Morgunblaðið - 15.06.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 17
seta sem hefur veitt mér innblást-
ur á þann hátt sem fólk segir mér
að faðir minn hafi veitt sér inn-
blástur,“ skrifaði hún og að nú
fyndist henni hún hafa fundið
mann sem gæti orðið sá forseti.
„Ekki aðeins fyrir mig heldur fyrir
nýja kynslóð Bandaríkjamanna,“
sagði hún ennfremur.
Eftir að Edward Kennedy
greindist með heilaæxli í síðasta
mánuði er hald manna að Caroline
finnist sér renna blóðið til skyld-
unnar á vettvangi stjórnmálanna.
Hljóðlát og hlédræg
Bandaríkjamenn og raunar fólk
hvarvetna í heiminum minnist
hennar enn sem litlu, fallegu hnát-
unnar, sem stundum lék sér við
fótskör forsetans föður síns í Hvíta
húsinu og átti hestinn Macaroni.
Sem dóttir einna dáðustu og valda-
mestu hjóna heims, sem í þokka-
bót voru einkar glæsileg bæði tvö
og hálfgerð tískuíkon á sjöunda
áratugnum, benti fátt til annars en
að lífið yrði Caroline leikur einn.
En annað varð upp á teningnum.
Mörgum eru enn í fersku minni
myndir af henni, aðeins fimm ára
gamalli, við hlið móður sinnar og
litla bróður, Johns, í útför föður
þeirra, sem hafði verið ráðinn af
dögum 22. nóvember 1963.
Eftir þann voðaatburð fluttist
Jacqueline með börnin til New
York þar sem fjölskyldan mátti sig
vart hræra án þess að hafa ljós-
myndara í eftirdragi. Engu að síð-
ur var Caroline nokkuð lunkin að
sniðganga þá. Hljóðlát og hlédræg
nam hún lögfræði við Harvard- og
Columbia-háskólana, árið 1986
giftist hún hönnuðinum Ed
Schlossberg, stofnanda og for-
stjóra ESI design, sem er tólf ár-
um eldri en hún, og eignaðist
börnin þrjú 1988, 1990 og 1993 án
þess að fjölmiðlar blésu í herlúðra.
Konan á bak við tjöldin
Kennedy-ættin hefur margreynt
á eigin skinni að gæfa og gjörvi-
leiki fara ekki ætíð saman, ekki
síst Caroline, sem missti móður
sína 1994 úr krabbameini og bróð-
ur sinn og mágkonu í hörmulegu
flugslysi 1999. Caroline Kennedy
hefur unnið sér margt til ágætis,
t.d. er hún einn stofnenda The
Profiles in Courage-verðlaunanna,
sem svo nefnast eftir samnefndri
bók föður hennar og þýða mætti
sem Birtingarmyndir hugrekkis,
en fyrir hana fékk forsetinn Pulit-
zer-verðlaunin 1957. Einnig er hún
forstjóri og heiðursstjórnarfor-
maður ýmissa uppbyggilegra
stofnana og ráðgjafi við stjórn-
málastofnun í Harvard, sem rekin
er í minningu Johns F. Kennedys,
og er iðulega fulltrúi fjölskyldu
sinnar við jarðarfarir þjóðhöfð-
ingja.
Þeir sem gerst þekkja Caroline
Kennedy segja hana fluggreinda
konu sem ekki tali af sér. Þótt hún
hafi ekki tekið beinan þátt í pólitík
segja þeir hana reynda á því sviði,
enda alla sína ævi unnið með
stjórnmálamönnum og þannig með
áhrif „bak við tjöldin“.
Í herbúðum Obamas þykir þag-
mælska mikil dyggð hjá þeim, sem
meta hæfni keppinautanna um
varaforsetaembættið, því nauðsyn-
legt sé að spyrja þá ýmissa óþægi-
legra spurninga.
