Morgunblaðið - 15.06.2008, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er sunnudagur 15. júní, 167. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: En hjálparinn, andinn
heilagi, sem faðirinn mun senda í
mínu nafni, mun kenna yður allt og
minna yður á allt það, sem ég hef sagt
yður. (Jóh. 14, 25.)
Víkverji er óhræddur við að gangaút af leiksýningum í hléi sé hon-
um ekki skemmt. Víkverji átti jafnvel
von á að sú yrði raunin á sýningunni
Ástin er diskó – lífið er pönk, sem
Þjóðleikhúsið sýnir þessa dagana.
Dómar gagnrýnenda um sýninguna
höfðu nefnilega verið á þann veg að
engin ástæða virtist fyrir Víkverja að
fyllast bjartsýni. Sýningin hófst og
Víkverja var skemmt strax á upp-
hafsmínútum. Lítið dró úr kæti hans
eftir því sem á sýninguna leið. Í hléi
hvarflaði ekki að Víkverja að ganga
út því hann hafði ekki skemmt sér
jafn vel í leikhúsi í langan tíma.
Eftir þessa skemmtilegu leik-
hússtund varð Víkverji mjög hugsi
yfir þeim skilaboðum sem leiklistar-
gagnrýnendur sendu með dómum
sínum. Getur verið að þeir taki lífið of
alvarlega? Finnst þeim að það megi
ekki vera gaman í leikhúsi? Eru þeir
fúllyndir að eðlisfari?
Víkverji varð þess rækilega var á
sýningunni að gestir skemmtu sér
konunglega. Meðal gesta voru börn,
fullorðnir og eldri borgarar. Sýningin
virðist því höfða til allra aldurshópa.
x x x
Víkverji botnar ekkert í því fólkisem vælir svo að segja enda-
laust yfir EM og því að kvöldfréttir
sjónvarps séu ekki lengur á sama
tíma og áður. Það er rjómablíða á
landinu. Af hverju er þetta fólk ekki
úti í garði að grilla á kvöldin þegar
leikir fara fram? Knattspyrnuaðdá-
endur búa við þá áþján að þurfa að
húka inni og horfa á fótboltaleiki frá
klukkan 16-20. Þeir eru að missa af
sól og hluta af sumrinu. Þeim finnst
það reyndar þess virði því þeir gera
sér mætavel grein fyrir því að knatt-
spyrnan er göfug íþrótt.
Nöldrararnir ættu að láta eftir sér
að horfa á eins og einn leik með
Portúgölum. Ef þeir hrífast ekki af
Ronaldo þá geta þeir ekki hrifist af
neinu. Og þá lifa þeir að sönnu aumu
lífi. Víkverji horfir á EM dag hvern
og Ronaldo er hans lið.
vikverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hvetja, 4 sí-
valnings, 7 guð, 8 rör,
9 fæði, 11 skrifa,
13 vendi, 14 undrast,
15 ári, 17 gagnsær,
20 málmur, 22 hakan,
23 ósætti, 24 valdi tjóni,
25 hjarar.
Lóðrétt | 1 stendur við,
2 skrölt, 3 tóma, 4 hörfi,
5 vesöldin, 6 harma,
10 nam, 12 skyldmenni,
13 duft, 15 rými, 16 mat-
búa, 18 heitir, 19 tölur,
20 á höfði, 21 vítt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tækifærið, 8 kolin, 9 launa, 10 aka, 11 lagað,
13 rænir, 15 hross,18 sagan, 21 kát, 22 síðla, 23 afurð,
24 hroðalegt.
Lóðrétt: 2 ærleg, 3 iðnað, 4 ætlar, 5 Iðunn, 6 skál,
7 maur, 12 als, 14 æpa, 15 hæsi, 16 orður, 17 skarð,
18 stall, 19 grugg, 20 næði.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Bb4
5. cxd5 exd5 6. Bg5 h6 7. Bh4 c6 8.
Dc2 g5 9. Bg3 Re4 10. Rd2 Rxg3 11.
hxg3 Rd7 12. e3 Rf6 13. Bd3 De7 14.
a3 Bd6 15. O–O–O Be6 16. e4 dxe4 17.
