Morgunblaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og jarðarfarar
HELGU BJÖRNSDÓTTUR
fyrrum húsfreyju
á Desjamýri,
Borgarfirði eystra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Egilsstöðum fyrir frábæra umönnun og
umhyggju í veikindum hennar.
Börn, tengdabörn og barnabörn hinnar látnu.
✝
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BENEDIKTS EYFJÖRÐ SIGURÐSSONAR
flugvirkja,
Lækjasmára 72,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heima-
aðhlynningar og starfsfólki líknardeildar
Landspítala Kópavogi.
Auður Lella Eiríksdóttir,
Sigrún K. Eyfjörð Benediktsdóttir, Guðni Freyr Sigurðsson,
Eiríkur Eyfjörð Benediktsson, Jórunn Ósk Ólafsdóttir,
Þorsteinn Eyfjörð Benediktsson, Ásta Sóley Sölvadóttir,
Guðjón Þór Jónsson,
Auður Ösp Jónsdóttir, Gunnþór Jens,
Heiða Ármannsdóttir, Halldór Frank,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum fyrir góða umönnun móður okkar,
ÁSU ÁRSÆLSDÓTTUR,
hjúkrunarfólkinu Landspítalanum Fossvogi, deild 4,
Landakoti, deild K2 og Sóltúni, deild B3.
Með bestu kveðju.
Sverrir Hauksson,
Egill Hauksson,
Edda Hauksdóttir,
Herbert Hauksson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður, fósturföður, sonar, tengdaföður og
bróður,
JÓNASAR PÉTURS ERLINGSSONAR,
Brekkubyggð 42,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á krabba-
meinsdeild 11E, Landspítala, einnig starfsfólki
heimahlynningar Kópavogi og öllum tryggu
vinunum. Guð blessi ykkur öll.
Edda Jóna Jónasdóttir,
Ásta Dögg Jónasdóttir, Sigurlaug Mjöll Jónasdóttir,
Hjálmar Örn Elísson Hinz,
Ásta Tryggvadóttir, Erlingur Hallsson,
Þórður Örn Arnarson,
Einar Erlingsson og fjölskylda,
Guðrún Erlingsdóttir og fjölskylda,
Tryggvi Erlingsson og fjölskylda,
Erlingur Erlingsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SVANHVÍT SIGURÐARDÓTTIR,
lést laugardaginn 31. maí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför hennar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða
umönnun og hlýju.
Egill Svanur Egilsson, Maggý Guðmundsdóttir,
Sturla Egilsson, Hildur Erlingsdóttir,
Egill Steinar Sturluson,
Erling Orri Sturluson,
Eiður Darri Sturluson.
✝
Kæru vinir, vandamenn, nágrannar og vinnufélagar.
Við þökkum ykkur innilega auðsýnda samúð og
hlýju í okkar garð við andlát og útför okkar
yndislegu
INGVELDAR HAFDÍSAR AÐALSTEINSDÓTTUR
framhaldsskólakennara,
sem lést þriðjudaginn 20. maí.
Sérstakar þakkir sendum við læknum og hjúkrunarfólki
á krabbameinslækningadeild, bráðamóttöku og heimahlynningu
Landspítalans.
Guð blessi ykkur öll.
Óskar Jónsson,
Guðbjörg Óskarsdóttir, Jakob Már Ásmundsson,
Styrmir Óskarsson, Anna Kristrún Gunnarsdóttir,
Halla Þórlaug Óskarsdóttir,
barnabörn.
Guðríður Guðlaugsdóttir,
Aðalsteinn Kristjánsson, Anna Hjartardóttir,
Guðbjörg Pálsdóttir.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna fráfalls
EIRÍKS SIGFÚSSONAR,
Sóltúni 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sóltúns og lungnadeilda Landspítala, A-6 Fossvogi
og Landakots.
Jens Ingi Magnússon, Anna Hannesdóttir,
Kristbjörn Margeir Eiríksson, Aldís Óskarsdóttir,
Sigfús Eiríksson, Hanna Garðarsdóttir,
Finnur Eyjólfur Eiríksson, Gunnhildur Hrólfsdóttir,
Halla Matthildur Eiríksdóttir, Fróði I. Jónsson,
Sigríður Una Eiríksdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURÐUR ÞÓR GARÐARSSON,
Hólabraut 14,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 16. júní kl. 13.10.
Blóm og kransar vinsamlega afbeðin en þeim sem
vildu minnast hans er bent á ,,Hauka í horni”,
bankareikningur 1101-26-484 kt. 670281-0279.
Grétar M. Garðarsson, Soffía G. Karlsdóttir,
Kristinn G. Garðarsson, María K. Sigurðardóttir,
Særún Garðarsdóttir, Magnús Jóhannsson
og fjölskyldur.
