Morgunblaðið - 14.08.2008, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 4. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
220. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
26
79
/
IG
13
Stanga
sett
tilbúin í veiðiferðina
Þú færð IG-veiðivörur
í næstu sportvöruverslun
ÍÞRÓTTIR
U18 ÁRA HANDBOLTA-
LANDSLIÐIÐ SLÆR Í GEGN
DAGLEGTLÍF
Skrautlegt skóla-
dót í startholunum
Endanlegt tap bankanna vegna út-
lána gæti numið 24 milljörðum á
þessu ári, miðað við uppgjör fyrri
árshelmings. Fjárhæðin svarar
nánast til markaðsvirðis Eimskips.
VIÐSKIPTI
Margfalt tap af
útlánum á árinu
Rusl kemur mikið við sögu í tölvu-
teiknimyndinni Wall-E. Rusl kom
einnig við sögu í Napólí nýlega. Að-
stæður voru þó ekki eins heillandi
og hjá vélmenninu Wall-E.
Ruslið hjá Wall-E
og einnig í Napólí
Ritstjóri Financial Times segir að
ekki sjái enn fyrir endann á yfir-
standandi erfiðleikum á fjármála-
mörkuðum. Bankar eigi enn eftir
að afskrifa töluverðar eignir.
Sér ekki fyrir end-
ann á kreppunni
FJÖLMENNT var á íbúafundi í Borgarnesi í gærkvöldi þar sem málefni
Sparisjóðs Mýrasýslu voru rædd. Þar kynntu stjórnarmenn SPM og fulltrú-
ar bæjarstjórnar stöðu hans fyrir íbúum og ástæður þess hvernig fyrir
honum er komið. Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri greindi m.a. frá sam-
komulagi, sem náðst hefur við Kaupþing um að bankinn komi að eign-
arhaldi og rekstri SPM og eignist, ásamt öðrum fjárfestum, 80% stofnfjár á
móti Borgarbyggð. Margir fundargesta voru ósáttir við skýringar stjórn-
enda og var spurt af hverju ekki hefði verið leitað til ríkisstjórnar um að-
stoð sparisjóðnum til handa. Þungt var yfir fólki og lýsti einn fundargesta
því sem svo að það væri eins og hann væri í jarðarför náins ættingja. | 4
„Eins og að vera í jarðarför náins ættingja“
Morgunblaðið/hag
FRÉTTASKÝRING
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
LJÓST er að meirihlutasamstarf
Sjálfstæðisflokksins og F-listans er
komið á „endastað“ og breytingar
óhjákvæmilegar, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Þar vegur þyngst að sjálfstæðis-
menn telja að samstöðu skorti til að
takast á við erfið verkefni sem fram-
undan eru og felast einkum í fjár-
hagsáætlanagerð, atvinnumálum og
efnahagsmálum. Meirihlutinn þurfi
að hafa festu og burði til þess að tak-
ast á við efnahagsvandann í þjóð-
félaginu og það sé „ekkert gam-
anmál“.
Óánægja hefur kraumað lengi í
borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis-
flokksins með að ekki náist að koma
ákvörðunum upp úr átakamiðuðu
ferli. Það hafi verið undirliggjandi
þáttur of lengi í samstarfinu við
F-listann.
„Það skortir festu og áræði til að
taka sársaukafullar ákvarðanir. Í
staðinn snýst allt um persónu Ólafs
F. Magnússonar og endalaus auka-
atriði, sem taka alltof mikinn tíma.“
Óánægjan er ekki ný af nálinni í
samstarfinu, samkvæmt heimildum,
heldur hafa þessi atriði verið „rædd
aftur og aftur og aftur“. Og nú er svo
komið að sjálfstæðismenn „eru löngu
komnir að þolmörkum“.
Málin voru rædd á fundi Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur og Ólafs F.
Magnússonar í gær og eftir það af
borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins.
Ekki er þó búið að loka neinu, en
samkvæmt heimildum vill allur þorri
sjálfstæðismanna fara út úr samstarf-
inu. Borgarfulltrúar fengu „skýr
skilaboð“ úr baklandinu í gær og hafa
raunar fengið þau nokkuð lengi.
„Menn bara sjá sig ekki geta varið
þetta lengur.“
Samstarfið á „endastað“
Sjálfstæðismenn komnir að þolmörkum
„Skýr skilaboð“ úr baklandinu í gær Í HNOTSKURN»Hanna Birna Kristjáns-dóttir og Ólafur F. Magn-
ússon funduðu frá 12 á hádegi
til 19 í gærkvöldi.
»Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-son tók þátt í fundinum um
tíma.
»Einhugur er meðal borg-arfulltrúa flokksins sem
funduðu í gærkvöldi.
»Ólafur, Hanna Birna ogVilhjálmur sitja fund borg-
arráðs kl. 9.30 í dag.
Rússar hafa
sagt að 2000
manns, aðallega
óbreyttir borg-
arar, hafi fallið í
árásum Georgíu-
hers á héraðshöf-
uðstaðinn í Suð-
ur-Ossetíu,
Tskhinvali.
Anna Neistat,
fulltrúi Human Rights Watch-
mannréttindasamtakanna í Tskhin-
vali, segir tölurnar „mjög vafasam-
ar“ og þær fáist ekki staðfestar.
Læknar segi 44 lík hafa verið flutt í
líkhús og 273 særðir hafi fengið
læknishjálp.
Vefsíða blaðsins The Guardian
hefur eftir Neistat að fullyrðingar
Vladímírs Pútíns forsætisráðherra
um mannfallið og þjóðarmorð á
S-Ossetum ýti undir hatur og of-
beldi sem var þó nóg fyrir. Vopn-
aðir Ossetar hafi brennt þorp
Georgíumanna við Tskhinvali og
rænt eigum þeirra í hefndar-
árásum. » 16
Rússar sagðir ýkja stór-
lega mannfall í Tskhinvali
Vladímír Pútín
Bílaumboðin
hafa blásið til
sóknar í miðjum
samdrættinum
með ýmsum til-
boðum handa
viðskiptavinum
sínum. Flest
bílaumboðin
segja lagerstöðu
sína vera góða. Jón Trausti Ólafs-
son, markaðsstjóri Heklu, segist
merkja ákveðin straumhvörf í
bílasölu með því að fólk leiti í
ríkari mæli að sparneytnari bíl-
um. 7.800 bílar hafa selst hér á
landi frá áramótum en það er
töluvert lægri tala en á sama tíma
í fyrra. » 6
Bílaumboð blása til
sóknar í samdrættinum
Áströlsk kona ákvað að hefna
sín þegar hún fann ótvíræðar vís-
bendingar um ótryggð karlsins:
svartar nærbuxur með blúndum og
umbúðir af verju, „small“, í rúm-
inu. Hún setti mynd af brókinni á
eBay.
„Hún er svo risastór að hægt
væri að nota hana í laglegt sjal
eða, enn betra, í hrekkjavökubún-
ing.“ kjon@mbl.is
Kolsvört hefnd með
blúndum á eBay