Morgunblaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 25
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Umboðsmaður
Umboðsmann
vantar í Ólafsvík
Upplýsingar veitir
Ólöf Engilbertsdóttir
í síma 569-1376
eða 669-1376
milli kl 8 og 16 virka daga
Félagslíf
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Kettlingar, kátir og krúttlegir
Þrír ljósgráir kettlingar fást gefins, 2
læður og 1 fress. Tilbúnir að fara á ný
heimili. Mjög ljúfir og hressir, eru
kassavanir. Upplýsingar í síma
482 1350 og 661 5031.
Gefins
5 Aspir fást gefins
gegn því að vera fjarlægðar.
Fyrstur kemur fyrstur fær.
Upplýsingar í síma 892 6113.
Heilsa
Aukið sjálfsöryggi/sjálfsstyrking
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Húsnæði í boði
Einbýlishús á besta stað
350 fm einbýlishús á besta stað.
Glæsilegt útsýni. Þarfnast viðhalds.
33,3 milljónir áhvílandi, erlend mynt,
óskað eftir yfirtöku. Tilboð.
Uppl. 864 2068.
Húsnæði óskast
Þriggja herbergja íbúð í Árbæ
Reglusamur maður óskar eftir þriggja
herbergja íbúð í Árbæ. Er reyklaus og
lofa skilvísum greiðslum.
Upplýsingar í síma 848 3086.
Mjög reglusaman 22 ára kk
vantar íbúð
Er 22 ára mjög reglusamur kk sem
sárvantar að leigja stúdíóíbúð á
höfuðborgarsvæðinu á verði frá 40
þús. til 60 þús. til langtíma, má vera í
bílskúr. Ef einhver hefur áhuga má
hafa samband í síma 847 0542,
Jóhannes.
Íbúð óskast
Reglusamar og reyklausar stúlkur að
austan eru að leita að íbúð til leigu á
Rvk-svæðinu. Skilvísar greiðslur.
Nánari uppl. Ragnhildur 867 1166 &
Sara 847 5572.
Góð íbúð í Vesturbæ frá 15.8.
4ja manna fjölsk. á leið úr námi leitar
að íbúð í Vesturbænum frá 15.8 í 1-2
ár. Góð meðmæli - 100% reglusemi
og skilvísi. E-mail:
lydiaellertsdottir@gmail.com
Sumarhús
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Poolborð
5 - 6- 7 og 8 fet til afgreiðslu strax
billiard.is
Suðurlandsbraut 10, 2H
S. 568 3920
www.billiard
Þjónusta
Móðuhreinsun glerja!
Er komin móða eða raki milli
glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.
Sími 897 9809.
Gæðabón Ármúla 17a,
það besta fyrir bílinn þinn. Alþrif,
mössun, teflon, djúphreinsun.
Opið mán.-fö 8-18. S. 568 4310.
Ýmislegt
www.heitirpottar.is
Kleppsvegur 152, sími 554 7755
Tilboð Skeljar 199.000.-
Volare húðvörur
Er að selja frábærar húðvörur frá
Volare. Hringið í síma 662 6560.
Tek líka að mér heimakynningar.
Helga,
sjálfstæður söluráðgjafi
hjá Volare.
Hópstjóri Lydía.
Verð að selja Yarisinn ‘04
þú yfirt. lánið sem er 770 þús. 17.200
á mán. og borgar út 55 þús. Einnig
Subaru Impreza ‘98, verð 200 þús.
Traktorskerra á 40 þús. og píanó á 50
þús. Upplýsingar í síma 821-1160.
Teg. Daisy - mjög flottur haldari í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,
Teg. Darcy - þunnur og sexí en
haldgóður í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
6.990,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18,
Lokað á laugardögum.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Subaru Impreza ‘98
verð aðeins 200 þús. Ótaminn Plat-
onssonur 6 vetra, verð 120 þús. Plat-
onsdóttir 7 vetra með folaldi og fyli,
verð 120 þús. Brúnskjótt, lítið tamin,
150 þús. 60 hestafla Ford dráttarvél,
verð 300 þús. + skattur.
Upplýsingar í síma 865-6560.
.
Mikið úrval af flottum leðurskóm fyri
dömur. Margar gerðir.
Mjög gott verð.
Verð frá 7.885 til 9.685.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími: 551 2070
opið mán-fös 10-18
Ath. lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf
.
Ljósir og léttir.
Sumarskór fyrir herra, úr leðri og
skinnfóðraðir. Verð frá 5.885.- 9.350.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími: 551 2070
opið mán-fös 10-18
Ath. lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf
Bílar
Toyota árg. '96, ek. 229 þús. km
Til sölu Corolla 4WD. Glæsikerra í
mjög góðu ástandi. Nýsmurður og all-
ur yfirfarinn. Nýir bremsuklossar o.fl.
Vetrardekk og geislaspilari. Verð: 270
þús. kr. Oddur: 821-4485.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Mótorhjól
Til sölu Yamaha WR-250F
Árg. 2004. Mjög lítið notað. Ekið
aðeins 600 km. Dekurhjól. Verð 490
þús. Uppl. í síma 894 6562.
