Morgunblaðið - 13.08.2008, Síða 23
Æskan er
framsækin
ÁRIÐ 2008 er
merkilegt ár fyrir
æskulýðsstarf á Ís-
landi. Þann 18. júní sl.
voru 50 ár liðin frá því
að Æskulýðssamband
Íslands, ÆSÍ, var
stofnað. ÆSÍ var for-
veri Landssambands
æskulýðsfélaga,
LÆF, sem starfar í dag sem regn-
hlífasamtök fyrir 24 æskulýðs-
samtök á Íslandi. Aðildarfélög eru
frjáls félagasamtök sem starfa á
landsvísu og vinna að hagsmunum
og heill barna og ungmenna.
Hlutverk Landssambands æsku-
lýðsfélaga er m.a. að vera fulltrúi og
málsvari ungs fólks gagnvart ís-
lenskum stjórnvöldum, samráðs- og
samstarfsvettvangur fyrir íslensk
æskulýðsfélög, að eiga fulltrúa ís-
lenskra ungmenna í ýmsu erlendu
samstarfi og að vera í forystu í um-
ræðum um æskulýðsmál í þjóðfélag-
inu. Undanfarin ár hefur sambandið
einbeitt sér að því að efla starf sitt
gagnvart erlendu samstarfi. Nú á
þessum tímamótum þegar 50 ár eru
liðin frá stofnun heildarsamtaka
æskulýðsmála er ætlun núverandi
stjórnar að hefja öfluga sókn til að
auka á ný samstarf aðildarfélag-
anna.
Fjölbreytni og samheldni eru
undirstöðugildi alls æskulýðsstarfs.
LÆF telur að víðsýni sé mikilvægur
þáttur í farsælu samfélagi og leggur
því ríka áherslu á baráttu gegn for-
dómum sem og að auka jafnræði á
öllum sviðum starfseminnar inn á
við sem og út á við.
Aðildarfélög Landssambands
æskulýðsfélaga eru mörg og sinna
fjölbreyttu starfi á misjöfnum svið-
um. Þetta eru æskulýðsfélög póli-
tískra hreyfinga, námsmannahreyf-
inga, skiptinemasamtaka, félög í
trúarlegu starfi, forvarnarstarfi og
hjálparstarfi. Þó hefði Lands-
samband æskulýðsfélaga aldrei
komið til ef ekki hefði verið fyrir
hendi grundvallarhugmyndafræði
hjá öllum félögunum. Það er sú hug-
mynd sem snýst um að æska lands-
ins sé framtíðin og hana beri að
styðja með ráðum og dáð. Það er
trúin á að ungt fólk nemi og þroskist
sem einstaklingar og samfélags-
þegnar með þátttöku í æskulýðs-
starfi hvers konar.
Landssamband æskulýðsfélaga er
fullgildur meðlimur á Evrópska
æskulýðsvettvanginum (European
Youth Forum) sem er samstarfs-
vettvangur æskulýðssambanda Evr-
ópulanda og alþjóðasamtaka ungs
fólks sem starfa innan Evrópu.
Æskulýðsvettvangurinn er í miklu
formlegu og óformlegu samstarfi við
Evrópuráðið og Evrópusambandið.
Að auki er Landssamband æsku-
lýðsfélaga í samstarfi við æskulýðs-
sambönd Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna í gegnum
NBKM (Nordisk Baltisk Kontakt
Møde).
LÆF leitast við að eiga gott sam-
starf við hið opinbera og önnur fé-
lagasamtök sem vinna að málefnum
æskunnar og verndun mannrétt-
inda. Að erlendri fyrirmynd er það
metnaður LÆF sem hagsmuna-
samtaka ungs fólks að hafa áhrif
með beinum hætti á aðgerðir og
ákvarðanir stjórnvalda.
Í ljósi þess að LÆF vill vera í far-
arbroddi æskulýðsmála hóf fram-
kvæmdastjórn undirbúning að um-
byltingu á heimasíðu félagsins. Hinn
12. ágúst, á alþjóðlegum degi æsk-
unnar, var opnuð ný vefsíða sam-
bandsins sem hefur fengið heitið
Æskulýðsgáttin. Æskulýðsgáttin
hefur alla burði til að vera mið-
punktur í upplýsingagjöf til aðild-
arfélaga, stjórnvalda og almennings
um æskulýðsmál sem og æskulýðs-
starf á Íslandi. Stjórn LÆF vill
hvetja alla til að taka þátt í starfi
LÆF með því að kíkja inn á vefsíð-
una sem er á mjög svo viðeigandi
slóð, æska.is (aeska.is), og einnig yo-
uth.is. Hægt er að skrá sig á póst-
listann og fá allar upplýsingar um
viðburði aðildarfélaga, fylgjast með
starfi þeirra eða sjá hvaða styrkir
eru í boði fyrir ungt fólk til að taka
þátt í mótun samfélagsins okkar.
