Morgunblaðið - 01.08.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Í DRÖGUM að nýrri lögreglusam-
þykkt fyrir Reykjavíkurborg, sem
lögð var fram í borgarráði fyrr í sum-
ar, eru nokkur nýmæli frá gildandi
lögreglusamþykkt, m.a. þau að svo-
nefndir „auglýsingabílar“ verða
bannaðir nema með leyfi bygginga-
fulltrúa. Þar er um að ræða bann við
óleyfilegum auglýsingaskiltum á al-
mannafæri sem hingað til hefur ekki
náð til yfirgefinna bíla með auglýs-
ingaskiltum. Í bréfi skrifstofu borg-
arstjórnar til borgarráðs segir að
auglýsingabílum hafi fjölgað og þeir
séu til lýta í umhverfinu auk þess sem
þeir trufli umferð.
Drögin boða einnig víðtækara bann
frá því sem áður var við að leggja
stórum bílum á götum eða almennum
bílastæðum. Nú er aðeins bannað að
leggja trukkum á nóttunni í þessi
stæði en nýju drögin gera ráð fyrir að
bannið gildi allan sólarhringinn. Mið-
að er við 4 tonna heildarþyngd í stað 5
tonna áður, en samkvæmt eldri lög-
reglusamþykkt var miðað við 3,5
tonn. Þessi breyting er gerð að feng-
inni reynslu.
Þá er reiknað með að lögreglustjóri
geti að fengnum tillögum borgar-
stjórnar takmarkað eða bannað um-
ferð stórvirkra vinnuvéla, vörubíla
eða annarra ökutækja á einstökum
götum ef slík umferð er álitin hættu-
leg eða til sérstakra óþæginda fyrir
aðra umferð eða íbúa.
Borgin gefi út leyfi
í stað garðyrkjustjóra
Þá er boðuð sú breyting að Reykja-
víkurborg komi sem leyfisveitandi
vegna samkomuhalds á grænum
svæðum borgarinnar o.fl. í stað garð-
yrkjustjóra borgarinnar áður. Sam-
kvæmt nýju drögunum er gert ráð
fyrir að sótt verði um leyfi til upplýs-
ingamiðstöðvar borgarinnar sem síð-
an setji málið í réttan farveg innan
borgarkerfisins með því að leita um-
sagnar garðyrkjustjóra. Þannig geti
borgarbúar leitað á einn stað með um-
sóknir í stað þess að snúa sér til ein-
stakra embættismanna borgarinnar.
Ástæða endurskoðunar lögreglu-
samþykktarinnar nú er reglugerð
dómsmálaráðuneytisins frá 2007 um
lögreglusamþykktir en þar segir að
einstakar lögreglusamþykktir sem
settar hafi verið fyrir setningu reglu-
gerðarinnar skuli gilda í sex mánuði
eftir gildistöku hennar, nema ný lög-
reglusamþykkt hafi verið gerð fyrir
hlutaðeigandi sveitarfélag á tíma-
bilinu.
Í nýju drögunum er fjallað um
meðferð skotvopna sem er samhljóða
gildandi lögreglusamþykkt og fyrr-
nefndri reglugerð dómsmálaráðu-
neytisins. Samkvæmt reglugerðinni
er meðferð skotvopna óheimil á al-
mannafæri en óheimil í þéttbýli skv.
gildandi lögreglusamþykkt. Nýju
drögin boða þá stefnu að takmörkun-
in nái ekki einungis til þéttbýlis, þar
með talið heimahús og atvinnufyrir-
tæki, heldur einnig til svæða utan
þéttbýlis sem opin eru almenningi.
Um staðsetningu, opnunartíma, af-
greiðslutíma áfengis, veitingastaða
o.fl. gilda málsmeðferðarreglur borg-
arráðs um veitingastaði.
Auglýsinga-
bílarnir
óvelkomnir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lögreglusamþykkt Borgin er ekki
hrifin af bílum sem þessum.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Akureyri | Rauð hjörtu blasa nú við vegfarendum í
hverju einasta umferðarljósi á Akureyri og allt er
klárt fyrir hátíðina Ein með öllu … og allt undir.
