Morgunblaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 25
✝ Björn SteinarGuðmundsson
fæddist á Hvamms-
tanga 26. ágúst
1941. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 8. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Guð-
mundur Jónas Þor-
steinsson Baldvins-
son, f. 10.1. 1898,
d. 27.3. 1957, og
Þórunn Agnars-
dóttir, f. 11.8.
1909, d. 22.10. 1992. Systkini
Björn Steinars eru Óskar Ingi, f.
11.8. 1928, d. 24.12. 2000, Gunn-
ar Stefán, f. 13.6. 1931, d. 9.12.
1982, Hólmfríður Sigþóra, f.
15.4. 1938, d. 9.2. 1992, og Ingi-
gerður Sigurósk, f. 6.5. 1948.
Björn Steinar kvæntist 16.1.
1976 Önnu Stefaníu Þorvalds-
dóttur, f. á Siglufirði 5. ágúst
1954. Hún er dóttir Þorvaldar
Ingimundarsonar, f. á Ólafsfirði
15.1. 1918, d. 28.10. 1974, og Sig-
urbjargar Stefánsdóttur, f. að
Berghyl í Austur-Fljótum 20.1.
1922, d. 29.1. 2005. Björn og
Anna hófu búskap á Þingeyri,
fluttu þaðan til Ísafjarðar,
bjuggu á Ólafsfirði 1975-1984, í
Hafnarfirði 1984-1986, í Reykja-
og Anna Lilja, f. 3.5. 1995. 3)
Drengur, f. 16.12. 1966, d. 16.12.
1966.
Björn Steinar ólst upp með
foreldrum sínum, aðallega í
Höfnum til 10 ára aldurs, þar til
foreldrar hans skildu. Björn
kaus að verða eftir hjá föður sín-
um og fluttu þeir feðgar til
Reykjavíkur. Björn var í sveit á
unglingsárum. Hann var 15 ára
þegar faðir hans lést og flutti
hann þá aftur til Hafnar og bjó
hjá Borgari og Jensey sem
gengu honum í foreldrastað.
Björn hóf störf hjá Varnarliðinu
sem kranabílstjóri 15 ára gamall
og vann þar í fjögur ár. Þá flutti
hann til Reykjavíkur og kynntist
fyrri konu sinni sem hann
kvæntist 1961. Hann stundaði
sjómennsku frá Reykjavík og síð-
ar á Vestfjörðum eftir að fjöl-
skyldan flutti til Ísafjarðar 1968.
Björn kynntist eftirlifandi konu
sinni á Vífilsstöðum 1973. Þau
hófu búskap á Þingeyri. Björn
stundaði sjómennsku á ýmsum
bátum frá Reykjavík og Vest-
fjörðum. Á Ólafsfirði var Björn
sjómaður á Ólafi Bekk. Björn og
Anna bjuggu eitt ár í Noregi,
þar sem hann starfaði við fisk-
flökun. Eftir að suður var komið
starfaði Björn um tveggja ára
skeið á skipum BÚR, tvö ár sem
sendibílstjóri hjá Nýju-Sendibíla-
stöðinni, sem fiskbúðareigandi
um eins árs skeið og við fisk-
flökun til æviloka.
Útför Björns Steinars fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
vík, lengst af í Kríu-
hólum 4, 1986-2005
og frá þeim tíma á
Engjavöllum í Hafn-
arfirði. Börn Björns
Steinars og Önnu
eru: 1) Guðmundur
Ellert, f. 1.2. 1975.
2) Björn Stefán, f.
8.1. 1977, kvæntur
Lindu Margréti Ja-
fetsdóttur, f. 19.8.
1979. Sonur þeirra
er Óðinn Freyr, f.
21.4. 2005.
Börn Björns
Steinars og Arnbjargar Ásgríms-
dóttur eru: 1) Þórunn Anna, f.
28.4. 1962, sambýlismaður Frið-
björn Marteinsson, f. 25.10. 1959.
Börn Þórunnar og Kjartans
Kjartanssonar eru Arnbjörg
Anna, f. 16.1. 1982, og Björn
Davíð, f. 9.2. 1985, sambýliskona
Erla Björk Einarsdóttir, f. 27.5.
