Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „UM leið og það fréttist af hvítabirni í Skagafirði sagði ég við mitt fólk hjá Umhverfisstofnun og í ráðuneytinu að ég vildi að við gerðum allt sem í okkar valdi stæði til þess að reyna að ná þessu dýri lifandi, bjarga því og koma því til heimkynna sinna og að því höfum við unnið í allan dag,“ segir Þór- unn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra. Að sögn Þórunnar eru menn reynslunni ríkari eftir 3. júní þegar fyrri hvítabjörninn gekk á land, en hann var sem kunnugt er felldur af öryggis- ástæðum. Benti Þórunn á að forsenda þess að hægt væri að fara í björgunaraðgerðir gagnvart birninum núna væri að lögregl- unni hefði tekist að loka svæð- inu og tryggja öryggi fólksins í næsta nágreni. „Við höfum verið í sambandi við sérfræðinga í Noregi, Dan- mörku og Kanada til þess að leita allra leiða til að koma þessari björgunaraðgerð á og úr varð að Danir voru tilbúnir til að hjálpa okkur og við eigum von á þeim á morgun. Þarna eru vanir menn á ferð frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn sem hafa áður deyft dýr af þessu tagi og staðið í álíka björgunaraðgerðum,“ segir Þórunn og tekur fram að meðal þess sem sérfræð- ingarnir komi með með sér sé hvítabjarnarhelt búr, en slíkt sé ekki til hérlendis. Spurð hvað verði um dýrið segir Þórunn að reynt verði að koma því til heimkynna sinna í Grænlandi. Spurð um kostnað vegna björgunaraðgerðar- innar segir Þórunn ljóst að hann muni hlaupa á einhverjum milljónum og verði sennilega aldrei undir 10 milljónum króna. Novator, félag Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, bauðst í gær, að höfðu samráði við yfirvöld, til að standa straum af þeim kostnaði sem kynni hljótast af því að bjarga ís- birninum. „Mér finnst þetta höfðinglega boðið,“ segir Þórunn og tekur fram að sér finnist vel koma til greina að þiggja boðið. Allt gert til að bjarga dýrinu og koma því til heimkynna sinna Í HNOTSKURN »Björgunaraðgerðin semframundan er verður flókin og ljóst að allt þarf að ganga upp til að vel fari. »Það er ekki einfalt málað deyfa hvítabjörn og halda honum sofandi í lang- an tíma, því sú aðgerð getur í sjálfu sér hætt lífi bjarn- arins. Þórunn Sveinbjarnardóttir ÞEIR voru glaðbeittir starfsmennirnir sem unnu við að leggja nýjar lagnir í Álfheimunum í Reykjavík í gær. Víða er unnið að umsvifamikl- um framkvæmdum í borginni, meðal annars breikkun Miklubrautarinnar, og sums staðar verða óhjákvæmilega umferðartruflanir af völd- um þeirra. Og að sjálfsögðu þarf að malbika fjöl- margar götur í sumar því þótt margir séu hættir að nota nagla á veturna slitna göturnar hratt enda umferðarþunginn mikill. En þá er að virkja sumarskapið sem er auðvelt þegar sólin skín glatt eins og hún gerði framan af gærdeginum. Morgunblaðið/Kristinn Glatt á hjalla í Álfheimum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „VIÐ trúum því varla að þeir séu að boða verkfall á þessum tíma, því framundan er háannatíminn. Í því erfiða árferði sem núna er þá getur þetta haft mjög vond áhrif og hætta á að fólk hætti við að koma í frí til Íslands út af þessu. Þetta má því bara alls ekki gerast,“ segir Matthías Imsland, framkvæmda- stjóri Iceland Express, um yfirvof- andi vinnustöðvanir hjá flug- umferðarstjórum. Segist hann binda vonir við að samningsaðilar finni lausn á málinu áður en til verkfallsaðgerða komi. Flugumferðarstjórar samþykktu í atkvæðagreiðslu að boða til vinnu- stöðvunar í fjóra tíma í senn að morgni dags í samtals tuttugu skipti á tímabilinu 27. júní til 20. júlí. Ljóst þykir hins vegar að vinnustöðvunin muni hafa áhrif í allt að sex tíma, því íslenska flug- umferðarsvæðinu yrði lokað tveim- ur tímum áður en vinnustöðvunin hæfist. Þegar allt annað þrýtur Að sögn Lofts Jóhannssonar, for- manns Félags íslenskra flug- umferðarstjóra (FÍF), hefur félagið ekki enn boðað formlega til verk- fallsaðgerðanna en það verði gert á næstu dögum, enda þurfi að til- kynna verkfallsaðgerðir til Flug- stoða með sjö daga fyrirvara. Að- spurður segir Loftur samninga FÍF hafa verið lausa frá því í lok febrúar sl. og verið á borði rík- issáttasemjara síðan í maíbyrjun, en samningsaðilar eru annars veg- ar FÍF og hins vegar ríkið og Sam- tök atvinnulífsins. Síðasti fundur samningsaðila fór fram 12. júní sl. og boðað hefur verið til næsta fundar 26. júní nk. þ.e. daginn áður en hugsanlegar vinnustöðvanir hefjist. „Þetta er búið að vera hjá rík- issáttasemjara og samningar hafa ekki tekist. Þar af leiðandi er þetta sú aðgerð sem menn grípa til þeg- ar allt annað þrýtur og ekkert ann- að í stöðunni að gera,“ segir Loft- ur. Treystir því að deiluaðilar finni lausn sem fyrst Í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, treysta því að deiluaðilar fyndu lausn sem fyrst, þannig að flugfarþegar hlytu ekki tjón eða skaða af deilunni. Hjá Flugstoðum fengust þær upplýsingar að verði af vinnustöðv- un flugumferðarstjóra muni það reynast hið alvarlegasta mál fyrir íslenska flugstjórnarsvæðið og hugsanlega veikja samkeppnisstöðu þess í alþjóðlegu samhengi. „Þetta má ekki gerast“  Talsmenn flugfélaganna skora á deiluaðila að semja og koma í veg fyrir verkfall  Flugumferðarstjórar hafa samþykkt tuttugu vinnustöðvanir á næstu vikum TILBOÐ í veiðina í Laxá í Leir- ársveit voru opnuð í gær. Áin er ein af bestu laxveiðiám landsins og sam- kvæmt útboðs- gögnum var áin boðin út til þriggja ára, frá og með sumrinu 2009. Samkvæmt vefmiðlinum votnogveidi.is reyndist Stanga- veiðifélag Reykjavíkur vera með hæsta til- boðið, alls 124,9 milljónir króna. Lax-á hf. var með næsthæsta boð, 120,6 milljónir, og Sporðablik ehf. bauð 112,8 milljónir. Það skipa m.a. Haukur Geir Garð- arsson og Ólafur Johnson sem hafa komið að sölu veiðileyfa í Laxá. Tvö frávikstilboð komu, eitt upp á 118,8 milljónir frá Sporðabliki og annað upp á 191,5 milljónir, en þar var gert ráð fyrir leigu til fimm ára. Stjórn veiðifélagsins mun taka sér einhvern tíma til að fara yfir til- boðin. efi@mbl.is SVFR bauð hæst í Laxá í Leirársveit Veiðimenn með lax við Laxá í Leirársveit. FÆREYSKA skipið Carlton KG-381 kom með fyrsta síldarfarm- inn til vinnslu í Norðfirði á sunnu- dag. Síldin var nýtt til að prófa nýj- an vinnusal fiskiðjuversins Síldarvinnslunnar hf. Litla síld er þó að finna á mið- unum og segir áhöfn frystitogarans Bjarna Ólafssonar AK-70 enga síld hafa fundist síðustu fjóra til fimm daga, þrátt fyrir að stofninn sé nú í sögulegu hámarki. „Hún á það til að hverfa svona og svo eru fá skip á miðunum.“ haa@mbl.is Fyrsti síld- arfarmurinn GEIR H. Haarde forsætisráðherra sat í gær árlegan sumarfund for- sætisráðherra Norðurlanda í Sví- þjóð. Auk Geirs sátu fundinn Fre- derik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Matti Vanhanen, for- sætisráðherra Finnlands, Jens Stolt- enberg, forsætisráðherra Noregs, og Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur. Meðal þess sem rætt var á fund- inum var framboð Íslands til Örygg- isráðs SÞ, samstarfið á Eystrasalts- svæðinu, hlutverk Norðurlanda í alþjóðlegri friðargæslu og málefni sem snerta ESB. silja@mbl.is Rætt um framboðið Hversu margar flugvélar eru á lofti innan íslenska flugstjórnarsvæðisins á degi hverjum? Að meðaltali koma um 300-350 flugvélar í millilandaflugi inn í íslenska flug- stjórnarsvæðið á sólarhring. Ætla má að 75-100 flugvélar séu á ferðinni dag hvern í innanlandsflugi. Hver ber kostnaðinn missi ferðalangur af tengiflugi sínu vegna verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra? Flugfarþegar sem missa af tengiflugi vegna verkfallsaðgerða bera sjálfir þann fjárhagslega skaða, þar sem verkfallsaðgerðir falla utan valdsviðs flugfélaga og því eru þau ekki skaðabótaskyld gagnvart farþegum. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.