Morgunblaðið - 15.08.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.08.2008, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is LYFJASTOFNUN Evrópu (European Medicines Agency) hafa borist tvær tilkynningar um alvar- legar aukaverkanir af völdum MS-sjúkdómalyfs- ins Tysabri. Aukaverkunin felst í ágengri fjölhreiðra inn- lyksuheilabólgu (PML). Um er að ræða lífshættu- lega bólgu í heilanum sem hefur svipuð einkenni og MS-kast. Sérfræðinganefnd stofnunarinnar (CHMP) lítur þessi tilvik alvarlegum augum og hefur beðið Elan, markaðsleyfishafa Tysabri, að leggja fram öll gögn um lyfið. Á þeim grundvelli hyggst nefndin taka ákvörðun um framhaldið. Íslenskur sjúklingur í lost Á Íslandi fór fyrsta lyfjagjöfin með Tysabri fram í janúar og þótti mörgum sjúklingum um tímamótalyf að ræða. Erfiðlega gekk að fá lyfið tekið í notkun hérlendis þrátt fyrir að það hafi verið gefið í nágrannalöndunum í nokkur ár. „Við munum fylgjast mjög náið með þessu. Þetta eru mjög alvarlegar aukaverkanir,“ seg- ir Björn Zoëga, lækningafor- stjóri Landspítala, og bætir við að alls ekki megi tefla lífi og heilsu sjúklinga í tvísýnu. „Það er búið að gefa rúmlega 20 manns þetta lyf og þessi aukaverkun hefur ekki komið upp á Ís- landi, þá værum við hættir að nota lyfið. En það hefur komið upp önnur [alvarleg aukaverkun] þar sem sjúklingur fór í lost við gjöf á lyfinu. En þar sem lyfið er gefið á spítala var brugðist mjög skjótt við því og sjúklingur beið engan skaða af,“ segir Björn, en umræddur sjúklingur var að fara í lyfjameðferðina í fyrsta skipti. Bendir Björn á að þar sem um er að ræða nýtt lyf á markaðnum kunni að koma upp alvarlegar aukaverkanir af ýmsum tegundum sem ekki séu fyrirséðar. Björn telur fullsnemmt að segja hvernig lyfið hafi reynst á Íslandi, en til séu jákvæðar reynslu- sögur sjúklinga. Þá sé enn stefnt að því að á árinu fái 50 sjúklingar lyfið, en það sé að sjálfsögðu háð því að Lyfjastofnun Evrópu taki lyfið ekki af markaðnum. Miklar vonir voru bundnar við lyfið „Þetta eru leiðinleg tíðindi fyrir alla sem trúa því að ný lyf komi til með að hjálpa. Það hafa verið bundnar miklar vonir við þetta lyf. Ef það reynist rétt að hættan sé svona mikil að menn séu að hugsa um að taka lyfið af markaðnum þá er það enn þá leiðinlegra, maður vonar alltaf að þessi lyf sem koma á markaðinn hafi áhrif fyrir sjúklingana til lengri tíma litið.“ MS-lyf kann að valda bólgu í heila  Lyfjastofnun Evrópu hefur fengið tvær tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir á lyfinu Tysabri  Íslenskur sjúklingur fór í lost við lyfjagjöf  Stefnt að því að 50 manns fái lyfið hér á landi í árslok Björn Zoëga Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is EINAR K. Guð- finnsson, sjávar- útvegs- og land- búnaðarráðherra Íslands, og Finn Karlsen, sjávar- útvegs-, veiði- mála- og landbún- aðarráðherra Grænlands eru sammála um að vinna sameigin- lega að hugmyndum um að vernda grálúðustofninn. Grálúðustofninn er mjög veikur og fiskifræðingar hafa varað mjög við þróun hans. Grænlenski ráðherrann var stadd- ur hér á landi í opinberri heimsókn sem lauk í gærkvöld. „Veiðarnar hafa verið langt yfir