Morgunblaðið - 14.08.2008, Blaðsíða 19
Fjarðarkaup
Gildir 14. – 16. ágúst verð nú verð
áður
mælie. verð
Svínahnakki (kjötborð) ............... 998 1.398 998 kr. kg
FK Grill lambalærisneiðar ........... 1.091 1.819 1.091 kr. kg
Ali Partýskinka........................... 1.394 1.991 1.394 kr. kg
Ali Svínakótilettur beinl.reyktar.... 1.923 2.565 1.923 kr. kg
Ali Gordon blue ......................... 1.343 1.790 1.343 kr. kg
Hamborgarar 4 x 80 g ................ 396 496 99 kr. stk.
Móa Kjúklingur læri/legg ............ 519 799 519 kr. kg
Klementínur .............................. 198 249 198 kr. kg
Baby gulrætur 453 g .................. 249 319 550 kr. kg
Krónan
Gildir 14. – 17. ágúst verð nú verð
áður
mælie. verð
Móa 1/2 kryddaður kjúklingur .... 539 899 539 kr. kg
Grísagúllas................................ 998 1.498 998 kr. kg
Lambainnralæri ......................... 2.599 3.498 2.599 kr. kg
Grísahnakki úrb. sneiðar............. 998 1.698 998 kr. kg
Grísahnakkasn. úrb. kryddaðar ... 998 1.798 998 kr. kg
Lambafille með fiturönd ............. 2.798 3.498 2.798 kr. kg
Goða Toscana grillpylsur............. 846 1.209 846 kr. kg
Goða Mexico grillpylsur .............. 846 1.209 846 kr. kg
Móa kjúklingabringur ................. 1.769 2.949 1.769 kr. kg
SS villikryddaðar lambak. ........... 1.671 2.228 1.671 kr. kg
Nóatún
Gildir 14. – 17. ágúst verð nú verð
áður
mælie. verð
Grísalundir ................................ 1.349 2.698 1.349 kr. kg
Grísafille með ostafyllingu .......... 1.998 2.798 1.998 kr. kg
Nóatúns lax beint í ofninn........... 1.298 1.798 1.298 kr. kg
Sjóbleikja flök ........................... 998 1.598 998 kr. kg
Stórlúða í sneiðum..................... 1.698 2.298 1.698 kr. kg
Móa kjúklingur ferskur 1/1 ......... 539 899 539 kr. kg
SS kryddl. lambatvírifjur ............. 1.671 2.228 1.671 kr. kg
Goða sagaður framp. í súpu ....... 674 898 674 kr. kg
Meistara hunangskaka............... 399 619 399 kr. stk.
Andrex WC 9 rúllu hvít. ............... 775 969 775 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 14. – 20. ágúst verð nú verð
áður
mælie. verð
Ísfugl ferskur kjúkl. heill.............. 572 817 572 kr. kg
Ísfugl úrb. kjúkl.bringur án skinns 1.892 2.703 1.892 kr. kg
Ísfugl kjúklingalæri og -leggir ...... 557 798 557 kr. kg
Emmessís vanillustangir 10 stk. .. 498 619 50 kr. stk.
Emmessís ávaxtastangir 10 stk. .. 349 439 35 kr. stk.
Pataks korma sauce 540 g ......... 349 445 647 kr. kg
Pataks plain naan brauð 280 g... 329 425 1.175 kr. kg
Milka milk súkkulaði 100 g......... 149 199 1.490 kr. kg
Almondy súkk.kaka dökk 350 g .. 879 1.098 2.512 kr. kg
Capri Sonne wild berries 330 ml . 109 129 331 kr. ltr
helgartilboðin
Svínakjöt og kjúklingur
Morgunblaðið/Ásdís
Gamalt og nýtt Talnagrindin gengur í endurnýjun lífdaga, 1.276 kr.
Converse-tískan hefur náð til ritfangaframleiðanda; Converse classic-
pennahólkur, 1.579 kr. Converse-stílabók 239 kr. Converse-teygju-
mappa 789 kr. Margföldunarkubbur 995 kr. 24 Faber-Castell-trélitir
1.276 kr. Vörurnar fást í Office 1.
Bleikur pakki Prinsessutaska 2.990 kr. Prins-
essupennaveski 795 kr. Bangsayddari 99 kr.
Sumir kjósa allar vöru úr sömu línunni meðan
aðrir láta verðið ráða valinu. Þannig er hægt að
fá Disney-blýant með prinsessustrokleðri á 299
kr. en blýantur í álíka lit með bleiku fíla-
strokleðri kostar 99 kr. Vörurnar fást í Griffli.
Tvær fyrir eina Krakkar virðast þurfa að bera
meira en ein taska rúmar og því er ein nýjung árs-
ins hjá Office 1 tvær töskur í einni. Taskan sam-
anstendur af tveimur töskum með axlaböndum á
báðum sem hægt er að renna saman, 7.990 kr.
Pennaveski með öllum nauðsynlegum ritföngum frá
Griffli, 1.265 kr. Hauskúpur og sjóræningjar eru
áberandi, blýantur frá Pennanum/Eymundsson
kostar 350 kr og hauskúpustrokleður kostar 195 kr.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Fyrir þau yngstu Glaðlegt skóladót fyrir yngstu kynslóðina og oft má
vart sjá hvort um er að ræða leikfang og ritfang. Beckmann-bílataska
11.995 kr. Hundapennaveski með ritföngum 1.585 kr. Bleik skólataska
frá Jeva 12.995 kr. Tvöfalt pennaveski frá Jeva 4.195 kr. Gulur býflugu-
yddari sem skríkir 495 kr. Blýantur með áfastri fígúru sem hreyfist 510
kr. Grænn penni með grasálfi 595 kr. Vörurnar fást í Pennanum/
Eymundsson.
Skrautlegt skóladót
úr öllum áttum
Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur
gudrunhulda@mbl.is
Litir, reglustikur, pennar, yddarar, stílabækur, reiknivél,skólataska – allt þarf að vera klappað og klárt fyrirfyrsta skóladaginn. Nú nálgast haustið óðfluga og skól-inn er handan við hornið. Hvort sem ungir námsmenn
hlakka til eða kvíða vetrinum framundan kemst enginn hjá því að
„græja sig upp.“ Því eru margir foreldrarnir byrjaðir að huga að
skóladóti fyrir börnin sín enda ófáir hlutirnir sem börnin þurfa á að
halda fyrir menntun vetrarins.
Það er hins vegar ekkert grín að vera skólabarn í innkaupum því
úrvalið er endalaust. Ef marka má framleiðendur vilja stelpur
bleikar prinsessur og myndir af bleikum kettlingum og pónýhest-
um. Bleikt er allsráðandi í stelpulínum eins og fyrri ár svo ungum
skólapíum sem hugnast einhverjir aðrir litir gæti verið vandi á
höndum. Framleiðendur og verslunareigendur virðast hins vegar
telja að strákarnir hafi fjölbreyttari smekk því þótt Köngulóarmað-
urinn sé áberandi í búðunum er litaúrvalið fyrir drengina mun
meira en fyrir stelpurnar.
Starfsmenn verslana segja krakkana komna með tískuvit á unga
aldri og þannig velji margir allt skóladótið úr sömu línunni, til að
vera „í stíl.“ Aðrir láta þó verðið stjórna kaupunum enda sögðust
starfsmenn verða varir við meiri verðvitund en fyrri ár.
Krakkar gera sér einnig alltaf meira og meira grein fyrir
„merkjavörum“ segja verslunarmenn. Þannig sé Converse æði í
barnatísku og ritföngin fylgi með straumnum. Yngri kynslóðin
kjósi gjarnan ritföng merkt uppáhalds teiknimyndafígúrunni sinni
og komi Batman sterkur inn í ofurhetjulínu fyrir stráka en hjá
stelpunum sé Hello Kittý enn sem fyrr gífulega vinsæl.
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 19
Það er ekki laust við að tómið og
neindin geri vart við sig nú þegar
ágúst er að verða hálfnaður, Fiski-
dagurinn að baki og verslunar-
armannahelgin fyrir bí. Hvað er þá
eftir af sumrinu góða?
Eitthvað. Sumarið er ekki í and-
arslitrunum enn þá. Það er til dæm-
is hægt að halla sér upp að blessuðu
menningarlífinu og sleikja þannig
sárin fram að næstu stórhátíð.
Akureyrarvakan fer vitaskuld fram
í lok mánaðarins með tilheyrandi
kúltúrfans, sýningum, skrúðgöngu
og viðburðum. En þangað til er vel
hægt að taka forskot á sæluna.
Ég bendi til dæmis á ljóðapró-
grammið í Verksmiðjunni á Hjalt-
eyri á sunnudagssíðdegi kl. 15 (og
bendi þannig í leiðinni á að það fer
ekki fram á föstudaginn kl. 20 eins
og auglýst hefur verið). Þá flytur
Jón Laxdal skáld og listamaður
dagskrá með ljóðaþýðingum Þor-
steins Gylfasonar (en ekki skáldum
úr Arnarneshreppi eins og auglýst
hefur verið).
Á Græna hattinum eru skemmti-
legar andstæður í tónleikum helg-
arinnar. Hera Hjartardóttir kemur
fram annað kvöld en á laugardags-
kvöld er það sjálfur Geir Ólafsson
með stórskotaliði úr djassheim-
inum á bak við sig.
Fyrir þá sem iða í skinninu eftir að
fá að gera eitthvað í kvöld mæli ég
hins vegar með Deiglunni. Bæði
verður þar spennandi efni og frá-
bærir hljóðfæraleikarar. Kvartett
Q, með Sunnu Gunnlaugsdóttur pí-
anóleikara innanborðs, mun þá
flytja tónlist hins frábæra saxófón-
leikara Sonny Rollins.
Og enn er þá ekki allt upptalið því
ungstirni og grasrót standa fyrir
áhugaverðum viðburðum á næstu
dögum. Á föstudagshádegistónleik-
unum í Ketilhúsinu syngur ung og
upprennandi sópransöngkona,
Auðrún Aðalsteinsdóttir. Hópurinn
Grálist verður með sýningu í Deigl-
unni næstkomandi laugardag, kl.
14. Enn fremur munu þær Elfa
Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og
Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari
spila saman einleiksfantasíur eftir
Telemann í Glerárkirkju nk. þriðju-
dagskvöld.
Þannig að sumarið tifar enn hér á
Akureyri, þó mollan sé við það að
lygnast út af og rökkrið að taka
við.
úr bæjarlífinu
AKUREYRI
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Ekki kaupa of stóran bakpoka. Það eru algeng mistök að
vilja hafa „nóg pláss“. Bakpokinn má þó helst ekki vera
breiðari en bak barnsins og hann ætti heldur ekki að ná meira
en 10 cm niður fyrir mitti barnsins.
Axlarólar eiga að vera breiðar og vel fóðraðar og þær þarf að
stilla þannig að taskan sitji þétt upp við bak barnsins. Einnig
þarf bakið á töskunni að vera vel bólstrað. Best af öllu er að
taskan sé með brjóstól að framan og líka mittisól.
Þyngd bakpokans með öllu sem í honum er ætti ekki að vera
meiri en sem nemur 10-20% af líkamsþyngd barnsins. Þannig
ætti barn sem er 30 kíló að þyngd ekki að burðast með meira
en þrjú til sex kíló í bakpokanum.
Ekki láta barnið burðast með óþarfa. Það ætti að setja það
sem á að nota í bakpokann á hverjum degi og þannig má kom-
ast hjá því að burðast með bækur sem ekki eru notaðar.
Setjið það sem er þyngst í bakpokann fyrst í pokann og sem
næst bakinu, s.s. nesti og þungar bækur. Ef þunginn liggur fjær
líkama barnsins togar vogaraflið í og barnið þreytist í bakinu
við að spenna sig á móti.
Það er gott að hafa nokkur smærri hólf í bakpokanum í stað
þess að hafa bara eitt stórt hólf. Þannig er hægt að dreifa
þyngdinni í pokann og hann situr betur – svo er auðvitað auð-
veldara að finna hvar allt er þegar það hefur vísan stað.
Veldu rétta skólatösku