1987, dóttir þeirra er Eva Na-
talía, f. 11.8. 2005. Börn Þór-
unnar og Sigurjóns Gunnars
Kristmundssonar: Helga Ósk, f.
23.2. 1989, Guðbjörn Sigurþór, f.
22.1. 1992, og Lára Sif, f. 2.5.
1994. 2) Sigurbjörg Árný, f.
10.12. 1963, sambýlismaður Vig-
fús Davíðsson, f. 12.9. 1958. Börn
þeirra eru Davíð Stefán, f. 12.10.
1985, Marteinn Þór, f. 9.10. 1989,
Elsku Bjössi tengdapabbi.
Nú ertu farinn frá okkur og það
er erfitt að hugsa til þess að við
fáum ekki að hitta þig aftur. Sökn-
uðurinn er mikill en ég veit að þú
ert kominn á betri stað núna.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Sofðu rótt og guð geymi þig
elsku Bjössi og takk fyrir allar
þær stundir sem við áttum saman
Þín tengdadóttir
Linda Margrét.
Björn mágur minn eða Bjössi
eins og hann var kallaður er dáinn.
Laugardaginn 9. maí lauk bar-
áttu hans við illvígan sjúkdóm. Allt
til þessa dags svaraði Bjössi þegar
hann var spurður, hvernig hefur
þú það í dag, ég hef það fínt.
Þannig er honum rétt lýst, aldrei
kvartað.
Það var á Vífilsstöðum sem þau
kynntust. Björn þar vegna veik-
inda, systir sem starfsstúlka. Eftir
nokkurra ára dvöl sem sjómaður á
Ísafirði fluttu þau til heimabæjar
Önnu, Ólafsfjarðar. Björn hélt
áfram á sjónum, lengst af á Ólafi
Bekk.
Eftir að fjölskyldan flutti suður
reyndi Björn fyrir sér í sendibíla-
akstri sem hann hafði áður haft
starfa af. Hann hafði lengi haft
augastað á því starfi en fljótt kom
í ljós að hugur hans var við fisk-
inn. Hann keypti og rak fiskbúð á
Vitastíg í eitt ár en hóf svo störf
við flökun og var strax eftirsóttur
sem slíkur, enda með allt sem sóst
var eftir: leikni, vandvirkni og
hraða við meðhöndlun á viðfangs-
efninu auk þess að vera léttur í
lund.
Björn var skarpgreindur og
minnugur með afbrigðum. Hann
kunni að miðla þekkingu og
reynslu sinni á þann hátt að hlust-
að var á. Ófá kvöldin sat ég hjá
þeim hjónum og hlýddi á Björn
segja frá uppvexti sínum, kynnum
við mannlífið og einstaka mönnum
sem rekið hafði á fjörur hans að
ógleymdum bröndurum sem hann
hafði mikið yndi af.
Björn var ekki hár vexti, lengst
af meira en í meðallagi gildur,
kvikur og léttur í hreyfingum.
Ávallt í góðu skapi, fastur fyrir ef
á rétti hans eða annarra var brot-
ið. Hann stóð með þeim sem minna
máttu sín. Hann hafði nærveru
góða sem jafnt börn sem fullorðnir
sóttust í.
Fyrstu augnablikin sem ég sá
Björn eru mér fersk í minni. Ég 16
ára snót mjög spennt að sjá kær-
asta systur minnar. En ég varð
fyrir vonbrigðum, var hann svona
gamall? Vonbrigðin stóðu ekki
lengi, Björn var yngstur allra,
hann bókstaflega eltist ekkert, var
alltaf síungur.
Anna og Bjössi höfðu yndi af
ferðalögum og var farið í ófáar
ferðir tengdar útilegum. Þar var
Bjössi á heimavelli og ekki til sá
hlutur sem hann hafði ekki með-
ferðis. Allt frá lofttæmingartæki
upp í risastóra hitara. Hann sat
lengst allra, eða á meðan stólar
héldu. Síðasta útilegan sem ég átti
með þeim hjónum var á afmæli
hans fyrir ári. Í sumarbústað við
Flókalund, Björn var þá orðinn
veikur. Yndisleg dvöl sem ég
geymi nú með mér til minningar
um mág minn Björn Steinar Guð-
mundsson.
