Morgunblaðið - 01.08.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2008 27
V i n n i n g a s k r á
13. útdráttur 31. júlí 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 2 6 2 9
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
4 2 7 9 6 2 5 9 9 3 5 1 8 8 4 5
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
5342 11887 17745 30617 35414 68393
9933 13348 25901 31272 44383 75889
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
2 7 4 1 0 5 6 3 2 0 5 7 6 2 8 1 7 1 3 5 7 3 3 4 5 1 8 4 6 3 2 9 3 7 4 2 3 4
7 7 0 1 2 3 8 7 2 0 8 4 9 2 8 4 2 2 3 6 9 3 1 4 6 1 5 9 6 4 2 1 7 7 4 2 7 1
9 8 2 1 3 6 7 7 2 1 0 1 2 2 9 0 6 2 3 7 7 5 9 4 6 3 3 3 6 5 4 0 1 7 4 4 5 5
2 6 2 4 1 5 1 0 0 2 1 4 9 2 2 9 2 0 5 3 9 4 8 9 4 8 2 1 9 6 5 5 7 7 7 6 8 1 9
3 3 3 0 1 6 1 6 0 2 1 5 0 8 2 9 9 0 5 3 9 6 2 9 5 0 5 6 1 6 6 0 8 8 7 7 4 7 6
4 7 0 1 1 7 8 7 1 2 2 3 7 4 3 0 2 1 5 3 9 7 0 1 5 1 4 3 4 6 6 8 6 9 7 7 8 3 0
6 2 4 2 1 8 0 5 3 2 3 6 2 1 3 0 4 2 9 3 9 8 7 2 5 4 7 4 3 6 7 0 5 6 7 8 4 4 3
6 5 2 4 1 8 1 3 3 2 3 9 7 8 3 0 5 1 4 4 0 2 4 2 5 5 0 8 7 6 7 7 0 8 7 9 6 3 2
6 5 6 3 1 8 2 0 0 2 4 8 6 4 3 1 2 2 5 4 0 5 5 2 5 6 4 8 0 6 8 8 5 1 7 9 7 4 8
6 9 2 2 1 8 3 4 1 2 5 2 9 2 3 1 4 6 8 4 0 6 0 7 5 6 6 5 6 6 9 6 1 3
8 1 1 0 1 9 2 7 4 2 5 7 1 0 3 2 6 7 7 4 1 2 2 7 5 6 9 4 2 7 0 9 9 1
8 7 9 7 2 0 0 1 5 2 7 3 3 4 3 3 2 8 1 4 2 5 3 6 5 7 4 5 0 7 2 8 4 3
9 8 8 5 2 0 0 7 2 2 7 4 9 4 3 5 1 4 5 4 3 0 1 8 6 3 0 2 0 7 4 0 3 1
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
4 0 3 1 0 7 0 8 2 4 7 6 9 3 2 1 5 5 4 1 6 2 1 5 1 4 2 7 6 2 0 0 3 6 9 3 8 3
9 2 6 1 0 7 6 7 2 4 8 7 0 3 2 2 1 9 4 1 9 8 8 5 1 4 5 0 6 2 2 3 6 7 0 0 4 8
9 6 3 1 0 7 7 5 2 5 7 0 0 3 3 0 8 2 4 2 0 5 8 5 1 5 5 9 6 2 2 6 7 7 0 1 2 6
1 3 7 8 1 0 9 7 9 2 5 7 5 5 3 3 3 7 9 4 2 0 9 3 5 1 7 2 2 6 2 3 3 7 7 0 7 7 8
1 5 3 4 1 1 5 5 8 2 5 8 0 5 3 3 6 9 8 4 2 2 1 9 5 1 9 1 4 6 2 3 8 5 7 0 9 1 8
1 8 5 1 1 2 6 6 4 2 5 9 1 6 3 3 7 6 8 4 2 3 7 2 5 2 4 3 1 6 2 4 0 6 7 0 9 7 5
2 0 2 8 1 2 9 7 8 2 5 9 9 1 3 4 2 1 2 4 3 0 4 7 5 2 4 6 8 6 2 4 6 6 7 1 0 6 5