✝ Sveinn ÞrösturÞormóðsson
fæddist í Reykjavík
16. september 1977.
Hann lést á Land-
spítalanum 1. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans eru Þor-
móður Sveinsson, f.
12.7. 1951 og Anna
Guðjónsdóttir, f.
20.5. 1952. Bróðir
Sveins Þrastar er
Guðjón Örn, f. 12.12.
1974, kvæntur Önnu
Tormodsson, f.
29.10. 1973. Synir þeirra eru Mar-
cus Örn, f. 13.11. 2003 og Erik
Örn, f. 20.10. 2005.
Fyrstu æviárin bjó Sveinn Þröst-
ur í Reykjavík og á
Raufarhöfn, en flutti
ásamt foreldrum
sínum og bróður til
Svíþjóðar 1985. Eftir
grunnskólanám og
nám við mennta-
skóla stundaði hann
nám við Lýðháskól-
ann í Kungälv áður
en hann flutti alfar-
inn til Íslands.
Síðustu fjögur ár-
in bjó Sveinn að
mestu leyti á endur-
hæfingardeild geð-
sviðs Landspítalans, Laugarási við
Laugarásveg í Reykjavík.
Útför Sveins Þrastar fór fram í
kyrrþey 10. júní.
Elsku hjartans drengurinn okkar!
Sorg okkar og söknuður er mikill,
en um leið trúum við því að baráttu
þinni við erfiða sjúkdóma sé lokið og
þú sért umvafinn kærleika og friði og
veitir það okkur huggun.
Þú gafst okkur svo margt sem við
geymum í hjörtum okkar og minn-
ingin um fallega brosið þitt mun ylja
okkur á erfiðum stundum.
Í sólhvítu ljósi
hinna síðhærðu daga
býr svipur þinn.
Eins og tálblátt regn
sé ég tár þín falla
yfir trega minn.
Og fjarlægð þín sefur
í faðmi mínum
í fyrsta sinn.
(Steinn Steinarr)
Við kveðjum þig að þessu sinni
elsku Sveinn með þeim orðum sem
þú lést oft falla, þegar umræðan
barst að guðstrú: „Guð er kærleik-
ur.“
Mamma og pabbi.
Það var sem kaldur gustur færi
um laufskrúð trjánna þegar okkur
barst til eyrna fregnin af fráfalli
Sveins Þrastar.
Sú sól sem vinur okkar geymdi
innra með sér brá nú skugga sínum á
þá sól sem öllu lífi viðheldur.
Eitt augnablik rann það upp fyrir
okkur sem þekktum Svein Þröst að
lífið er dýpra en daginn dreymir.
Feikilegan áhuga hafði Sveinn
Þröstur á andlegum málefnum og
fundu allir sem við hann ræddu um
þau málefni að þar fór skarpur og
djúpur hugur sem ekki lét segja sér
hvað sem var heldur lagði sitt sjálf-
stæða og gagnrýna mat á allt sem
hann las og heyrði. Hann Sveinn gat
ekki sem hugsandi maður goldið já-
yrði við þeirri yfirborðslegu efnis-
hyggju sem nú tröllríður heimi nú-
tímans, en þó var ekkert fjær honum
en að fallast á einhverjar kennisetn-
ingar aðeins vegna þess að þeim
væri haldið fram af viðurkenndum
andlegum lærimeisturum.
Annað skemmtilegt einkenni
Sveins Þrastar var hin mikla og
dásamlega kímnigáfa hans. Að geta
haft oftar en ekki einhver gamanmál
á vörum er ómetanleg gjöf fyrir alla
hlutaðeigandi, því það er efalítið
staðreynd að án blessunar skop-
skynsins væri lífið í okkar flóknu
veröld óbærilegt.
En því miður nægði húmorinn
ekki né nokkuð annað til að gera
Sveini Þresti lífið bærilegt, og því fór
sem fór.
Við kveðjum góðan og mikinn vin
og félaga, hrygg og sorgmædd yfir
því að hann skuli vera farinn frá okk-
ur, en jafnframt glöð og þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast viturri,
hjartahlýrri og yndislegri mannveru.
Daggarperlur glitra
og minna á bjarta drauma bernsku
þegar hugsun var frjáls
Það er dögun
Það er ský
Sólstafir sálar skína ei meir
Söngur þrastanna er hljóðlátur
Það er kyrrð
Von sem var flaug á braut
Nóttin vakir enn
en um stund vakir hún hljóð
Hugsanir vakna
Minnst er í þögn með þakklæti
Sérhver angan er auður
Almættið leiðir
(Magnús Ólafsson.)
Megi Guð geyma Svein Þröst.
F.h. heimilismanna og starfsfólks
á Laugarásvegi og Reynimel,
Magnús Ólafsson.
Sveinn Þröstur
Þormóðsson
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar