Morgunblaðið - 14.08.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Björgvin Guðmundsson
og Guðmund Sverri Þór
„VÆNTANLEGA verður einhver verðbólgu-
hagnaður á þriðja ársfjórðungi þó maður voni að
hann verði ekki eins mikill. Það hefur verið gríð-
arlegur hraði á verðbólgunni á fyrsta og sérstak-
lega öðrum ársfjórðungi,“ segir Friðrik Már Bald-
ursson, prófessor í Háskólanum í Reykjavík.
Eignirnar verðtryggðar
Samkvæmt útreikningum Morgunblaðsins er
samanlagður hagnaður viðskiptabankanna
þriggja vegna yfirstandandi verðbólguskots 14,7
milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi. Lands-
bankinn hagnaðist um 5,8 milljarða króna, Kaup-
þing um 4,5 milljarða og Glitnir um 4,4.
Helsta ástæða þess að bankarnir hagnast á
verðbólgunni er að þeir eiga meira af verðtryggð-
um eignum en skuldum. Lán eru í mörgum til-
Hagnast á verðbólgunni
Viðskiptabankarnir þrír hagnast um 14,7 milljarða vegna verðbólguskotsins
fellum verðtryggð og hækka í takt við verðbólgu-
hraðann. Stór hluti afborgana eru því greiðslur á
verðbótum sem renna beint til lánveitandans í
formi tekna. Það er þó ekki sjálfgefið að bankar
hagnist á verðbólgunni, til dæmis þegar fjár-
magnskostnaður hækkar meira.
Friðrik segir að þegar þessi áhrif minnki og
gengisbreytingar hafi ekki eins mikla þýðingu fyr-
ir uppgjörin kunni staðan að breytast.
„Við erum aldrei glaðari en þegar við losnum við
gengissveiflur og verðbólgu. Hagur bankans fer
alltaf til langs tíma saman við hag viðskiptavina og
eigenda,“ sagði Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans, þegar hann kynnti uppgjör bank-
ans fyrir fyrri helming ársins.
Hagnaður af verðbólguskotinu | Viðskipti
Í HNOTSKURN
»Bankarnir eiga meira afverðtryggðum eignum en
skuldum. Sagt er að verð-
tryggingarjöfnuður þeirra sé
jákvæður.
» Í verðbólgu aukast þvíverðtryggðu eignirnar
meira en skuldirnar. Mismun-
urinn er verðbólguhagnaður-
inn.
»Lán fólks eru að stærstumhluta verðtryggð og
hækka í takt við verðbólguna.
Morgunblaðið/Kristinn
Verðbólga Bankarnir hagnast í verðbólgutíð.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGURINN verður opnaður fyrir umferð á laugardaginn
eftir að hafa verið lokaður vegna endurbóta sem staðið hafa yfir frá því í mars.
Af því tilefni ætla fyrirtæki við götuna að efna til hátíðar klukkan 13 á laug-
ardag, þar sem boðið verður upp á margs konar skemmtiatriði.
„Það er líka gleðilegt fyrir fólk að komast í miðborgina. Það átta sig ekki
margir á því, en ef Skólavörðustígurinn er lokaður finnst fólki kannski ekki eins
gaman að fara niður í miðborgina,“ segir Eggert feldskeri, sem fagnar opn-
uninni. Þá hrósar hann starfsmönnum Ístaks fyrir sérlega liðugt samstarf.
Áætluð verklok við götuna voru í júlílok og hefur verkið því tafist um hálfan
mánuð. andresth@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Umferð um Skólavörðustíg að nýju
FORELDRAR vista börnin sín mun
skemur á leikskólum í Reykjavík en
þeir hafa greitt fyrir. Það sýna nið-
urstöður könnunar sem leikskólaráð
lét framkvæma og eru niðurstöð-
urnar þær sömu og fyrir tveimur ár-
um.
„Það er ánægjulegt að fá þessar
niðurstöður og hún endurspeglar að
foreldrar gera sitt allra besta til að
sækja börnin eins fljótt og þeir
geta,“ segir Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins og formaður leik-
skólaráðs.
„Umræðan er of mikið á neikvæð-
um nótum, að börnin séu lengi á
leikskólum og jafnvel lengur en for-
eldrarnir eru í vinnunni. Niður-
stöður könnunarinnar sýna það
svart á hvítu að 90% barna dvelja
skemur á leikskólum en greiddur
dvalartími gefur færi á.“
Ákveðið var á fundi leikskólaráðs
í gær að gera könnunina árlega héð-
an í frá. Sleppt er frávikum í könn-
uninni, þannig að það skekkir ekki
niðurstöðurnar ef eitthvað kemur
upp á, svo sem lasleiki. pebl@mbl.is
Foreldrar
gera sitt besta
HANNA Birna Kristjánsdóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn
Reykjavíkur, Ólafur F. Magnússon,
borgarstjóri, og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi sjálfstæð-
ismanna, sátu lengi á fundi í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær.
Var þar staðan í borgarmálum
rædd en sagt hefur verið frá því í
fjölmiðlum að sjálfstæðismenn vilji
sjá breytingar á meirihlutasamstarf-
inu í borgarstjórn, mögulega með
samstarfi við Framsóknarflokkinn.
Fjöldi fjölmiðlafólks beið áhuga-
samur í anddyri Ráðhússins eftir
fréttum um hvað þeim fór fram og
hvort niðurstöður hefðu náðst.
Engar yfirlýsingar gefnar
Engu var lofað um viðtöl eða yf-
irlýsingar frá þremenningunum að
fundi loknum en fjölmiðlafólki var
sagt að eflaust yrði rætt við það fyrir
lok dags. Því voru margir hálf-
hvekktir þegar skrifstofustjóri borg-
arstjóra gekk út úr Ráðhúsinu og út-
skýrði fyrir fréttamönnum, sem
höfðu beðið í allt að tvo tíma, að fundi
væri lokið og allir farnir.
Kom það því nokkuð á óvart
skömmu síðar þegar bílstjóri Hönnu
Birnu sást keyra í bílageymsluna.
Þustu þá ljósmyndarar og frétta-
menn út en allt kom fyrir ekki,
Hönnu Birnu var ekið burt í snar-
hasti. ylfa@mbl.is
Langur
fundur í
Ráðhúsinu
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
GRÍÐARLEGA annasamt hefur
verið hjá starfsmönnum Eðalfisks í
Borgarnesi í sumar við að flaka,
frysta, reykja og grafa lax og silung
fyrir veiðimenn. Mokveiði hefur nú
verið víða um land vikum saman og
þá ekki síst á Vesturlandi. Kristján
Sigurðsson framkvæmdastjóri segir
um 1.200 pantanir hafa verið af-
greiddar síðan í júníbyrjun, sem sé
mun meira en í fyrra. Nóga vinnu er
að hafa fyrir starfsmennina 13 í
Borgarnesi og er unnið 10 til 12 tíma
á dag.
Landburður af laxi
„Þetta er bara vertíð og rífandi
stemning hérna hjá okkur. Það er
búinn að vera landburður af laxi og
mér sýnist stefna í metár í veiðinni.
Þetta er gríðarlega mikið magn,“
segir Kristján. Stór hluti viðskipta-
vinanna eru erlendir veiðimenn sem
fara í lax hér og hlutfall þeirra af
viðskiptavinum Kristjáns virðist
hækka eftir því sem líður á laxveiði-
tímabilið.
Flestir vilja fá fiskinn reyktan eða
um níu af hverjum tíu. Mjög margir
hugsa sér fiskflökin líka sem gjafa-
vöru, til dæmis jólagjafir, og láta því
vinna og frysta afurðirnar hér og fá
þær sendar með flugi í desember.
Vertíðin í laxinum stendur fram í
september en yfirleitt fer aðeins að
dala í viðskiptunum eftir ágústlok.
En lætur Kristján sér nægja að
verka fiskinn fyrir aðra, ætlar hann
ekki að skella sér sjálfur í veiðina?
„Ég vildi að ég hefði tíma til að fara
oftar að veiða sjálfur. Það má segja
að ég sé yfirleitt upptekinn þegar
hægt er að veiða lax, en það er búið
að bóka ferð næstu helgi svo ég verð
að fara.“
Vertíð og rífandi stemning hjá
þeim sem vinna við að reykja lax
Morgunblaðið/Theódór
Laxinn reyktur í ofni Kristján Sigurðsson við ilmandi reykofninn.