Morgunblaðið - 15.08.2008, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.08.2008, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Meirihlutaskipti í borgarstjórn FRÉTTASKÝRING Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is ÞAÐ skipti miklu í brúarsmíði milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn að formenn flokkanna höfðu hist, borið saman bækur sínar og töldu að samstarf „horfði mjög til heilla“. Geir H. Haarde og Guðni Ágústsson mynduðu „ákveðna kjöl- festu“ þegar óformlegar þreifingar voru að hefjast á milli flokkanna og skapaði það grundvöllinn að því að flokkarnir náðu saman. Ljóst er að óánægjan með sam- starfið við F-listann hafði kraumað lengi í Sjálfstæðisflokknum. Borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins töl- uðu opinskátt sín á milli um þetta vandamál á fundum í Valhöll á mánu- dag og að morgni þriðjudags. Hanna Birna og Ólafur hittust síðan á löngum fundi um eftirmiðdaginn á miðvikudag frá 12 til 19, eins og fram hefur komið, og kom Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson inn á fundinn klukkan 16. Ýmislegt bar á góma á fundum með Ólafi, meðal annars hvort hann gæti hugsað sér að breikka meiri- hlutann með Framsóknarflokknum og hvort hann væri tilbúinn að víkja fyrir Hönnu Birnu sem borgarstjóri. Ólafur lokaði ekki fyrir það, en var ekki tilbúinn að ganga eins langt og sjálfstæðismenn óskuðu. Það hafði hins vegar komið á dag- inn að framsóknarmenn voru ekki til í samstarf sem „þriðja hjól undir vagni“. Og undiraldan var orðin þung í Sjálfstæðisflokknum. Þar voru menn óánægðir með ósamstöðuna og vandræðaganginn í meirihlutanum, sem kristallaðist í dræmum niður- stöðum skoðanakannana og vildu fá festu í borgarstjórn. Þegar hjólin voru farin að snúast urðu þau ekki stöðvuð. Skilaboðin voru skýr úr bak- landinu og samstarf við Framsókn í farvatninu. „Þetta var eina leiðin sem var fær.“ Borgarfulltrúar flokksins funduðu heima hjá Hönnu Birnu til klukkan 2 í fyrrinótt og var samstaða meðal þeirra um framhaldið. Kjartan Magnússon tók dræmast í að slíta samstarfinu við F-listann, enda hafði hann verið í nánu sambandi við Ólaf og átt ríkan þátt í myndun meirihlut- ans með F-listanum. Hanna Birna og Ólafur F. Magn- ússon hittust svo fyrir borgarráðs- fund í gærmorgun, eins og venjulega. En eftir því var tekið að hún mætti ekki á borgarráðsfundinn sem hófst kl. 9.30 og fundaði þess í stað áfram með Ólafi. Þar voru fyrir hönd minni- hlutans Óskar Bergsson, Dagur B. Eggertsson og Þorleifur Gunn- laugsson frá Vinstri grænum, en Svandís Svavarsdóttir er í fríi í Tosc- ana á Ítalíu. Það ríkti ágætisandi á fundinum, sem var stuttur og snarp- ur. Óvissan í borginni var ekkert rædd og „ekki einu sinni gantast með hana“. Óskar lét raunar færa til bók- ar að hann gerði athugasemd við hvernig að vali á verktaka væri staðið eftir útboð vegna Sæmundarskóla. Eftir að fundinum lauk settust borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins yfir málin í sófasett í fundarherbergi sem liggur að borgarráðsherberginu. Þeir lokuðu að sér og ræddu meðal annars um hvað þeir ættu að segja fjölmiðlum. Fjölmiðlar héldu hins vegar að borgarfulltrúarnir hefðu farið niður brunastigann til þess að sneiða hjá sér, olli það hneykslan og fordæmingu og fór reiðialda um sam- félagið. Borgarfulltrúarnar undr- uðust hins vegar að engir fjölmiðlar væru á staðnum er þeir komu út úr fundarherberginu. Misskilningurinn var leiðréttur síðar um daginn. Lagt var upp með það af hálfu minnihlutans í gær að Ólafur F. Magnússon viki fyrir Margréti Sverrisdóttur. Og Tjarnarkvartett- inn gengi í endurnýjun lífdaga. En sögum ber ekki saman um hvort Ólafur hafi boðist til þess að hætta eða ekki. Úr herbúðum Vinstri grænna mátti heyra að hann hefði boðist til þess, en því var neitað af samstarfsmönnum Ólafs. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins fóru til fundar við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur eftir borgarráðs- fundinn, en hún hafði komið sér fyrir í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi til þess að fá starfsfrið. Og hafði gert drög að samkomulagi við Óskar um að hefja viðræður. Eftir það fóru samskiptin að mestu fram þaðan, þar til formlegar viðræður hófust í Ráð- húsinu. Áður hringdi Hanna Birna í Ólaf F. Magnússon til þess að láta hann vita af því. Stefnt var að því að hefja viðræður fyrir kvöldfréttir, en ekki náðist að ganga frá lausum endum í Fram- sóknarflokknum. Marsibil Sæmund- ardóttir, varaborgarfulltrúi, var ekki sannfærð og vildu menn tryggja að hún væri samþykk framhaldinu. Ekki hafðist uppi á henni og olli það nokkrum áhyggjum þar til kom á daginn að hún var í heilsurækt. Og menn vörpuðu öndinni léttar. Það kom svo fram í máli Óskars Bergs- sonar í gær að hann myndi funda með Marsibil Sæmundardóttur vara- borgarfulltrúa fyrir hádegi í dag, en hún er eini framsóknarmaðurinn ut- an hans sem getur gegnt formennsku í nefndum. „Þetta hafa verið viðburðaríkir dagar,“ sagði hann þegar nýr meiri- hluti var kynntur í gærkvöldi. Það eru orð að sönnu. Morgunblaðið/Frikki Oddviti Kastljós fjölmiðla beindist að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita sjálfstæðismanna, þegar hún kom til fundar við Óskar Bergsson, borgarfulltrúa Framsóknar, í Ráðhúsinu í gærkvöldi. Formennirnir voru kjölfestan  Undiraldan var orðin þung í Sjálf- stæðisflokknum og ekki varð aftur snúið  Sjálfstæðismenn komu sér fyrir í húsi í Kópavogi til að fá starfsfrið Morgunblaðið/Frikki Ráðhús Óskar Bergsson ræðir við fjölmiðlafólk í Ráðhúsinu í gærkvöldi. Ólína Þorvarðardóttir | 14. ágúst Orðabrigð og laumuspil … Hanna Birna hefur margoft lýst því yfir að Sjálfstæðismenn væru heilshugar í samstarfi sínu við Ólaf F. Magn- ússon. Flóttaleg fram- koma hennar og Vilhjálms Þ. síðustu daga þar sem þau hafa laum- ast út um brunaútganga til að forðast fjölmiðla hefur ekki beinlínis borið … Meira: Meira: olinathorv.blog.is Ingólfur H. Þorleifsson | 14. ágúst D+S … Sjálfstæðismenn og Samfylking verða að setja aftur fyrir þann pirring sem verið hefur á milli þessara flokka í borg- arstjórn, og mynda meiri- hluta sem er nógu sterk- ur til að taka á málum. Ef að það þarf til að Dagur fái borgarstjórastólinn þá eig- um við að gefa það eftir. Dagur stóð sig að mörgu leyti vel sem borgarstjóri … Meira: golli.blog.is Ómar R. Valdimarsson | 14. ágúst Blaðamannafundur D- og B-lista … Óskar og Hanna Birna þurfa að velja staðsetn- ingu blaðamannafund- arins vandlega. Nú er bjart og fallegt úti þannig að velja stað við Tjarn- argötuna með Ráðhúsið í baksýn er líklega skynsamlegt. Mjög fótógenískt. Oddvitarnir þurfa að svara blaða- mönnum skýrt og skorinort … Meira: omarr.blog.is Salvör | 14. ágúst Ólafur á um sárt að binda … Það þarft stáltaugar til að standa í pólitík eins og hún er orðin á Íslandi í dag og það hefur mætt mikið á borgarfulltrúum í Reykjavík þetta kjör- tímabil. Vonandi átta fjöl- miðlamenn og menn í kringum Ólaf í stjórnmálum sig á því að Ólafur skynjar ekki atburðarásina eins og þeir … Meira: Meira: salvor.blog.is blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.