Morgunblaðið - 19.06.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
FRÉTTASKÝRING
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
U
pplýsingar sem fram
komu í síðustu viku
um að kaup Eim-
skipafélagsins á
breska frystigeymslu-
og flutningafyrirtækinu Innovate,
sem hófust árið 2006, hefðu verið
mistök, komu flestum ef ekki öllum í
opna skjöldu. Tilkynnt var að ákveð-
ið hefði verið að afskrifa eignarhlut
Eimskipafélagsins í Innovate á einu
bretti, tæpa 9 milljarða íslenskra
króna. Og ekki nóg með það heldur
ætlar stjórn félagsins að láta fram-
kvæma ítarlega rannsókn á því ferli
sem viðhaft var við kaupin á Inn-
ovate. Ljóst er að eitthvað mikið fór
úrskeiðis hjá Eimskipafélaginu í
tengslum við kaup félagsins á þessu
breska fyrirtæki.
Rétt er að taka fram að ekki hefur
verið gefið í skyn að eitthvað mis-
jafnt hafi átt sér stað í kaupunum á
Innovate. Sindri Sindrason, sem tók
við formennsku í stjórn Eimskipa-
félagsins í lok síðasta árs, sagði í
samtali við Morgunblaðið þegar til-
kynnt var um afskriftina á eignar-
hlutnum í Innovate: „Hitt er annað
mál að það er verulegt áfall fyrir
Eimskip, að fyrirtæki sem við fjár-
festum í fyrir tveimur árum sé að
fara í vaskinn. Það krefst þess að
menn kanni með hvaða hætti þetta
var. Það verður ekki hjá því komist
að segja að þetta voru mistök af okk-
ar hálfu.“
Sérfræðingar á fjármálamarkaði,
sem blaðamaður ræddi við, sögðust
almennt vera mjög undrandi á þeirri
þróun sem orðið hefur hjá Eim-
skipafélaginu. Til að mynda var sagt
að jafnvel þótt í ljós hefði komið að
áætlanir helstu eigenda og stjórn-
enda, sem kynntar voru fyrir um
þremur árum, hefðu engan veginn
gengið eftir, þá hefði enginn séð fyr-
ir þann möguleika að félagið þyrfti
að afskrifa kaupin á Innovate svona
fljótt. Þetta hefði því komið öllum í
opna skjöldu, og sé vont fyrir mark-
aðinn, enda ekki á bætandi í þeim
efnum.
Auðvelt er að vera vitur eftir á, en
almennt þykir sem of mikil áhersla
hafi verið lögð á vöxt hjá Eimskipa-
félaginu, og forveranum, Avion Gro-
up. Sú áhersla hafi nánast verið
óhóflega. Sumir viðmælendur blaða-
manns segjast hafa verið farnir að
furða sig á því hvenær eigendur og
stjórnendur Eimskipafélagsins ætl-
uðu að nema staðar í uppkaupum á
fyrirtækjum og að fara þess í stað að
horfa á arðsemina af einingunum.
Það hafi í raun gerst alltof seint.
Nú er við því að búast, að þegar
mikið er fjárfest, þá sé ekki hægt að
gera ráð fyrir því að allt gangi upp
og að eitthvað í líkingu við afskrift-
ina vegna Innovate geti komið til, þó
þar sé vissulega um stóran bita að
ræða. En þegar litið er til baka verð-
ur ekki hjá því komist að álykta sem
svo, að kaupin á Innovate séu ekki
það eina sem ekki hafi gengið eftir
hjá Eimskipafélaginu, eða kannski
réttara sagt hjá Avion Group, því
það var þar sem hinar stórtæku hug-
myndir voru kynntar. Að minnsta
kosti verður ekki annað séð en að
markmið stærstu eigendanna hafi
tekið miklum breytingum, vænt-
anlega vegna þess að margt gekk
ekki eins og ætlast var til. Breyting-
arnar á félaginu hafa verið allt aðrar
en upplýst var um í upphafi að stefnt
væri að.
Heildarþjónusta í flutningum
Þegar Avion Group keypti Eim-
skipafélagið af Burðarási fyrir rétt
rúmum þremur árum, eða í lok maí
2005, sagði í fréttatilkyningu að
markmið Avion Group með kaup-
unum væri að „búa til öflugt og
framsækið fyrirtæki á sviði flutn-
ingastarfsemi. Fyrirtækið er þá í
stakk búið til að bjóða viðskiptavin-
um um heim allan heildarlausnir í
flutningum; í lofti, á láði og legi.“
Magnús Þorsteinsson, stjórn-
arformaður Avion Group sagði þá:
„Avion Group hefur á undanförnum
misserum verið í mikilli sókn á al-
þjóðlegum flutningamörkuðum.