Einkamál
Stefnumót.is
Nýr stefnumótavefur og tengslanet:
"Þar sem íslendingar kynnast".
Líttu við og tryggðu þér gott notanda-
nafn til frambúðar.
Stefnumót.is
Nýr samskiptavefur: "Þar sem
Íslendingar kynnast". Líttu við og
tryggðu þér gott notandanafn til
frambúðar.
að fagna. Fjölskyldan var í forgrunni
og þau ræktuðu vel sambandið við
synina og fjölskyldur þeirra. Þau
höfðu í heiðri þau fjölskyldugildi sem
fágæt eru orðin í breyttu samfélagi
nútímans. Af þeirri gerð voru þau
fræ sem Gummi sáði í hjörtum okkar.
Blessuð sé minning hans.
Helga Margrét
Guðmundsdóttir.
Höfðingi er fallinn, Guðmundur L.
Þ. Guðmundsson er látinn.
Gummi frændi var góður maður og
kærleiksríkur. Hann var sterk per-
sóna sem geislaði af. Væntumþykja
hans og áhugi á lífi og starfi okkar
systurdætra hans og fjölskyldum
okkar var ómetanlegur. Hann vildi fá
að fylgjast með og vita hvað hver og
einn væri að aðhafast og hvað væri að
frétta af afkomendum hennar
Dúnnu. Þegar maður heimsótti þau
merkishjón Gumma og Dúddu voru
móttökurnar alltaf hlýjar og góðar.
Gaman var að hlusta á Gumma
frænda segja frá æskustöðvunum
fyrir vestan og fjölskyldulífinu þar.
Hann var Vestfirðingur, og eftir
heimsókn til hans fann ég að vest-
firsk blóð rann í æðum mér. Oftar en
ekki þegar við hittumst í fjölskyldu-
boðum kom hann með myndir frá
gamalli tíð og hélt þannig uppi minn-
ingunni og sögunni. Hann vildi að við
vissum og værum meðvitaðar um
sögu okkar.
Frændi kom færandi hendi fyrir
mörgum árum síðan með 100 ára
gamla kistu sem hann var búinn að
gera upp, kistu sem langamma mín
og nafna Guðrún Guðmundsdóttir
hafði átt, með því vildi hann tengja
mig arfleifð minni. Kistan góða á allt-
af sinn stað hjá mér og mínir afkom-
endur fá að vita sögu hennar. Hand-
laginn var hann frændi með
eindæmum og í minningunni eru hús-
gögn hluti af Gumma, bílskúrinn
hans í Litlagerðinu angaði af nýsmíði
og sköpun. Heimsóknir í Víði hús-
gagnaverslunina sem hann vann í til
margra ára eru eftirminnilegar. Fall-
inn er frá maður sem ávallt sýndi
mér og mínum væntumþykju og
áhuga.
Með söknuði kveð ég góðan og
mætan frænda. Ég votta Dúddu, son-
um hans og fjölskyldum þeirra inni-
lega samúð.
Guðrún Birna Guðmundsdóttir.
Mig langar að minnast Gumma
frænda með nokkrum orðum. Hann
var bróðir ömmu Dúnnu, mikill vinur
mömmu og frændi með stórum staf.
Algerlega ómissandi var að hafa
Gumma frænda viðstaddan alla stór-
viðburði í lífi okkar. Hann var ein-
staklega ljúfur og fallegur maður
sem kallaði fram það besta í fólki.
Hann tók blíðlega í hendurnar á
manni, horfði djúpt í augu manns og
meinti það sem hann sagði. Gummi
frændi hafði þau áhrif á mann að
maður ósjálfrátt brosti og fylltist
stolti af sjálfum sér, lífi sínu og fjöl-
skyldu, því hann var ávallt jákvæður
og talaði svo fallega um alla. Ég
kynntist Gumma frænda einnig á
öðrum vettvangi er ég hjúkraði hon-
um sem nemi. Þá gerði ég mér betur
grein fyrir veikindum hans og öðl-
aðist meiri virðingu fyrir honum og
viðhorfum hans til lífsins; hvernig
hann tók öllu af æðruleysi og mann-
legri reisn. Þrátt fyrir þrautir og
verki þá hélt hann í jákvæðni, lífs-
gleði og náungakærleik. Gummi
frændi lagði sig fram um að kynnast
mér og fjölskyldu minni og við Árni
erum þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast slíkum frænda og öðlingi.
Hver fögur dyggð í fari manns
er fyrst af rótum kærleikans.
Af kærleik sprottin auðmýkt er,
við aðra vægð og góðvild hver
og friðsemd hrein og hógvært geð
og hjartaprýði stilling með.
(Helgi Hálfdánarson.)
Guðrún Ösp Theodórsdóttir
(Dúnna).
Fleiri minningargreinar
um Guðmund L. Þ. Guðmundsson
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu á næstu dögum.