Morgunblaðið - 09.08.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
Dalvík | Hvert eigum við að fara
næst? Þessi spurning heyrðist
nokkuð oft á Dalvík í gærkvöldi.
Þá stóð þar yfir fiskisúpukvöld,
undanfari Fiskidagsins mikla, en
gestir og gangandi höfðu úr mörgu
að velja. Alls var fiskisúpa boðin
gestum á 50 stöðum í bænum. Þar
sem gengið var fram á tvo logandi
kyndla utandyra mátti vænta þess
að fá rjúkandi heita og bragðgóða
fiskisúpu.
Heimamenn leggja mikið upp úr
að skreyta híbýli sín þennan dag
og þá er æ meiri áhersla lögð á að
skemmta gestum um leið og þeir
njóta fiskisúpunnar. Víða var leikið
á gítar eða önnur hljóðfæri og
sungið hástöfum og jafnvel eru
dæmi þess að heilu hljómsveitirnar
hafi komið sér fyrir í görðum og
látið gamminn geisa.
Haldinn í áttunda sinn
Fiskidagurinn mikli er nú hald-
inn í áttunda sinn á Dalvík, hann
hefst formlega í dag, laugardag, en
markmið hátíðarinnar er að fólk
komi saman, hafi það gott, njóti
dagsins og borði fisk. Alls hafa um
160 þúsund manns sótt Dalvíkinga
heim og átt góðar stundar á Fiski-
deginum undanfarin sjö ár. Svo
virðist sem þátttaka nú verði líka
góð, en Júlíus Júlíusson fram-
kvæmdastjóri sagði í gærkvöldi að
talið væri að um 20 þúsund manns
væru á rölti um bæinn. „Menn
rölta hér um í rólegheitum og
njóta þess að vera til.
Það er allt í rólegheitum, fólk
spjallar og bragðar á súpu sem er
víða í boði,“ sagði hann. Alls var
fiskisúpa í boði á um 50 heimilum
á Dalvík í gærkvöldi, en um 80
fjölskyldur stóðu á bak við fiski-
súpugerðina að sögn Júlíusar.
Fyrir fiskisúpukvöldið komu
heimamenn og gestir saman og
slepptu um 5 þúsund friðardúfu-
blöðrum í loftið, knúskorti var
dreift og fólk ákaft hvatt til að
knúsast af miklum móð. Margir
létu það eftir sér, en haft var á
orði að það væri gott ráð; allir
mættu afslappaðir og glaðir til
veislunnar, engin læti og allir væru
svo góðir.
Ljósmynd/Margrét Þóra Þórsdóttir
Fiskur Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í áttunda skipti á Dalvík. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman,
hafi það gott, njóti dagsins og borði fisk. Talið er að allt að 20 þúsund manns hafi verið saman komin á Dalvík í gær.
Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson
Súpa Geir Haarde forsætisráðherra og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðar-
dóttir, gæddu sér á dýrindisfiskisúpu á Dalvík í gær.
Fiskisúpa á um 50 heimilum
Allt að 20 þúsund
manns á götum
Dalvíkur
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
SAMTÖK iðnaðarins hafa óskað eftir
afstöðu borgarráðs Reykjavíkur til
bónar samtakanna þess efnis að verk-
samningar Reykjavíkurborgar til
lengri tíma en þriggja mánaða verði
verðbættir. Málið var tekið fyrir á
fundi borgarráðs á fimmtudag en af-
greiðslu þess var frestað.
Meginreglan hefur verið sú að
verksamningar skemmri en til eins
árs hafa ekki verið verðbættir. Í bréfi
Samtaka iðnaðarins til borgarráðs er
„óskað eftir verðbættum samningum
meðan óróleiki gengis og hráefna-
verðs gengur yfir“. Í því er jafnframt
áréttað að samtökin séu almennt
mjög fráhverf verðbótum og sjálf-
virkum hækkunum í viðskiptum en
staða verktaka sé mjög sérstök nú um
stundir. Dísilolía hefur enda hækkað í
verði um 68% frá áramótum og inn-
flutt aðföng um 30%.
Sektirnar betri en tapið
Í umsögn Birgis Björns Sigurjóns-
sonar, fjármálastjóra Reykjavíkur-
borgar, um málið segir að borginni sé
ekki heimilt að endurskoða og taka
upp verðbótaákvæði í stuttum verk-
takasamningum með tilvísun til út-
boðsreglna og jafnræðisreglu stjórn-
sýsluréttar.
„Ef staðan verður sú að menn ann-
aðhvort treysta sér ekki lengur til að
bjóða í verk vegna óvissu eða þá fara á
hausinn við að vinna verkið, þá veit ég
ekki alveg hver ávinningur Reykja-
víkurborgar er að lokum,“ segir Jón
Steindór Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
„Menn hafa komið til okkar velt-
andi fyrir sér hvort þeir eigi að segja
sig frá verkum og borga frekar sektir.
Það sé ódýrara fyrir þá að greiða þær
en að horfast í augu við allt fjárhags-
lega tapið sem hlýst af því að klára
verkið.“
Óska eftir verðbættum
styttri verksamningum
Í HNOTSKURN
»Dísilolía og innflutt aðfönghafa hækkað gríðarlega í
verði og verktökum finnst
blóðugt að bera alla ábyrgðina
á eigin herðum.
Efnahagsástandið
leikur verktaka
borgarinnar grátt
BETUR fór en á horfðist þegar
tveir bílar sem óku í gagnstæða
átt skullu saman við Hraun í
Öxnadal um kl. 17.30 í gær. Fjór-
ar konur voru fluttar á slysadeild
Sjúkrahússins á Akureyri og voru
þar undir eftirliti í nótt en þær
eru ekki taldar alvarlega slas-
aðar.
Ökumaður talinn hafa sofnað
Ekki er vitað á hvaða hraða öku-
tækin voru en að sögn lögregl-
unnar var áreksturinn það harður
að báðir bílarnir lentu utan vegar
og dreifðist brakið úr þeim yfir
100 metra langan vegarkafla. Eru
báðir bílarnir taldir gjörónýtir.
Vegurinn var um tíma lokaður í
báðar áttir og þurfti að kalla eftir
tækjabifreið slökkviliðsins til að
klippa einn farþeganna út.
Í öðrum bílnum, sem var á leið
vestur eftir, var ökumaðurinn
einn á ferð. Að sögn lögreglunnar
þykir margt benda til þess að
hann hafi dottað og bíllinn reikað
yfir á rangan vegarhelming en
eftir er að yfirheyra ökumenn og
vitni. ylfa@mbl.is
Fjórir á
slysadeild
eftir árekstur
í Öxnadal
Hráefnisverð
á kjarn-
fóðurblönd-
um fyrir
nautgripi
lækkaði í
júnímánuði
samkvæmt
upplýsingum
sem Lands-
samband kúabænda hefur safnað
saman.
Tekið var saman hráefnisverð í
fjórum tegundum af kjarnfóðri og
í þremur tilvika hafði verðið
lækkað um 5,2-6,7% frá því sem
það var í maí. Ein tegundin hafði
hækkað um 1,2%. Þrátt fyrir þess-
ar lækkanir er verðið nú töluvert
hærra en það var í janúar sl. eða
á bilinu 31,3-42,4% hærra.
Um er að ræða Kúaköggla 16
og DK-16 frá Fóðurblöndunni hf.,
Hányt K-17 frá Líflandi hf. og
Kálfaköggla frá Bústólpa ehf.
ylfa@mbl.is
Verðlækkun
á kjarnfóðri
Allir íbúar Dalvíkurbyggðar
fengu í vikunni sendan heim
útsagaðan fisk og staur til að
festa hann á. Heimilismenn
fengu svo það hlutverk að
skreyta fiskinn eftir sínu höfði
og má nú sjá skrautlega fiska
við hús úti um allan bæ.
Tilvalið er fyrir gesti Fiski-
dagsins, sem er í dag, laug-
ardag, að fara í góðan göngu-
túr um bæinn og skoða þessa
merkilegu listsýningu en að
auki hafa margir bæjarbúar
lagt á sig mikla vinnu við að
skreyta hús sín og garða.
Þá breyta Dalvíkingar nöfn-
um á götum í tilefni af Fiski-
deginum. Þeir sem ætla sér að
sækja félaga heim á Bárugötu
verða nú að leita uppi götu
með heitinu Grásleppugata
svo dæmi sé tekið og fjöl-
skylda við Sunnubraut hefur
þessa viku átt heima við
Steinbítsbraut.
Fiskur við öll heimili