Á menningarnótt í Reykjavík mun
LÆF ásamt aðildarfélögum sínum
standa fyrir Lifandi bókasafni á
Austurvelli frá kl. 13.00 til 17.00. Lif-
andi bókasafninu er ætlað að láta
fólk horfast í augu við sína eigin for-
dóma, en bækurnar eru lifandi ein-
staklingar sem lesandinn getur
fengið að láni í stuttan tíma. Lesand-
inn getur þá spurt ýmissa spurninga
sem bókin mun leitast við að svara
eftir bestu getu. Bækurnar eiga
uppruna sinn í mismunandi þjóð-
ernum, trúarbrögðum, kynþáttum
og kynhneigð, hafa ólíkar stjórn-
málaskoðanir og reynslu á ýmsum
sviðum. Við viljum við þetta tæki-
færi hvetja alla til að taka þátt í
þessum viðburði okkar.
Starfsemi LÆF er uppfull af
skemmtilegum og spennandi verk-
efnum. Sem regnhlífarsamtök fyrir
fjölbreytt aðildarfélög býður LÆF
upp á mismunandi tækifæri sem all-
ir geta haft hag af. Samstarf ólíkra
félaga á einum vettvangi getur því
aukið og styrkt æskuna í sameig-
inlegum hagsmunamálum hennar.
Megi svo verða um ókomin ár.
Framtíðin er okkar og við höfum
þeirri skyldu að gegna að halda
áfram og efla starf forvera okkar í
LÆF. Í nafni allra kynslóða tökum
við við kyndli baráttunnar til að
stuðla að betri æsku handa öllum,
hvort sem er hér á landi eða úti í hin-
um stóra heimi. Okkar barátta á að
leiða til betra lífs og skýrari fram-
tíðar.
Jón Þorsteinn Sig-
urðsson og Agnar
Bragi Bragason
segja frá æskulýðs-
starfi á Íslandi
»Æskulýðsgáttin
hefur alla burði til
að vera miðpunktur í
upplýsingagjöf til
aðildarfélaga, stjórn-
valda og almennings
um æskulýðsmál og
skipulag þeirra.
Jón Þorsteinn
Sigurðsson
Jón er formaður LÆF, Agnar er
framkvæmdastjóri LÆF.
Agnar Bragi
Bragason
Í júlí og ágúst verða fjölmargir blaðberar verðlaunaðir fyrir að vera
kvartanalausir og stundvísir. Vinningar í hverri viku.
Sumarkapp
hlaup
BT og Morgunblaðsins
Aðalvinning vikunnar MP3 spilari frá Sandisk hlýtur
Ingunn Katrín Jónsdóttir, Kleppsvegi 18, 105 Reykjavík
Eftirtaldir blaðberar fá DVD mynd af topplista BT
Benedikt Sigurleifsson, Laugarteig 29, 105 Reykjavík
Hallvarður Jón Guðmundsson, Karfavogi 34, 104 Reykjavík
Steinar Örn Erlendsson, Hæðargarði 5, 108 Reykjavík
Davíð Þór Þorgrímsson, Safamýri 23, 108 Reykjavík
Ísak Eldjárn Tómasson, Kerhólar 12, 800 Selfossi
Upplýsingar um laus hverfi til afleysinga eða til framtíðar í síma
blaðadreifingar, 569-1440 eða í bladberi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 23
ÉG hafði ekki í
hyggju að deila við
nokkurn mann í fjöl-
miðlum um hugmyndir
að skipulagi. Alls ekki.
Ég hef staðið við þenn-
an ásetning minn í þau
26 ár sem ég hef starf-
að að skipulagsmálum.
En Þórarinn Æv-
arsson reiðir svo hátt
til höggs í Morg-
unblaðinu fyrir stuttu
að ég neyðist til að
bera blak af sjálfum
mér og þeim er hafa
starfað við hugmyndir
að breyttu skipulagi
vestast á Kársnesi.
Ég kannast ekki við
harðar deilur um fram-
tíðarskipulagið sem
Þórarni verður tíðrætt
um heldur eðlilegt
samráð og umræður.
Ég hef kynnt þessar
nýju hugmyndir að
blandaðri byggð á
Kársnesi víða. Auðvit-
að eru skoðanir skiptar en í heildina
séð hafa viðbrögðin verið góð og um-
ræðan og ábendingarnar sem fram
hafa komið verið þarft innlegg í vinn-
una. En harðar deilur. Nei. Minnist
raunar fundar míns og forsvars-
manna Betri byggðar á Kársnesi 18.
maí sl. er ég kynnti formanni og vara-
formanni (umræddum Þórarni) sam-
takanna fyrstu hugmyndirnar að
blandaðri byggð á hafnarsvæðinu og
afhenti þeim ljósrit af hugmynd-
unum. Ég mat viðbrögð Þórarins í
lok kynningarinnar sem
jákvæð. En síðar virðist
hann skipta um skoðun
því í viðtalsþætti í út-
varpinu segir hann, þeg-
ar hugmyndin var til
umræðu, að það væri
stílbrot hjá Betri byggð
á Kársnesi að brýna
ekki hnífana og grafa
skotgrafir.
Síðast þegar við Þór-
arinn sátum saman á
fundi hinn 22. júlí sl. og
ræddum ásamt fleiri
íbúum við Kárs-
nesbraut, Marbakka-
braut og Helgubraut
hugmyndir að nýrri
Kársnesbraut komu hin
breyttu viðhorf Þór-
arins enn betur fram. Á
fundinum var m.a. kom-
ið inn á þá skyldu bæj-
aryfirvalda að horfa til
heildarinnar og það
væri á ábyrgð þeirra að
stuðla að skynsamlegri
og hagkvæmri nýtingu
lands og landgæða inn-
an marka sveitarfé-
lagsins. Þórarinn tók
þátt í umræðunni á þann
hátt að hann taldi að í þessu tilviki
ætti það ekki við. Það ætti ekki að
horfa á hlutina með heildarhagsmuni
Kópavogsbæjar að leiðarljósi. Þessar
breytingatillögur skiptu aðra ekki
máli og því ætti ekki að vera að
blanda öðrum bæjarbúum en íbúum
Kársness í þetta mál!
En um hvað snýst þetta mál? Jú,
það snýst um grundvallarbreytingar í
skipulagi á Kársnesi sem snerta bæj-
arfélagið allt. Í stað hafskipahafnar
með tilheyrandi byggingum og hús-
næði sem er í lélegu ásigkomulagi
komi blönduð byggð íbúðar-, þjón-
ustu- og atvinnuhúsnæðis og opin
svæði með vonandi fullt af nýjum
tækifærum. Hugmyndin sem kynnt
hefur verið er fyrst og fremst hug-
mynd þar sem skipulagið er enn í
mótun. Samráðsferlið sem nú stend-
ur yfir er liður í því og verður deili-
skipulag svæðisins kynnt ítarlega í
lok sumars eða í haust. Þá gefst enn
frekara tækifæri til athugasemda.
Auðvelt er að kynna sér hugmynd-
ina um blandaða byggða á Kársnesi á
vefsíðu Kópavogsbæjar www.kopa-
vogur.is undir fyrirsögninni „Verður
framtíðin öðruvísi á Kársnesi?“. Þar
er jafnframt auðvelt að koma ábend-
ingum á framfæri við skipulags-
yfirvöld. Ég skora á alla sem áhuga
hafa á framtíðarskipulagi Kársness
og telja að breytinga sé þörf að kynna
sér hugmyndirnar og draga ályktanir
sínar af þeim – og það milliliðalaust.
Samráð um Kársnes
Birgir Hlynur Sig-
urðsson skrifar um
skipulag á Kársnesi
Birgir Hlynur
Sigurðsson
ȃg kannast
ekki við
harðar deilur
um framtíð-
arskipulag á
Kársnesi sem
Þórarni Ævars-
syni verður tíð-
rætt um heldur
eðlilegt samráð
og umræður.
Höfundur er sviðsstjóri Skipulags- og
umhverfissviðs Kópavogs.
Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík