Morgunblaðið - 19.06.2008, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 7
stærsta flugfélag á sínu sviði í heim-
inum, og biði upp á „heildarlausn í
flugrekstri“. Hver sá sem hafi áhuga
á að bjóða upp á flugþjónustu þurfi
ekki að leita annað en til Avion. Fé-
lagið sá um leigu flugvéla með áhöfn,
þjálfun áhafnar, viðhald, tryggingar
og allt annað er máli skiptir nema
sölu farseðla.
Fréttir af Avion Group á árinu
2005 og megnið af árinu 2006 sögðu
einna helst frá kaupum félagsins á
ýmsum fyrirtækjum víða um heim,
auk kaupanna á Eimskipafélaginu
að sjálfsögðu. Áhersla var lögð á
mikla veltuaukningu og aukinn
hagnað Avion Group. Félagið var
jafnt að auka umsvif sín á flugmark-
aði og í tengslum við skipasiglingar.
Félagið keypti ferðaskrifstofur og
flugfélög og viðhaldsfyrirtæki og
endurnýjaði flugflotann. Í tengslum
við skipaflutningana munaði mest
um kaup á frystigeymslufyr-
irtækjum í Hollandi, á Bretlandi,
þ.e. kaupin á Innovate, og í Kanada.
Inn á milli frétta af gífurlegri
aukningu á umsvifum Avion Group á
árunum 2005 og 2006 bárust fréttir
af því að félagið hefði verið verð-
launað í útlöndum fyrir að vera með-
al þeirra allra framsæknustu í heimi
á sínu sviði og fyrir að sýna mjög
metnaðarfulla frammistöðu. Óhjá-
kvæmilegt er annað en að efast um
gildi slíkra viðurkenninga þegar haft
er í huga hvert framhaldið var hjá
Avion Group.
Breytt stefna
Mikið gekk á í janúar 2006 þegar
Avion Group var skráð á Aðallista
Kauphallar Íslands. Gríðarleg eft-
irspurn var eftir hlutabréfum í félag-
inu og hækkaði gengi þeirra mikið.
Þannig var gengi bréfanna í fyrstu
viðskiptunum til að mynda tæplega
30% hærra en útboðsgengi þeirra
hafði verið. Sagði Magnús Þor-
steinsson, stjórnarformaður Avion
Group, af þessu tilefni að viðbrögðin
sýndu greinilega að starfsfólk og
stjórnendur Avion Group væru að
gera eitthvað rétt, og því yrði haldið
áfram. Hafa ber í huga að allar frétt-
ir af félaginu höfðu fram að þessum
tíma verið á mjög jákvæðum nótum.
Nokkurn skugga fór af bera yfir
Avion er líða tók á árið 2006. Þegar
sex mánaða uppgjör félagsins var
birt í lok júní 2006 kom í ljós að sam-
stæðan hafði tapað um 72 milljónum
dollara á tímabilinu frá nóvember
2005 til apríl 2006. Sagði Magnús
Þorsteinsson að afkoman væri í takt
við „væntingar“. Greiningardeildir
bankanna voru hins vegar á annarri
skoðun. Magnús greindi einnig frá
því þegar uppgjörið var kynnt, að fé-
lagið ætti í alvarlegum viðræðum við
þriðja aðila um sölu á 51% hlutafjár í
dótturfélaginu Avion Aircraft Trad-
ing. Einnig var greint frá því að árs-
reikningur dótturfélagsins Excel
Airways Group hefði verið leiðréttur
fyrir fjárhagsárið 2005 þar sem við-
skiptalegir hagsmunir félagsins af
ákveðnum samningi hefðu ekki verið
þeir sem haldið var.