Uppátækið hefur komið brosi á varir þeirra sem
eru stopp á rauðu ljósunum og Margrét Blöndal,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að fjöldi
brosa, ekki bara fólks, muni verða árangurskvarð-
inn í ár: „Við erum að fara yfir síðasta tékklist-
ann,“ sagði Margrét þegar blaðamaður náði af
henni á harðahlaupum. „Við erum að redda meira
heyi í Dynheima og ætlum að finna gamla speg-
ilinn til að skapa réttu stemninguna í húsið þegar
diskótekið hefst [í kvöld – innsk. blm.]. Iðnaðar-
safnið er klárt og búið að líma Valash miða á flösk-
urnar.“ Eins og greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu svífur nú andi 9. áratugarins yfir bænum,
þannig að verslanir á Akureyri virðast fastar í
tímaskekkju. Í búðinni Sirka verður Dallasþema, í
Centro hafa verið „leggings“ verið sérsaumaðir,
starfsmenn bláu könnunnar eru í búningum og
glitlistmunir frá 9. áratugnum prýða nú galleríin.
„Þetta er algjört ævintýri. Ég get ekki séð að
þetta gæti verið yndislegra og ég er orðin mjög
spennt fyrir að hátíðin hefjist. Þetta er svolítið
eins og á jólunum, allt í einu klukkan 6 þá detta jól-
in inn og þá getur maður ekki verið annað en glað-
ur.“
Mikill mannfjöldi í miðbænum
Umferðin til bæjarins hefur verið talsverð und-
anfarna daga, en Daníel Guðjónsson yfirlögreglu-
þjónn segir það ekki alveg ljóst hvort það sé vegna
verslunarmannahelgarinnar eða góða veðursins.
Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn seg-
ir mikinn mannfjölda kominn í bæinn en allt geng-
ið vel hingað til: „Veðrið hefur verið ljómandi gott
og ekkert hefur plagað okkur, allir brosandi og
góðir.“ Aðspurður segir Ólafur það verða lítið mál
að fara í lögreglubúningana frá 9. áratugnum, en
það verður hluti af þemanu í bænum yfir helgina.
„Þeir eru svo einfaldir, að það er nú lítið mál. Þetta
er bara gamli góði hátíðarbúningurinn. Einhverjir
okkar hafa reyndar bólgnað út og einhverjir bún-
ingar skroppið saman. En margir okkar eiga bún-
ingana enn og við munum sýna okkur í miðbæn-
um. Það er líka gaman að ganga þar núna og
spjalla við fólk í góða veðrinu.“
„Algjört ævintýri“
„Hjartastopp“ Rauð hjörtu eru nú í
hverju umferðarljósi á Akureyri.
Árangurinn mældur í brosum á Einni með öllu í ár
Lögreglumenn fara í hátíðarbúning frá 9. áratugnum
Seyðisfjörður | Heldur hefur dregið úr
makrílveiði á miðunum austan við
land síðustu daga. Góð makrílveiði í
sumar hefur verið góð búbót fyrir út-
gerðirnar því makríll er utan kvóta
hjá Íslendingum. Makríll hefur mest
veiðst sem meðafli með síld en í sum-
ar hefur hann oft verið 40 til 60%
aflans, að sögn Karls Jóhanns Birg-
issonar, rekstrarstjóra útgerðar hjá
Síldarvinnslunni hf. Dregið hefur úr
veiðunum síðustu daga og hlutfall
makríls minnkað.
Makríllinn er ofarlega í sjónum og
hefur reynst best að láta tvö skip
veiða saman með svokölluðu tvíbura-
trolli. Skip Síldarvinnslunnar, Börk-
ur og Birtingur, eru á miðunum og
fleiri skip sem leggja upp hjá fyr-
irtækinu. Aflinn er bræddur í verk-
smiðjunum á Norðfirði og Seyðis-
firði og þar hefur verið mikið að
gera. Til að auka afköst skipanna við
veiðar hefur Súlan EA verið í hlut-
verki flutningaskips. Hún flytur afla
frá veiðiskipunum á miðunum og að
verksmiðjunum á Norðfirði og Seyð-
isfirði. Myndin var tekin í fyrradag
þegar unnið var við löndun úr Súl-
unni á Seyðisfirði.
Íslendingar eru ekki aðilar að
samningi strandþjóða um skiptingu
makrílkvótans. Karl Jóhann segir
mikilvægt að sinna þessum veiðum
til að fá vopn upp í hendurnar gagn-
vart hinum þjóðunum. Þegar Ís-
lendingar fái makrílkvóta geti út-
gerðirnar veitt makrílinn seinna á
haustin, þegar hann henti betur til
manneldisvinnslu. Fleiri þjóðir hafi
áhuga á þessum stofni. Karl getur
þess að rússnesk veiðiskip séu að
nálgast miðin og þau séu að veiðum.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Dregur úr makrílveiði
hjá íslensku veiðiskipunum
ENN er óvíst
hvort lundi verð-
ur veiddur til 15.
