Morgunblaðið - 13.08.2008, Síða 11

Morgunblaðið - 13.08.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 11 FRÉTTIR Borgartún i 26 • 105 Reyk jav ík • S ími 590 2600 B r é f a s í m i 5 9 0 2 6 0 6 • l e x @ l e x . i s • w w w . l e x . i s L E X Jónas A. Aðalsteinsson hrl Þórunn Guðmundsdóttir hrl Erla S. Árnadóttir hrl Helgi Jóhannesson hrl Karl Axelsson hrl Ólafur Haraldsson hrl Lilja Jónasdóttir hrl Kristín Edwald hrl Ragnheiður M. Ólafsdóttir hrl Heimir Örn Herbertsson hrl Eiríkur Elís Þorláksson hdl Garðar G. Gíslason hdl Eva Margrét Ævarsdóttir hdl Arnar Þór Stefánsson hdl Dýrleif Kristjánsdóttir hdl Katrín Jónasdóttir framkv.stj HAL LÓ AKUREYR I ! LEX hyggst á haustmánuðum hefja rekstur skrifstofu á Akureyri til viðbótar við starfsemi sína í Reykjavík. Af því tilefni leitar stofan eftir lögmönnum sem hafa yfir að ráða hdl. réttindum, góðu valdi á íslenskri og enskri tungu og sjálfstæði í vinnubrögðum. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jóhannesson hrl., faglegur framkvæmdastjóri LEX, í síma 590 2600. LEX veitir einstaklingum, fyrirtækjum og félögum, opinberum stofnunum og sveitarfélögum alhliða þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar jafnt hérlendis sem erlendis. Lögmenn stofunnar eru þrjátíu og búa þeir yfir umtalsverðri þekkingu og reynslu á hinum ólíku sérsviðum sínum. Áhersla er lögð á vandaða þjónustu við viðskiptavini stofunnar, öflug tengsl við erlenda samstarfsaðila og fyrsta flokks umgjörð fyrir starfsfólk LEX sem að lögmönnum meðtöldum eru fjörutíu talsins. ÁKVEÐIÐ hefur verið að reyna ekki að ná bíl franska ferðamannsins upp úr Jökulsá á Dal. Bíllinn endaði í ánni á sunnudag og komst ferðamað- urinn úr honum með herkjum. Talið er að bíllinn færist á næstunni þegar vatnsmagn og kraftur eykst með til- heyrandi aur. Verður þá mjög erfitt að ná í hann. „Það er talsvert mikið mál að ná honum upp. Það er ekki talin þörf á því eða að það svari kostnaði,“ segir Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum. Ákveðið að reyna ekki að ná bílnumBARNA- og unglingakór Nýja Ís- lands hélt í gær áleiðis heim til Kanada í dag eftir tveggja vikna söngferðalag um Ísland. Rosalind Vigfusson frá Arborg í Manitoba stofnaði kórinn 1999 og hefur stjórnað honum síðan. Hann hefur oft komið fram í Manitoba og fyrir um fimm árum kom hún með kórinn til Íslands í söngför en síðan urðu miklar mannabreytingar og varð hún að æfa upp nýjan kór. Hópurinn fór hringveginn og söng á mörgum stöðum, meðal ann- ars í Perlunni lokadaginn. steinthor@mbl.is Kveðjusöng- ur barnakórs Morgunblaðið/Kristinn FLESTIR þeirra sem hafa skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ár hafa valið að hlaupa í þágu tiltekinna góðgerðarfélaga. Nærri lætur að á síðasta ári hafi 9 af hverjum 10 íslenskum hlaupurum hlaupið fyrir góðgerðarfélög og safn- að áheitum frá fjölskyldum og vinum sem vildu hvetja hlauparana til dáða og styrkja um leið gott málefni. Þær skráningar sem þegar liggja fyrir benda til að þessi þróun haldi áfram og að langflestir hlauparanna kjósi að hlaupa í þágu góðgerðarfélaga. Frá því að opnað var fyrir mögu- leikann á að heita á hlaupara hafa áheitin reynst mörgum góðgerðar- félögum umtalsverður búhnykkur. Þannig fengu fjögur félög yfir tvær milljónir króna hvert í fyrra og fimm félög til viðbótar fengu á bilinu 1,1 til 1,6 milljónir króna hvert félag. Þátt- takendur í Reykjavíkurmaraþoni geta valið úr hátt í 100 góðgerðar- félögum af ýmsu tagi og safnað áheitum fyrir þau. Auðvelt er að heita á hlaupara í gegnum heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins www.mar- athon.is. Flestir hlaupa til góðs Reykjavíkurmaraþon Glitnis nálgast STÓREFLA þarf almenningssam- göngur í þéttbýli en árum saman hafa sveitarfélög sinnt málefninu af veikum mætti. Þetta kemur fram í ályktun sem Vinstrihreyfing – grænt framboð (VG) sendu frá sér í gær. Þurfa að taka höndum saman Þar segir einnig að í stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarinnar sé lögð áhersla á almenningssamgöngur en það virðast einungis vera orð á blaði, án innihalds. „Viðbrögð samgöngu- ráðherra við kröfu sveitarfélaganna um aðkomu ríkisins að almennings- samgöngum valda vonbrigðum og lýsa skilningsleysi hans á vaxandi mikilvægi góðra og öflugra almenn- ingssamgangna í nútímaþjóðfélagi.“ Segir að lokum að þingflokkur VG skori á ríkisstjórnina að hætta skatt- lagningu á almenningssamgöngur, taka höndum saman við sveitarfélög- in og leggja sitt af mörkum til að snúa vörn í sókn og treysta og efla al- menningssamgöngur. ylfa@mbl.is Efla þarf samgöngur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.