Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.2008, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
F
lestir halda að
maður sé bara
alltaf fullur í
Cannes með
kampavín, sem
er kannski að
hluta til rétt, en
það skilar ein-
hverju að lokum ef þú ert alltaf á
staðnum og heldur áfram. Ef þú hef-
ur eitthvað fram að færa næst ár-
angur, við Skúli höfum verið að
þvælast til Cannes og Berlín í fimm-
tán ár og kynnst mörgu fólki, margir
voru ungir og vissu lítið en hafa
þróast áfram upp á við og eru nú
komnir í þá stöðu að geta tekið mik-
ilvægar ákvarðanir. Þannig að bjór-
glas fyrir tíu árum getur skilað já-
kvæðu svari um hvort þú færð
fjármagn í kvikmynd í dag, þannig
að þetta skiptir allt máli. Þetta er
maraþonhlaup en ekki spretthlaup
ef þú ætlar að standa í þessu, enda
tók okkur fimm ár að gera fyrstu
myndina.“ Cannes-farinn sem mælir
er Þórir Snær Sigurjónsson, sem
stofnaði Zik Zak kvikmyndir fyrir
rúmum áratug með Skúla Fr. Malm-
quist.
„Við Skúli fórum fyrst til Cannes í
maí 1995 og náðum að kría út um 20-
30 þúsund pund í handritastyrk
þar.“ Þetta gerði þeim félögum kleift
að komast í gang með þróun á bíó-
myndum, en í framhaldinu fór Skúli í
nám í London og þangað flutti Þórir
og bjó í einn vetur og harkið hélt
áfram. „Við lifðum ekki beint á þessu
en náðum að skrölta áfram,“ segir
Þórir um þessa árdaga fyrirtæk-
isins. Upphaflega planið hafði raun-
ar verið að kvikmynda Feld, mynd
sem þeir Ragnar Bragason og Huld-
ar Breiðfjörð skrifuðu saman og
Ragnar átti að leikstýra en aldrei
varð. Þeir félagar voru þó í aðal-
hlutverkum þegar hjólin fóru fyrst
að snúast hjá Zik Zak.
Fíaskó Ragnars Bragasonar var
fyrsta mynd fyrirtækisins og hún fór
fljótt í gegn. „Raggi skrifaði hana
mjög fljótt og við náðum að koma
henni saman á einu ári með góðum
samstarfsaðilum, byrjuðum að taka í
janúar árið 1999.“
En tímasetningin var hins vegar
ekki nógu góð, myndin kom út mitt á
milli tveggja stærstu mynda ís-
lenskrar kvikmyndasögu, Engla al-
heimsins og 101 Reykjavík, og ein-
faldlega hvarf þrátt fyrir ágætis
dóma. En þarna voru hjólin byrjuð
að snúast.
Næst var Villiljós, mynd eftir
Huldar Breiðfjörð í fimm hlutum
sem fimm mismunandi leikstjórar
leikstýrðu. „Hvorug þessara mynda
var hugsuð sem aðsóknarmynd,
heldur vorum við að stefna að að því
að vinna með fólki sem við höfðum
mikla trú á,“ segir Þórir, en þótt
Villiljós gengi ekki nema sæmilega
var þetta fín útungunarstöð efni-
legra leikstjóra og tveir af leikstjór-
unum fimm eru nú tvímælalaust í
hópi okkar fremstu leikstjóra, þeir
Dagur Kári og Ragnar Bragason.
Albínóar, góð hjörtu
og hvíslarar
„Við höfðum alltaf mikla trú á Ragga,
hann var með okkur frá upphafi.
Bæði góður og duglegur leikstjóri,
það gildir að hafa seigluna í þetta,“
segir Þórir um Ragnar sem fór síðar
og gerði myndatvennuna Börn og
Foreldrar með leikhópnum Vest-
urporti auk sjónvarpsþátta á borð við
Næturvaktina, Dagvaktina og Stelp-
urnar. En hann er núna að þróa stór-
mynd með Zik Zak. „Hún heitir
Whisperer og við stefnum á tökur á
henni árið 2010,“ segir Þórir. Myndin
er á ensku og hann segir hana helst
minna á Big Fish Tims Burtons,
„svona ævintýrafabúla.“ Þeir hafa
þróað myndina í ein 4-5 ár og eru að
fara í gang með að velja leikara. „En
við stefnum dálítið hátt í þeim mál-
um,“ segir Þórir um myndina sem
verður þó tekin að mestu upp hér-
lendis.
Helstu skrautfjaðrir Zik Zak eru
þó enn sem komið er verk Dags Kára
– og sú velgengni kemur ekki á óvart.
„Ég held að skólamyndin hans hafi
fengið öll verðlaun sem hægt var að
fá fyrir stúdentamynd. Svo kynnt-
umst við í kringum Villiljós og héld-
um áfram því sambandi sem gekk
mjög vel.“ Nói albínói var myndin
sem kom fyrirtækinu virkilega á
kortið og er líklega enn þeirra þekkt-
asta mynd, en síðan var komið að óð
Dags Kára til námsáranna í Dan-
mörku og frönsku nýbylgjunnar,
Voksne mennesker. „Það er dálítið
erfitt að vinna í Danmörku, ég held
að Degi hafi fundist það dálítið
þungt. Þeir vinna stuttan tökudag og
eru dálítið stífir og í föstum skorðum,
það var erfitt fyrir hann að vinna
undir slíkum kringumstæðum. En ég
var mjög sáttur við útkomuna, mér
finnst Voksne mennesker frábær
mynd. Ég er kannski mest svekktur
með viðtökurnar á henni af öllum
okkar myndum, það er fáránlegt að
þessi mynd hafi ekki farið lengra.“
En hún og Nói opnuðu þó Degi Kára
og Zik Zak dyrnar að Hollywood þar
sem þeir eru nú að gera The Good
Heart með þeim Paul Dano (There
Will Be Blood) og Brian Cox (X-Men
2 og 25th Hour) í aðalhlutverkum.
„Dagur Kári er að færast inn í klipp-
ið núna, við erum að jafna okkur eftir
þetta ferli sem var langt, en stefnan
er Cannes á næsta ári, svo sjáum við
bara til hvort það gengur eða ekki,“
segir Þórir um myndina sem gæti vel
orðið næsta stóra stökkið hjá Zik
Zak.
Eftir því sem á líður hefur fyr-
irtækið lagt meiri og meiri rækt við
stuttmyndir, enda mikill vaxt-
arbroddur þar fyrir kvikmyndagerð-
armenn framtíðarinnar. „Mér finnst
það bara vera eina leiðin til að sjá
hvort menn geta leikstýrt eða ekki.
Eini gallinn er að við erum svolítið að
borga með okkur með að gera þetta.
En það hefur skilað sér fínt, svo er
þetta bara skemmtilegt form finnst
mér sem fólk gerir alltof lítið úr.“ Þá
segir Þórir möguleikana á að koma
stuttmyndum á framfæri sífellt
betri. „„Síðasti bærinn“ fór á iTunes
þar sem henni hafði verið hlaðið nið-
ur 7-10 þúsund sinnum síðast þegar
ég frétti. En það er mikilvægt að
ungir leikstjórar fái sterkt fram-
leiðslufyrirtæki á bak við sig. „Síð-
asti bærinn“ sannar að framleiðslu-
fyrirtæki eru jafn mikilvæg og
handrit og leikstjórar. Við vissum
hversu efnilegur leikstjórinn var og
gáfum honum það sem hann þurfti til
þess að gera myndina eins og best
var kostur á, bæði listrænt og fjár-
hagslega. Þetta hefði ekki orðið eins
ef hann hefði verið einn með ein-
hverja „handy cam“ í einhverri
sveit.“ En þessi mynd Rúnars Rún-
arssonar færði þeim líklega stærstu
viðurkenningu sem þeir gátu hugsað
sér, óskarstilnefningu fyrir bestu
stuttmynd. Á þá margfrægu verð-
launahátíð mættu þeir Rúnar. „Við
vorum báðir tilnefndir, ég fór fyrir
hönd okkar framleiðandanna, við
Rúnar hefðum fengið sína styttuna
hvor hefðum við unnið. En þetta var
svona eins og fólk myndi halda, al-
gjört klisjuglam, og manni leið eins
og boðflennu.“ Sögur herma að flest-
ir verji lengstum tíma á barnum og
láti helst sjá sig í sjónvarpsútsend-
ingu þegar þeirra tilnefningar eru
Kvikmyndafyrirtækið Zik Zak er
að mörgu leyti frumkvöðull á ís-
lenskum kvikmyndamarkaði. Það
hefur lagt áherslu á að finna unga
og efnilega leikstjóra og byggja þá
hægt og rólega upp. Útkoman er
framsæknar kvikmyndir á borð við
Nóa albínóa, fjöldi verðlauna og ein
óskarsverðlaunatilnefning. En þátt-
takendur í þessu ævintýri eru enn
ungir og Zik Zak er rétt að byrja.
Ljósmynd/IDE
Nói og Þórir „Hugmyndafræðin gengur út á að vinna langtímaplan með leikstjórum, langtímasamstarf þar sem byggt er upp frá grunni.“
Leikstjóraframleiðslan
Zik Zak
» „Bjórglas fyrir tíu
árum getur skilað
jákvæðu svari um hvort
þú færð fjármagn í
kvikmynd í dag.“
Hjartagóðir Paul Dano og Brian Cox í hlutverkum sínum í næstu mynd Dags Kára, The Good Heart.