2 4 0 4 1 3 0 7 4 2 6 2 4 6 3 4 2 4 4 4 3 8 6 7 5 2 7 6 0 6 2 4 8 1 7 1 2 9 7
2 7 6 7 1 3 2 7 1 2 6 5 0 9 3 4 4 8 0 4 4 0 6 0 5 2 8 0 7 6 2 5 7 4 7 3 1 3 1
2 8 0 1 1 4 3 4 8 2 6 5 1 9 3 5 0 1 1 4 4 2 7 3 5 4 0 1 5 6 2 5 7 9 7 3 7 9 4
3 0 4 9 1 4 5 1 8 2 6 7 8 5 3 5 1 9 1 4 4 2 7 9 5 4 3 5 1 6 2 8 8 8 7 3 8 4 1
5 1 2 3 1 5 1 6 7 2 6 9 1 6 3 5 7 4 6 4 4 7 5 3 5 4 3 8 6 6 3 5 9 0 7 4 2 2 5
5 3 3 0 1 5 2 8 2 2 6 9 3 4 3 5 7 8 9 4 5 5 9 7 5 4 5 7 8 6 4 1 9 0 7 5 3 6 3
5 5 4 7 1 5 5 6 5 2 7 0 7 3 3 6 0 7 4 4 5 6 0 4 5 4 9 5 0 6 4 7 1 1 7 5 4 4 3
5 6 1 1 1 5 9 0 4 2 7 2 3 6 3 6 3 4 8 4 5 6 1 8 5 5 5 9 4 6 4 8 3 6 7 5 6 7 4
5 7 5 4 1 6 1 9 2 2 7 3 4 2 3 7 3 1 8 4 6 0 4 8 5 5 7 2 5 6 4 9 1 7 7 5 9 2 4
5 8 7 1 1 6 3 5 8 2 7 7 8 1 3 7 3 2 2 4 6 4 3 4 5 5 9 1 2 6 5 0 4 6 7 6 4 3 4
6 3 2 2 1 7 2 7 7 2 7 8 2 7 3 7 8 6 5 4 7 1 4 5 5 6 6 4 7 6 5 8 9 7 7 7 3 2 9
6 9 0 6 1 7 4 4 8 2 8 1 2 3 3 7 9 5 6 4 7 1 4 7 5 7 0 1 8 6 5 9 5 6 7 7 6 9 9
6 9 6 5 1 7 6 4 3 2 8 3 6 7 3 8 0 2 1 4 7 8 5 0 5 7 6 9 1 6 6 5 1 0 7 7 9 3 7
7 4 5 5 1 8 3 2 8 2 8 4 4 3 3 8 0 3 9 4 8 0 6 9 5 7 7 8 9 6 6 7 8 3 7 8 0 8 8
7 9 2 6 1 8 6 8 7 2 8 4 4 7 3 8 7 7 7 4 8 1 0 4 5 8 2 7 3 6 6 8 6 2 7 9 0 8 6
8 0 3 7 1 8 7 5 8 2 9 1 5 2 3 9 2 8 7 4 8 8 0 6 5 9 0 5 8 6 6 9 7 8 7 9 1 6 9
8 5 4 8 1 8 9 3 4 2 9 4 4 6 3 9 9 0 7 4 8 9 9 8 5 9 1 8 8 6 7 1 6 5 7 9 2 8 4
8 9 7 0 2 0 1 0 1 2 9 7 9 9 4 0 0 7 3 4 9 0 6 2 6 0 5 4 2 6 7 5 3 7 7 9 6 9 3
9 3 6 0 2 0 1 2 1 3 0 2 5 1 4 0 1 6 0 4 9 3 3 2 6 0 5 6 4 6 7 6 1 9 7 9 9 3 6
9 3 8 4 2 0 4 4 5 3 0 3 4 5 4 0 1 9 4 4 9 7 2 7 6 0 7 3 8 6 7 8 0 0
1 0 0 6 6 2 1 7 5 5 3 0 4 9 6 4 0 5 3 1 5 0 5 3 0 6 1 3 1 7 6 8 3 7 2
1 0 1 8 2 2 2 1 0 6 3 0 9 3 4 4 0 7 1 7 5 0 7 2 1 6 1 4 5 3 6 8 6 6 0
1 0 3 0 6 2 2 9 6 4 3 1 0 9 8 4 1 1 5 0 5 0 7 2 2 6 1 6 3 1 6 8 9 5 1
1 0 3 8 8 2 3 5 9 6 3 1 7 5 0 4 1 4 8 5 5 0 7 6 5 6 1 6 7 1 6 9 0 4 3
1 0 4 2 9 2 3 8 2 9 3 2 1 1 7 4 1 5 0 8 5 1 1 8 7 6 1 9 1 5 6 9 2 9 3
Næstu útdrættir fara fram 7. ágúst, 14. ágúst, 21. ágúst & 28. ágúst 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.is
um./Hlýju og ást þú hefur sáð/í
hlað sem yfir hinn stóra sæ./Okkur