ágúst í Vest-
mannaeyjum
eins og venjan er
eða hvort haldið
verður í júní-
ákvörðun bæj-
arráðs um að
stytta veiði-
tímabilið til 31.
júlí. Fyrr í vikunni samþykkti bæj-
arráð að framlengja tímabilið aftur
til þess 15. vegna góðra horfa hjá
lundastofninum, auk þess sem lítið
hefur veiðst hingað til. Endanlegri
ákvörðun hefur hinsvegar verið
slegið á frest eftir að ábendingar
um pysjudauða bárust frá Nátt-
úrustofu Suðurlands.
Að sögn Gunnlaugs Grettissonar,
forseta bæjarstjórnar, tekur nú við
fjögurra daga rannsóknarvinna, en
farið var í könnunarleiðangur um
veiðisvæðin í gær. „Við tökum
ábendingar Náttúrustofu alvarlega
en hlustum líka á bjargveiðimenn-
ina og þeir ætla núna að bíða og sjá
hvernig fram vindur. Þeir hafa sýnt
mikla ábyrgð og gott frumkvæði í
þessu máli,“ segir Gunnlaugur.
Lokaákvörðun verður tekin á
þriðjudag þegar niðurstöður rann-
sóknanna liggja fyrir. unas@mbl.is
Lundinn
rannsakaður
yfir þjóðhátíð
Lundinn stendur
höllum fæti.
FÉLAGAR í Landssambandi
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna (LSS) samþykktu á fundi
sínum á Keflavíkurflugvelli í gær
að ganga að tilboði Flugmála-
stjórnar um aukagreiðslur fyrir
ýmsa þjónustu á vellinum, með sam-
komulagi sem rennur út í árslok.
Forsaga málsins er sú að þegar
bandaríska herliðið hélt af landi
brott 2006 gerði Flugmálastjórn
samning við LSS um að greiða sem
svarar 20 yfirvinnutíma á mánuði
fyrir þau störf sem herliðið greiddi
áður fyrir með staðaruppbót. Felur
samkomulagið nú í sér að greiddir
verða 10 tímar fram að áramótum.
Afstýrðu
röskun á flugi
VEGNA innsetningar í embætti for-
seta Íslands í dag verður svæði í
miðborginni lokað í fimm og hálfa
klukkustund eða frá hádegi og til
17.30 síðdegis. Um er að ræða
Kirkjutorg við Skólabrú, Templ-
arasund við Vonarstræti og Kirkju-
stræti við Pósthússtræti og er veg-
farendum því góðfúslega bent á að
finna sér aðrar leiðir, segir í til-
kynningu frá lögreglunni. Þeir sem
hyggjast nýta sér bílastæði í mið-
borginni eru sömuleiðis beðnir að
hafa þetta hugfast svo komast megi
hjá óþægindum.
Götum lokað
í miðborginni
Í lögum um lögreglusamþykktir frá
1988 segir að þær skuli fjalla um
allsherjarreglu, reglu og velsæmi á
og við almannafæri og allt sem lýtur
að því að draga úr hættu og óþæg-
indum. Þær kveða á um að greiða
skuli fyrir umferð og tryggja öryggi
fólks. Þær fjalla einnig um friðun og
vernd mannvirkja og opinna svæða
og hvernig stuðla megi að góðri um-
gengni og hreinlæti á almannafæri.
Einnig er fjallað um afgreiðslutíma
veitingastaða og skemmtanahald.
Brot gegn lögreglusamþykkt
varða sektum. Sama gildir um brot á
reglum sem settar eru samkvæmt
lögreglusamþykkt. Ef kenna má yf-
irsjón barns skorti á hæfilegri umsjá
foreldris eða þess sem gengur
barninu í foreldrisstað skal refsa
þeim fyrir yfirsjónina.
Samkvæmt lögreglusamþykkt
Reykjavíkur eru áflog og óspektir
bannaðar á almannafæri og enginn
má sýna af sér ósæmilega háttsemi
eða trufla umferð.
Þá er bannað að valda ónæði eða
raska næturró fólks.
Lögreglusamþykktir