Morgunblaðið - 13.06.2008, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
DADIRAI Chipiro, 45 ára eiginkona eins af forystu-
mönnum stjórnarandstöðunnar í Simbabve, er á meðal
nær 70 manna sem hafa beðið bana í árásum stuðnings-
manna Roberts Mugabes forseta frá fyrri umferð for-
setakosninga 29. mars.
Vopnaðir menn tóku hús á Chipiro í leit að eiginmanni
hennar, forystumanni Lýðræðishreyfingarinnar (MDC) í
Mhondoro-héraði. Þegar hún sagði þeim að hann væri
ekki heima hjuggu þeir af henni aðra höndina og báða
fæturna. Þeir köstuðu henni síðan inn í húsið, læstu dyr-
unum og fleygðu bensínsprengju inn um gluggann.
Sama dag lést eiginkona annars af forystumönnum
stjórnarandstöðunnar, borgarfulltrúa í Harare, af bruna-
sárum eftir að vopnaður hópur kveikti í húsi hennar. Sex
ára sonur þeirra varð eldinum að bráð.
Þetta eru aðeins tvö dæmi um grimmilegar árásir
vopnaðra hópa stuðningsmanna Mugabes forseta sem
hefur lýst yfir stríði á hendur Lýðræðishreyfingunni fyr-
ir síðari umferð forsetakosninganna 27. þessa mánaðar.
Þúsundir manna hafa sætt barsmíðum og pyntingum,
þeirra á meðal nokkrir af helstu ráðgjöfum Morgans
Tsvangirais, forsetaefnis Lýðræðishreyfingarinnar. Ör-
yggissveitir og vopnaðir hópar stuðningsmanna Muga-
bes hafa beitt ýmsum aðferðum til að tryggja honum sig-
ur í kosningunum. Ein þeirra felst í því að kveikt er í
húsum stuðningsmanna Lýðræðishreyfingarinnar til að
hrekja þá á flótta og koma í veg fyrir að þeir geti kosið.
Hermt er að 25.000 manns hafi misst heimili sín í árás-
unum.
Þá hefur stjórn Simbabve meinað hjálparsamtökum að
starfa á svæðum þar sem Lýðræðishreyfingin nýtur mik-
ils stuðnings. Hundruð þúsunda Simbabvemanna, sem
þurfa á matvælaaðstoð að halda, fá því enga hjálp.
Konur leiðtoganna
brenndar lifandi
Stuðningsmenn Mugabes hafa orðið nær 70 manns að bana
Breska ríkisútvarpið,
BBC, kveðst hafa undir
höndum skjöl sem bendi
til þess að yfirmenn
hers Simbabve stjórni
kosningabaráttu Rob-
erts Mugabes forseta.
Þar komi m.a. fram að
öryggissveitir beiti of-
beldi skipulega til að
tryggja að hann nái
endurkjöri.
Í einu skjalanna er því
lýst hvernig matvæla-
skortinum í landinu er
beitt sem pólitísku
vopni með því að sjá að-
eins verslunum stuðn-
ingsmanna Mugabes
fyrir matvælum.
Sulti beitt sem pólitísku vopni
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ERLENDIR ríkisborgarar, sem eru í Guantanamo-
fangabúðum Bandaríkjamanna á Kúbu vegna gruns um
aðild þeirra að hryðjuverkum, geta skotið máli sínu til
borgaralegra dómstóla í Bandaríkjunum, að sögn hæsta-
réttar í Washington í gær. „Lögunum og stjórnarskránni
var ætlað að lifa af og vera áfram í gildi á sérstökum tím-
um,“ sagði Anthony M. Kennedy dómari þegar hann las
upp dóminn.
Föngunum hefur flestum verið haldið í herbúðunum
„um óákveðinn tíma“ eins og ráðamenn hafa orðað það,
sumum í allt að sex ár, án þess að lögð hafi verið fram
ákæra á hendur þeim. Kennedy, sem mælti fyrir munn
meirihlutans, sagði að stjórnvöld gætu ekki leyft sér að
taka stjórnarskrána úr sambandi þegar henni þóknaðist,
þá myndi framkvæmdavaldið á endanum ákveða hvaða
lög giltu í landinu, ekki dómstólar.
Er þetta í þriðja sinn sem hæstiréttur úrskurðar gegn
kröfu stjórnvalda í Washington um að rétta skuli í mál-
um Guantanamo-fanganna fyrir herrétti vegna þess að
þeir séu andstæðingar í „stríðinu gegn hryðjuverkum“.
Ekki var eining meðal dómaranna, fimm studdu úr-
skurðinn en fjórir, sem oft er lýst sem íhaldsmönnum,
voru á móti. Einn úr minnihlutanum, Antonin Scalia,
sagði að Bandaríkjamenn ættu í stríði við róttæka ísl-
amista og úrskurðurinn myndi „vafalítið valda því að
fleiri Bandaríkjamenn láti lífið. Þjóðin mun eiga eftir að
iðrast þess sem dómurinn hefur gert í dag.“
Guantanamo-fangar geta leit-
að til borgaralegra dómstóla
Reuters
Fá sinn rétt Nokkrir fangar í bandarísku Guantanamo-
búðunum á Kúbu, klæddir rauðum samfestingum, á bið-
svæði við öryggisgirðingu um búðirnar.
HÁKARLAR hafa verið veiddir í Miðjarðarhafinu allt frá tímum Rómverja
en aukin veiði m.a. vegna mikillar eftirspurnar eftir hákarlauggum ógnar
nú tilvist þeirra. Jafnframt þykir sýnt að hákarlar flækist í meira mæli í
nýjum tegundum veiðarfæra ætluðum til veiða á tún- og sverðfiski. Þetta
sýnir ný rannsókn á vegum Lenfest Ocean Program sem kom út í vikunni.
Fimm af tuttugu hákarlategundum hefur fækkað um 97% og sýnt er fram
á að Miðjarðarhafið hafi glatað miklum fjölbreytileika meðal ránfiska.
Meðalstærð hákarla veiddra á svæðinu er sú minnsta í heimi en það tekur
hákarlana eitt ár að verða kynþroska auk þess sem þeir eignast fá af-
kvæmi. jmv@mbl.is
Hákörlum fækkar um 97%
!"
"
!
"#$%&"
'( %
"#%&
%& #$%&'(&' ) *+,&'+&'#&*
#)#%
*# %
( %
+, %
!"#$%&
'()*)+,-$)
.#/)01,23,)
!!45)63%#)7
8$
99,0()8()*)
.#7,-$)582%%
&)482
:1%82
4#5)4$82
;))"%82
3<0)<)82
)4*78()*)=*"##0$8(2$) *(8(2$) .8(2$)
!"
# !
<238()*"#$%&,"8#)<23%%$99*6,3%#)$
2)($%&%#"%#%$"3$)-*&$+-*$)%),6%8*$2**,*"#2$%>
7 ?
7 @
7AA
$%&'
-""
.
7B!
7AA
7A
$%%'
7AC
7AA
7AA
7AA
$%%'
7BC
7DB
7AA
7AA
$%%'
7A
()**+
E)45)63%#)8$(8"3,4,$
"#%(,1%)4&6)0-
.#$##+"%2*3,"3%%3#
(4<$423,%">
'()*)%("3
;%F).,2;))"%)#)
()#*3).#"3#%,2(23>
'.)"##0"*&$)F4<
,.2%)F"3))")$0-#
3<3)2;)3).2"3<3>
C45)63%#)7
8$
G!"#$%&
GYANENDRA
verður að sætta
sig við að vera
ekki lengur
konungur Nep-
als. Ný stjórn
maóista lagði
240 ára gamalt
konungdæmið
niður fyrir
tveimur vikum
og hefur konunginum nú verið
gert að flytja úr höllinni. Herra
Shah, eins og hann heitir nú, var
síðasti konungurinn í elsta hindú-
akonungdæmi veraldar. Sem
fyrrverandi konungur þarf Shah
þó varla að óttast örbirgð, þrátt
fyrir bág kjör samlanda hans, því
talið er að hann hafi fjárfest fyrir
sem nemur um 15 milljörðum ísl.
króna í fyrirtækjum í Nepal og
jafnframt komið umtalsverðum
fjármunum undan. „Enginn veit
hversu mikla fjármuni hann á í
útlöndum og það er engin leið að
komast að því,“ segir Surya
Thapa, blaðamaður sem hefur
skrifað þrjár bækur um konungs-
fjölskylduna, „konungurinn hefur
falið fjárfestingar sínar mjög
vel.“
Konungshöllinni verður nú
breytt í safn og hefur Shah gefið
í skyn að hann muni skilja eftir
stærstan hluta húsgagna auk
gjafa sem hann tók á móti sem
fulltrúi ríkisins. Hann ætlar að
búa áfram í Nepal en yfirvöld
hafa ráðlagt honum að halda sig
frá stjórnmálum. jmv@mbl.is
Ekki lengur
konungur
Gyanendra Shah
INUKA er átján ára ísbjörn sem
hefst við í dýragarðinum í Singapúr.
Hann er fyrsti og eini ísbjörninn
sem fæðst hefur í hitabeltislandi.
Ákveðið hefur verið að Inuka verði
áfram í Singapúr en í fyrra stóð til
að flytja hann á kaldari slóðir. Dýra-
verndunarsinnar hafa krafist þess
að aðstaða hans verði bætt.
AP
Ísbjörn í hitabeltinu
ÍSRAELSKUM vísindamönnum hef-
ur tekist að fá um 2000 ára gamalt
döðlupálmafræ sem fannst í rústum
af sumarhöll Heródesar konungs við
Masada-hæðina til að spíra.
Elsta fræ sem áður hefur tekist að
láta spíra var af 1300 ára gömlu lót-
usblómi sem fannst í helgu búdd-
istavatni í Kína. Döðlupálminn ísr-
aelski, sem nefndur hefur verið
Metúsalem-tréð, er nú um 1,5 metr-
ar að hæð, að sögn The Guardian.
Fræinu var plantað fyrir þremur ár-
um eftir að það hafði verið vætt í
áburði með hormónum. kjon@mbl.is
Döðlupálmi
Heródesar?
STJÓRNVÖLD á Kúbu hyggjast
falla frá lögbundnum launajöfnuði
og heimila kaupauka til að umb-
una fólki fyrir vel unnin störf.
Carlos Mateu, aðstoðaratvinnu-
málaráðherra Kúbu, segir að
launakerfið, sem tekið var upp í
byltingunni árið 1959, sé ekki
lengur „hentugt“. Það hvetji ekki
starfsmennina til að standa sig vel
í starfi þar sem allir fái sömu
laun, óháð frammistöðu.
Mateu segir í málgagni stjórn-
arinnar að starfsmenn eigi að fá
a.m.k. 5% kaupauka fyrir að ná
settum markmiðum og engin
ákvæði verði um hámarkslaun.
Stjórnendur geti fengið allt að
30% kaupauka ef framleiðsla und-
irmanna þeirra aukist. bogi@mbl.is
Fallið frá
launajöfnuði