Morgunblaðið - 15.06.2008, Síða 56
56 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Fös. 20. júní kl. 19.30
20 horn - og einn sólisti
Stjórnandi: Stefan Solyom
Einleikari: Radovan Vlatkovic
Sinfóníuhljómsveitin lýkur starfsárinu með stæl og flytur
hina risavöxnu Alpasinfóníu Richard Stauss, hin sívinsælu
ævintýri Ugluspegils og hornkonsert nr. 2 eftir sama
höfund. Horn eru í aðalhlutverki á tónleikunum, konsertinn
er eitt snúnasta virtúósastykki tónbókmentanna og í
Alpasinfóníunni duga ekki færri en tuttugu horn til að
magna upp þá náttúrustemmingu sem Strauss vildi.
Sinfóníuhljómsveitin þakkar samfylgdina á starfsárinu.
Endurnýjun áskriftarkorta hefst að vanda í ágúst og sala
nýrra áskrifta skömmu síðar. Fylgist með á
www.sinfonia.is.
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Sun 15/6 kl. 20:00 U
Sumarnámskeið Sönglistar
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00 U
Mán 30/6 kl. 10:00 U
Mán 7/7 kl. 10:00
Mán 14/7 kl. 10:00
Mán 21/7 kl. 10:00
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Sun 15/6 kl. 20:00 U
Sumarnámskeið Sönglistar
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00 U
Mán 30/6 kl. 10:00 U
Mán 7/7 kl. 10:00
Mán 14/7 kl. 10:00
Mán 21/7 kl. 10:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Saga til næsta bæjar (Á Sögulofti)
Sun 15/6 kl. 20:00
gamansögur
Sun 22/6 kl. 20:00
úrslitakvöld
Landskeppni sagnamann
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 15/6 kl. 16:00 U
Lau 28/6 kl. 15:00
Lau 28/6 kl. 20:00 Ö
Þrjár tilnefningar til Grímunnar
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 21/6 kl. 15:00 Ö
Lau 21/6 kl. 20:00 U
Fös 27/6 aukas. kl. 20:00
Sun 29/6 aukas. kl. 16:00
Fös 11/7 kl. 20:00
Lau 12/7 kl. 20:00
Sun 13/7 kl. 16:00
Fim 17/7 kl. 20:00
Fös 18/7 kl. 20:00
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Aðventa ((Möguleikhúsið/ferðasýning))
Lau 5/7 kl. 22:00 F
edinborgarhúsið ísafirði
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Sigurður Guðmundssonog Memfismafían / Oft
spurði ég mömmu
Sun 15/6 kl. 13:00
Act alone í Iðnó
Þri 8/7 kl. 00:00
Benni Hemm Hemm og Ungfónía. Sitjandi
tónleikar.
Fim 19/6 kl. 19:00
Benni Hemm Hemm og Ungfónía.
Fim 19/6 kl. 22:00
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Soffía mús á tímaflakki (Sláturhús -
Menningarsetur )
Sun 15/6 kl. 16:00 F
Þri 17/6 kl. 16:00 F
Þri 17/6 kl. 18:00 F
Fim 19/6 kl. 18:00 F
Verkið er sýnt í Sláturhúsinu - Menningarsetur, við Kaupvang,
Egilsstöðum
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Act alone á Ísafirði (Hamrar/Edinborgarhúsið)
Mið 2/7 kl. 20:00
steinn steinarr/búlúlala - öldin hans
steins
Fim 3/7 kl. 12:00
örvænting, það kostar ekkert að tala í
gsm hjá guði, álfar, tröll og ósköpin öll,
kínki skemmtikraftur að sunnan, lífið
hans leifs, englar í snjónum
Fös 4/7 kl. 12:00
munir og minjar, súsan baðar sig, ég
bið að heilsa, sinfóníuhljómsveit sex
strengja, fragile, aðventa
Lau 5/7 kl. 13:00
eldfærin, jói, langbrók, pétur og einar,
blúskonan einleikinn blúsverkur,
völuspá, superhero
Sun 6/7 kl. 14:00
chick with a trick, vestfirskir einfarar,
aðrir sálmar
Leiklistarhátíð
Búlúlala - Öldin hans Steins (Hamrar
Ísafirði/Ferðasýning)
Lau 21/6 kl. 17:00
snjáfjallasetur
Mið 2/7 kl. 21:30
Ég bið að heilsa - Jónasardagskrá
(Edinborgarhúsið)
Fös 4/7 kl. 16:30
Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning)
Fös 27/6 kl. 20:30
baldurshagi bíldudal
Mið 9/7 kl. 16:00 U
170 sýn.
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 19/6 kl. 20:00 Lau 5/7 kl. 17:00
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
ÞAÐ hafa ófáar bækurnar verið
seldar undir þeim formerkjum að
höfundurinn sé „hinn nýi Dan
Brown“ og bókaforlagið Bjartur
hefur meira að segja staðið fyrir
keppni undir titlinum Leitin að
nýjum Dan Brown. Nú styttist í að
skilafrestur renni út, en efnilegir
spennusagnahöfundar hafa tíma til
1. júlí til þess að berja saman met-
sölubókina. Verðlaunafé er ein
milljón króna (auk hefðbundinna
höfundarlauna), 250 þúsund krón-
um meira en fyrir Íslensku bók-
menntaverðlaunin, og þar að auki
er þegar búið að gera útgáfusamn-
ing við þýskan útgefanda Dan
Brown. Bjartsmenn segja hand-
ritin þegar farin að berast en
reikna fastlega með því að ófáir
höfundar sitji sveittir fram á síð-
ustu stund til að fínpússa verkin.
Verðlaunin verða svo tilkynnt um
leið og bókin kemur út, hinn 1.
október næstkomandi.
Bækur um óútkomna bók
En raunar veitir ekkert af nýj-
um Dan Brown einmitt núna þar
sem sögur herma að metsöluhöf-
undurinn sé með ritteppu og næsta
bók hans, Salómonslykillinn (The
Solomon Key), hefur frestast og
eina sem vitað er um útgáfudag er
að hann er áætlaður á þessu ári.
Sú bók mun vera þriðja bókin þar
sem Robert Langdon, aðalpersóna
Engla og djöfla og Da Vinci lykils-
ins, verður í aðalhlutverki. Fregnir
herma að í bókinni verði flett ofan
af sjálfri Frímúrarareglunni.
Þó er nóg hægt að lesa um bók-
ina, það eru nefnilega þegar
komnar að minnsta kosti þrjár
bækur á markað sem fjalla um
þessa óútkomnu bók, The Guide to
Dan Brown’s The Solomon Key
eftir Greg Taylor, The Solomon
Key and Beyond: Unauthorized
Dan Brown Update eftir W. Frede-
rick Zimmerman og Secrets of the
Widow’s Son: The Mysteries
Surrounding the Sequel to the Da
Vinci Code eftir David A. Shugarts
– og var sú síðasttalda gefin út
fyrir tæpum þremur árum.
Brown láti sig hverfa
Þá má lesa ýmsar samsær-
iskenningar á spjallborðum helg-
uðum höfundinum og verkum
hans. Suma grunar að illgjörn öfl
innan Bandaríkjanna (væntanlega
háttsettir frímúrarar) hafi ein-
hverju að leyna sem birtist í bók-
inni á meðan aðrir telja Brown
einfaldlega vera of upptekinn við
að lesa allar samsæriskenningar
aðdáendanna sem og að lesa allar
bækurnar sem meintir arftakar
hans hafa skrifað.
Þá stingur einn upp á því að lík-
lega væri best fyrir Brown að gera
eins og J.D. Salinger og fara í fel-
ur og hætta að gefa út, enda alltaf
gott að hætta á toppnum. Ef skrif-
þörfin verður of mikil getur hann
alltaf notað dulnefni og auglýst sig
sem hinn næsta Dan Brown. Hefur
annars einhver séð Óttar Martin
Norðfjörð og Dan Brown í sama
herbergi?
Dan Brown og arftakarnir
Ein milljón króna í verðlaun auk
höfundarlauna til hins nýja Brown
Reuters
Óttar og Dan Óttar M. Norðfjörð var ósjaldan kallaður hinn íslenski Dan Brown fyrir síðustu jól. Verður sigurvegari keppninnar um næsta Brown þá líka arftaki Óttars? Brown sést hér að ofan.
Morgunblaðið/Golli
Óttar Norðfjörð Sendi frá sér
spennusöguna Hníf Abrahams sem
vakið hefur mikla athygli.
Bjartur áskilur sér rétt til að hafna
öllum handritum í keppninni.
Handrit merkt dulnefni skulu ber-
ast Bjarti, Bræðraborgarstíg 9, 101
Reykjavík, fyrir 1. júlí. Rétt nafn
höfundar skal fylgja með í lokuðu
umslagi.
Hringur Tankados
(Digital Fortress)
Fyrsta bók Browns fjallar um
baráttu dulmálsfræðings til
þess að leysa dulmálslykil sem
öflugustu tölvur bandarísku
leyniþjónustunnar ráða ekki við.
Englar og djöflar
(Angels and Demons)
Robert Langdon, prófessor í
trúartáknfræði, kemur hér fyrst
við sögu og blandast í átök á
milli fornrar reglu og kaþólsku
kirkjunnar.
Blekkingaleikur
(Deception Point)
Dóttir forsetaframbjóðanda er
send til Suðurskautsins af for-
seta Bandaríkjanna til þess að
kanna grun þeirra um að undir
ísnum leynist vísbendingar um
líf á öðrum hnöttum.
Da Vinci lykillinn
(The Da Vinci Key)
Robert Langdon snýr aftur í
bókinni sem færði Brown
heimsfrægð, en hún fjallar um
rannsókn á morði sem framið er
í Louvre-listasafninu og reynist
tengjast verkum Leonardos Da
Vinci og fornum goðsögnum um
Maríu Magdalenu. Varð síðar að
kvikmynd.
Salómonslykillinn
(The Solomon Key)
Fregnir herma að Robert Lang-
don muni hér takast á við frí-
múrararegluna.
Bækurnar
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is