Morgunblaðið - 15.08.2008, Side 15

Morgunblaðið - 15.08.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 15 ERLENT Andóf kæft í Peking  Loforð um leyfi til mótmæla á þrem stöðum í reynd svikin  Kínverjar sem sækja um leyfi til mótmælafunda ofsóttir og handteknir Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is KÍNVERJAR andmæla því kröft- uglega að þeir hafi svikið fyrirheit gagnvart Alþjóðaólympíunefndinni, IOC, um að tryggja mannréttindi og leyfa mótmæli í tengslum við leikana. „Ég sagði að ef leikarnir yrðu í Kína myndi það aðstoða Kín- verja við að opna enn frekar sam- félagið og gera umbætur,“ sagði Wang Wei, varaformaður skipulags- nefndar leikanna, á fréttamanna- fundi í gær. Wei nefndi sem dæmi um fram- farir að mótmæla mætti í þrem skemmtigörðum í Peking. En bent var á að engin leyfi hefðu verið veitt fyrir mótmælum. Fréttamaður Fox- stöðvarinnar bandarísku, Bill Marc- us, las upp lista með nöfnum Kín- verja sem sótt hefðu um leyfi til mótmæla í görðunum en verið svar- að með ofsóknum og handtökum. Er fundarstjóri stöðvaði Marcus og bað hann að bera upp spurningu minnti hann á að Kínverjar hefðu sagst vilja tryggja mannréttindi á sama hátt og aðrar þjóðir. „Hvaða þjóðir voru þeir með í huga?“ spurði Marcus. Alex Thomson hjá Channel News-sjónvarpsstöðinni í Bretlandi lofaði að vera stuttorður. „Kín- verska stjórnin laug blygðunarlaust þegar hún tjáði sig um mannrétt- indi. Skammast IOC sín ekki?“ Gis- elle Davies, talskona IOC sagði nefndina vera hreykna af því að „stórkostlegir íþróttaviðburðir fara fram á stórkostlegum leikvöngum“. Thomson margítrekaði spurninguna en fékk aldrei efnislegt svar. Hópur Tíbet-vina, sem staðið hef- ur fyrir mótmælum í Peking, segir garðana þrjá aðeins hafa verið ómerkilega blekkingu af hálfu stjórnvalda. Nú sæju menn hvaða meðferð þeir fengju sem ætluðu að nýta sér þá. „Það er hryggilegt en ég held að mótmælasvæðin hafi að nokkru leyti verið gildrur,“ sagði talskona hópsins, Lahdon Tethong. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HERMENN framtíðarinnar munu geta stjórnað mannlausum könnun- arflugvélum og öðrum tækjum á víg- vellinum með hugaraflinu einu sam- an, að því er ráðgjafar Bandaríkja- hers halda fram í nýrri skýrslu um leiðir til að efla varnir landsins og bandamanna þess næstu áratugi. Skýrslan, „Emerging Cognitive Neuroscience and Related Techno- logies“, var unnin af vísindamönnum fyrir öryggisstofnunina Defense In- telligence Agency, DIA, fyrir banda- ríska varnarmálaráðuneytið. Segir þar að í stað kúlnahríðar í landhernaði muni hermenn framtíð- arinnar verða yfirbugaðir með úðun efna sem lama hreyfigetu óvinahers- ins tímabundið. Tækniframfarir munu einnig koma að góðum notum í baráttunni við glæpi og fram koma á sjónarsvið- ið tæki sem munu geta skorið úr um hvort hinn grunaði sé sá rétti útfrá lestri í heilavirknina. Hefðbundnir lygamælar munu ef til vill heyra sögunni til og rafeinda- tæki sem torvelda glæpamönnum að fara með ósannindi koma í stað langra og strangra yfirheyrslna. Agnarsmár, fullkominn upptöku- búnaður í gleraugum mun án efa reynast gagnleg viðbót í vopnabúrið. Vart þarf að taka fram að þær að- ferðir sem að framan er lýst munu verða mjög umdeildar og alls óvíst hvort almenn notkun búnaðar til að ráða í hugarástand einstaklinga verður nokkru sinni samþykktur. Hitt á eftir að koma í ljós hvort sérhönnuð lyf sem ætlað er að efla andlega getu og skynfæri hermanna muni ná útbreiðslu, eins og leiddar eru líkur að í skýrslunni. Vélhermenn algengir 2020 Hin sviðsmyndin er heldur ekki óhugsandi að vélmenni muni í aukn- um mæli verða notuð á vígvellinum, en þau hafa á síðustu árum rutt sér til rúms við eftirlit og björgun. Má þar nefna að fyrir skömmu spáðu vísindamennirnir Doug Few og Bill Smart við Washington-há- skóla því að árið 2020 mundu vél- menni hafa leyst 30% hermanna Bandaríkjahers af hólmi. Samruni manns og vélar  Hermenn framtíðarinnar munu geta stjórnað flugvélum með hugaraflinu  Hægt verður að lama hermenn tímabundið  Lygavarnabúnaður í þróun Framtíðin Boeing vann lengi að þróun hinnar mannlausu sprengjuflugvélar X-45 (t.v.). Vélmenninu Bear (t.h.) er ætlað að bjarga særðum hermönnum. GREMJU gætir vegna áforma lög- reglu í New York-borg um aukið eftirlit með bifreiðum sem koma inn á eyjuna Manhattan. Raymond Kelly, lögreglustjóri í New York, hefur lagt til að örygg- ismyndavélar við göng og brýr þar sem farartæki koma inn á eyjuna beri kennsl á skráningarnúmer þeirra. Þau verða síðan varðveitt í gagnagrunni í mánuð. Aðgerðirnar eiga að hindra hryðjuverk. Í því skyni er einnig áformuð skjaldborg um svæðið þar sem tvíburaturnarnir stóðu og nú er byggt upp á ný, og hlutlaust sprengjuleitarsvæði í 80 km radíus um borgina. sigrunhlin@mbl.is Fylgst með bílum á Manhattan RISAVAXIÐ marmarahöfuð sem tilheyrði styttu af rómversku keis- araynjunni Fástínu eldri, sem var gift keisaranum Antóníusi Píusi, fannst á þriðjudagsmorgun í fornu borginni Sagalassos í Tyrklandi. Risastytta af keisaranum Hadría- nusi, tengdaföður Fástínu, fannst á sama stað síðasta sumar. Báðar stytturnar fundust í svokölluðu fri- gidarium, þar sem var köld laug til að kæla sig eftir heitt bað. Bygg- ingin tilheyrði þyrpingu baðhúsa. Fástína var uppi frá 100 til 141 eftir Krist, en baðhúsið eyðilagðist í jarðskjálfta á 6. eða 7. öld. Styttan er því að minnsta kosti 1400 ára gömul. sigrunhlin@mbl.is Fundu höfuð af keisaraynju RÚSSNESKIR hermenn handtaka karlmann við eftirlitsstöð í borginni Gori í Georgíu í gær, vopn fundust í bíl mannsins. Dímítrí Medvedev, forseti Rússlands, hét í gær fullum stuðningi við að- skilnaðarsinna í georgísku héruðunum Abkhaz- íu og Suður-Ossetíu. Óljóst er hvort og þá hve- nær Rússar hyggjast standa við skilmála vopna- hléssamninga og draga her sinn á brott. Heimildarmenn segja að þeir leggi sig nú fram við að valda tjóni á flugvöllum og öðrum mann- virkjum í Georgíu og hafa þeir m.a. sökkt nokkr- um skipum herflota landsins í Poti við Svartahaf. Ógn við Rússa kveðin niður í Gori Reuters KAFARI við Lee Stocking-eyju á Bahamaeyjum fylgist með ljóna- fiski og skrifar hjá sér athugasemd- ir. Ljónafiskur er baneitraður rán- fiskur. Tegundin, sem er algeng í vestanverðu Kyrrahafi, er nú farin að breiðast út í Karíbahafi. AP Til alls vís Um 2.500 kung-fu-nemar frá Henan, sem sýndu tai chi- æfingar á setningarathöfninni, voru innilokaðir í herbúðum í heilt ár meðan þeir voru látnir æfa sig. Þjálfarinn segir 30-50 hafa sofið saman í einum sal, hreinlætisaðstaða hafi verið slæm, matur of lítill og vondur. „Við vorum svo stoltir af því að vera útvaldir,“ segir einn nemanna. „Nú dreymir okkur bara um að fara heim.“ „Vorum svo stoltir“ PÓLVERJAR samþykktu í gær- kvöld að Bandaríkjamenn fengju að setja upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi, gegn því að þeir fengju aðstoð Bandaríkjanna í varnar- málum. Ríkisstjórn og þing Pól- lands og utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, Condoleezza Rice, hafa enn ekki undirritað samkomulagið. Innrás Rússa í Georgíu er talin áhyggjuefni fyrir þjóðir Austur- Evrópu, þar á meðal Pólverja. For- sætisráðherra Póllands, Donald Tusk, sagði samkomulagið skuld- binda þjóðirnar til að koma hvor annarri til hjálpar „ef til vandræða kæmi“. Rússar gagnrýna ákvörð- unina harðlega. sigrunhlin@mbl.is Bandarískar eldflaugavarn- ir í Póllandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.