afkastagetu stofnsins og ég lagði mikla áherslu á það í okkar viðræð- um að við kæmumst að samkomulagi um nýtingu stofnsins. Niðurstaðan var sú að sett verður á laggirnar, vonandi á haustdögum, embættis- mannanefnd beggja þjóða sem mun fara ofan í þetta mál. Á fundum okk- ar kom fram sameiginlegur skilning- ur á að staða stofnsins væri of veik og að bregðast þyrfti við,“ segir Ein- ar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. „Þetta er í fyrsta skipti sem tekst að fá menn til að setjast niður saman og freista þess að ná samkomulagi í þessu máli.“ Einar K. Guðfinnsson Grálúðu- stofninn verndaður Embættisnefnd verð- ur sett á laggirnar HERÐUBREIÐ ber titilinn „fjalladrottning“ með rentu, að mati Sverris Kristinssonar fasteignasala. Hann var í átta manna gönguhópi sem gekk í fylgd leiðsögumanns á Herðubreið síðastliðinn miðvikudag, 13. ágúst. Til- efnið var að þá var liðin ein öld frá því að þýski jarð- fræðingurinn dr. Hans Reck og fylgdarmaður hans Sig- urður Sumarliðason, bóndi í Bitrugerði í Kræklingahlíð, gengu á fjallið fyrstir manna svo vitað sé með vissu. Gönguhópurinn kleif nokkur fjöll á hálendinu aust- anlands í þessari ferð og naut góðrar leiðsagnar Elísa- betar Kristjánsdóttur sem býr í Möðrudal á Fjöllum. Fyrst lá leiðin á Snæfell á sunnudaginn var. Á mánudag var gengið á Kverkfjöll og var ýmist gengið í snjódrífu eða glaðasólskini í þeim leiðangri. Göngufólkið var í línu og gekk á ísbroddum yfir jökulinn á Kverkfjöllum. Á þriðjudag skoðuðu þau Öskju og Svartá en á miðviku- dag var Herðubreið klifin. Gangan sóttist vel „Gangan á Herðubreið sóttist vel,“ sagði Sverrir. „Það er ákaflega víðsýnt af fjallinu. Þótt það hefði verið sólskin nú var ekki jafnvíðsýnt og þegar best lætur. Hluti af hópnum fór þarna í fyrra og þá var glaða- sólskin, alheiðskírt og mikið útsýni. Það er stórkostlegt að sjá þessa náttúrufegurð þarna fyrir austan og hress- andi að ganga svona,“ sagði Sverrir. Göngufólkið í þessum leiðangri var frá fertugu og til 64 ára aldurs. Sverrir sagði að um vant göngufólk sé að ræða og gengu fjórir úr hópnum m.a. á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, í fyrra. „Ég mæli með því að fólk stundi svona göngur. Þetta er mikil heilsubót, bæði hressandi og eykur líkamlegt og andlegt þol. Ég tel að þetta sé mjög hollt,“ sagði Sverrir. Göngufólk Sigmundur Stefánsson, Hafdís Sigurgeirsdóttir, Sævar Þ. Sigurgeirsson, Sverrir Kristinsson, Gerður Beta Jóhannsdóttir, Arnar Þór Sævarsson, Sigurður Tómas Valgeirsson og Grétar Guðni Guðmundsson. Fjalladrottningin og fjölskylda hennar Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LEIGA á aflaheimildum í þorski hefur nær tvöfaldast síðan í ágúst 2003. Í gær var meðalverðið á þorskkílóinu um 242 krónur en um 122 krónur 12. ágúst 2003, sam- kvæmt upplýsingum á vef Fiski- stofu. Sveiflukennt verð Leiguverð á aflaheimildum er mjög breytilegt. Þegar nær dregur lok- um fiskveiðiársins hækkar það gjarnan, séu menn með um- framafla, og að sama skapi lækkar það eigi menn afgang. 12. ágúst í fyrra var meðalverð á þorski 185 krónur. Það var 133 kr. 14. ágúst 2006, 109 kr. 12. ágúst 2005, 116 kr. á sama tíma 2004, 122 kr. 2003 og 160 kr. 2003, samkvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu. Í sumar var verðið hæst 6. ágúst eða um 248 kr. Það var 246 kr. 15. júlí og 24. júní, en 163 kr. 5. júní. 5. maí var það hins vegar 215 krónur. steinthor@mbl.is Kvótaverð tvöfaldast á fimm árum HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt 21 árs gamlan Nígeríu- mann í mánaðarfangelsi fyrir misnotkun skjala með því að fram- vísa fölsuðu vegabréfi við komu til Íslands. Fram kemur í dómnum að mað- urinn hafi komið til landsins 26. júlí og framvísað vegabréfi svissnesks 32 ára gamals manns. Maðurinn játaði brot sitt. Við ákvörðun refsingar var litið til játn- ingar ákærða og þess að ekkert kom fram um að hann hefði áður gerst brotlegur við refsilög hér á landi. Hins vegar, segir í dómnum, verði að líta til þess að vegabréf eru opinber skilríki. Eins mánaðar fangelsisdómur ákærða þótti því hæfileg refsing. Með vísan til eðlis brotsins og hliðsjón af almennum varnaðaráhrifum refsinga eru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Sandra Baldvinsdóttir héraðs- dómari kvað upp dóminn. sunna@mbl.is Kom til lands- ins á fölsuðu vegabréfi SIGURBJÖRG Ármannsdóttir, formaður MS- félags Íslands, segir að athuga þurfi ástæður aukaverkan- anna, um sé að ræða tvö tilvik en 40 þúsund fái lyf- ið. Hún segir lyf- ið hafa gjörbylt meðferð á MS-sjúkdómnum og hafi reynst mun betur en eldri lyf. Hún telur enga ástæðu til að hætta með- ferðinni hérlendis. Engin ástæða til að hætta núna Sigurbjörg Ármannsdóttir Hvers konar fjall er Herðubreið? Herðubreið er 1.682 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls. Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „drottning íslenskra fjalla“ vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli. Á toppi þess eru hraunlög og hefur gosið því náð upp úr jöklinum. Slík fjöll, þ.e.a.s. móbergsfjöll með hraun- lögum að ofan, kallast stapar. Herðubreið var valin þjóð- arfjall Íslendinga í kosningu árið 2003. Hvenær var Herðubreið fyrst klifin? Til er frásögn manns að nafni William Lee Howard sem sagðist hafa gengið á Herðubreið árið 1881. Hún þykir þó ekki trúanleg en Howard þessi sagðist hafa notast við flugdreka til að komast á tindinn og við drekann hafi verið fest akkeri. Sagðist hann hafa komist á tindinn á 38 klukkustundum og að fjallið væri augljóslega eldfjall. S&S Í SAMANBURÐI við nágranna- sveitarfélög er sorphirðan í Reykja- vík dýrari. Áætlaður kostnaður við losun á hverri sorptunnu í Reykjavík árið 2008 er 206 kr./losun en í einu nágrannasveitarfélaganna er kostn- aðurinn 185 kr./losun og önnur sveit- arfélög greiða jafnvel enn lægri upp- hæð. Þetta kemur fram í svari Guðmundar B. Friðrikssonar, skrif- stofustjóra umhverfissviðs Reykja- víkurborgar, við fyrirspurn minni- hlutans í umhverfis- og sam- gönguráði varðandi sorphirðu í borginni. Í svarinu kemur einnig fram að Guðmundur telji borgina hafa betri stjórn á gæðum þjónust- unnar með því að reka eigin sorp- hirðu. Þannig sé styttra milli íbúa og þess sem veitir þjónustuna. Dýrara sorp í borginni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.