lystir að öðlast þína dáð,/örlát voru
þín kærleiks fræ.
Þú verður ávallt með oss.
Kær kveðja,
Birkir, Guðlaug,
Bárður Örn, Björn
Hólm og Freyja.
Elsku amma!
Að baki móður,
fyrst þig sá;
nærveran sem hlýr aftanblær,
hógvær af ást og þrá.
Þögul varst,
við fyrstu kynni;
orðin tálguð,
að skýrleikans beini.
Seinna sá,
sem huldukona værir;
róin bjargföst,
atgervið af öðrum heimi.
Í hjarta mínu þú nú dvelur,
andinn heim kominn;
já, eilífðin ávallt kallar,
að lífsverkinu loknu.
Takk, amma mín, fyrir að vera
mér allt þetta. Ávallt þinn,
Hermann Bárðarson.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Elsku amma.
Margar minningar koma upp í
huga okkar á stundu sem þessari.
Þú tókst okkur alltaf fagnandi þeg-
ar við komum í heimsókn. Heima-
gerðar pönnukökur og kleinur var
vinsælt brauð innan fjölskyldunn-
ar.
Þú varst dugleg við ýmsar hann-
yrðir, prjónaðir lopapeysur, ullar-
sokka og vettlinga handa fjölskyld-
unni. Í seinni tíð leyfðir þú
hæfileikunum að njóta sín við ker-
amik, útsaum útskurð, bútasaum,
skrautskrift og fleira í félagsstarfi
aldraðra, mörg þessara verka
prýddu heimili þitt og afkomenda
þinna. Þú varst vön að hugsa meira
um aðra en sjálfa þig.
Þú fæddist og ólst upp í
Fnjóskadal. Þið afi komuð ykkur
upp aðstöðu á eignarlandi þínu í
Hróarsstaðalandi, til að geta dval-
ist þar yfir sumartímann.
Þær voru ófáar stundirnar sem
þið eydduð þar, þið afi hlúðuð sam-
an að gróðrinum, en hann sá alveg
um girðinguna. Í dag er þessi stað-
ur vinsæll íverustaður fjölskyld-
unnar.
Þú áttir því láni að fagna að vera
lengst af ævinnar við góða heilsu.
Það var ekki fyrr en seint á síðasta
ári að þú fórst að kenna þér meins.
Eftir stutta baráttu við illvígan
sjúkdóm hefur þú nú fengið hvíld-
ina.
Við þökkum starfsfólki lyflækn-
ingadeildar Sjúkrahúss Akureyrar
fyrir góða umönnun undanfarnar
vikur.Við viljum biðja góðan Guð
að geyma þig.
Um leið og við þökkum þér alla
umhyggjuna sem þú sýndir okkur
og stundirnar sem við áttum sam-
an, viljum við senda börnum þínum
og fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur.
Við kveðjum þig elsku amma,
með kvæði eftir Davíð Stefánsson
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
Þínar sonardætur
Kristín og Erla.
inum ykkar og vera í heita pott-
inum ykkar. Þegar við komum í
heimsókn þá hafðirðu alltaf eitthvað
skemmtilegt að gera eða sýna okk-
ur.
Þú varst svo ánægður með nýju
lóðina þína í Sléttuhlíð sem þú og
amma voruð nýbúin að kaupa og
hlakkaðir svo til að byrja að byggja
sumarbústaðinn.
Þú varst svo góður maður og
vildir allt fyrir okkur gera.
Þín verður sárt saknað.
Þín afabörn
Davíð og Dagný.
Við Jóhann tengdumst, og kynnt-
umst, gegnum börn okkar, sem nú
einmitt í júlí höfðu verið gift í tutt-
ugu ár. Sú viðkynning var bæði gef-
andi og gleðjandi. Jóhann í Eimskip
var maður framkvæmda. Hann var
afar hagur. Smíðar voru hans yndi.
Hann óskaði, og sótti það fast, að fá
að byggja „leikhús“ fyrir barna-
börnin á lóð sumarhúss okkar í
Sléttuhlíð. Við fengum að leggja til
efni, en ekkert tók hann fyrir smíð-
ina, sem fór fram í frítíma hans fyr-
ir framan bílskúr hans í Grænukinn
6 og var að lokum flutt með krana-
bíl. Og stendur þar enn. Erluás 38
var síðar byggt samkvæmt hans
hugmyndum og að mestu byggt af
honum eða eftir hans stjórn, ann-
álað snyrtihús, sem lyftir umhverfi
sínu.
Hann var dyggur stuðningsmað-
ur FH og studdi félagið mjög frá
upphafi framkvæmda við Kapla-
krika. Við sáumst stundum á
heimaleikjum FH. Eins félagslynd-
ur og hann var þá vildi hann oftast
njóta leiksins einn og ótruflaður,
stóð helst bakvið sætin, vildi ekki
sýna öðrum viðbrögð sín við leikn-
um, en metnaður hans var mikill
gagnvart sínu liði. Við sáumst síð-
ast að morgni 8. júlí sl. í blíðuveðri í
Sléttuhlíð. Þau hjón höfðu keypt af-
lóga hús á góðri lóð skammt frá
„leikhúsinu“ sem Jóhann smíðaði
forðum. Það var alltaf gaman og
fræðandi að ræða við Jóhann með
sitt kankvísa bros. Þarna lék hann
á als oddi, fullur af framkvæmda-
gleði, margra ára draumur hafði
ræst. Þarna skyldi engan kofa
reisa, heldur veglegt hús, eins stórt
og leyfilegt var. Hann hafði íhugað
– og teiknað – þetta hús, sem hann
sagði mér að réttir aðilar myndu
útfæra.
Sama dag fór hann til skoðunar á
sjúkrahús. Þaðan átti hann ekki aft-
urkvæmt, og er nú kvaddur í dag.
Hann var vammlaus maður og
víta. Slíkra er gott að minnast. Ást-
vinum hans votta ég samúð mína.
Ámundi H. Ólafsson.
Fallinn er nú frá góður vinur, Jó-
hann Guðmundsson, eftir stutta
baráttu við erfiðan sjúkdóm. Ég
man það eins og gerst hafi í gær
þegar ég kom í atvinnuviðtal hjá
Eimskip í Hafnarfirði. Jóhann Guð-
mundsson sem var frekar ákveðinn
í fasi tók á móti mér og er því ekki
að neita að ég var frekar feimin.
Ég var ráðin, en um 20 ár eru liðin
frá þessum degi. Jói var einstakur
yfirmaður, hann var ákveðinn en
mjög sanngjarn og starfsfólki leið
vel að vinna hjá honum. Á milli
okkar myndaðist góður vinskapur
sem hélt áfram eftir að hann hætti
störfum sökum aldurs.
Jóa var margt til lista lagt og var
sama hvað hann lagði fyrir sig allt
var svo fagmannlega gert. Þar ber
að nefna garðrækt, fluguhnýtingar,
listmálun, trésmíði og húsasmíði.
Þegar komið var í Grænukinnina
til Jóa og Rúnu vakti það aðdáun
hversu fallegan garð þau áttu, var
þetta þeirra sameiginlega áhuga-
mál og lögðu þau mikið kapp á að
rækta garðinn sinn. Eftir að þau
fluttu í nýja húsið sitt Erluásinn
leið ekki á löngu þar til þau fengu
verðlaun fyrir fallegasta garðinn í
Hafnarfirði.
Stuttu áður en hann hætti að
vinna hjá Eimskip fór hann í það
mikla verkefni að smíða sitt eigið
hús, en það hafði verið draumur
hans lengi. Margir voru nú gáttaðir
á því að Jói skyldi fara út í þessa
vitleysu og vera kominn á þennan
aldur en hann blés nú bara á þær
athugasemdir. Húsið reisti hann af
sinni alkunnu snilld og var fluttur í
það tveimur árum eftir fyrstu
skóflustungu.
Gott var að heimsækja þau hjón-
in og vel var tekið á móti okkur.
Tekinn var göngutúr um húsið og
var alltaf eitthvað nýtt að sjá sem
Jói var búinn að hanna.
Veiðin var eitt af hans aðal-
áhugamálum yfir sumarmánuðina,
þar fór hann með góðum vinum
sínum og var alltaf gaman að sjá
þegar Jói kom niður í vinnu í veiði-
gallanum brosandi allan hringinn
til að ná sér í beitu áður en haldið
var í veiðiferðina. Á kaffistofunni
fengum við að heyra veiðisögurnar
og sögur af veiðifélögunum og var
þá oft hlegið dátt.
Jói var einstaklega greiðvikinn
og hjálpsamur. Þegar við hjónin
ákváðum að koma niður bústað var
leitað til Jóa til að fá ráðleggingar
og ávallt hafði hann svör við öllum
þeim spurningum sem upp komu.
Fyrir ári síðan var farið í að steypa
grunninn og var Jói einn af þeim
sem réttu fram hjálparhönd. Ég
horfði á hann með aðdáun hversu
verklaginn hann var og yngri
strákarnir áttu fullt í fangi með að
fylgja honum eftir. Þarna var mað-
ur með mikla fagkunnáttu, sem
naut þess að láta verkin tala. Ekki
hvarflaði að manni þá að honum
yrði kippt svo snögglega úr hring-
iðu lífsins, hann sem var í starthol-
unum að takast á við nýtt verkefni
sem var sumarbústaðasmíði. Jói
kunni að nýta hvert augnablik lífs-
ins og kunni að njóta líðandi stund-
ar.
Ég kveð hér góðan vin með þess-
um orðum
Alveg frábær áttum ár
augun vökna að sinni
verður vinur þiggja tár
velferð því sinntir minni.
Elsku Rúna, við Þorri og dætur
sendum þér og fjölskyldunni inni-
legar samúðarkveðjur. Megi Guð
styrkja ykkur á erfiðri stundu.
Arndís Aradóttir.
Ertu þá farinn Jói minn, kom
fljótt í hugann eftir að ég frétti af
andláti vinar míns Jóhanns Guð-
mundssonar. Og í huga minn koma
ótal minningabrot um samstarf og
samvinnu okkar.
