Morgunblaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
218. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
ÁKVAÐ 13 ÁRA AÐ
VERÐA FATAHÖNNUÐUR
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Landinn var stífur
á Hinsegin dögum
VINNUPALLARNIR utan á Hallgrímskirkjuturni minna eilítið á tröllaukið
höfuðfat þessa dagana. Ætlunin er þó ekki að hlýja kirkjunni heldur
standa yfir viðgerðir á steypu í turninum. Vonir eru bundnar við að verk-
inu ljúki næsta sumar. haa@mbl.is
Hattur á helgidómi
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÍSLENSK stjórnvöld samþykktu ósk breskra
stjórnvalda um stuðning við innrásina í Írak
degi áður en Bandaríkjamenn birtu lista „hinna
viljugu þjóða“. Þetta kemur fram í grein Vals
Ingimundarsonar sagnfræðings í nýútkominni
bók um íslenska utanríkisstefnu 1991-2007. Áð-
ur en bandarísk stjórnvöld óskuðu eftir stuðn-
ingi Íslands við Íraksstríðið höfðu bresk stjórn-
völd gert slíkt hið sama og til stóð að Tony
Blair, þáverandi forsætisráðherra Bretlands,
læsi upp lista í breska þinginu 17. mars 2003
með nöfnum ríkja, þar með talið Íslands, sem
styddu innrásina. Af ókunnugum ástæðum varð
ekkert af því.
Bein tengsl við veru hersins
Daginn eftir, 18. mars, barst svo ósk frá
bandarískum stjórnvöldum um að Ísland yrði á
lista „hinna viljugu þjóða“. Stuðningur Íslands
var þá ítrekaður en hingað til hefur því verið
haldið fram að ákvörðunin hafi verið tekin þann
dag. Samkvæmt grein Vals virðist óljóst á
hvaða stigi málsins Halldór Ásgrímsson, þáver-
andi utanríkisráðherra, féllst á stuðning Ís-
lands við stríðið.
Valur heldur því einnig fram að beint sam-
hengi hafi verið milli stuðnings Íslands við inn-
rásina og íslenskra varnarmála, þ.e. vilja stjórn-
valda til að halda í bandaríska herinn hér á landi
og þar með orrustuþoturnar fjórar sem mikið
var deilt um á þeim tíma. Það hafi komið skýrt
fram hjá íslenskum embættismönnum í bæði
Reykjavík og Washington. Samningsstaða Ís-
lands hafi hins vegar verið lítil sem engin.
Ísland var á breskum lista yfir „viljugar þjóðir“ sem átti að kynna 17. mars
2003 Beint samhengi milli stuðnings við innrásina og íslenskra varnarmála
Í HNOTSKURN
» Íslensk stjórnvöld voru alltaf hörð áþví að komið gæti til uppsagnar
varnarsamningsins ef Bandaríkin gripu
til einhliða niðurskurðar í Keflavík.
» Bandaríkjamenn litu einnig svo áframan af en árið 2003 breyttist af-
staða þeirra.
» Í grein Vals er því haldið fram að ís-lensk utanríkisstefna hafi beðið
hnekki þegar ekki var staðið við marg-
ítrekaðar hótanir um uppsögn varn-
arsamningsins.
Herinn fór þrátt fyrir allt | 8
Stuðningur við innrás lá fyrir
„Ég var bara
á heimferð,“
segir Fjól-
mundur Fjól-
mundsson, sem
komst lífs af
þegar trilla
sem hann var á
sökk í Skaga-
firði aðfaranótt
sunnudags.
Hann sá bílljós í fjarska meðan
hann barðist fyrir lífi sínu úti á
sjó.
Fjólmundur var aftarlega í
bátnum að gera að fiski sem hann
hafði fengið þegar högg og eins
og hár brestur kom á bátinn.
Fyrstu viðbrögð sjómannsins
voru þau að sækja síma sinn.
Hann hafði kastast til af hillu og
fann Fjólmundur hann ekki í
myrkrinu. „Það var óvenjulega
dimmt,“ segir hann. » 4
Sá bílljós í fjarska meðan
hann barðist fyrir lífinu
Efnaminna
fólk í Reykjavík
nýtir sér mun
síður hin svo-
nefndu frí-
stundakort en
þær fjölskyldur
sem meira fé
hafa á milli
handa. Þessi
þróun er ekki í
takt við grunnhugmyndina á bak
við kortin; að jafna möguleika á að
stunda tómstundir, óháð fjárhag
foreldra.
Þá var einnig mikill munur á
notkun kortanna milli hverfa.
Stjórn ÍTR samþykkti í júní að taka
á málunum. » 11
Efnaminna fólk nýtir
frístundakortin minna
Yfir eitt prósent af heildarlánum
fyrirtækja voru í vanskilum í lok
júní en í lok mars voru vanskil
þeirra einungis 0,5%.
Hjá einstaklingum var hlutfall
vanskila 1% við lok annars árs-
fjórðungs 2008 en þau voru 0,8%
við lok þess fyrsta. Þetta kemur
fram á vef Fjármálaeftirlitsins.
Þar segir ennfremur að vanskil
séu þó lægri nú en árin 2001-2004.
» 14
Vanskil útlána aukast
milli mánaða
ÁRÓÐUR WWF er ástæðan fyrir
því að þrjár stærstu stórmarkaða-
keðjur Sviss hættu að selja íslenskan
þorsk, að sögn Friðriks J. Arngríms-
sonar, framkvæmdastjóra LÍÚ.
Friðrik segir að þetta snúist ekki
aðeins um vottun sjálfbærra veiða,
heldur sé tekist á um réttinn til að
stýra fiskveiðum og nýta villta fiski-
stofna – hvort lýðræðislega kjörin
stjórnvöld geri það eða umhverfis-
verndarsamtök í gegnum kjörbúðir.
Og málið er litið alvarlegum aug-
um af LÍÚ, sem hyggur á aðgerðir.
„Við höfum tekið það upp við íslensk
stjórnvöld að þau beiti sér af alefli til
að koma í veg fyrir að þetta hafi frek-
ari skaðleg áhrif,“ segir Friðrik.
„Fulltrúar íslenskra stjórnvalda
hafa farið til fundar við svissneska
stórmarkaðakeðju til að kynna mál-
stað okkar en vandinn liggur í því að
keðjurnar láta WWF stjórna því
hvaða fisk þær selja.“
LÍÚ hefur ásamt sendiráði Ís-
lands í London, fulltrúa Hafrann-
sóknastofnunar og sjávarútvegsráð-
herra skipulagt fundi með helstu
fiskkaupendum í Bretlandi til að
kynna íslenska fiskveiðistjórnun og
ástand fiskistofna. Og íslenskur sjáv-
arútvegur vinnur að því á vettvangi
Fiskifélagsins að koma á vottun um
ábyrgar veiðar úr helstu nytjastofn-
um við Ísland. Byggt verður á leið-
beiningareglum FAO, Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, og óháður aðili verður
fenginn til að votta veiðarnar.
Tekist á um rétt-
inn til að stýra
fiskveiðunum
Megum ekki láta kúga | 12
Morgunblaðið/ÞÖK
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SEX helstu iðnveldi Vesturlanda og
Japan hvöttu í gær ráðamenn í
Moskvu til að þiggja tafarlaust boð
Georgíumanna um vopnahlé án skil-
yrða en Rússar setja það skilyrði að
Georgíumenn flytji allan her sinn á
brott frá Suður-Ossetíu. Rússar virð-
ast vera að hefja sókn á nýjum víg-
stöðvum frá öðru uppreisnarhéraði,
Abkhazíu, í vestri.
Eystrasaltsríkin þrjú og Pólland
sögðu í sameiginlegri yfirlýsingu að
sem „eitt sinn fangelsaðar þjóðir í
Austur-Evrópu“ hefðu þær miklar
áhyggjur af aðgerðum Rússa í
Georgíu. Upprunalega sögðu leiðtog-
ar Rússa að eingöngu yrði um að
ræða aðgerðir til að hrekja her
Georgíu frá S.-Ossetíu. Nú hafa þeir
að sögn Mikhails Saakashvilis
Georgíuforseta tekið nokkrar borgir í
landinu og óljóst um framhaldið.
Fréttamenn AP-fréttastofunnar
heyrðu fallbyssuskothríð í borginni
Gori og georgískir hermenn sögðu
fólki að halda sig innandyra, skrið-
drekar Rússa væru á leiðinni.
Óbreyttir borgarar flýðu skelfingu
lostnir í átt til höfuðborgarinnar Tí-
blisi sem er um 75 km frá Gori, brenn-
andi bílar sáust á veginum. | 13
Þiggi vopnahlé
Iðnveldin skora á Rússa að taka boði
Georgíumanna um að stöðva hernaðinn