Morgunblaðið - 15.08.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 15.08.2008, Síða 17
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is „ÞETTA eru verk frá kannski síð- ustu 12 árum og það er náttúrulega svolítið fyndið að vera bara fertugur og vera með svona yfirlitssýningu,“ segir Hlynur Hallsson myndlist- armaður sem opnar sýninguna Tillit – Rücksicht – Regard í Nýlistasafn- inu á morgun klukkan 16. „En fyrsta gallerísýningin sem ég hélt hét líka Retrospective eða yfirlits- sýning. Þar var ég með verkin mín úr skólanum, enda bara nýútskrif- aður. Mér fannst þetta svolítið skemmtilegt.“ Allt safnið undirlagt Nýlistasafnið fagnar í ár 30 ára afmæli sínu og þar stendur nú yfir mikil skráningarvinna á safneign- inni. „Ég ákvað svona í tilefni af því að það er verið að taka allt gamla dótið upp úr kössunum hérna í Nýló og ganga frá því og skrásetja upp á nýtt, að taka gömul verk og ný frá mér og blanda saman við safneign- ina. Sýningin verður ekki bara í sýn- ingarsalnum heldur allstaðar, líka inni í geymslunum þar sem fólk kemur yfirleitt ekki. Ég dreg líka fram nokkur verk sem Nýlistasafnið á eftir mig og sýni þau.“ Nýlistasafnið ómetanlegt Samband Hlyns og Nýlistasafns- ins spannar allan hans feril sem myndlistarmanns. „Ég hef tvisvar áður verið með einkasýningu hérna, fyrst ’96 og síðan 2003. Ég gekk í Nýlistasafnið um leið og ég útskrif- aðist, ég var náttúrulega í fjöltækni- deildinni í Myndlista- og hand- íðaskólanum og mér fannst ég alltaf eiga heima hér.“ Í tengslum við afmælisárið hafa ýmsir velt fyrir sér hlutverki Nýló og Hlynur er ekki í nokkrum vafa um gildi þess. „Nýlistasafnið er ómetanlegt vegna þess að það fyllir upp í stórt skarð í íslenskri lista- sögu. Þegar það var stofnað voru opinberu söfnin ekkert byrjuð að safna því sem var að gerast hjá yngra liðinu á þeim tíma. Nýló var stofnað vegna þess að þessir lista- menn höfðu þörf fyrir að koma verk- um sínum á framfæri og þau voru ekki tekin gild hjá stóru söfnunum.“ Samtímalistasagan er enn að ger- ast á Nýlistasafninu. „Það hefur allt- af verið áhersla á að fá inn yngstu kynslóðina, svo þetta verði aldrei lokuð klíka heldur endurnýi sig. Ég vona að Nýlistasafnið haldi áfram að þróast sem vettvangur fyrir til- raunakennda myndlist. Það er ekki auðvelt hlutverk, að festast ekki í einhverjum ákveðnum sporum og ég held að það hafi gengið mjög vel síð- ustu þrjátíu árin og ég vona að það haldi áfram.“ Fjölskylda Hlyns leikur stórt hlutverk í mörgum verkum hans og sömuleiðis heimabærinn Akureyri. „Ég hef gert mjög mikið af því í gegnum tíðina, til dæmis ljós- myndaseríu af fjölskyldunni á ferða- lögum. Hugmyndin á bak við það er að veita athygli smáu hlutunum í líf- inu sem maður tekur ekki venjulega eftir og sýna að hversdagslegu hlut- irnir skipta líka máli. Hver og einn getur líka tengt sig við þau og velt fyrir sér – hvað gerði ég í dag? Þetta þarf ekki alltaf að vera eitthvað upp- hafið.“ Alltaf átt heima á Nýló Morgunblaðið/Ómar Landamæri Myndlistarmaðurinn Hlynur Hallsson og myndasyrpan New Frontiers þar sem hann kemur nýjum ríkjum á kortið. Morgunblaðið/Ómar Hálfviti eða góður leiðtogi? Verkið George W. Bush eftir Hlyn.  Hlynur Hallsson sýnir um allt Nýlistasafnið, líka í geymslunum  „Svolítið fyndið að vera bara fertugur og vera með svona yfirlitssýningu“ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 17 MENNING Á AKUREYRI stendur nú yfir sýning á „Dyggðatepp- inu“ í Amtsbókasafninu. Teppið er hannað og teiknað af vöruhönnuðinum Marý (Ólöfu Maríu Ólafsdóttur) og er hugmyndin að því sprottin frá íslensku dyggðaklæði frá fyrri hluta 18. aldar, sem varðveitt er í Þjóðminjasafn- inu. Dyggðateppið hannaði Marý hins vegar með nú- tímalegri dyggðir í huga. Dyggðirnar eru þar rit- aðar á íslensku, trú, þolinmæði, jákvæðni, heilsa, hreinskilni, heiðarleiki, fjölskyldu- og vinabönd. Sýningin er opin