Morgunblaðið - 10.08.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 2008 35
MINNINGAR
✝ Guðrún Guð-mundsdóttir
fæddist á Akureyri
16. júlí 1932. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
25. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
mundur Snorrason
f. 29.9. 1898, d.
14.4. 1981 og Sigur-
björg Jóhanns-
dóttir f. 3.3. 1908,
d. 24.7. 1971.Guð-
rún átti tvær syst-
ur: Jakobínu f. 16.7. 1935 og Þór-
unni f. 13.8. 1937, d. 23.6. 2002
Hinn 27.8. 1955 giftist Guðrún
Sigurði Teitssyni frá Reykjavík,
f. 8.10. 1932, d.17.1. 2000. For-
eldrar hans voru hjónin Teitur
Teitsson , f. 15.6. 1889, d. 3.5.
1960 og Anna Gísladóttir, f. 17.7.
1893, d. 6.10. 1971. Sigurður átti
tvö systkini : Önnu Sigríði, f. 2.4.
1922, d. 13.2. 1979 og Gísla
Teitsson f. 26.10. 1928, d. 16.9.
2000. Börn þeirra eru: 1) Guð-
mundur f. 16.4. 1953, kvæntur
Helgu G. Herlufsen f. 17.11.
1955. Börn Guð-
mundar eru Guð-
rún S. f. 14.11.1971,
Gunnhildur Ósk f.
18.12. 1975 og
Hulda Björk f.
30.12. 1978. 2)
Anna f. 6.2. 1958,
gift Árna Guð-
mundssyni f. 15.3.
1956. Börn þeirra
eru Sigurður Freyr
f. 17.6. 1976, Linda
Rós f. 23.4. 1979,
Teitur f. 6.9. 1991
og Agnes Hekla f.
30.12. 1992. Fyrir átti Árni son-
inn Rúnar Þór f. 21.4. 1972.
Barnabarnabörnin eru orðin alls
12.
Guðrún var gagnfræðingur frá
gagnfræðaskóla Akureyrar og
eftir að hafa flutt til Reykjavíkur
1955 stundaði hún, ásamt hús-
móðurstarfinu, ýmsa verslunar-
vinnu auk þess að vinna á Póst-
húsi Reykjavíkur síðustu starfs-
árin sín.
Útför Guðrúnar fór fram frá
Fossvogskapellu, í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Elsku hjartans mamma mín,
kveðjustundina okkar hefur verið
erfitt að upplifa. Þú skilur eftir þig
stórt skarð í okkar litlu fjölskyldu.
Eftir fimm vikna erfiða baráttu við
sjúkdóm sem kallaður er Rauðir
úlfar kom kallið hinsta frá himna-
föðurnum. Í mínum huga varst þú
samnefnari alls þess besta sem
prýðir mæður þessa lands. Í barn-
æsku okkar systkinanna varst þú
alltaf til staðar og passaðir upp á
allt, matar og kaffitímar með holl-
um mat, nesti í skólann, fylgjast
með að við lærðum heima,
skemmtileg ferðalög á sumrin, og
fá að fara með til Möggu vinkonu
að horfa á Kanasjónvarpið, þessar
minningar eru dýrmætar þegar
hugsað er til baka.
Eftir að við fluttum í húsið sem
þið pabbi byggðuð í Glæsibæ 12
hófst nýr kafli í okkar lífi, þú eign-
aðist þinn eigin garð sem þú rækt-
aðir af mikilli natni í áratugi eða
frá árinu 1967 til ársins 2000 þegar
pabbi dó og þú fluttir skömmu
seinna á Kleppsveg 62 á efstu hæð
með útsýni yfir Viðey og allan
fjallahringinn í Faxaflóa. Í Glæsi-
bænum eignaðist þú frábæra vin-
konu sem Sigríður heitir og saman
áttuð þið gott áhugamál sem tengdi
ykkur sterkum böndum fram á síð-
asta dag, henni er hér með þakkað
kærlega fyrir allar stundirnar.
Nú síðustu árin hefur komið enn
betur í ljós hversu frábær mamma,
amma og langamma þú varst, þær
skipta nokkrum tugum flíkurnar
sem þú gerðir á hópinn þinn, varst
alltaf með eitthvað í gangi, með alla
afmælisdaga á hreinu hjá þessum
stóra hóp, allir áttu að fá sitt. Já
kæra mamma, minningin um þig
mun lifa í mínu hjarta meðan ég
lifi. Ég vona að pabbi og afi og
amma og allir sem voru þér kærir
og eru farnir, taki á móti þér hin-
um megin og séu þér góðir.
Minningin um yndislega góða
móðir lifir.
Þinn sonur,
Guðmundur.
Til minningar um Lillu ömmu
mína.
Ég á margar yndislegar minn-
ingar um Lillu ömmu og Sigga afa
en núna eru þau saman komin á ný
og fylgjast með okkur öllum af
himnum ofan.
Sem barn var ég öllum stundum
hjá þeim í Glæsibænum, lék mér í
garðinum, spilaði Trivial, Scrabble
eða Manna í eldhúsinu og horfði á
Tomma og Jenna í sjónvarpsher-
berginu.
Þegar ég kom til ömmu fékk ég
ristað brauð með osti og ískalda
mjólk, síðan sagði hún mér sögur
af pabba, oft sömu sögurnar en
alltaf voru þær jafn skemmtilegar.
Hún hafði betra minni en flestir
og hún sagði mér að það væri
vegna þess að hún væri alltaf með
myndavélina á lofti og þar sem
maður er alltaf að reyna að læra af
þeim sem eldri eru þá hef ég reynt
að venja mig á að hafa myndavélina
meðferðis. Núna veit ég að mynd-
irnar hjálpa mér ekki bara til að
muna, heldur koma þær til með að
verða notaðar til að segja litlu
prinsunum mínum sögur af Lillu
ömmu.
Amma og afi fóru oft með mig og
Lindu frænku í sund í Laugardals-
lauginni, þau kenndu okkur að
synda á milli djúpu laugarinnar og
grunnu. Ég held að sundáhugi
minn í dag sé mikið til þeim að
þakka.
Amma og afi áttu sumarbústað í
Grafningnum, þar var hægt að
busla í ánni, róla, drullumalla, fara
í krikket, veiða síli og margt fleira.
Sumarbústaðurinn var ótrúlegt æv-
intýraland fyrir okkur frændsystk-
inin og ég mun aldrei gleyma
stundunum sem ég átti þar.
Aftur í seinni tíð vorum við syst-
ur farnar að spila við ömmu
Scrabble og alltaf treystum við því
að amma vissi allt best og hún gat
rætt það fram og til baka hvað ung-
dómurinn þyrfti að taka sig á í ís-
lenskunni. Síðast þegar amma tal-
aði um þetta þá vorum við að ræða
samræmdu prófin og ég ætlaði allt-
af að koma með eitt slíkt til hennar,
því áhuginn var svo mikill og hún
vildi fylgjast vel með öllu því sem
viðkom skólamálum og oft talaði
hún um hvað það væru mikil for-
réttindi að geta valið úr öllu þessu
námi sem er í boði í dag.
Í sumar varð amma svo skyndi-
lega ótrúlega lasin og lagðist inn á
spítala.
Ferðirnar voru ófáar á spítalann
og á leiðinni frá henni hlustaði ég á
þennan texta og vonaði að ég fengi
að fá ömmu til baka svo ég gæti
spjallað meira, fræðst og spilað.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér.
Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér.
Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan sem ól þig og
helgar sitt líf.
Með landnemum sigldi hún um svarrandi
haf.
Hún sefaði harma, hún vakti er hún svaf.
Hún þerraði tárin, hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan sem allt á að
þakka vor þjóð.
Ó, hún var ambáttin rjóð
hún var ástkonan hljóð
hún var amma svo fróð.
(Ómar Ragnarsson)
Elsku amma ég þakka þér öll ár-
in sem við áttum saman.
Guð veri með þér og varðveiti
þig.
Þín sonardóttir,
Hulda Björk.
Elsku amma.
Engin orð geta lýst því hversu
vænt mér þótti um þig. Án þín
væru minningar mínar lítils virði.
Þú varst svo stór partur af lífi mínu
þegar ég var að alast upp. Allar
mínar bestu minningar eru ein-
hvern veginn tengdar þér. Þú
kenndir mér svo margt og kunnir
að gera allar stundir sérstakar. Þú
kunnir að gera jólin svo hátíðleg og
yndisleg, leyfðir mér að skreyta
með þér. Kenndir mér að föndra og
baka, búa til sultur og sjóða kál,
setja niður kartöflur, rækta gul-
rætur og skera út laufabrauð. Þú
tókst mig með í ferðalög og fræddir
mig um landið okkar, sagðir mér
sögur úr æsku þinni og last fyrir
mig bækur og spilaðir við mig. Þú
varst besti vinur minn og uppá-
haldskennarinn minn.
Mér fannst ég alltaf sérstök þeg-
ar ég var nálægt þér. Minningin
um þig mun lifa að eilífu í mínu
hjarta. „Amma mér þykir rosa
vænt um þig“ var það síðasta sem
ég sagði við þig þegar við töluðum
síðast saman. Ég vildi að ég hefði
sagt það oftar við þig. Ég veit að
þú elskaðir mig og dáðir. Ég óska
þess að þú fáir að hvíla í friði við
hliðina á afa og ég veit að hann tek-
ur vel á móti þér.
Hvildu í friði elsku amma mín.
Drottinn veri með þér. Ég vil til-
einka þér sálm nr. 551:
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson)
Þín ömmustelpa
Linda Rós.
Guðrún
Guðmundsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason
✝
Elskulegur faðir okkar og bróðir,
PÁLL JÓHANN EINARSSON,
flugmaður,
andaðist aðfaranótt laugardagsins 2. ágúst á
líknardeild Landakots.
Útför hans verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík,
þriðjudaginn 12. ágúst kl. 15.00.
Carolin Einarsson Pálsdóttir, Kristín Einarsson Pálsdóttir,
Birgir Davidsen Pálsson,
Páll Ástþór Jónsson Pálsson,
Stefán (Norman) Mink Pálsson,
systkini og afkomendur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN HELGA CARLSDÓTTIR HANSEN
(DOSLA),
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn
28. júlí.
Henni verður sungin sálumessa í Kristskirkjunni
Landakoti þriðjudaginn 12. ágúst kl. 13.00.
Carl Vanderziel, Cindy Vanderziel,
Allen Vanerziel, Selina Vanderziel,
Jennifer Chandler, Jeffrey Chandler,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNSTEINN SÓLBERG SIGURÐSSON,
búfræðingur,
Furulundi 25,
Akureyri,
lést fimmtudaginn 7. ágúst.
Útförin auglýst síðar.
Jórunn Inga Ellertsdóttir,
Þorsteinn M. Gunnsteinsson, Þórhildur Ólafsdóttir,
Þórunn S. Gunnsteinsdóttir, Smári Úlfarsson,
Ellert J. Gunnsteinsson, Kristrún Þ. Ríkharðsdóttir,
Gunnar I. Gunnsteinsson, Ragnheiður Stefánsdóttir,
afabörn og langafabarn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir,
mágur og tengdasonur,
DAVÍÐ HÉÐINSSON,
húsasmíðameistari og iðnrekstrarfræðingur,
Garðsstöðum 9,
Reykjavík,
er lést á Landspítalanum miðvikudaginn 6. ágúst,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Kristín Benný Grétarsdóttir,
Grétar Atli, Gunnar Atli og Anna Sigrún Davíðsbörn.
Margrét Héðinsdóttir, Björn Guðmundsson,
María Solveig Héðinsdóttir, Sigfús R. Sigfússon,
Emil Björn Héðinsson, Margrét Björg Guðnadóttir,
Magnús Héðinsson, Margét Þórarinsdóttir,
Óskar E. Grétarsson, Helga Harðardóttir,
Grétar Bernódusson, Guðrún Eyjólfsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÁRNI JÓNSSON,
söngvari,
Þorláksgeisla 23,
Reykjavík,
sem lést á Landspítala, Fossvogi, þriðjudaginn
29. júlí verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
föstudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktar- og vísindasjóð
Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala-háskólasjúkrahúss í
öldrunarfræðum - sími 543 9890.
Bjarney Tryggvadóttir,
Sigurjón Árnason, Helga Björk Harðardóttir,
Tryggvi Guðmundur Árnason, Lee Ann Greer Árnason,
Jón Árnason, Guðbjörg Gissurardóttir,
Valur Árnason, Kara Pálsdóttir,
Ragnar Árnason, Kristín Helga Viggósdóttir
og barnabörn.