Rdxe4 Rd5 18. Rxd5 Bxd5 19. Rxd6+
Dxd6 20. Hhe1+ Kd7 21. Be4 Hae8
22. Bxd5 Dxd5 23. He5 Da2 24. Df5+
Kc7 25. d5 Kb6 26. dxc6 bxc6 27. Hd4
a5
Staðan kom upp á Pivdennybanka
atskákmótinu sem lauk fyrir skömmu
í Odessa í Úkraínu. Rússinn Pavel
Tregubov (2629) hafði hvítt gegn
heimamanninum Ruslan Ponomarjov
(2719). 28. Hb5+! Ka6 svartur hefði
einnig orðið mát eftir 28… cxb5 29.
Hd6+. 29. Hxa5+ Kb6 30. Dc5+ og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Enginn grís.
Norður
♠D32
♥9875
♦D843
♣K2
Vestur Austur
♠G1065 ♠K84
♥G1043 ♥D62
♦G6 ♦10752
♣D43 ♣765
Suður
♠Á97
♥ÁK
♦ÁK9
♣ÁG1098
Suður spilar 6G.
Meckstorth og Rodwell þykja sagndj-
arfir spilarar, en þeir létu slemmuna að
ofan framhjá sér fara í einvígisleik Nic-
kells og Strul. Eftir nokkrar þreifingar
stönsuðu þeir í 4G og voru sáttir við þá
ákvörðun, því þrátt fyrir hagstætt útspil
náði Rodwell bara ellefu slögum. Út-
spilið var smár spaði og Rodwell fékk
ódýran slag á níuna heima. En hann gaf
á ♣D og spaðaslag í lokin.
David Berkowitz, liðsmaður Strul,
fékk sama hagstæða útspil gegn 6G á
hinu borðinu. Eins og Rodwell lét hann
lítið úr borði og fékk fyrsta slaginn á
♠9. Nú þurfi Berkowitz bara að finna
♣D og það gerði hann eins og að drekka
vatn: spilaði strax gosanum og lét hann
fara. Grís? Ekki aldeilis. Sá sem kemur
út undan ♠G10xx gegn slemmu hlýtur
að eiga í alvarlegum erfiðleikum með
útspil.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Himintunglin leggja til að hrútur-
inn halli sér aftur og fylgist með. Hug-
myndir þurfa sína gerjun. Nýtt fólk og
nýjar skoðanir koma inn í myndina.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú veltir því fyrir þér hvort einhver
hafi verið að ljúga. Ákveddu hvað þú vilt
raunverulega vita áður en þú byrjar að
spyrja spurninga. Saga með óvenjulegri
framvindu nær athygli nautsins.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sumir hlutir eru sannir af því að
maður gerir þá sanna. Maður getur gert
þá ósanna með sama hætti. Félagsskapur
af öllu tagi lyftir þér upp.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ímyndaðu þér efnaðri útgáfuna af
sjálfum þér. Aristóteles Onassis sagði að ef
maður vill verða ríkur er gott að búa þar
sem þeir ríku búa, þótt það sé á háaloftinu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ljónið hefur fengið stóran skammt á
diskinn sinn í dag, en er nógu hungrað til
þess að klára. Gefðu þér tíma, þetta er
engin keppni. Eftirrétturinn skilar sér í
kvöld.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert forstjórinn í þínu lífi. Hvers
vegna læðist þá að þér sá grunur að þú
hafir fest þig einhvers staðar á millistjórn-
endastiginu? Hugsaðu stærra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Eru mannleg mistök ekki gremjuleg?
Reyndu að nota þau sem tækifæri til að
beita þinni frægu samúð. Það sem þú gerir
djúpstæð áhrif á aðra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Himintunglin vilja hjálpa þér
að vaxa. Hvað samkeppnina áhrærir er
bara best að láta sem hún sé ekki til (sem
er rétt, hún er bara skynvilla).