Eimskip hefur yfir níutíu ára
reynslu á þeim sama markaði. Við
höfum trú á því að til samans geti fé-
lögin boðið viðskiptavinum, hér
heima og erlendis, heildarþjónustu í
flutningum jafnt í lofti, á láði eða
legi. Það er okkar trú að Eimskip og
Avion Group sameinað verði sterkt
félag á hlutabréfamarkaði.“
Mikið keypt inn
Eignarhaldsfélagið Avion Group tók
formlega til starfa í ársbyrjun 2005.
Þegar félagið keypti Eimskipa-
félagið í maí sama ár samanstóð það
af flugfélögunum Atlanta, Íslands-
flugi og breska leiguflugfélaginu Ex-
cel Airways. Stjórnendur og eig-
endur Avion lögðu á þessum tíma
mikla áherslu á að félagið væri lang-
Aukin hagsæld Í bókinni Eimskip frá upphafi til nútíma eftir Guðmund Magnússon sagnfræðing, frá árinu 1998, segir að til þess tíma er fyrsta skip félagsins, Gullfoss, kom til landsins árið 1915, hefðu s
Skipbrot hugmynda
Hugmyndir og markmið helstu eigenda Eim-
skipafélagsins hafa breyst mikið á umliðnum
mánuðum og misserum. Ýmislegt virðist ekki
hafa gengið eftir eins og að var stefnt. Freistandi
er að tala um skipbrot í þessum efnum.
Morgunblaðið/Þorkell
Himinn og haf Frá fréttamannafundi þar sem Magnús Þorsteinsson til-
kynnti um kaup félagsins á Eimskipafélagi Íslands þann 31. maí 2005.
!"#
$ "%#$
&'% "( %
)"
*"*+
,-# #./ ! 0/# 1
2 % 3
4 " %
*3 &"4"# " * &
2 3
2!"
, # 5
#6 #%
%# 3%! - &( %
7 #
!6 "
) " ##
8/ 9 #&"
0#
5"
: /
" % 33
0&
)%06 %
! 6; -
%#0
&
7! -
& #
)%!# 3 33! -
% #6 #%
< -
&#%
7 &
& -
7 -
- & #
)9 %%
;,> #?6 5
& ; &"
9
= %5
!" ##= # )" %#
, -$ #5
" @
) 3 - " # 4% & %>
)%#%
/ 9#
&)
3
!9 & "
3 63
, 3 E #
/ ! -
#
%9 %
) #
0
Eimskipafélagið, eða kannski rétt-
ara sagt Avion Group, er langt í frá
eina stóra fyrirtækið sem hefur
breytt skyndilega um kúrs
skömmu eftir að stórtæk við-
skiptahugmynd hefur verið kynnt.
Á árinu 2004 keypti Og Vodafone
fjölmiðlarekstur Norðurljósa og
þar með Fréttablaðið, Stöð 2,
Bylgjuna og DV. Árið eftir fékk
samstæðan nafnið Dagsbrún og
við tóku kaup á ýmsum félögum. Á
árinu 2006 var hins vegar ákveðið
að skipta félaginu upp í tvö félög,
365, sem nú á að taka úr Kauphöll-
inni, og Teymi. Stjórnarformað-
urinn Þórdís Sigurðardóttir, sagði
ástæðuna vera hversu gríðarlega
hratt og mikið Dagsbrún hefði
vaxið. Hún sagði þó að viðskipta-
módelið sjálft hefði gengið full-
komlega upp.
Hvað sem því líður þá er ljóst að
með því að skipta Dagsbrún upp í
tvö félög var horfið frá upphaflegri
hugmynd um öflugt félag á sviði
fjölmiðla, fjarskipta og upplýs-
ingatækni á svipaðan hátt og horf-
ið var frá því að stefna að yf-
irburðastöðu Avion í lofti, á láði og
legi, þegar félagið hóf að losa sig
við flugreksturinn.
FL Group er annað dæmi um ís-
lenskt félag sem er nú allt annað
en að var stefnt. Reyndar er mikill
munur á FL Group, annars vegar,
og Eimskipafélaginu og Dagsbrún,
hins vegar, því þar er um að ræða
fjárfestingarfélag öfugt við hin fé-
lögin sem voru bæði á fullu í
rekstrareiningum. Hugmyndir
helstu eigenda og stjórnenda FL
Group gengu hins vegar engan
veginn eftir, eins og hjá hinum fé-
lögunum tveimur. Það eiga þau öll
sameiginlegt.
Fleiri dæmi mætti nefna um falln-
ar hugmyndir. Þau sem hér hafa
verið nefnd skera sig hins vegar
nokkuð úr.
Fleiri fallnar hugmyndir