Morgunblaðið - 15.06.2008, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 53
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
ÞÚ ERT HVORKI BÚINN AÐ
SKILA INN SKÝRSLU FYRIR
LÍKAMSÁRÁSINA Í HAFNARFIRÐI NÉ
FYRIR RÁNIÐ Í BREIÐHOLTI
ÉG ER AÐ REYNA
AÐ FINNA
TENGINGU
MILLI ÞESSARA
TVEGGJA MÁLA
FINNA
TENGINGU?
JÁ, SVO ÉG ÞURFI
EKKI AÐ SKILA INN
TVEIMUR SKÝRSLUM
AUMINGJA
YORICK...
PETE SAMPRAS- LEIKARI
HANN ÆTLAR AÐ NÁ FELLU,
HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR
JÆJA, B
USKA... Þ
Á ER KOM
INN TÍM
I
TIL AÐ E
RFÐABRE
YTA ÞESS
U GRÆNM
ETI
INN ÚT UPP NIÐUR & ALLT UM KRING
BARN
UM
BORÐ
GELLA
UM
BORÐ
ÉG SÉ EINN... LOKKAÐU
HANN TIL OKKAR
HÆ,
SÆTI!
Velvakandi
LEIKSKÓLAKRAKKAR frá Hraunborg og eldri borgarar í Gerðubergi
skemmtu sér saman á dögunum í Breiðholtinu, þar sem meðal annars var
spilað á harmonikku, farið í kollhnísa og gróðursett tré í skínandi góðu
veðri.
Morgunblaðið/RAX
Með bros á vör
Blaðaokur
MÉR er spurn. Hverjir
nutu góðs af lækkun
virðisauka á blöðum og
tímaritum? Örugglega
ekki neytendur.
Fyrir viku fór ég í
Hagkaup í Skeifunni og
keypti eintak af slúð-
urblaðinu National En-
quirer. Ég verð að vísu
að játa að ég áttaði mig
ekki á því fyrr en heim
var komið hvers konar
rán var hér um að ræða
því ég var að kaupa
fleiri hluti.
Þetta örþunna tíma-
rit kostaði hvorki meira né minna en
760 krónur. Verð í dollurum er prent-
að á forsíðuna; 3.49 US $.
Ef ég margfalda það með 77 krón-
um fæ ég út 269 sem gerir 491 króna í
álagningu!
Einnig langar mig til að vita hvað
fólki finnst um verð á geisladiskum.
Þeir hafa sannarlega ekki lækkað
þrátt fyrir lækkaðan virðisauka.
Ég hafði orð á þessu eitt sinn þegar
ég var stödd í einni af verslunum
Skífunnar. Ekki stóð á svarinu:
Hækkun frá birgjum!
Og úr því ég er byrjuð langar mig
einnig til að skora á fólk að hætta al-
gjörlega að kaupa klettakál og annað
okurkál í pokum. Við eigum ekki að
láta valta svona yfir okkur. Þetta nær
engri átt, að hægt sé að bjóða okkur
slíkt verðlag. 5.000 krónur kílóið af
káli sem vex eins og arfi!
Að endingu langar mig til að þakka
Morgunblaðinu kærlega fyrir dálkinn
Auratal.
Auður Þorgeirsdóttir
Næla tapaðist
FYRIR um þremur mánuðum tap-
aðist barmnæla í formi blóms, þrír
ljósbrúnir minkahnoðrar með perlu í
miðju. Hún hefur líklega tapast á
Austurvelli eða á svæðinu þar í kring.
Þetta hefur mikið tilfinningalegt gildi
fyrir mig, og bið ég finnanda vinsam-
legast að láta Sólveigu vita í síma 662-
4742.
Hringur fannst
ÉG fann hring fyrir utan félagsheim-
ilið Garðaholt 21. maí, upplýsingar
gefur Sólveig, s. 662-
4742.
