Morgunblaðið - 18.06.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 37
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Á morgun kl. 19.30
20 horn - og einn sólisti
Stj rnandi: Stefan Solyom
Einleikari: Radovan Vlatkovic
Sinfóníuhljómsveitin lýkur starfsárinu með stæl og flytur
hina risavöxnu Alpasinfóníu Richard Stauss, hin sívinsælu
ævintýri Ugluspegils og hornkonsert nr. 2 eftir sama
höfund. Horn eru í aðalhlutverki á tónleikunum, konsertinn
er eitt snúnasta virtúósastykki tónbókmentanna og í
Alpasinfóníunni duga ekki færri en tuttugu horn til að
magna upp þá náttúrustemmingu sem Strauss vildi.
Sinfóníuhljómsveitin þakkar samfylgdina á starfsárinu.
Endurnýjun áskriftarkorta hefst að vanda í ágúst og sala
nýrra áskrifta skömmu síðar. Fylgist með á
www.sinfonia.is.
SÚ VAR tíðin að þjóðsögur voru
krassandi frásagnir, uppfullar af
ógn og skelfingu ekki síður en ást
og hamingju, enda tíðaranda
þeirra best lýst svo. Svo komu
aðrir tímar og aðrar þjóðsögur,
nýjar sótthreinsaðar og útþynntar
þjóðsögur í boði Walts Disneys og
annarra vel meinandi sagna-
manna og -kvenna. Málið er bara
að um leið og óttinn hvarf úr þjóð-
sögunum misstu þær líka kryddið.
Undanfarið hefur orðið vart við
nýjar hugmyndir í barna-
bókasmíðum því fjölmargir höf-
undar hafa tekið upp á því að end-
urvinna gamlar sagnir og þá ekki
dregið neitt undan hvað varðar
grimmileg örlög og illan endi; í
endurvinnslunni er lítið um grá-
tóna en þess meira um alvonda og
algóða einstaklinga. Dæmi um það
eru bækur Gregorys Maguires
sem skrifað hefur krassandi bæk-
ur um vondu persónurnar í æv-
intýrunum, til að mynda um
vondu stjúpsysturnar, nornina
grimmu í Oz (sem var kannski
ekki svo grimm eftir alt saman) og
svo má telja. Eins má nefna Ja-
sper Fforde sem skrifar ævintýra-
legar bækur fyrir fullorðna þar
sem snúið er út úr ótal þjóðsögum.
Meðal annarra höfunda sem
fengist hafa við slíka endurritun
er Shannon Hale, sem tekið hefur
persónur úr ævintýrum og skrifað
afbragðs bækur fyrir börn og
ungmenni; Book of a Thousand
Days segir þannig frá prinsessu
sem lokuð var inni í turni (eða
réttara sagt þjónustu prinsess-
unnar), og Princess Academy
vinnur líka með dæmigert prins-
essuminni. Hún hefur líka skrifað
bækur í röð sem kennd er við
Bæjaraland, senda er þar sótt í
þýskan sagnaarf: The Goose Girl,
Enna Burning, og River Secrets,
en fjórða bókin í þeim flokki er í
smíðum.
Hale notar ýmis minni úr göml-
um þjóðsögum og persónur sem
margir kannast við, en alla jafna
lúta þær persónur lögmálum
hennar en ekki upprunasögunnar,
þ.e. það er Hale sem ræður ferð-
inni og hún fer sínar leiðir.
Lois Lowry, höfundur The
Willoughbys, blandar saman sög-
um í sinni bók, notar persónur og
hugmyndir úr Jane Eyre, Mary
Poppins, Heiðu, Stikkilsberjafinni
og Önnu í Grænuhlíð svo fátt eitt
sé nefnt svo úr verður farsakennd
saga sem á ekki svo lítið skylt við
sagnaröð Lemonys Snickets um
Baudelaire-börnin.
Að lokum má svo tína til Mich-
ael Buckley, en bókaröð hans um
Grimm-systurnar nýtur mikilla
vinsælda vestanhafs. Höf-
uðpersónur þeirra eru systurnar
Sabrina og Daphne Grimm, af-
komendur þeirra Grimm-bræðra
Jacobs og Wilhelms, sem frægir
eru af ævintýrasöfnun sinni.
Í bókunum um Grimm-bræður
er að finna nánast allar persónur
sem koma fyrir í ævintýrasafni
þeirra og ekki fæ ég betur séð en
að þar sé að finna reyting af sögu-
persónum úr öðrum ævintýrum,
en allar eru þessar ævintýra-
persónur saman komnar í sýslu
einni í New York-ríki. Hlutverk
þeirra Grimm-systra er að fylgj-
ast með þessu furðuliði sem getur
verið snúið og jafnvel ruglings-
legt, ekki síst fyrir lesandann sem
verður að hafa sig allan við.
Forvitnilegar bækur: Unnið úr ævintýrasagnaarfinum
Tvisvar sinnum var
Ævintýraleg Ein af mögnuðum myndskreytingum enska listamanns-
ins Arthur Rackhams við Grimmsævintýri.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
PATRICK Quinlan sló í gegn með fyrstu
bók sinni um James „Smoke“ Dugan,
bók númer tvö komin út og ljóst að þær
verða fleiri. Smoke Dugan er þrjótur af
gamla skólanum, glæpamaður með gull-
hjarta, sprengju-
sérfræðingur sem sest
í helgan stein, hættir
að sprengja og fer að
smíða dót fyrir þroska-
heft börn í sjávarþorpi
í Maine. Maður á
miðjum aldri sem kon-
ur falla fyrir, hljóð-
látur og kurteis –
hvers manns hugljúfi,
eða svo virðist í það minnsta framan af
þessum ágæta reyfara.
Málið er þó ekki svo einfalt, þegar
Smoke sagði skilið við glæpina var það
ekki eins klippt og skorið og orðin gefa
til kynna, það var nefnilega sitthvað
óuppgert og kemur að skuldadögum.
Inn í stríð Smoke við gamla félaga
blandast svo Lola, kærasta hans, mun
yngri en Smoke og glæsileg en með svo
slæma reynslu af karlmönnum, svo
skelfilegar uppákomur, að hún er nánast
afhuga þeim þar til hún kynnist öðlingn-
um Smoke.
Þetta er harkalegur reyfari um margt,
margir láta lífið og ekki alltaf á listræn-
an eða fallegan hátt. Quinlan dregur
ekkert undan í ofbeldinu, þegar kemur
að skapadægrum eru þau blóðug og
krassandi. Að þessu sögðu er sitthvað
húmorískt í bókinni, á köflum er hún
farsakennd og minnir þá Flórídahöfunda
á Carl Hiaasen eða Tim Dorsey þó að
ekki sé gengið eins langt í geggjuninni
og í þeim bókum. Helsti óþokkinn í bók-
inni er þó eins og hann hafi verið feng-
inn að láni frá Hiassen – er ekki Pedro
Luz úr Native Tongue hér lifandi kom-
inn?
Bókaröðin um Smoke fer prýðilega af
stað og í ljósi þess hvernig þessi fyrsta
bók endar er ljóst að það verður úr nógu
að moða með framhaldið.
Glæpon með
gullhjarta
Smoked, skáldsaga eftir Patrick Quinlan.
Hodder headline gefur út. 360 bls. ób.
Árni Matthíasson
BÆKUR»
METSÖLULISTAR»
New York Times
1. Devil May Care – Sebastian
Faulks
2.Chasing Harry Winston – Laur-
en Weisberger
3. The Forgotten Garden – Kate
Morton
4. The Reluctant Fundamentalist –
Mohsin Hamid
5. The Book Thief – Markus Zusak
6. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
7. Sepulchre – Kate Mosse
8. Engleby – Sebastian Faulks
9. On Chesil Beach – Ian McEwan
10. The Beach House – Jane Green
Waterstone’s
sem hann leikstýrði einnig. Kvikmyndatímaritið Empire
segir Winston hafa verið snilling á sínu sviði.
Meðal seinustu verka hans var hönnun búnings Járn-
mannsins, Iron Man, í samnefndri kvikmynd. Þá var
hann að vinna að gerð fjórðu kvikmyndarinnar um Tor-
tímandann, Terminator Salvation: The Future Begins.
Winston hlaut Óskarsverðlaun fyrir tæknibrellur árið
1993 í Jurassic Park.
STAN Winston, einn mesti tæknibrellumeistari kvik-
myndanna undanfarin 30 ár, er látinn. Winston lést af
völdum krabbameins 15. júní, 62 ára að aldri.
Winston átti að baki glæsilegan feril í tæknibrellugeir-
anum, sá m.a. um gerð vélmennisins í fyrstu Terminator
kvikmyndinni, risaeðlurnar í Jurassic Park og fram-
haldsmyndum hennar, brellur í Predator, Edward Scis-
sorhands og brellur í hryllingsmyndinni Pumpkinhead
Reuters
Óskarsverðlaunahafi Stan Winston sést hér hampa Óskarnum fyrir Júragarðinn. Hægra megin er Járnmaðurinn.
Tortímandinn Vélmennið sem Winston hannaði fyrir kvikmyndina.
Brellumeistari látinn
HLJÓMSVEITIN South Coast
Killing Company fagnar í kvöld út-
gáfu nýrrar plötu sinnar, Bootleg,
með tónleikum á Organ. Tónleik-
arnir byrja kl. 22 og heitir sveitin
því að þeir verði æsilegir.
Því til frekari undirstrikunar
tekur sveitin fram að dagskráin
byrji klukkan 21 með „góðum mót-
tökum og kossaflensi“ og segir
tónleikana verða „rokk-sveitt-
brilljantín og fjör“ og skellir aftan
við þá lýsingu upphrópunarmerki.
Sveitina skipa þau Daniel Pollock (gítar), Þórdís Claessen (trommur) og
Fiona Cribben (raddir o.fl).
Platan er frumútgáfa „first cum“ útgáfunnar, hvað svo sem það nú þýðir.
Æsilegir tónleikar á Organ
1. Nothing to Lose – Lee Child
2. The Host – Stephanie Meyer
3. Plague Ship – Clive Cussler
4. Love the One You’re With –
Emily Giffin
5. Blood Noir – Laurell K. Hamil-
ton
6. Chasing Harry Winston – Laur-
en Weisberger
7. Odd Hours – Dean R. Koontz
8. Sunday at Tiffany’s – James
Patterson og Gabrielle Char-
bonnet
9. Death and Honor – W. E. B.
Griffin og William E. Butter-
worth
10. Snuff – Chuck Palahniuk