Margir repúblikanar eru samt
ekki í vafa um að Caroline Ken-
nedy hefði ekki komið til álita í
starfið héti hún Caroline Schloss-
berg. Hvort hún kemur raunveru-
lega til álita sem varaforseti er svo
önnur saga, en á það skal bent að
George W. Bush valdi Dick Che-
ney til að leiða liðið sem kannaði
kandídata til embættisins 2002 –
og allir vita hvernig fór um sjóferð
þá.
Reuters
Vensl og vinátta Caroline og frændi hennar Edward Kennedy þegar hann
kom af spítalanum, þar sem hann var greindur með illkynja heilaæxli. Hann
gekkst síðar undir uppskurð, sem sagður er hafa tekist vel.
» Pólitíkin erum við sjálf ísamfélaginu […] Ef við erum
ekki þrýstihópur fyrir börnin
okkar, þá er það enginn.
Þorsteinn Sæberg , skólastjóri Árbæj-
arskóla, fjallaði við skólaslit um hægvirka
heilbrigðisþjónustu við geðfötluð börn.
» Næst á dagskrá er bara aðanda.
Bubbi Morthens, sem gifti sig um liðna
helgi, átti afmæli, fagnaði útgáfu nýrrar
plötu, hélt tónleika og fékk fimm stjörnur
í Morgunblaðinu.
» Það er bara þannig að hanner réttdræpur, þótt ljótt sé
að segja það.
Erling Ólafsson skordýrafræðingur um
hinn alræmda spánarsnigil, sem hefur
gert sig heimakominn á Íslandi.
» Það skiptir máli að veraduglegur og hafa rétt hug-
arfar.
Höskuldur Pétur Halldórsson útskrif-
aðist í stærðfræði frá HÍ með 10 í einkunn
í svo til öllum fögum.
»Við höfum verið að gera grínað því að við séum að renna
blint í sjóinn með þetta.
Bergvin Oddsson, meðlimur í Ungblind,
sem stendur fyrir „blindu kaffihúsi“ í
sumar.
»Eftir á að hyggja hefði veriðskynsamlegt að orða hlutina
öðruvísi.
George W. Bush um óvarfærnislegt orða-
far sitt fyrir Íraksstríðið.
» Svarthöfði reyndi ekkert aðfara inn, en ég held hann
hefði ekkert viljað það, því þá
hefði hann þurft að taka ofan.
Steinunn A. Björnsdóttir, fjölmiðla-
fulltrúi prestastefnu, um uppákomu á
prestastefnu í síðustu viku.
»Maður er ekki bara að þessufyrir þann sem maður heim-
sækir, heldur einnig fyrir sjálfan
sig.
Bergdís Kristjánsdóttir er sjálfboðaliði í
heimsóknarvinaþjónustu Rauða krossins.
» Það er einkennilegt að ekkisé búið að ræða þetta.
Bloggarinn Sædís Ósk Harðardóttir.
Landsbókasafn hefur undanfarin fjögur
ár safnað rafrænu efni, meðal annars af
blog.is.
»Okkur brá heldur en ekki íbrún.
Helga Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Al-
þjóðahúss. Starfsmenn Reykjavík-
urborgar voru í óðaönn að mála yfir lista-
verk á einni hlið hússins þegar starfsfólk
mætti til vinnu á þriðjudagsmorgun.
» Íslenska þjóðkirkjan varlengst af frekar litafátæk og
aðeins einn litur notaður fyrir
allt árið, sá vínrauði.
Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Nes-
kirkju, gerði tillögu um að kirkjuárið
verði litgreint upp á nýtt.
» [ . . . ] því meira vesen og ruglþeim mun betra fyrir mig.
Donnu Shalala, fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra Bandaríkjanna, leið vel í emb-
ættinu af því hún kann vel við flókin mál-
efni.
Ummæli vikunnar
Reuters
Prúðbúinn Fjaðurmagnaður aðdáandi hollenska landsliðsins hvetur sitt lið
gegn Frökkum í C-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu .
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir
unnið glæsilegt Weber-grill eða vandað
grillsett. Kauptu dós af sýrðum rjóma frá
MS, farðu á www.ms.is, sláðu inn
lukkunúmerið sem er í lokinu
og þú færð strax að
vita hvort þú
hefur unnið.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
0
2
0