut fórn-
arlambið m.a. svöðusár á hálsi.
andri@mbl.is
Fórnarlambið slegið með flösku
Hæstiréttur dæmdi karlmann í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps
Í HNOTSKURN
»Aðfaranótt fimmtudagsins 8. nóvember2007 var kallað eftir lögregluaðstoð að
húsnæði þar sem nokkrir pólskir karlmenn
bjuggu.
»Fórnarlambið hafði misst mikið blóð ogvar með litla meðvitund þegar lög-
reglan kom. Fyrir dómi skýrði hann svo frá
að hann hefði misst heyrn á vinstra eyra.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
byggingu hjúkrunarheimilis fyrir
aldraða á Suðurlandsbraut 66 í
Reykjavík. Húsið á að vera tilbúið
í febrúar 2010 og mun bæta úr
brýnni þörf. Fyrirtækið Jáverk
ehf. átti lægsta tilboð þeirra fjór-
tán sem buðu í framkvæmdina.
Tilboð Jáverks ehf. var 8,6 pró-
sentum undir kostnaðaráætlun og
hljóðaði upp á tæpar 1.563 millj-
ónir króna en kostnaðaráætlun
var 1.710 milljónir. Hjúkr-
unarheimilið verður fjórar hæðir
auk kjallara. Öll rými hússins
verða aðgengileg fyrir hreyfihaml-
aða. Verkkaupi er félags- og
tryggingamálaráðuneytið og fram-
kvæmda- og eignasvið Reykjavík-
urborgar. Umsjón með fram-
kvæmdum hefur Framkvæmda-
sýsla ríkisins.
sisi@mbl.is
Tölvumynd/YRKI-arkitektar
Nýbygging Húsið rís hjá þjónustuíbúðum aldraðra við Suðurlandsbraut.
Hjúkrunarheimili með
110 rýmum rís brátt
Í HNOTSKURN
»Í nýja heimilinu verða 110hjúkrunarrými.
»Heimilið verður 7.687 fer-metrar að stærð.
»Ríkið greiðir 70% af kostn-aði og borgin 30%.