Morgunblaðið - 06.08.2008, Page 1

Morgunblaðið - 06.08.2008, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. Á G Ú S T 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 212. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er ÍÞRÓTTIR SIGMUNDUR EINAR Í ATVINNUMENNSKUNA DAGLEGTLÍF Ólst upp á farfugla- heimilinu Berunesi Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is MUN betur gengur að ráða í umönn- unarstörf á leikskólum og elliheimil- um en í fyrra. Þá var ástandið mjög slæmt vegna manneklu og voru dæmi um að foreldrum leikskólabarna væri tilkynnt að þeir þyrftu að hafa börnin heima einn dag vikunnar. Óvissa var um hvort skerða þyrfti vistun barn- anna til lengri tíma. Nú gengur mun betur að ráða í umönnunarstörf. Ýmsir viðmælendur Morgunblaðsins telja að það sé af sem áður var að fólk geti gert miklar kröfur og valið milli fjölda starfa. Í uppsveifl- unni og góðærinu sem lék við landið seinustu árin hafi verið nægt framboð af betur launuðum störfum. Nú þurfi fólk í atvinnuleit að slaka á kröfunum og taka það sem býðst og njóti fyrr- nefndir vinnustaðir góðs af því. Var svo komið síðasta sumar að Fé- lag leikskólakennara lýsti yfir áhyggjum sínum af manneklunni og áhrifum hennar. „Þetta ástand ógnar starfsemi leikskólanna sem er við- kvæm og mikilvæg í lífi ungra barna. Að auki eykur starfsmannaskortur álag á stjórnendur og starfsmenn sem fyrir eru og veldur foreldrum áhyggj- um og kvíða,“ ályktaði stjórn félags- ins í ágúst í fyrra. Horfir til betri vegar Ekki hafa verið teknar saman heildartölur um stöðu leikskólanna í Reykjavík en þegar haft var samband við þá stærstu var hljóðið í leikskóla- stjórunum gott. Sögðu þeir flestir að ástandið hjá sér væri gott og töluvert betra en í fyrra. Hjá sumum hefði ver- ið „ofboðslega erfitt“ í fyrra en nú horfði til betri vegar. Aðspurðir sögð- ust nánast allir bjartsýnir á að vel tækist að ráða í stöður fyrir haustið. Sótt í umönnunarstörf Dvalar- og hjúkrunarheimilin Grund og Hrafnista merkja bæði töluverðar breytingar á því ástandi sem ógnaði starfsemi heimilanna í fyrra. Vel gengur að ráða í laus störf og segir Pétur Magnússon, fram- kvæmdastjóri Hrafnistu, að heimilið sé „í miklu betri málum en á sama tíma í fyrra“. Auðveldara að fá fólk  Ásókn hefur aukist í störf á leikskólum og elliheimilum sem afar erfiðlega gekk að manna á sama tíma í fyrra  Ráðningar | 12 „VIÐ ERUM að heyja land sem heitir Vallhólmi í Skagafirði, þar sem áður var grasköggla- verksmiðja, og erum að heyja til að selja bændum og hestamönnum,“ segir Bessi Freyr Vé- steinsson, eigandi fyrirtækisins Sels ehf., um heysöluna í sumar. Bessi segir sprettu á heyfeng í meðallagi í ár sökum þurrka fyrrihluta sumars, aðeins sé hægt að giska á hversu margir bagg- arnir verði. Hann reiknar með milljóna króna veltu af sölunni, hver baggi kosti 7.500 til 9.000 kr. með vsk. „inn í hlöðu“, eftir þjónustustigi. Á móti komi milljóna kostnaður. baldura@mbl.is Milljónir bíða þess að verða hirtar af túnunum Ljósmynd/Halldór Kolbeins  Starf ljós- móður er aldrei nein rútína held- ur er hver barns- fæðing ævintýri líkust, segir Guð- laug Einarsdóttir formaður Ljós- mæðrafélags Ís- lands. Hún segir ljósmæður hafa hlakkað mikið til nýrra samninga enda átt von á leið- réttingu launa sinna, en nú hafa um 100 meðlimir ljósmæðrafélagsins sagt upp störfum. Börn halda áfram að fæðast, en æ fleiri ljós- mæður velja sér annan starfsvett- vang vegna launanna. Ljósmæður funda í dag með samninganefnd ríkisins. »11 Ljósmæðrastarfið er ævin- týri en launin öllu síðri  Landsnet undirbýr lagningu nýrrar byggðalínu frá Blöndustöð til Akureyrar en bygging álþynnu- verksmiðju rekur á eftir því að lín- an verði lögð. Möstrin eru 17 til 36 m á hæð og ríkir óánægja meðal landeigenda með fyrirhugað línu- stæði í Efribyggð í Skagafirði enda munu háspennumannvirkin blasa við ábúendum þótt reynt verði að fella þau inn í landið. „Við viljum ekki fá neinar línur yfir þessar jarðir hér. Við munum aldrei fallast á það,“ segir Ólafur Þ. Hallgrímsson, prestur á Mælifelli. Gríðarleg sjónmengun verði af mannvirkinu þar sem möstrin muni m.a. bera í Mælifellshnjúkinn. »9 Vilja engin möstur fyrir Mælifellshnjúk Áhyggjur vegna ástandsins í leikskólum Mannekla á leikskólunum ógnar starfsemi leikskólanna sem er við- kvæm og mikilvæg í lífi ungra barna. (Mbl. 21. ágúst 2007) Grípa þarf til úrræða Um 200 manns vantar til starfa á leik- og grunnskólum í borginni. (Mbl. 11. september 2007) Stuðningur foreldra mikilvægur „Fólk er í reddingum, það reynir að bjarga sér,“ segir móðir. Leik- skólastjóri fagnar stuðningi foreldra. (Mbl. 3. október 2007) MANNEKLAN Í FYRIR- SÖGNUM Í FYRRA RÓBERT Wessman hefur látið af störfum sem forstjóri Actavis Group. Við starfinu tekur Sigurður Óli Ólafsson, aðstoðarforstjóri Actavis. Róbert snýr sér nú að rekstri fjár- festingarfélags síns, Salt Invest- ment, en situr áfram í stjórn Actavis. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu eigendur Actavis hafa talið að hagsmunir Róberts í Salti gætu dregið athygli hans frá dagleg- um rekstri Actavis. Róbert segir í samtali við Morg- unblaðið að hann hafi nokkrum sinn- um rætt það við Björgólf Thor Björgólfsson, stjórnarformann fé- lagsins, að tími væri kominn fyrir sig til að hætta störfum. Hann hafi verið búinn að stýra félaginu í tíu ár og vilji einbeita sér að Salti. | 14 Forstjóraskipti hjá Actavis Group Hættur eftir tíu ár Björgólfur Thor Björgólfsson Róbert Wessman

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.