Morgunblaðið - 13.06.2008, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008 25
NÝLEGA kom út
skýrsla ásamt tillögum
starfshóps sem hefur
undanfarin misseri
fjallað um skattlagn-
ingu bifreiða og elds-
neytis. Markmið vinn-
unnar hefur verið að
hvetja til notkunar
ökutækja sem menga lítið. Losun
gróðurhúsalofttegunda frá sam-
göngum er afar mikil hér á landi og
því ekki seinna vænna að fara að
auka hlutdeild ökutækja sem menga
lítið eða jafnvel ekkert og draga þá
um leið úr fjölda hinna, sem eru
eldsneytishákar og spúa mikilli
mengun út í andrúmsloftið.
Það kostar að menga
Tillögur starfshópsins ganga út á
að ríkið verðleggi fyrst og fremst
losun gróðurhúsalofttegunda en
ekki þyngd ökutækja eins og nú er.
Þannig yrði bifreiðagjöldum og
vörugjöldum breytt og einnig komið
á sérstökum kolefnisskatti. Við það
er miðað að heildartekjur ríkissjóðs
af ökutækjum og notkun þeirra
verði óbreytt en ljóst að svona
breytingar þýða talsverðan tilflutn-
ing á gjöldum, af sparneytnum vist-
hæfum bílum yfir á eyðslufreka bíla.
Þessi meginstefna er að sjálfsögðu
mjög jákvæð og löngu tímabær.
Vissulega er fjölmörgum spurn-
ingum ósvarað, eins og t.d. hvort
þyngd ökutækja (óháð orkugjafa)
eigi ekki drjúgan þátt í að slíta göt-
um og vegum og þannig valda svif-
ryki sem er önnur gerð mengunar,
en það er þáttur sem nauðsynlegt er
að skoða í framhaldinu.
Í umræðunni nú hafa ýmsir bent á
að tímasetning tillagna
starfshópsins sé
óheppileg þegar verð á
jarðefnaeldsneyti (olíu
og bensíni) er jafn hátt
og raun ber vitni. Ég
er ósammála þessu
viðhorfi. Það er
kannski einmitt á þess-
um tímum sem við
verðum að taka áskor-
uninni, horfa fram á
veg og til langrar
framtíðar og leita allra
leiða til að mæta hinu
háa orkuverði með öðrum og nýjum
orkugjöfum í samgöngum. Það hlýt-
ur að vera eftirsóknarvert að geta í
auknum mæli notað innlenda orku-
gjafa í stað innflutts jarðefnaelds-
neytis, það er bæði umhverfisleg og
efnahagsleg nauðsyn. Ef við notum
ekki tækifærið nú, þegar kvartað er
undan háu orkuverði, er afar ólík-
legt að það gangi vel að koma á
breytingum þegar betur árar og
fæstir láta hátt orkuverð aftra sér
frá að nota bensínhákana ótæpilega.
Flestir eru þeirrar skoðunar að hið
háa eldsneytisverð sé komið til að
vera um allnokkra framtíð og það er
af þeim sökum brýnt að grípa nú til
ráðstafana til að breyta samsetningu
bílaflota landsmanna, bæði til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda og um leið draga úr kostnaði
heimila og fyrirtækja við rekstur
bifreiða.
Stórefla þarf almennings-
samgöngur
Á sama tíma á ríkisvaldið að sjálf-
sögðu að leggja sitt af mörkum til að
stórefla almenningssamgöngur,
einkum í þéttbýli þar sem mengunin
er tiltölulega mest. Hluti af tekjum
ríkissjóðs af almennri umferð og bif-
reiðaeign á að sjálfsögðu að fara í að
byggja upp traustar og öflugar al-
menningssamgöngur, þær eru jú
mikilvægur hlekkur í samgöngu-
kerfinu öllu og gildi þeirra mun að-
eins aukast á komandi árum. Bæði
hlutur almenningssamgangna og
jöfnun flutningskostnaðar um landið
eru til skoðunar hjá stjórnvöldum og
eiga að vera hluti af þessum pakka
um skattlagningu ökutækja og elds-
neytis, til að tryggja að breyting-
arnar komi ekki verr við lands-
byggðina en suðvesturhornið. Á það
er síst bætandi.
Það er í sjálfu sér skiljanlegt að
margir vilji velja einföldustu leiðina í
þeirri stöðu sem við erum nú, þ.e. að
lækka opinber gjöld af innfluttu
eldsneyti. Sú leið er líka auðveldust
fyrir stjórnmálamenn og jafnvel lík-
leg til að afla þeim tímabundinna
vinsælda. Hún horfir hins vegar ekki
til framtíðar og hagsmuna komandi
kynslóða. Það þarf að vinda bráðan
bug að því að flytja gjöld ríkisins af
sparneytnum og visthæfum bílum
yfir á þá sem menga mikið og eyða
miklu eldsneyti. Til lengri tíma litið
mun ekki einungis umhverfið heldur
heimilin í landinu njóta góðs af
breyttri og nútímalegri samsetningu
bílaflota landsmanna og stórefldum
almenningssamgöngum. Til þess að
svo megi verða þarf hins vegar póli-
tískt þrek og framtíðarsýn.
Breytum í þágu umhverfisins
Árni Þór Sigurðsson
skrifar um skatt-
lagningu
bifreiða og elds-
neytis
»Einmitt á þessum
tímum eigum við að
taka áskoruninni, horfa
fram á veg og leita allra
leiða til að mæta háu
orkuverði með nýjum
orkugjöfum
í samgöngum.
Höfundur er þingmaður VG og situr
í umhverfis- og samgöngunefndum
Alþingis.
Árni Þór Sigurðsson
REYNSLA mín
sem fararstjóri með
hópa Íslendinga er-
lendis sl. 30 ár hefur
kennt mér að það get-
ur komið sér mjög vel
fyrir fólk, sem á við
sjúkdóm að stríða, að hafa með sér
skriflegar upplýsingar um heilsufar
sitt. Grein þessi er skrifuð í því
skyni að hvetja almenning, lækna,
ferðaskrifstofur og fararstjóra til að
hugleiða þetta mál. Að sjálfsögðu
snertir þetta mál fyrst og fremst
hagsmuni þeirra einstaklinga sem
eiga á hættu að sjúkdómur þeirra
taki sig upp á ferðalögum þeirra er-
lendis. Þess vegna vil ég sérstaklega
koma ábendingu minni á framfæri
við þá. Þeir þurfa að hafa frum-
kvæði að því að afla sér þessara
upplýsinga hjá læknum sínum og
sjá til þess að þær séu skilmerki-
legar og á þeirri tungu sem flestir
skilja, það er ensku. Um er að ræða
læknisfræðilegar upplýsingar sem
nauðsynlegt er að hafa áður en með-
höndlun hefst á sjúklingi sem er
ófær um að miðla slíkum upplýs-
ingum sjálfur, hvort sem það er
vegna meðvitundarleysis eða skorts
á málakunnáttu. Upplýsingarnar
þyrftu að ná yfir þekkt ofnæmi,
sjúkdómsgreiningu (andlega sem
líkamlega), lyfjatöku, blóðflokk, svo
og önnur atriði sem mikilvægt er að
taka fram, til dæmis hvort um blæð-
ara sé að ræða, lifrarbólgusmit,
HIV-smit, nafn, netfang og síma-
númer læknis á Íslandi og kannski
eitthvað fleira.
Ef til vill væri gagnlegt að hanna
tölvutækt eyðublað fyr-
ir þessar upplýsingar,
sem væri aðgengilegt
fyrir heimilislækna,
heilsugæslustöðvar og
aðra sérfræðinga.
Landlæknisembættið
eða Tryggingastofnun
gætu haft frumkvæði
að því að hanna svona
eyðublað. Kynning á
því gæti síðan verið
með þeim hætti að
Landlæknisembættið
léti þess getið í Læknablaðinu,
Tryggingastofnun mundi láta útbúa
smá bækling, sem mætti m.a. senda
Félagi eldri borgara, til heilsu-
gæslustöðva, í lyfjaverslanir, til
ferðaskrifstofa o.fl. Ferðaskrifstofur
myndu óska eftir því við farþega
sína að þeir verði sér úti um þessar
upplýsingar um leið og þær minntu
á evrópska sjúkratryggingakortið
hjá Tryggingastofnun. Fararstjórar
gætu hugsanlega beðið sam-
ferðafólk sitt um að afhenda sér
þessar upplýsingar í upphafi ferðar,
í lokuðu umslagi og yrði það ekki
opnað nema nauðsyn krefði, en af-
hentist síðan farþeganum í lok ferð-
ar. Nú, eða að farþegar beri þetta
umslag ætíð á sér.