Það var því farið að halla undan
fæti varðandi hinar stórtæku hug-
myndir um flutninga í lofti, á láði og
legi strax á miðju ári 2006, einungis
einu ári eftir að Avion keypti Eim-
skipafélagið af Burðarási, eða um
svipað leyti og kaupin á Innovate
áttu sér stað. Enda liðu ekki margir
mánuðir þar til stefnunni var al-
gjörlega breytt og áhersla var lögð á
Eimskipafélagið. Ekki var lengur
ætlunin að bjóða upp á heildarlausn í
flutningum, heldur einbeita sér að
flutningastarfsemi á sjó. Hinar stór-
tæku hugmyndir frá kaupunum á
Eimskipafélaginu höfðu því verið
lagðar til hliðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
siglingar til og frá Íslandi að mestu verið í höndum erlendra þjóða. Hjól verslunar og viðskipta hafi í kjölfarið farið að snúast örar en fyrr. Félagið átti því þátt í að auka efnalega hagsæld hér á landi.
» Það var því farið að halla undan fæti varð-andi hinar stórtæku hugmyndir um flutninga
í lofti, á láði og legi strax á miðju ári 2006, ein-
ungis einu ári eftir að Avion keypti Eimskipa-
félagið af Burðarási, eða um svipað leyti og
kaupin á Innovate áttu sér stað. Enda liðu ekki
margir mánuðir þar til stefnunni var algjörlega
breytt og áhersla var lögð á Eimskipafélagið.
2 % &@<;
) "7
A# 6BC # A %
: ! 5
& - %
33 3&& &
A 6 3" %
@ #! 3 -&# -
0 % 5
6% &" &)
D# # 0/
?& # & -
F3
0 "! 7 3 ;%** 3
A # " #
# ! -
- 5GH% #33
9
=BE )/ 7 #0
(#% 3 ! 6
, % 3& #
) % A % &
G - ! 6&A # &%
2% 3 3 =&" 6 6% 6 9
I" " JC 3" B2 0# #
F3 =&, ")3&,9 6%
<"4 "3 3
2% 3 -# A #
2% 3 -#/ -<"
A 4# "
9 % % " 5
/ 2% 3 -
)/ " %# 2% 35
- ;) ) ";
3K"
#%
2% 3 = &<"< L C
, 6 5" 96% 2% 3 "3#&F&B)9 &F&
F3 =& & %6% 9#;:6'3"
)%#% % &< <
M 6 6% 6 9 #( L"&F
B? 0 "< %09
2 &F 6 %% # /
D E" " - %
/ " %# 2% 3 -
<"4 "3 #! - % #*
2% 3 3 =&" 6 6% 6 9 ;'%3>52 0##
2 6 9 #, %# &,9 6%5)%# , ")3
F3 =&! 6 6% 6 9 K"
F3 =&F :&:" 6 9 # &# #
F3 =& 3 -I" 3 5I : # / -0
K" 3 6 9 #I" !6A
2% 3 3 6 6% 6 9 #< I")" &F
F3 ! & %# 6 9 #8L LC %3 ) L
<" # 7 *2% 3 -$
Viðburðarík saga óskabarns
Hf. Eimskipafélag Íslands, eða „óskabarn þjóð-
arinnar“ eins og félagið var allt frá stofnun árið
1914 gjarnan kallað, er án efa með merkari fyr-
irtækjum hér á landi. Eimskipafélagið var stofnað
sem þjóðþrifafélag, sem þýddi að því var ætlað að
gera gagn en ekki skapa eigendum sínum sér-
stakan fjárhagslegan gróða. Vegna þessa fékk
Eimskipafélagið á fyrstu áratugunum framlög úr
ríkissjóði þegar reksturinn gekk ekki upp og
einnig skattfríðindi. Þeim afsalaði félagið sér árið
1956.
Áhugi meðal almennings á Eimskipafélaginu
var gríðarlegur strax frá byrjun. Þannig voru til
að mynda um 16% þjóðarinnar hluthafar í félag-
inu árið 1917 að lokinni hlutafjársöfnun sem þá
fór fram. Það myndi svara til þess að um 50 þús-
und manns væru hluthafar í einhverju íslensku fé-
lagi í dag miðað við fólksfjölda.
Eignarhaldið á Eimskipafélaginu breyttist mik-
ið í september árið 2003 í tengslum við einhverjar
mestu hrókeringar í íslensku athafnalífi fyrr og
síðar. Landsbankinn og tengdir aðilar náðu þá yf-
irráðum yfir félaginu. Kjölfestuhlutur í Lands-
bankanum var þá kominn í hendurnar á feðg-
unum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor,
ásamt viðskiptafélaga þeirra Magnúsi Þorsteins-
syni.
Fram að haustinu 2003 höfðu breytingar á eign-
arhaldi á hlutabréfum í Eimskipafélaginu ekki
verið stórvægilegar, þó svo að nokkur barátta
hafi verið um bréfin á köflum á þeim tæpu 90 ár-
um sem þá voru liðin frá stofnun félagsins. Mestu
breytingarnar höfðu þó verið þegar Sambandið
svokallaða ásældist hlutabréf félagins í upphafi
sjötta áratugar síðustu aldar. Þá voru einnig
nokkrar breytingar í upphafi áttunda áratugarins
þegar nýir eigendur komu inn í hluthafahópinn
og á miðjum níunda áratugnum þegar ríkið seldi
Sjóvátryggingafélaginu 5% hlut sinn í félaginu,
sem þótti koma nokkuð á óvart á þeim tíma. Það
var reyndar sama ár og skipafélagið Hafskip var
tekið til gjaldþrotaskipta, þ.e. árið 1985.
Breytingarnar byrja
Breytingarnar á Eimskipafélaginu urðu miklar í
kjölfar hrókeringanna í athafnalífinu í september
2003. Hinir nýju eigendur Eimskipafélagsins
ákváðu rúmum mánuði eftir að félagið komst í
þeirra hendur að skipta því í tvö félög, annars
vegar flutningaarminn Eimskip og hins vegar
fjárfestingaarminn Burðarás, sem tók yfir sjáv-
arútvegsfyrirtækin innan samstæðunnar í félaginu
Brimi ehf. Þá var einnig ákveðið að flytja starf-
semina úr hinu þekkta húsi félagsins í Póst-
hússtræti í Reykjavík, þar sem höfuðstöðvarnar
höfðu verið nánast frá upphafi.
Í janúar árið 2004 var sjávarútvegsarmur Eim-
skipafélagsins seldur og í mars sama ár var nafni
Hf. Eimskipafélagi Íslands breytt í Burðarás hf.
Dótturfélagið Eimskip fékk þá nafnið Eimskipa-
félag Íslands.
Aftur til fortíðar
Í lok maí árið 2005 keypti eignarhaldsfélagið
Avion Group, sem Magnús Þorsteinsson var
stærsti hluthafinn í, Eimskipafélagið af Burðarási.
Segja má að Eimskipafélagið hafi þá horfið af
sjónarsviðinu, að minnsta kosti í þeirri mynd sem
það hafði verið frá stofnun rúmum 90 árum fyrr.
Félagið varð hluti af stærri heild, sem gekk undir
heitinu „himinn og haf“ meðal stærstu eigenda og
stjórnenda Avion Group. Eimskipafélagið átti að
verða hluti af heildarlausn í flutningum, í lofti, í
láði og legi.
Áður en Avion keypti Eimskipafélagið hafði fé-
lagið fjárfest í ýmsum fyrirtækjum víða um heim.
Eftir kaupin jukust þær fjárfestingar hins vegar
til muna og veltan þar með.
Rúmu ári eftir að Avion keypti Eimskipafélagið
hafði Avion hins vegar selt stóran hluta af öðrum
eignum sínum og var Eimskipafélagið þá orðið
langstærsti hlutinn af starfsemi Avion með hlið-
sjón af veltu. Í nóvember 2006 var svo ákveðið að
breyta nafni Avion Group í Hf. Eimskipafélag Ís-
lands.
Því er hægt að segja að rúmu ári eftir að Eim-
skipafélagið hvarf af sjónarsviðinu í sinni upp-
runalegu mynd, með kaupum Avion á því í maí
2005, þá hafi félagið birst aftur þegar Avion var
breytt Hf. Eimskipafélag Íslands. Þá var því í
raun á vissan hátt aftur snúið til fortíðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Merkið Gamla merki Eimskipafélagsins var lengi
áberandi á höfuðstöðvunum við Reykjavíkurhöfn.