Þetta hófst allt saman 1970 er
við störfuðum saman í Knatt-
spyrnudeild FH þegar uppgangur
knattspyrnunnar þar var að hefj-
ast. Þar voru stórhuga menn í for-
ustu og við lögðum okkar lóð á vog-
arskálina. FH var þá að byggja
malar- og frjálsíþróttavöllinn í
Kaplakrika og þá munaði nú um
þitt framlag og vina þinna Auðuns
Óskarssonar og Skúla Þórssonar,
sem líka er farinn. Þið skipuðu
Byggingarnefnd FH og lögðuð
ásamt forystusveit FH nótt við dag
til að koma þessum mannvirkjum
upp. Er óhætt að segja að þótt
þessi mannvirki þættu ekki boðleg
í dag þá skiptu þau samt sköpum
bæði fyrir knattspyrnu og frjálsar
íþróttir í FH. Svo var haldið áfram,
grasvöllurinn byggður og nýtt og
glæsilegt íþróttahús byggt. Alltaf
varst þú í fararbroddi okkar í sjálf-
boðavinnunni, einstaklega ötull og
ráðagóður.
Það var gott að leita til þín, Jói
minn, það reyndi ég 17. júní forð-
um, þegar ég var samkvæmt venju
að fara með FH fánann okkar í há-
tíðarskrúðgönguna, fáninn var klár
en stöngin til að bera hann fannst
ekki. Þá leitaði ég til þín og þú
töfraðir fram þetta forláta hrífu-
skaft og festir það svo haganlega
að þrátt fyrir óhagstætt veður var
fáninn okkar borinn með reisn og
stolti eins og vera ber.
Já, Jói minn, svo var það veiði-
ferðin okkar. Þér hafði áskotnast
aðgangur að Miðfjarðará og tókst
mig með þér. Það eru ógleyman-
legir dagar sem við áttum þar og
fyrir mig var unun að fylgjast með
þér við veiðiskapinn, hvað þú naust
þín vel úti í náttúrunni og af hve
mikilli virðingu þú umgekkst ána
og veiðimennskuna. Þótt aflinn
væri ekki mikill, þá fékkst þú
nokkra fiska og ég Maríulaxinn.
Það var mikil gæfa að eiga þig
og Rúnu að vinum. Það höfum við
Valdís reynt, og við þökkum ykkur
hjónum innilega fyrir aðstoð ykkar
og liðsinni.
Jói minn, þín verður sárt saknað
af okkur öllum vinum þínum og FH
mun sakna góðs félaga. Og mikill
er missir fjölskyldu þinnar.
Rúna mín við Valdís sendum þér,
börnum ykkar og fjölskyldu okkar
dýpstu samúðarkveðjur í ykkar
miklu sorg, nú þegar Jóhann er
farinn í náðarfaðm guðs.
Gunnlaugur Magnússon.
Við vorum svo lánsöm fjölskyld-
an að vera nágrannar Jóa í nokkur
ár. Að þeim árum búum við alla
ævi. Eitt árið fengum við verðlaun
fyrir garðinn okkar. Garð sem að
mestu var með gróðri sem Jói og
Guðrún höfðu rétt okkur úr sínum
garði. Svona var þetta, afgangar úr
þeirra garði dugðu til verðlauna hjá
öðrum. Held að svona hafi verið í
flestu. Það græddu allir á kynnum
sínum af Jóa. A.m.k. við. Takk fyrir
okkur.
Mitt uppáhaldsljóð er sem ort til
Jóa, hann var svo sannarlega með
sæluhús í byggð:
Sæluhús eru bara í óbyggðum þessa lands
Gamalt kex
Saggi
Feitar ryðgaðar niðursuðudósir
Prímusinn bíður þess albúinn
að hvissa bláum loga
Reka saggann burt
Hita vatnið
hita andrúmið
Hita andlit okkar og hendur
En við þyrftum ekki síður sæluhús hér í
byggðinni
Ekki útaf kexi og niðursuðudósum
af þeim höfum við nóg
nei við þyrftum þetta orð
Sæluhús
og við þyrftum þennan loga
sem rekur burt saggann
hitar andlit okkar og hendur
hitar andrúmið
hitar andrúmið milli okkar
þegar við komum kalin heim
(Sigurður Pálsson.)
Okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur til fjölskyldunnar.
Guðjón, Halla og dætur,
(áður Grænukinn 4).