Fyrirspurn
FYRIR rúmu ári var
stofnað félag sem átti
að vera svona stuðn-
ingshópur fyrir krakka
sem höfðu eða voru lögð
í einelti. Þetta var fólk
sem hittist reglulega og
ræddi um félagslega
erfiðleika sem það hafði
átt í. Þetta var af-
skaplega fínn hópur, en
nú vantar mig svo upp-
lýsingar um hann því ég
man ekki hvað hann
heitir. Ef einhver kann-
ast við þetta langar mig að biðja þann
að hringja í mig í síma 844-9557 og
segja mér hvað varð af þessum hópi.
Móðir.
Tillaga
ÍSLENDINGAR eruði búin að fá
nóg af frægð og peningum? Þið hafið
ekki undan að framleiða kornadekk
fyrir Ameríku (sem fást ekki á Ís-
landi). Gætum við orðið aftur heims-
fræg og rík með því að setja vetni á
markað ásamt tilheyrandi far-
artækjum. Tækifærið bíður! Hafið
þið einfaldlega ekki hugsað málið,
einhver sem á of mikla peninga getur
margfaldað þá með því að setja í gang
vetnisbílaframleiðslu og að sjálfsögðu
krefjumst við viðunandi þjónustu.
Ekki bara eina vetnis áfyllingarstöð
upp á Ártúnshöfða heldur stöðvar í
amk. öllum bæjar hlutum Reykjavík-
urborgar. Tækifæri með ómældri
frægð og peningum bíða út um allan
heim. Olían er óþverri með eitraðan
útblástur en vetni mengar ekki loftið.
Hreint land og hreinni heimur.
Margrét Ásgeirsdóttir
Vettlingar í óskilum
ÉG fann bláa handprjónaða ull-
arfingravettlinga með útprjónaðri rós
á handabakinu. Þeir fundust í Heið-
mörk sunnudaginn 1. júní. á grasbal-
anum við grillstæðið, upplýsingar er
hægt að fá í síma 865-1677.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
að í Stangarhyl 4, í kvöld kl. 20. Klassík
leikur
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga er opið kl. 9-16.30 vinnustofur
spilasalur o.fl. Mánud. 16. júní kl. 13,
opnar Ragnhildur Guðjónsd. varaform.
hverfisráðs formlega sumarstarf á pútt-
velli v/ Breiðholtslaug. Leiðsögn á má-
nud. og fimmtud. kl. 13-14.30 frá
Vinnuskóla Reykjavíkur. Kylfur og öll að-
staða án endurgjalds.
Hraunbær 105 | Óvissuferð, miðviku-
daginn 18. júní verður farið í óvissuferð,
farið verður frá Hraunbæ kl. 13, verð
1500 kr. Skráning á skrifstofu eða í
síma 411 2730.
Hvassaleiti 56-58 | Árleg grillveisla Fé-
lagsmiðstöðvarinnar Hvassaleiti verður
haldin föstudaginn 20. júní. Húsið opn-
ar kl. 18. Matur, söngur, skemmtiatrið
og dans. Skráning í síma 535 2720 eða
á staðnum.
Íþróttafélagið Glóð | Søren Sørensen
erindreki „DGI sydvest“ verður með
fræðsluerindi i Gjábakka, Fannborg 8 kl.
10, keppni í Ringó verður kl. 13.30 „DGI
sydvest“ og Glóð í Íþróttahúsi Digra-
ness.
Vesturgata 7 | Jónsmessuferð miðviku-
daginn 25. júní kl. 13. Farið verður í
Skíðaskálann í Hveradölum. Ólafur
Beinteinn Ólafsson leikur á harmonikku
og Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópr-
ansöngkona syngur. Kaffihlaðborð og
dans. Á heimleiðinni verður ekið í gegn-
um Heiðmörk. Upplýsingar og skráning
í síma 535 2740
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Samkoma kl. 20.
Forsvarsmaður Stóru Gospelhátíðar-
innar, Baldvin Þ. Baldvinsson ásamt
hópi Færeyinga, kynnir hátíðina og dag-
skrá hennar. Helga R. Ármannsdóttir
verður með hugleiðingu. Á samkomunni
verður einnig lofgjörð og fyrirbænir og
kaffi og samvera að henni lokinni.