Morgunblaðið - 05.08.2008, Side 1

Morgunblaðið - 05.08.2008, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. Á G Ú S T 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 211. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er REYKJAVÍKREYKJAVÍK ALGJÖRIR INNIPÚKAR Á NASA UM HELGINA DAGLEGTLÍF Tábrot og lím í hárinu fyrir dansinn MANNLÍFIÐ var blómlegt á götum Ísafjarðar í gær og ekki dró úr því þegar um 1.800 farþegar skemmtiferðaskipsins Queen Elizabeth 2 stigu í land, svo fólksfjöldi bæjarins nánast tvöfaldaðist. Skipið gat ekki lagst við bryggju vegna stærðar en lá daglangt við legufæri í Skutulsfirði á með- an farþegarnir nutu veðurblíðunnar og hafa far- þegar Flugfélags Íslands eflaust notið sín líka þegar Dash-8-flugvél flaug lágflug út fjörðinn í námunda við Drottninguna. Þetta er í síðasta sinn sem skipið heimsækir Ísland, því það verður brátt endurgert sem hótel og spilavíti í Dubai. Ljósmynd/Sigurjón J. Sigurðsson Drottning í Djúpinu Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is VIRÐISRÝRNUN útlána bank- anna, þ.e. greiðslur í afskriftarsjóði vegna afskrifaðra lána, eða lána sem útlit er fyrir að þurfi að afskrifa, nam 25,1 milljarði króna á fyrri helmingi þessa árs, en á sama tímabili í fyrra nam virðisrýrnunin 5,6 milljörðum króna. Ekki er gefið upp hve stór hluti þessarar upphæðar eru raun- verulegar afskriftir á lánum, en ljóst má vera að um er að ræða nokkra milljarða króna. Samanlagður hagn- aður bankanna á fyrri helmingi árs- ins nam 79 milljörðum króna, en á sama tímabili í fyrra nam hann 89,6 milljörðum króna. Bönkunum tókst að verja sig fyrir áhrifum vaxandi verðbólgu og lækk- andi gengis krónu og jukust hreinar vaxtatekjur bankanna umtalsvert vegna verðbólguáhrifa. Samanlagð- ar hreinar vaxtatekjur bankanna námu 116 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 70,2 milljarða króna í fyrra. Bankarnir hafa styrkt stöðu sína við erfitt efnahagslegt árferði og dregið m.a. úr skuldsetningu og hafa Kaupþing og Landsbanki aukið til muna hlutfall innlána í fjármögnun sinni með erlendu innlánsreikning- unum Icesave og Kaupþing Edge. Landsbankinn sker sig frá hinum bönkunum tveimur hvað varðar arð- semi eigin fjár, sem var 35%, sam- anborið við 17% hjá Glitni og 19,8% hjá Kaupþingi. Þá var kostnaðar- hlutfall Landsbankans, þ.e. hlutfall kostnaðar á móti tekjum, umtalsvert lægra en hjá hinum bönkunum. | 13 Afskrifa milljarða króna  Uppgjör bankanna bera vott um erfiðara efnahagsástand og verðbólgu  „Það sem ég sótti einkum til Solzhenítsyns var reynsla hans af baráttunni við kerfið. Þessi þekking gagnast mér mikið í dag,“ sagði skáksnill- ingurinn Garrí Kasparov, einn þekktasti gagn- rýnandi núverandi valdhafa í Rúss- landi, um fráfall rithöfundarins Al- exanders Solzhenítsyns, sem lést á heimili sínu í Moskvu í fyrradag, 89 ára að aldri. Þekktir rithöfundar og leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Rússlandi tóku í sama streng og lofuðu Solzhenítsyn fyrir það mikilsverða framlag að leiða milljónum lesenda hörmungar gúlagsins fyrir sjónir. Yelena Bonner, þekkt baráttukona fyrir mannréttindum í Rússlandi, minnti hins vegar á að hann hefði ekki verið gallalaus og misbeita mætti þjóðernisstefnu hans. Þá var það afar umdeilt að hann hélt uppi vörnum fyrir stjórnarhætti Vladím- írs Pútíns, fyrrverandi forseta. »14 Solzhenítsyn fyrirmyndin Alexander Solzhenítsyn  Þær hlaupa um í þröngum fötum, of- urhetjurnar, halda illmennum í skefj- um og kjósa fatnað sem sýnir sérhvern vöðva í stæltum lík- amanum. Ef marka má nýjustu sölutöl- ur á sokkabuxum eru breskir karlar farnir að taka eftir síðastnefnda atriðinu, hinum djarfa klæðnaði þess sem vill skera sig úr. Sala á sokkabuxum hefur þannig margfaldast undanfarið, aukning sem er m.a. rakin til vinsælda nýj- ustu myndarinnar um Leðurblöku- manninn. Munu slíkar buxur vera vinsælar hjá þýskum körlum. Strákar og sokkabuxur 79 milljarðar Hagnaður bankanna 25,1 milljarður Virðisrýrnun útlána 116 milljarðar Vaxtatekjur bankanna  Aðeins tíu af þeim 78 þjón- ustuíbúðum aldraðra sem hafa ver- ið byggðar í Mörkinni við Suður- landsbraut eru seldar. Kólnun á fasteignamarkaði er sögð vera skýringin á hinni dræmu sölu, því þótt áhugi sé fyrir hendi er erfitt fyrir fólk að losa um eignir sínar um þessar mundir. Samkvæmt heimasíðu rekstr- araðila þjónustuíbúðanna kostar dýrasta íbúðin 67,5 milljónir króna og er 138,6 fermetrar að stærð. Íbúðirnar eru seldar með svoköll- uðum íbúðarrétti, þar sem íbúar fá rétt til búsetu í íbúðinni til lífstíðar gegn vissu gjaldi. Þessi réttur er ekki framseljanlegur. »Fasteignir Kólnun á markaði skýri dræma sölu í Mörkinni Morgunblaðið/Frikki Suðurlandsbraut Fyrsta íbúðin í Mörkinni var afhent 2. maí sl. ÚTIHÁTÍÐIR víða um landið heppnuðust almennt vel um versl- unarmannahelgina. Um 13.000 manns voru í Eyjum á fjölmennustu þjóðhátíð sögunnar. Um 8.000 gestir voru á Einni með öllu á Akureyri sem þótti takast vel með fáeinum undantekningum og í Neskaupstað voru í kringum 5.000 manns á fjölskylduhátíðinni Neista- flugi. Tókst hún almennt prýðilega og var smekkfullt í bænum. Ellefta unglingalandsmót UMFÍ var haldið um helgina á Þorláks- höfn. Hafa þátttakendur aldrei ver- ið fleiri, en þeir voru rúmlega 1.200 talsins. Heildarfjöldi gesta á hátíð- inni náði um 10.000 þegar mest var. Keppt var í knattspyrnu, frjáls- íþróttum, glímu, golfi, hestaíþrótt- um, körfuknattleik, mótókrossi, skák og sundi á mótinu og voru þátttakendur á aldrinum 11-18 ára. | 6 og Íþróttir Þúsundir skemmtu sér konunglega Morgunblaðið/Ómar Sprettur Unglingalandsmót UMFÍ var haldið um helgina og voru kepp- endur um 1.200 talsins. Þessar 11 ára stúlkur kepptu í 600 metra hlaupi. 89,6 5,6 70,2 Uppgjör á fyrri helmingi árs 2007 2008

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.