Í framtíðinni mætti hugsa sér að
þessar upplýsingar yrðu skráðar á
kort sem Tryggingastofnun gefur út
á ýmsum tungumálum. Nýju sjúkra-
samlagslögin, ef þau verða sam-
þykkt, ættu að auðvelda framgang
þessara mála, en þar til er nauðsyn-
legt að hefjast handa sem fyrst.
En málið varðar ekki aðeins ein-
staklingana sem eru í þessum
áhættuhópi, heldur líka lækna.
Ábyrgð sjúklingsins: Vissulega er
ábyrgð sjúklingsins mikil og ætti að
vera augljóst að það er honum nauð-
synlegt að hafa slíkar upplýsingar
með sér á ferðalögum.
Ábyrgð læknisins: Margvíslegar
ástæður geta verið fyrir því að sjúk-
lingar eru ekki alltaf færir um að
bera fulla ábyrgð á sjúkdómi sínum,
hvort sem um er að ræða líkamlega
eða andlega sjúkdóma. Sumir jafn-
vel skammast sín fyrir veikleikann,
menn forðast að valda öðrum óþæg-
indum, sumir eru í afneitun, aðrir
eru hræddir við smáa letrið hjá
tryggingafélögunum. „Það kemur
ekkert fyrir mig, bara aðra“ er oft
viðkvæðið. Stundum eru sjúklingar
ekki nógu vel upplýstir um eigin
sjúkdóm og þar fram eftir götunum.
Á þessu sést að læknar geta ill-
mögulega verið stikkfrí í þessu máli
og ættu í sumum tilfellum að hafa
frumkvæði að því að sjúklingur hafi
ofantalin gögn með sér þegar lagt er
upp í ferðalag.
Ábyrgð fararstjóra: Ferðaskrif-
stofur og fararstjórar ættu að
hvetja farþega, sem eiga við einhver
veikindi að stríða, að útvega sér slík
gögn eins og kemur fram í erindinu.
Það er ekki ólíklegt að heilsufars-
upplýsingar sem þessar gætu bjarg-
að mannslífum eða stóraukið lífs-
gæði þeirra sem þurfa óvænt að
leita sér lækninga erlendis og um
leið verndað starfsmenn sjúkrahús-
anna sem þurfa að taka brýnar
ákvarðanir um meðferð.
Heilsufarsupplýsingar
ferðamanna
Friðrik G. Frið-
riksson skrifar um
gildi þess að upplýs-
ingar um heilsufar
ferðamanna séu
aðgengilegar
Friðrik G. Friðriksson
» Það er ekki ólíklegt
að heilsufarsupplýs-
ingar sem þessar gætu
bjargað mannslífum eða
stóraukið lífsgæði
þeirra sem þurfa óvænt
að leita sér lækninga
Höfundur er fararstjóri
hjá Úrval Útsýn.
6. útdráttur 12. júní 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 6 3 4 1
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur
3 9 1 5 9 4 2 0 3 3 4 4 8 1 8 6 0 0 8 0
Vi n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1642 27007 31890 55352 58748 69202
3622 30335 35554 56394 62863 69382
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
2 3 0 9 7 9 1 2 1 2 0 2 3 1 3 4 9 4 2 2 6 5 5 2 3 6 1 5 9 4 4 8 6 8 5 9 5
1 6 6 6 1 2 3 9 5 2 1 3 5 1 3 1 8 5 3 4 2 4 4 1 5 2 6 7 5 6 0 2 1 6 6 9 0 3 9
3 6 2 4 1 2 7 7 8 2 1 4 8 2 3 1 8 6 9 4 2 4 6 8 5 3 8 7 5 6 1 9 6 4 6 9 8 7 4
4 0 3 6 1 3 8 4 5 2 2 5 8 1 3 2 4 4 1 4 2 6 0 6 5 4 1 0 8 6 2 0 0 5 7 0 2 6 9
4 1 7 3 1 4 9 9 3 2 4 0 6 2 3 3 3 0 1 4 3 0 7 1 5 4 7 1 2 6 2 9 9 7 7 3 0 0 9
4 5 9 2 1 6 1 6 5 2 4 5 2 2 3 3 3 1 5 4 3 2 3 9 5 4 8 2 3 6 3 0 5 9 7 4 2 1 5
5 9 4 0 1 6 2 5 7 2 4 8 9 5 3 3 7 3 0 4 3 7 5 3 5 4 8 6 6 6 3 9 9 6 7 4 8 6 4
6 9 3 0 1 6 9 3 9 2 6 4 9 0 3 6 9 2 1 4 5 6 7 3 5 5 9 8 1 6 4 4 8 0 7 7 9 3 5
7 6 4 6 1 8 1 1 5 2 6 6 2 9 3 7 4 6 0 4 7 5 2 9 5 6 0 9 5 6 4 5 9 6 7 9 9 1 8
7 9 7 1 1 9 1 9 7 2 8 7 4 6 3 7 5 1 0 4 9 9 9 7 5 6 5 7 6 6 5 1 7 0
8 0 0 8 2 0 0 9 5 2 8 7 6 1 3 8 7 1 2 5 0 6 1 0 5 7 9 5 7 6 6 7 9 3
8 2 0 5 2 0 1 0 2 2 9 7 2 4 3 9 3 7 5 5 1 9 7 7 5 8 0 9 2 6 7 3 5 1
8 2 7 4 2 0 2 6 8 2 9 9 5 6 4 0 8 2 7 5 2 1 1 5 5 8 8 3 9 6 8 1 1 1
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
44 8046 16349 23556 31588 39651 45997 53708 61549 67134 73517
141 8078 16458 23580 31984 39683 46024 53776 61646 67151 73920
179 8111 16634 23659 32117 39754 46073 54030 61767 67242 74196
259 8143 16652 23720 32171 39909 46238 54036 61834 67343 74218
270 8645 16691 23826 32256 39910 46382 54050 61842 67713 74378
296 8674 16739 23956 32626 39969 46519 54092 62133 67728 74382
460 9259 16932 24080 32914 39980 46542 54113 62138 67748 74405
521 9315 17261 24105 32973 40241 46736 54189 62298 67757 74652
631 9363 17337 24118 33077 40243 46768 54230 62341 67971 74688
685 9516 17385 24202 33095 40251 46837 54329 62355 68046 74706
717 9652 17440 24206 33177 40264 46900 54333 62590 68166 74825
746 9701 17551 24569 33261 40438 46922 54349 62743 68237 74928
774 9890 17657 24692 33321 40537 46928 54486 62756 68246 75055
814 9954 17692 24717 33445 40541 46939 54585 62783 68314 75065
1000 10230 17867 24726 33799 40564 46950 54797 62852 68335 75158
1042 10368 18070 24742 33823 40565 46961 54831 62864 68353 75160
1411 10466 18157 25020 33831 40678 46970 54839 62902 68468 75330
1461 10490 18184 25049 34007 40718 46972 54999 63102 68499 75382
1593 10527 18433 25083 34042 41037 46979 55172 63169 68564 75418
1637 10567 18672 25176 34176 41063 47345 55344 63180 68704 75473
1653 10761 18703 25213 34177 41114 47403 55398 63295 68728 75512
1674 10803 18723 25289 34194 41212 47540 55541 63351 68768 75636
1733 11003 18734 25306 34411 41379 48020 55591 63500 68779 75724
1806 11029 18745 25547 34439 41411 48134 55742 63677 68787 75847
1940 11042 18762 25617 34562 41508 48340 55751 63696 68796 75888
2188 11073 18816 26095 34662 41560 48362 55798 63705 68839 75977
2225 11187 18824 26122 34756 41567 48415 55849 63708 68941 76018
2317 11346 18896 26260 34799 41873 48440 55897 63716 69207 76033
2406 11352 18900 26548 34873 41882 48582 55985 63771 69324 76103
2540 11403 18940 26586 35004 42027 48810 56102 63856 69326 76173
2579 11433 18976 26595 35029 42053 49093 56496 63892 69402 76203
2588 11593 19052 26812 35114 42060 49414 56547 63917 69502 76225
2592 11613 19114 26842 35374 42231 49691 56960 63967 69682 76274
2668 11899 19277 26871 35439 42272 49716 57081 63971 69695 76506
2753 11915 19300 27192 35488 42386 49735 57295 63990 69698 76508
3049 11929 19314 27200 35531 42457 49804 57312 64026 69894 76742
3073 12085 19366 27292 35567 42459 49945 57408 64202 69993 76845
3104 12140 19390 27338 35717 42573 50032 57434 64226 70010 76993
3149 12149 19409 27365 35774 42622 50101 57466 64336 70089 77278
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
3219 12197 19413 27515 35808 42645 50147 57605 64411 70190 77291
3569 12323 19897 27554 35845 42811 50160 57736 64509 70261 77429
3765 12476 19998 27587 36065 42850 50244 57748 64533 70344 77480
3793 12622 20013 27687 36374 42853 50383 57792 64543 70354 77595
3964 12660 20053 27876 36424 42930 50471 57804 64548 70402 77630
4538 12771 20073 27963 36502 43097 50506 57970 64748 70480 77755
4697 12781 20309 28089 36504 43323 50507 58148 64774 70507 77768
4797 12792 20382 28262 36734 43416 50564 58515 64869 70614 77854
4924 12999 20409 28295 36789 43481 50657 58560 65004 70730 77874
4992 13089 20453 28298 36832 43577 50690 58564 65126 70807 78145
4993 13165 20463 28441 36872 43609 50742 58615 65264 70830 78162
5147 13196 20467 28491 37034 43638 50773 58743 65272 70999 78192
5154 13208 20614 28533 37060 43887 50818 58932 65282 71015 78205
5330 13470 20746 28566 37077 43944 50828 58971 65339 71061 78300
5331 13667 20936 28660 37176 44016 50904 59012 65439 71078 78315
5431 13832 20944 29037 37200 44063 50948 59189 65486 71114 78435
5453 13933 21108 29083 37227 44476 50987 59504 65512 71345 78436
5562 13975 21292 29286 37253 44488 51012 59603 65528 71364 78463
5738 14006 21298 29375 37404 44517 51015 59723 65660 71489 78589
5830 14300 21313 29449 37446 44528 51035 59843 65701 71557 78668
5959 14308 21343 29477 37473 44600 51068 60278 65795 71584 78806
5970 14407 21731 29483 37501 44602 51087 60337 65987 71905 78979
5972 14421 21893 29615 37528 44690 51099 60368 66110 72019 79152
6150 14713 22323 29648 37651 44692 51347 60402 66184 72098 79167
6254 14845 22436 29893 37787 44772 51403 60470 66186 72130 79182
6292 14955 22444 29941 37867 44832 51463 60525 66191 72211 79396
6339 14980 22740 30004 37937 44840 51468 60607 66235 72220 79445
6618 15299 22771 30098 38026 44886 51553 60678 66336 72279 79512
6718 15318 22789 30113 38289 44935 51657 60726 66417 72328 79553
6794 15457 22813 30127 38335 45192 52045 60860 66436 72657 79946
6848 15567 22845 30450 38371 45221 52489 60886 66526 72671 79970
6976 15620 22866 30521 38463 45243 52709 60998 66639 72837
7153 15641 22886 30734 38621 45346 52876 61017 66662 72844
7299 16003 23160 30741 38854 45359 53009 61129 66693 72871
7316 16095 23204 30870 38855 45395 53071 61275 66839 72900
7362 16111 23224 31050 38873 45463 53129 61340 66847 72953
7768 16178 23304 31070 39183 45583 53494 61360 66912 73212
7838 16250 23449 31088 39363 45776 53555 61362 67035 73220
7956 16251 23495 31198 39458 45835 53690 61446 67133 73390
Næstu útdrættir fara fram 19. júní & 26. júní 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.is