Bjössi hafði gaman af að spjalla
og hafði mjög ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum, réttlætis-
kennd hans var sterk.
Nokkrum dögum fyrir andlátið
sat ég hjá honum og vorum við að
ræða um stöðu mála í þjóðfélaginu.
Hann sagði fátt, en svaraði mér
með ljóði eftir Stein Steinarr:
Að sigra heiminn er eins og að spila á
spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það var vitlaust gefið.
Góða ferð kæri mágur.
Elsku Anna, Gummi, Bjössi,
Tóta, Sirrý og fjölskyldur.
Megi góðar minningar um ynd-
islegan mann styrkja ykkur.
Regína Þorvaldsdóttir
og fjölskylda.
Björn Steinar
Guðmundsson
Fleiri minningargreinar
um Björn Steinar Guðmunds-
son bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝ AðalheiðurGuðmunds-
dóttir fæddist í
Ytri-Hól í Vestur-
Landeyjum 25. nóv-
ember 1919. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Kirkjuhvoli á
Hvolsvelli 5. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðríður Erlends-
dóttir og Guð-
mundur Einarsson.
Eftirlifandi systkini
Aðalheiðar eru:
Jón, Guðríður, Þórunn, Kristinn
og Ragnar. Látin eru Helgi,
Karl, Pálína, Guðrún, Sigurður,
Ármann, Ingibjörg, Geir, Ólafía
og Svava.
Fárra vikna gömul kom Aðal-
heiður að Eystri-Hól í Vestur-
Landeyjum til fósturforeldra
sinna, hjónanna
Guðrúnar Ólafs-
dóttur og Þórðar
Tómassonar. Fóst-
ursystkini hennar
voru Sigríður,
Helga, Jóhanna,
Kristín og Þorkell.
Hún var versl-
unarmaður nánast
allan sinn starfs-
aldur. Starfaði hún
m.a. í Mófelli, Kjöt-
verslun Tómasar
og Kjötbúri Péturs
í Reykjavík.
Síðastliðin 30 ár bjó hún að
Baldursgötu 20 í Reykjavík en
snemmsumars 2008 fluttist hún
að Kirkjuhvoli á Hvolsvelli, þar
sem henni leið afar vel.
Aðalheiður verður jarðsungin
frá Áskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Í dag kveðjum við hana Öllu. Okk-
ur langar að minnast hennar í fáein-
um orðum. Við krakkarnir höfum
þekkt hana alla ævina, hún hefur ver-
ið viðloðandi allt okkar líf og komið
að því á einn eða annan hátt.
Minningarnar eru margar og eig-
um við öll sögur að segja af henni
Öllu. Hún var ríkur þáttur í uppvexti
okkar. Við erum öll sammála um það
að sterkasta minningin sé tilhlökkun
okkar þegar Alla var að koma í heim-
sókn eða við að fara á Staðarbakkann
í heimsókn til ömmu og afa og við
vissum af Öllu þar. Við gátum alltaf
treyst á það að Alla ætti góðgæti í
töskunni sinni. Beðið var með eftir-
væntingu eftir boði um að sækja
töskuna. Stundum var reyndar hvísl-
að að henni hvort hún ætti eitthvert
nammi og var Siggi sá sem var hug-
aðastur í þeim efnum. Við hin biðum
róleg eftir að Siggi kæmi þá með
töskuna. Alla gat líka verið algjör
„prakkari“. Hún átti t.d. könguló sem
hægt var að pumpa í og þá stökk hún,
það vakti mikla lukku þegar hún
laumaði henni einhversstaðar. Líka
eru hurðasprengjurnar eftirminni-
legar.
Kolaportsferðirnar eru líka ofar-
lega í huga okkar, það var toppurinn
á helginni að fara með Öllu í portið og
fá lukkupakka og lakkrís. Þegar Sjó-
mannadagurinn nálgaðist var líka
ævintýri að fara í heimsókn heim til
hennar og sjá allt dótið sem hún var
búin að sanka að sér, varla var hægt
að fóta sig í íbúðinni. Það var eins og
að koma í ævintýraland, svo mikið af
flottu dóti sem var á leiðinni í pakka
sem átti að selja niðri á höfn. Ótrú-
legt er að hugsa til þess nú hvaða
dugnað hún sýndi við að safna þessu
saman. Vinnan bakvið hvern einasta
pakka sem hún útbjó hefur verið
mikil. Hér sitjum við fimm og rifjum
upp minningarnar, þær eru ljúfsárar
og koma brosi á vör. Við söknum
hennar mikið og minnumst hennar
með miklu þakklæti.
