Morgunblaðið - 19.06.2008, Side 1
fimmtudagur 19. 6. 2008
viðskipti mbl.isviðskipti
Una Steinsdóttir segir útibúin hluta af framtíðinni » 12
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maður FL Group, ætlar ekki að bjóða
sig fram til stjórnar á hluthafafundin
félagsins í dag.
Eiginkona hans,
Ingibjörg Pálma-
dóttir, kemur ný
inn í stjórnina.
Tillaga liggur
fyrir hluthafa-
fundi um að fækka
stjórnarmönnum
úr 7 í 5. Auk Jóns
Ásgeirs ganga
þeir Pálmi Har-
aldsson og Hannes Smárason úr
stjórninni.
Af 66. grein hlutafélagalaga má
draga þá ályktun að Jóni Ásgeiri sé
ekki heimilt að sitja í stjórn eða vera
framkvæmdastjóri í íslenskum fé-
lögum eftir að Hæstiréttur dæmdi
hann í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi 5. júní síðastliðinn. Gildir það
í þrjú ár frá uppkvaðningu dómsins.
Fundur FL Group í dag er fyrsti
hluthafafundur félags þar sem Jón
Ásgeir situr í stjórn eftir niðurstöðu
Hæstaréttar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið kannað á vegum
Jóns Ásgeirs hvort svipuð lög gildi
sérstaklega í Danmörku og Bret-
landi. Mun það ekki vera samkvæmt
fyrstu niðurstöðum. Því kemur til
greina að færa mikilvæg félög, þar
sem Jón Ásgeir vill formlega halda
um stjórnartaumana, úr landi. Ekk-
ert hefur enn verið ákveðið með það.
Samkvæmt upplýsingum frá
Lánstrausti er Jón Ásgeir stjórnar-
maður í 22 félögum á Íslandi. Auk
FL Group eru það félög eins og 365,
Baugur Group, Styrkur, Stoðir, Hag-
ar og ýmis fjárfestingarfélög. Fjöl-
mörg fyrirtæki eru svo rekin undir
þessum félögum bæði á Íslandi og er-
lendis.
Auk Ingibjargar Pálmadóttur
munu þau Katrín Pétursdóttir, Þor-
steinn M. Jónsson, Eiríkur S. Jó-
hannesson og Árni Hauksson verða
sjálfkjörin í stjórn.
Jón Ásgeir
úr stjórn FL
Ingibjörg Pálmadóttir ný í stjórn
Kanna flutning félaga úr landi
Jón Ásgeir
Jóhannesson
BRASILÍUMENN geta unað sáttir við sitt þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá
síðustu kjötkveðjuhátíð með tilheyrandi sambadansi. Nýlega fundust nýjar
olíulindir undan strönd landsins og eru þær til viðbótar við hinn stóra olíu-
fund sem varð í september í fyrra. Ef fram heldur sem horfir mun Brasilía
því verða meðal stærstu olíuframleiðsluríkja innan skamms. » 4
AP
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
MJÖG fljótlega mun skýrast hvort
og þá til hvaða aðgerða stjórnvöld
ætla að grípa til að sporna gegn
verulegum sam-
drætti á fast-
eignamarkaði, að
sögn Jóhönnu
Sigurðardóttur
félags- og trygg-
ingamálaráð-
herra.
Hún segir að
hætta sé á því að
of hröð kólnum á
fasteignamarkaði
muni magna upp efnahags-
samdráttinn og grafa undan fjár-
málastöðugleika. Þess vegna sé rík-
isstjórnin að skoða til hvaða
aðgerða sé hægt að grípa til að
sporna gegn þessu.
Djúp lægð getur komið
harkalega við íbúðareigendur
„Ýmsir hafa spáð að framundan
geti verið djúp lægð á fast-
eignamarkaði. Slíkt ástand getur
komið harkalega niður á íbúðar-
kaupendum og íbúðareigendum og
ég tel að við því verði að bregðast.
Það mun skýrast mjög fljótlega
hvort og til hvaða aðgerða verður
gripið,“ segir Jóhanna en vill á
þessu stigi ekki gefa upp dagsetn-
ingu í þeim efnum.
Hafa ber í huga að meiriháttar
breytingar á hinu opinbera íbúða-
lánakerfi þurfa að fara fyrir Al-
þingi. Hins vegar geta stjórnvöld
gripið til ýmissa aðgerða með
reglugerðarbreytingum.
Hugsanleg-
ar aðgerðir
að skýrast
Jóhanna
Sigurðardóttir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
Ekki liggur fyrir á hvaða gengi
Kaupþing mun yfirtaka Spron. Við-
ræður hafa formlega verið í gangi frá
1. maí síðastliðnum. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins bar
nokkuð á milli þeirra aðila sem gæta
hagsmuna Kaupþings annars vegar
og hagsmuna Spron hins vegar í
upphafi viðræðnanna.
Í byrjun júní gengu hugmyndir for-
svarsmanna Spron út á að gengið í
viðskiptunum ætti að vera á bilinu 7 til
8. Til samanburðar var gengi Spron
3,8 við lokun Kauphallar Íslands í
gær. Þetta töldu forsvarsmenn Kaup-
þings allt of hátt verð. Síðan þá hafa
menn verið að færa sig meira í átt að
markaðsverðinu. Það er því útlit fyrir
að sjónarmið Kaupþings verði ofan á í
þeim slag enda benda margir á að
samningsstaða Spron sé frekar veik.
Hins vegar eru uppi þau sjónarmið
að ekki sé óeðlilegt að greiða eitt-
hvert álag ofan á markaðsverðið eins
og gjarnan er gert þegar félög eru yf-
irtekin. Er þá talað um 10 prósent.
Líklegt er að niðurstaðan verði ná-
lægt þeirri tölu.
Hvorki Guðmundur Hauksson
sparisjóðsstjóri né Erlendur Hjalta-
son, stjórnarformaður Spron og for-
stjóri Exista, vildu staðfesta þessar
tölur í samtali við Morgunblaðið. Er-
lendur sagði góðan gang í viðræðun-
um og eðlilega væri talað um verð
þegar tvö félög sameinuðust. Hvorug-
ur aðilinn hefði lagt af stað í þá veg-
ferð með eitthvert ákveðið verð í
huga.
Erlendur sagði að nú væri verið að
leysa úr ákveðnum praktískum at-
riðum. Unnið væri að niðurstöðu
sem fæli í sér verulegan ávinning
fyrir báða aðila.
Lokaniðurstaðan getur skipt
sköpum fyrir marga fjárfesta í
Spron sem skuldsettu sig til að
kaupa hlutabréf í sparisjóðnum.
Margir hafa tapað háum fjárhæðum
á þeirri fjárfestingu.
Kaupþing yfirtaki Spron á markaðsvirði
Kaupþing vill yfirtaka Spron á markaðsvirði með álagi.
Forsvarsmenn Spron höfðu hærra verð í huga í upphafi júní.
Erlendur
Hjaltason,
stjórnarformað-
ur Spron, er líka
forstjóri Exista.
Exista er stærsti
hluthafinn í
Kaupþingi með
rúmlega 24 pró-
senta hlut. Er-
lendur er því bæði að gæta hags-
muna hluthafa Spron og
Kaupþings. Kaupþing á um 1,6% í
Spron.
Í hring
Erlendur
Hjaltason
Hluti af 66. gr. hlutafélagalaga
„Stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar skulu vera lögráða, fjár síns ráð-
andi og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnu-
rekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum
hegningarlögum.“