virka daga frá 10 til 19. Hönnun Dyggðir nútíma- kvenna á Akureyri Dyggðateppið UM helgina eru síðustu forvöð að sjá sýninguna Þríviður sem var framlag Listasafns Reykjanesbæjar til Listahátíð- ar í Reykjavík. Þar leiða saman hesta sína listamennirnir Hannes Lár- usson, Guðjón Ketilsson og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson sem hafa þá sérstöðu á vettvangi samtímalistar að nota trjávið í ríkum mæli við gerð verka sinna. Á morgun klukkan 14.30 munu myndlistar- mennirnir verða með leiðsögn fyrir almenning um sýninguna í Listasal Duushúsa. Myndlist Síðasta sýningar- helgi Þríviðs Hannes Lárusson HAFDÍS Vigfúsdóttir flautu- leikari heldur tónleika í Lauf- áskirkju við Eyjafjörð á morg- un klukkan tvö. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Telemann, Kuhlau, Tomasi, Piazzolla og Takemitsu auk nýs verks eftir Ásrúnu I. Kondrup, sem var samið fyrir Hafdísi á vormánuðum 2008. Hafdís lauk Burtfaraprófi frá Tónlistarskóla Kópavogs árið 2002 og B.Mus. gráðu frá Listaháskóla Ís- lands vorið 2005. Hún hefur síðastliðin tvö ár stundað framhaldsnám í flautuleik í CRR de Rueil-Malmaison hjá Philippe Pierlot. Tónlist Flaututónleikar í Laufáskirkju Hafdís Vigfúsdóttir RANDOM House hefur hætt við útgáfu bókarinnar Demantur Med- ínu (The Jewel of Medina) eftir bandarísku fréttakonuna Sherry Jones, af ótta við að „útgáfa bók- arinnar gæti orðið kveikja að of- beldisverkum“. Bókin átti að koma út í næstu viku en hún fjallar um A’ishu, barn- unga brúði Mú- hameðs spá- manns, og ævi hennar allt frá því hún var lofuð Múhameð sex ára gömul allt til dánardags. Þegar útgáfa bókarinnar komst í hámæli þótti sumum óviðeigandi að skrifa róm- antíska sögu um sambandið sem hófst þegar A’isha var aðeins barn að aldri. Það var þó ekki ástæðan fyrir því að hætt var við að gefa bókina út, heldur ótti um að móðga strangtrúaða múslima. Öryggi höfundarins tryggt Múslímska skáldkonan Asra Nomani skrifaði grein í Wall Street Journal þar sem hún harm- aði ákvörðun bókaútgáfunnar og kenndi íslömskum prófessor um að hafa kynnt undir andúð á bókinni áður en hún kemur út. Thomas Perry, forleggjari hjá Random House, sagði forlagið hafa fengið viðvörun þess efnis að út- gáfa bókarinnar kynni að móðga suma í samfélagi múslima og gæti orðið kveikja ofbeldis lítils öfga- fulls minnihluta. Því hefði útgáfan ákveðið að fresta útgáfu um óákveðinn tíma „til þess að tryggja öryggi höfundarins, starfsmanna Random House, bóksala og allra annarra sem myndu koma að dreifingu og sölu bókarinnar“. Skrifaði af virðingu Jones segir það hafa verið mikið áfall þegar hún frétti að bókin, sem er frumraun hennar, kæmi ekki út eins og reiknað var með. „Ég hef einbeitt mér að því að skrifa af virðingu um Múham- eðstrú og um Múhameð spámann, þessi bók átti að byggja brýr.“ Hún hefur aldrei heimsótt Mið- Austurlönd en hefur eytt mörgum árum í að stúdera sögu araba og segir hún skáldsöguna útkomu alls þess sem hún hafi lært á þeim tíma. „Þetta er merkileg ástar- saga, hann dó með höfuðið við brjóst hennar,“ segir hún um A’ishu og Múhameð. Kápumynd Þessi kápumynd verður hugsanlega aldrei notuð. Nýir Söngvar Satans? Umdeildri bók „frestað“ Asra Nomani HLYNUR segist ekki hafa valið verkin eftir neinu ákveðnu kerfi, heldur reynt að hafa sýn- inguna eins fjölbreytta og hægt er og sýna viðfangsefni sín frá síðustu tólf árum. „Oft er sagt við mig að ég geri mjög ólík verk, en það eru hugmyndirnar sem skipta máli en ekki útlit verkanna eða hvaða efni maður notar,“ segir Hlynur. „Ég ætla að endurgera spreyverkið sem ég gerði í Texas af George Bush, það er náttúrulega síðasti séns að gera það því hann er að hætta. Þetta snýst náttúrulega mikið um samhengi. Það er allt öðruvísi að sýna það hér en úti og bæði skiptir þá máli staður- inn, tíminn og umhverfið.“ Síðasti séns fyrir Bush

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.