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Staðfesta þín og einbeitni eru
aðdáunarverð. En misstu ekki sjónar á
léttleikanum. Kurteisishjal hefur þann til-
gang að laða fram samkennd og traust.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Steingeitin er ekki bara fær
heldur líka glæsileg. Þú sannar það án
þess að kaupa ný föt eða fylgihluti. Enda
er það fremur spurning um viðhorf en
kaupæði.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Sólarvörn? Gleymdu því. Þú
þarft frekar á streituvörn að halda til þess
að verjast skaðlegum geislum spennu-
ástandsins.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Himintunglin gefa í skyn að þú njót-
ir heppni – hafir jafnvel tekið við keflinu af
einhverjum öðrum og komið fyrstur í
mark. En það er trúin sem færir þér sigur.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
15. júní 1829
Dómur féll í Hæstarétti í
Kambsránsmálinu. Sjö menn
voru dæmdir til hýðingar
(mest 81 högg) og einn þeirra
auk þess til að „erfiða ævi-
langt í rasphúsi,“ eins og segir
í Annál nítjándu aldar.
15. júní 1926
Kristján tíundi Danakonungur
og Alexandrína drottning
lögðu hornstein að Landspít-
alabyggingunni sem konur
beittu sér fyrir í tilefni af
kosningarétti sínum. Spítalinn
var tekinn í notkun fjórum ár-
um síðar.
15. júní 1947
Millilandaflugvél, sú fyrsta
sem Íslendingar eignuðust,
kom til landsins. Hún var
nefnd Hekla, var af Skymaster
gerð og í eigu Loftleiða hf.
Tveimur dögum síðar fór hún
í fyrstu ferðina til Kaup-
mannahafnar. Flugið tók sjö
klukkustundir og fargjaldið
var 850 krónur (samsvaraði
sjö ára áskrift að Morgun-
blaðinu).
15. júní 1981
Garðar Cortes óperusöngvari
hlaut Bjartsýnisverðlaun
Bröstes þegar þau voru veitt í
fyrsta sinn. Nítján sinnum
voru verðlaunin veitt íslensk-
um listamanni sem hefur
bjartsýni að leiðarljósi í list-
sköpun sinni.
15. júní 2001
Um sex þúsund manns hlýddu
á tónleika þýsku þungarokks-
sveitarinnar Rammstein í
Laugardalshöll. „100%
skemmtanalist,“ sagði gagn-
rýnandi Morgunblaðsins. Tón-
leikarnir voru sagðir mjög
myndrænir, sviðið oft í björtu
báli og flugeldar og spreng-
ingar út um allt.
Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá…
SVEITARFÉLAGIÐ Garður fagnar 100 ára
afmæli sínu í dag. Af því tilefni hefst hátíðar-
dagskrá í íþróttamiðstöðinni í Garði klukkan 14 í
dag en tekið var forskot á sæluna í gær með opn-
un ýmislegra sýninga víðs vegar um bæinn. Einn-
ig verður listaverkið Skynjun eftir Ragnhildi
Stefánsdóttur afhjúpað klukkan 11 í dag í Garði
en það mun vera táknrænt fyrir allar þær konur
sem um aldir hafa horft til hafs og beðið eig-
inmanna og sona. Þá hefur sveitarfélagið haldið
upp á afmælisárið með sérstökum viðburði í
hverjum mánuði og mun sú þróun halda áfram út
árið.
Garður er staðsettur á nyrsta odda Reykjaness, á innanverðu Mið-
nesi og á land að Reykjanesi og Sandgerði. Garðurinn dregur nafn
sitt af fornum varnargarði sem liggur frá Útskálum að Kirkjubóli í
Sandgerði. Talið er að bændur hafi hlaðið garðinn til þess að verja
akra sína fyrir ágangi sauðfjár en kornyrkja var algeng á Reykja-
nesi á landnámsöld.
Mikil uppbygging á sér stað í Garði og íbúar eru um 1500 talsins.
Oddný Guðbjörg Harðardóttir bæjarstjóri segir nóg um að vera í
Garði í dag og hún muni sjálf beina kröftum sínum að því að ávarpa
samkomur og kynna hina ýmsu viðburði. „Svo ætlum við bara að
trúa því að veðrið verði jafngott og undanfarna daga.“ haa@mbl.is
Sveitarfélagið Garður 100 ára
Hátíðardagskrá og sýningar
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is