Helga, Sigurður, Auður,
Jóhanna, Davíð.
Heiðursfélagi okkar, Aðalheiður
Guðmundsdóttir, er látin á áttugasta
og níunda aldursári. Hún Alla okkar
var ein af þessum félagskonum okkar
sem vann verk sín hljóðlega og gerði
lítið úr. Í happdrættinu á jólafundi
gaf Alla árum saman aðalvinninginn
sem var og er vegleg matarkarfa. Á
sjómannadaginn fyrir tveimur árum
var mikið spurt um konuna með
lukkupakkana, en þá hafði Alla útbú-
ið og selt í áraraðir og voru það
drjúgar tekjur sem hún aflaði deild-
inni með þeim. Þegar ég talaði við
Öllu fyrir afmælisfundinn okkar í lok
apríl síðastliðinn en á hann bjóðum
við heiðursfélögum, sagði hún eins og
oft áður: „Ég er nú svo óskaplega
skepnuleg, en ef ég á góðan dag þá
fæ ég hana Jóhönnu mína til að koma
með mér“. Hún Alla kom á afmæl-
isfundinn hress og jákvæð að vanda
þó líkaminn væri að gefa sig. Þar
sagði hún okkur að hún væri að flytj-
ast á elliheimili á Hellu í júní, alla-
vega tímabundið, og töluðum við um
að við yrðum bara að sækja hana
þangað í Þórsmerkurferðina.
Því trúi ég að Alla hafi verið hvíld-
inni fegin, en hennar verður sárt
saknað í deildinni okkar. Við þökkum
Öllu góð störf í þágu deildarinnar.
Minningin um trausta félagskonu
lifir.
Við vottum ástvinum hennar okkar
innilegustu samúð.
F.h. Slysavarnadeildar
kvenna í Reykjavík,
Fríður Birna Stefánsdóttir
formaður.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn,
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Gæðakonan Aðalheiður Guð-
mundsdóttir er látin, hún Alla okkar
eins og við vorum vanar að kalla hana
okkar á milli, konurnar í Slysavarna-
félagi kvenna í Reykjavík.
Alla gekk í slysavarnadeildina árið
1982 og starfaði mikið fyrir deildina
alla tíð og mætti á flesta fundi, og við-
kvæðið okkar var ef hún kom ekki,
hvar er Alla. Svo fórnfús og kær-
leiksrík var hún og ég veit að fleiri
hundruð þúsunda gaf hún deildinni
með því að selja lukkupakkana á sjó-
mannadaginn ár eftir ár. Og alla
pakkana í jólahappdrættið á jóla-
fundinum og stóru matarkörfurnar
sem hún kom alltaf með og ætíð voru
aðalvinningurinn. Ég man þegar ég
var að bjóða hana velkomna í deild-
ina, þá þakkaði hún fyrir að mega
vera með okkur, mér fannst það svo
sérstakt. Svo gjafmild og lítillát, það
fór ekki mikið fyrir henni Öllu en hún
skilaði sínu dagsverki vel og var holl
sínum húsbændum og vinum. Ég veit
að allir samferðamenn Öllu bera
henni vel söguna enda ekki annað
hægt.
Slysavarnakonur sakna vinar í
stað. Góður guð blessi minningu
þessarar góðu, kærleiksríku og gjaf-
mildu konu.
Yndi er að eiga
ást og fórnarblóð,
þín margir sakna mega,
er meta verkin góð.
Þér ég þakkir færi,
þín var kynning hlý.
Vík nú vinur kæri,
verksvið inn á ný.
(G.K.)
Hafðu hjartans þökk fyrir allt.
Guðrún Sesselja
Guðmundsdóttir.
Aðalheiður
Guðmundsdóttir
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
miðvikudaginn 6. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Reynir Sveinsson, Guðlaug Leifsdóttir,
Smári Sveinsson, Bergdís Sigurðardóttir,
Kristinn Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista