Morgunblaðið - 15.06.2008, Side 16
16 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
A
ndstæðingar og öfund-
armenn segja hann
njóta þess að baða sig
í Kennedy-ljómanum
goðsagnakennda, en
stuðningsmenn eru hæstánægðir
með sinn mann og stjórnkænsku
hans. Sú ákvörðun Baracks Oba-
mas, forsetaframbjóðanda demó-
krata í Bandaríkjunum, að skipa
Caroline Kennedy í pólitíska lyk-
ilstöðu í kosningabaráttunni, hefur
líka verið gagnrýnd fyrir að ganga
þvert á loforð frambjóðandans um
uppgjör við fortíðina.
Ímyndunaraflið má þó vera
býsna fjörugt til að sjá Caroline
Kennedy sem holdgerving fortíð-
ardrauga. Þvert á móti virðist hún
dæmigerð nútímakona til fyrir-
myndar í alla staði, vel menntuð
og máli farin, gift og þriggja barna
móðir, lögfræðingur, rithöfundur
og ritstjóri, sem síðustu fimm árin
hefur að hluta til helgað ríkisrekn-
um skólum New York starfskrafta
sína. Ekki sakar að hún er afar
glæsileg eins og hún á kyn til.
Þessi rúmlega fimmtuga dóttir
Johns F. Kennedys, fyrrverandi
forseta Bandaríkjanna (1961-1963),
og konu hans Jacqueline hefur
hingað til lítt gefið sig að stjórn-
málum, eða ekki síðan hún studdi
föðurbróður sinn, Edward Ken-
nedy, öldungadeildarþingmann frá
Massachusetts, þegar hann gaf
kost á sér í forsetakosningunum
1980 – og tapaði. Þrátt fyrir
reynsluleysið fékk Obama henni
það verkefni að leiða leitina að
frambærilegum varaforseta til að
tefla fram í kosningabaráttunni,
sem nú fer í hönd.
Þekkt fyrir að vilja
vera óþekkt
Þótt Caroline Kennedy sé þekkt
fyrir að vilja vera óþekkt og hún
hafi gert sér far um að halda sér
og einkalífi sínu frá sviðsljósinu er
grunnt á að henni sé núið ættern-
inu um nasir. Hægrisinnaður
pistlahöfundur líkti ráðningu
hennar í lið Obamas sem „glugga-
útstillingu“ af hans hálfu og kallaði
hana „Camelot“-erfingja og póli-
tískan viðvaning. Þess má geta að
jafnan er skírskotað til bæði kast-
ala og hirðar Artúrs konungs sem
Camelot og þar vestra er orðið oft
notað um dýrðarljóma Kennedy-
ættarinnar og þann andblæ sem
ríkti í forsetatíð Johns F. Kenne-
dys.
Annar pistlahöfundur gekk
lengra, kallað hana fábjána og
réðst á Obama fyrir að taka
stjörnuskinið fram yfir innihaldið.
Aðrir gera svo grín að því sem
þeir kalla niðurlægjandi tilburði
Obamas til að spyrða sjálfan sig
við JFK og Kennedy-goðsögnina.
„Draumaparið“ í
Hvíta húsinu?
En svo eru margir himinlifandi
yfir ráðningunni, segja mikinn
feng að Caroline Kennedy í barátt-
unni og fagna síðbúnum áhuga
hennar á stjórnmálum. Sumir hafa
meira að segja viðrað þá hugmynd,
bæði í gamni og alvöru, að sjálf
væri hún besti kosturinn sem
varaforseti við hlið Obamas. All-
tént fóru áhugasamir mikinn í net-
heimum þegar blaðamaður á The
Huffington Post-vefnum lýsti þeim
saman sem „draumaframbjóðend-
um“ í Hvíta húsið 2008.
Þar til í janúar síðastliðnum
höfðu flestir Kennedyarnir þó ver-
ið álitnir hallir undir Hillary Clin-
ton og því vakti mikla athygli þeg-
ar Caroline, og um svipað leyti
Edward Kennedy, lýstu yfir stuðn-
ingi við Obama. Yfirlýsingarnar
þóttu auka mjög hróður forseta-
frambjóðandans og stuðningsmenn
litu ítök Edwards í öflugu fjáröfl-
unar- og tengslaneti um öll Banda-
ríkin hýru auga. Clinton-sinnaðir
demókratar sátu eftir með sárt
ennið og voru margir hverjir stór-
hneykslaðir.
„Forseti eins og faðir minn“ var
yfirskrift greinar, sem Caroline
Kennedy skrifaði í The New York
Times 27. apríl til stuðnings Bar-
ack Obama. „Ég hef aldrei átt for-
Með Kennedy-
prinsessu í hirðinni
© Bob Daemmrich/Corbis
Kosningafundur Caroline Kennedy Schlossberg á kosningafundi í Austin, Texar, rétt eftir að hún lýsti yfir stuðningi sínum við forsetaframboð demókratans Baracks Obama.
Caroline Kennedy leitar frambærilegs varaforsetaefnis fyrir Barack Obama Sumir hafa
viðrað þá skoðun að sjálf væri hún kjörin í embættið Keppinautarnir líta liðsaukann hornauga
Reuters
Systkinin Caroline og John F. Kennedy yngri við verðlaunaafhendingu „Prof-
ile in Courage“ í Boston árið 1997, John fórst í flugslysi tveimur árum síðar.
Í HNOTSKURN
»Caroline Bouvier Kennedyfæddist 27. nóvember 1957
í New York.
» Hún er eina eftirlifandibarn foreldra sinna, sem
báðir eru látnir. Eldri systir,
Arabella, lést stuttu eftir fæð-
ingu 1956, John dó í flugslysi
1999, aðeins 39 ára, og Patrick
lést tveimur dögum eftir fæð-
ingu 1963.
»Hún er annar tveggja höf-unda tveggja bóka um
borgaralegt frelsi.
»Sjálf hefur hún ritstýrtfjórum bókum á met-
sölulista New York Times og
er höfundur The Family
Christmas, safns ljóða, prósa
og persónulegra minn-
ispunkta úr sögu fjölskyldu
sinnar.
Stjórnmál
Dans Carolina, 5 ára, og John yngri, 2ja ára, dansa fyrir föður sinn.