Morgunblaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 17
svæðið urðu börnin lafhrædd við
okkur, enda höfðu þau aldrei litið
hvítan mann áður.“ Ekki leið á
löngu áður en börnin fóru að kanna
þessar skrítnu aðkomuverur. „Þau
skoðuðu okkur vandlega og jafnvel
bitu! Eftir nokkra daga róuðust
þau niður og fylgdust jafnan með
okkur vinna, sofa og borða og höfðu
gaman að.“
Þegar Karen hugsar
til baka standa hlýja
og einlægni heima-
manna í Úganda henni
nær. „Þessi þjóð hefur
gengið í gegnum svo
ótal margar hörm-
ungar. Þótt átök eigi
sér enn stað í norður-
hluta landsins vegnar
landi og þjóð sífellt
betur. Heimamönnum
finnst þó enn skrítið að sjá túrista á
svæðinu og ég var margoft spurð
hvernig ég þorði að koma. Svo
þökkuðu þau mér að mikilli ein-
lægni fyrir að heimsækja landið
þeirra.“
Vopnaðir hermenn syngja
lög Celine Dion
Karen segir að í ferðinni hafi
áralöng bílhræðsla horfið fyrir bí.
„Það þótti eðlilegt að troða þrjátíu
manns í illa leikna rútu sem rúmaði
fjórtán. Ofan á þessa þrjátíu var
geitum, kjúklingum og börnum
hlaðið áður en brunað var af stað á
ofsahraða. Ég þurfti að kyngja
hræðslunni og vona það besta.“
Fyrir utan að vera farþegi í yf-
irfullum rútuskrjóðum segist Kar-
en aldrei hafa fundið til hræðslu í
ferðinni.
„Ég fór ásamt ástralskri vinkonu
yfir til Kongó í fylgd vopnaðra
varða til að sjá fjallagórillur í Vir-
unga-þjóðgarðinum. Þegar við fór-
um yfir landamærin þurftum við að
koma við í vegabréfsskoðun í litlu
húsi sem allt var úti í holum eftir
byssukúlur. Það var nú kannski
merki þess að þarna ætti ég ekki að
vera,“ segir Karen en áfram hélt
hún. „Þaðan fórum við í bílferð sem
var frekar skrítin upplifun. Ég sat
þarna á ásamt félögunum í aftur-
sætinu. Fram í sat vörður í fullum
herklæðum vopnaður AK47-
vélbyssu. Í útvarpstækinu hljóm-
uðu lög Celine Dion og Backstreet
boys og virtist vörðurinn vera mik-
ill aðdáandi þeirra, söng í hástöfum
með af mikilli einlægni. Við landa-
mærin hittum við hóp af vopnuðum
hermönnum. Leið-
sögumaðurinn
kynnti okkur fyrir
nokkrum þeirra og
við tókum í höndina
á þeim eins og ekk-
ert væri. Þegar ég
kom til Úganda dag-
inn eftir sá ég í blaði
að einn mannanna
var Laurent
Nkunda, yfirmaður
hjá uppreisnarmönnunum Nord
Kivu-svæðisins í Kongó.“
Stuttu eftir ferðina var landa-
mærum Kongó aftur lokað vegna
átaka.
Ein á ferð og
lofuð í leyni
Karen segir það hafa verið auð-
veldara en hún bjóst við að vera
kona ein á ferðalagi um Afríku.
„Ég keypti mér hring á leiðinni út
og lét alltaf eins og ég væri lofuð.
Almennt er mikil virðing borin fyr-
ir hjónabandinu þannig ég varð fyr-
ir afskaplega lítilli áreitni. Ég fór
ekkert ein út eftir myrkur nema
með hópi fólks. Að vera kona var
því ekkert mál.“
Karen segir einveran hafi verið
notaleg. „Ég var alveg eins að
stefna á að fara með einhverjum,
en það hentaði ekki fyrir fólk svo
ég fór ein. Mér fannst það aldrei
tiltökumál. Í raun var gott að þurfa
bara að taka tillit til sjálfs síns og
taka ákvarðanir fyrir sjálfa mig og
engan annan. Ef mig langaði að
vera með fólki þá sast ég bara nið-
ur hjá fólki og talaði við það. Ef ég
vildi vera ein þá var ég það og naut
þess í botn.“
gudrunhulda@mbl.is
„Ofan á þessa þrjá-
tíu var geitum,
kjúklingum og
börnum hlaðið áð-
ur en brunað var af
stað á ofsahraða.
Ég þurfti að kyngja
hræðslunni og
vona það besta.“
hollráð um heilsuna|lýðheilsustöð
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 17
www.fi.is, fi@fi.is
sími: 568-2533,
m
bl
10
25
32
3
Ferðafélag Íslands
Þjórsárver
náttúruperla á heimsvísu
30. júlí - 6. ágúst
Gísli Már Gíslason og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessorar við
Háskóla Íslands og líffræðingar eru fararstjórar í ferð FÍ í Þjórsárver
30. júlí - 6. ágúst. Þóra Ellen og Gísli Már eru bæði sérfræðingar í
lífrríki Þjórsárvera og þekkja svæðið betur flestir. Enn eru nokkur sæti
laus í þessa einstöku ferð FÍ með þessum frábæru fararstjórum.
Skráning á skrifstofu FÍ
Ásumrin fjölgar verulega þeim innlendu og erlenduferðamönnum sem ferðast um landið. Frítíma-slysum fjölgar í kjölfarið ásamt alvarlegum um-
ferðarslysum en sumarið er oft sá tími sem hvað flestir lát-
ast í umferðinni, þrátt fyrir aðstæður til aksturs séu þá
hvað bestar. Hraðinn hefur þar mikið að segja, en hann er
undir hverjum og einum bílstjóra kominn. Sama má segja
um beltanotkun, öll vitum við hverju beltin bjarga, samt
eru alltof margir sem nota þau ekki.
Góðar ferðavenjur er gott að temja sér áður en lagt er
af stað. Þær stuðla að því að við komum heil heim. Þegar
farið er í gönguferð er mikilvægt að kynna sér vel svæðið
sem fara á um. Öruggast er að velja stikaðar leiðir og
nauðsynlegt að hafa kort og áttavita. Gott er að temja sér
þá venju að alltaf sé einhver fremst og aftast í hópnum
sem ber ábyrgð á að allir haldi hópinn og enginn týnist.
Skjólgóður fatnaður er sömuleiðis mikilvægur sem og
orkuríkt nesti og drykkir.
Sé farið um hverasvæði á að fylgja stígum og fara ekki
út fyrir þá. Brunar á hverasvæðum eru ótrúlega tíðir enda
vatnið a.m.k. 100°C heitt. Vissulega gera börnin sér ekki
alltaf vel grein fyrir brunahættunni og því þarf að passa
vel upp á þau líkt og alltaf í nýju umhverfi. Þeim finnst
skemmtilegt að kanna, prófa og þreifa sig áfram og því er
nauðsynlegt að fylgja þeim vel eftir og fræða þau um
svæði sem þau þekkja ekki.
Hellar eru víða um land og margir lítt kannaðir af
ferðamönnum. Eigi að fara í hellaferð skal láta einhvern
vita af ferðum sínum og gott getur verið að skilja eitthvað
áberandi eftir fyrir utan hellinn. Ekki er skynsamlegt að
fara einn í hellaferð þar sem ekkert símasamband er í
hellum og komi eitthvað upp á er góður ferðafélagi það
eina sem hægt er að treysta á. Hellar eru sömuleiðis yf-
irleitt kaldir og jafnvel blautir og því er gott að taka með
skjólgóðan fatnað, hanska, góða skó, hjálm og ljós.
Þegar dvalið er á tjaldsvæði er mikilvægt að muna að
tjaldsvæðið er leiksvæði barna og akstur þar varasamur.
Þurfi að bakka með eftirvagn á tjaldsvæði er reglan sú að
fullorðinn einstaklingur fer út úr bílnum og fylgist með að
enginn sé fyrir aftan.
Notkun á gasi og kolagrillum er algeng á tjaldsvæðum.
Ekki ætti að nota gas innandyra, nema gas- eða súrefnis-
skynjari sé til staðar. Gasgrill á eingöngu að nota utan-
dyra og mikilvægt er að kveikja strax upp í því eftir að
skrúfað hefur verið frá gasinu. Ekki er ráðlagt að hreyfa
gaskútinn þegar grillið er í notkun þar sem eldurinn getur
blossað upp við hreyfinguna. Þurfi að skipta um eldsneyt-
iskút ætti að gera það utandyra fjarri opnum eldi. Prímus
er oft notaður til hitagjafar í tjöldum en mikilvægt er að
vera meðvitaður um að sofna ekki út frá honum.
Hálendið heillar marga bæði til göngu og aksturs.
Öruggast er að ferðast ekki einn eða einbíla þegar haldið
er til fjalla, enda margir sem halda vanbúnir af stað. Þeir
þekkja hvorki staðhætti né aðstæður og átta sig ekki á því
hversu mikill munur getur verið á aðstæðum og veðri á
láglendi og hálendi. Hálendisvegir eru þá oft grýttir og
erfiðir yfirferðar og reynslu og kunnáttu þarf til að aka þá.
Akstur yfir ár reynist mörgum erfiður farartálmi en mikil-
vægt er að vera vel útbúinn og hafa þekkingu og reynslu
áður í slíkt er lagt. Góð regla er að vaða ána áður en ekið
er yfir hana, þó slíkt skyldi ekki gera án línu. Sé ekki lagt í
að vaða ána ætti heldur ekki að aka yfir hana. Að jafnaði er
minnst í jökulám á morgnana og almenna reglan er að
vera í fjórhjóladrifinu og lága drifinu, sé það til staðar, og
aka ákveðið yfir í fyrsta gír en samt ekki of greitt.
Á hálendinu er stopult farsímasamband þó það hafi
batnað nokkuð í ár. Mikilvægt er því að gera aðrar ráð-
stafanir eins og að hafa gervihnattasíma eða tetrastöðvar
til að geta náð í Neyðarlínuna sé þess þörf. Eins ætti að
kynna sér ástand vega og veðurspá áður en lagt er af stað,
láta vita af ferðum sínum og skilja eftir ferðaáætlun sé því
við komið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Góðar ferðavenjur Mikilvægt er að kynna sér fyrirfram vel þau svæði sem ganga á um.
Á ferð og flugi …
Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri slysavarnasviðs
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Gefðu þig á tal við innfædda og
spurðu út í venjur og staðarhætti.
Klæddu þig á viðeigandi hátt.
Aðsniðinn og þröngur klæðnaður
er illa séður í mörgum löndum.
Hafðu heimamenn sem viðmið,
innfæddir kunna að meta það ef
þú ferð eftir þeirra fatahefðum og
bera meiri virðingu fyrir þér fyrir
vikið.
Hafðu almenna skynsemi í
fyrirrúmi. Vertu árvökul gagnvart
umhverfinu. Ekki vera hikandi á
göngu, vertu alltaf á „leiðinni
eitthvert.“
Ekki tala við munka eða setj-
ast við hlið þeirra að fyrra
bragði. Það getur strítt gegn
Búddatrúnni.
Til að forðast ástleitna áreitni
karlmanna er hægt að kaupa sér
nettan hring og segjast vera
gift.
Forðast þú að vera ein úti eft-
ir sólsetur. Reyndu heldur að
slást í för með hópi fólks.
Nokkur ráð fyrir konur einar á ferðalagi:
Í sumar verða björgunarsveitir staðsettar á fjórum
stöðum á hálendinu: Hveravöllum, Nýjadal, Land-
mannalaugum og Drekagili allt til 10. ágúst, ferðamönn-
um til fræðslu og aðstoðar. Sveitirnar keyra út frá þess-
um stöðum. Ef ferðamenn þurfa á aðstoð þeirra að
halda þá hafa þeir samband við Neyðarlínuna í síma 112.
vera hreinskilin í samskiptum og þá
veitist mörgum auðvelt að fara aftur
að tala um það sem báðir aðilar hafa
áhuga á og hætta að einblína á börn-
in.
Börnin og barnabörnin
Hér á landi hittast ungar stúlkur
og allt upp í eldri konur reglulega í
saumaklúbbum. Allir þekkja hvernig
umræðuefnið í saumaklúbbnum
breytist frá ári til árs og frá tímabili
til tímabils í lífi vinkvennanna. Án efa
verða barnlausu stúlkurnar í klúbbn-
um þreyttar á endalausu tali um börn
og bleiur, skólavandamál og önnur
foreldramál, sem barnafólkið er stöð-
ugt með á heilanum. Þó virðast allir
geta hlegið þegar sagt er frá ein-
hverju fyndnu sem kemur fyrir barn-
ið.
Foreldrar ættu því að hugleiða um
hvað þeir tala og hvort einhver hefur
gaman af að hlusta á frásögnina.
Sama gildir auðvitað um þann barn-
lausa, hann getur líklega ekki leyft
sér að segja hvað sem er né láta
áhugaleysið of greinilega í ljós. Það
myndi stofna vináttunni í hættu. Gott
dæmi er þegar sá eða sú barnlausa
fer að gefa góð ráð varðandi uppeldis-
málin. Foreldrar kunna sjaldan að
meta slíkt.
Þegar frá líður og börnin eru orðin
fullorðin skýtur upp nýju umræðu-
efni, barnabörnunum. Þá getur þeim
sem engin á barnabörnin farið að leið-
ast að hlusta á endalausar sögur um
þau, þótt góðar séu.
Óboðin í veislur
Eitt þarf að hafa í huga varðandi
börnin. Foreldrar ættu að gæta þess
að koma ekki með þau óboðin í veisl-
ur, né heldur leyfa þeim endalaust að
trufla símtal eða samræður við vin-
konuna eða vininn barnlausa. Eitt af
því sem barnlaust fólk kvartar oftast
undan er að vinirnir setji börnum sín-
um engar reglur og leyfi þeim að
trufla t.d. samtal fullorðinna enda-
laust. Sálfræðingar halda því fram að
það geti verið gott bæði fyrir vinátt-
una og hjónabandið gefist fólki tími til
að vera óáreitt með vinum sínum
svona af og til. Makar ættu að hafa
það í huga. Venjulega er best fyrir
vináttuna ef þeir barnlausu hafa eða
sýna áhuga á börnunum, eða láta sig
a.m.k. hafa það að hlusta á frásagnir
um þau. Einnig mega vinirnir ekki
gera of miklar kröfur til nýbakaðs
foreldris. Þeir verða að skilja að sér-
staklega móðirin hefur ekki eins mik-
inn tíma og hún hafði áður til að sinna
vinkonunum. Þá getur verið gott að
gefa sér tíma til að hittast þegar
barnið er farið að sofa, ef móðirin er
ekki of þreytt til að sinna vinkonum
sínum. fridabjornsdottir@gmail.com
Gengið í Núpsstaðarskóga
Íslenskir fjallaleiðsögumenn
standa dagana 12.-17. júlí fyrir ferð
frá Laka í Núpsstaðarskóga. Um er
að ræða fyrstu ferð sumarsins, en
gönguleiðin þykir liggja um einkar
stórbrotið landslag.
Gengið er um eystri tungu Skaft-
áreldahrauns, mesta hrauns sem
runnið hefur á sögulegum tíma. Þá
er Hverfisfljótið þverað og skeiðað
fram við Síðujökul um brunasanda
og upp á jökul og alveg inn að svo-
nefndum Hágöngum sem þar kúra
aðþrengdar af jökli svo fátt eitt sé
nefnt.
vítt og breitt
Allar nánari upplýsingar má nálg-
ast á vef Íslenskra fjallaleiðsögu-
manna
www.mountainguide.is/Ferdir/6/
14/95/default.aspx)
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn