Morgunblaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Ferðalög Íbúðir til leigu í Barcelona á Spáni, hagstætt verð, Costa Brava Playa de Aro, Baliares- eyjan, Menorca Mahon, Vallado- lid, www.helenjonsson.ws Sími 899 5863.Gisting Sumarfríið eða helgin 2 - 3 herb. vel búnar íbúðir á Akureyri. www.gista.is S: 694-4314. Gisting - Reykjanesbæ Stúdíóíbúð, gestahús og herbergi ásamt hjólhýsaleigu - bílaleigu - Camper.Sólhrings-, helgar- eða viku- leiga.Uppbúin rúm. Sjónvarp, tölva og internet. Gistiheimilið Njarðvík. Sími: 421 6053/ 691 6407 og 898 7467. www. gistiheimilid.is Húsnæði í boði Smárinn, tveggja herbergja Mjög góð tveggja herbergja íbúð á rólegum stað í Smárahverfinu. Húsgögn geta fylgt. Sérinngangur. Verð 110 þ. á mán. Allt innifalið. Laus strax. S. 698 8228. Laugavegur, laust strax Laugavegur, 88 fm rými á 3ju hæð. Verð 140 þ. á mánuði. Laust strax. Eldhúsaðstaða, snyrting m. sturtu, tvö herbergi og opið rými. S. 698 8228. Íbúð til leigu á Kanaríeyjum Til leigu 50 fm íbúð á 4. hæð á Tene- quia-hótelinu við Tirajana-götuna á ensku ströndinni, rétt hjá Yumbo Cen- ter. Langtímaleiga kemur til greina. Allt í íbúðinni sem til þarf. Frábært útsýni og góður garður, frekari upplýsingar í s. 895 0400 eða í tölvupósti á orningo@mmedia.is. Hús til leigu í Grafarvogi Fimm herbergja, leigist með eða án hús-gagna í tíu til tólf mánuði. Húsið er tvær hæðir með stórum garði. Stutt í skóla, strætó og verslanir. rsig54@gmail / 8456216 2j herbergja íbúð í vesturbæ Rvk. Íbúðin,(75 m2), er kjallaraíbúð m. sérinngangi. Er laus strax. Einungis reglusamir og reyklausir koma til greina. Uppl. í síma 695 0317. Húsnæði óskast Íbúð til leigu í Grjótaþorpi (101) Falleg og hlýleg íbúð í hjarta bæjar- ins til leigu frá 1. september til 1. júní (húsgögn geta fylgt). Verð 155 þús- und á mánuði. Upplýsingar í síma: 822 3539. Sumarhús Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Rotþrær, heildarlausn (“kit”) á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör, fráveiturör og tengistykki. Einangrunarplast og takkamottur. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211. Heimasíða: www.borgarplast.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Microsoft kerfisstjóranám MCSA kerfisstjóranámið hefst 1. sep- tember. Nýr Windows Vista-áfangi. Einstakir áfangar í boði. Bættu Microsoft í ferilskrána. Rafiðnaðar- skólinn, www.raf.is, 863 2186. Til sölu Til sölu Electrolux ískápur ca 170 m. á hæð. Verð 6 þús., kringlótt eldhúsboð ca 1 meter á br. Verð 6 þús. og 2ja sæta sófi og 1 stóll. Verð 5 þús. Upplýsingar í síma 694 2460 eða 557 3118. Mjúkir og þægilegir herrasanda- lar úr leðri. Mikið úrval. Verð 6.970.-, 8.985.- og 9.950. Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070 opið mán-fös 10-18 Ath. lokað á laugardögum í sumar Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf Skattframtöl Framtöl - bókhald - uppgjör - stofnun ehf. o.fl. Fékkstu áætlun? Gleymdist að telja fram? Framtals- þjónusta - skjót og örugg þjónusta. Uppl. í síma 517 3977. Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Ýmislegt Öflugur foli Sex vetra til sölu. Verð 150 þús. Rauð tvístjörnótt hryssa sjö v. 100 þús. Ford dráttarvél 4610 ´84 árg. biluð, verð 200 þús. Massey Ferguson 65, tvívirk ámoksturstæki fylgja, bilaður, v. 50 þús. Fín traktors- eða jeppa- kerra, v. 40 þús. Sími 865 6560. Viðburðarík upplifun fyrir hópa í siglingu á hraðgangandi bátum. SeaSafari.is sími 861 3840. teg. 7217 NÝTT Flottur haldari í str. CDE kr. 2950, buxur í stíl kr. 1450. teg. 67203 NÝTT Þessi er léttfóðraður, str. BC, kr. 2950, buxur í stíl kr. 1450. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18. Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Blómakór. Margir litir. Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr. og barnaskór 500 kr. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 12. Sími 562 2466. Afmælisgjafir Mikið úrval af Dóru Explorer vörum m.a. húfusett, eyrnaskjól og hár- spangir. Margar gerðir af töskum og bakpokum. Skarthúsið, Laugavegi 12. Sími 562 2466. Vélar & tæki JCB traktorsgrafa JCB 4 traktorsgrafa, árg. 11/2007, ekinn 180 klst., eins og ný. Snjóplógur og tiltskófla einnig til sölu. Skipti möguleg. S. 894 2097. Bátar Seadoo Jetski sea doo 3d-di ágúst 07 er sem nýtt, 11 tíma notkun. Ásett verð er 1,1 fæst á 900 þús með nýrri kerru. S: 6608916 Bílar VW Polo ek. 112 þús. km. Áhv. 485.000. Fæst á yfirtöku á láni + 70.000 kr. út. Uppl. í síma 821 6584. Mótorhjól Til sölu KXF-450 2008 Flott hjól, ekið ca. 20 tíma. Fatbar-stýri og fleiri aukahlutir. Verð 690 þús. Uppl. í s. 866 0532. Til sölu Bakus 400cc buggy götuskráning. Frábært leik-tæki. Sjálfstæð fjöðrun, diskabr., 4ja punkta belti 5 gíra + bakk. Verð 698.000 kr. Visa/Euro allt að 12 mán. hjakrissa@simnet.is. s-8935777 Einkamál Stefnumót.is Kynntu þér vandaðan stefnumóta- og samskiptavef fyrir fólk sem gerir kröfur. Þjónustuauglýsingar 5691100 ✝ Ingunn Sveins-dóttir fæddist í Köldukinn á Fells- strönd í Dalasýslu 10. maí 1918. Hún lést í St Franciskus- spítalanum í Stykk- ishólmi 4. ágúst síð- astliðinn. Hún var elst tíu barna hjónanna Salóme Kristjánsdóttur, f. á Breiðabólsstað á Fellsströnd 10. mars 1891, d. 29. júlí 1973, og Sveins Hallgrímssonar, f. í Túngarði á Fellsströnd 17. sept. 1896, d. 26. nóv. 1936. Þau voru bæði fæddir Dalamenn og hófu búskap í Stóra- Galtadal 1920, fluttu í Dagverð- arnessel 1922 og áttu þar heima til 1932, er þau fluttu að Kvenhóli í sömu sveit. Reistu síðan nýbýlið Sveinsstaði út úr þeirri jörð og áttu þar heimili frá 1936. Á því ári andaðist Sveinn eftir stutta legu. f. 8. mars 1938, d. 7. feb. 2003, þau eiga þrjár dætur. 3) Rut Meldal, f. 4. feb. 1947, maki I Þorsteinn Björgvinsson, f. 19. júlí 1944, d. 26. ágúst 1988, þau eiga þrjá syni. Maki II Gylfi Haraldsson, f. 7. apr- íl 1946. 4) Guðmundur Valur, f. 26. desember 1949, maki Steinunn Dóra Garðarsdóttir, f. 5. sept. 1956, þau eiga tvö börn, yngra barn þeirra, Valtýr, f. 21. júlí 1984, lést af slysförum 8. des. 2006. 5) Valtýr Friðgeir, f. 1. sept. 1954. Maki I Sigrún Kristjáns- dóttir, f. 20. apríl 1961. Þau skildu. Þau eiga þrjá syni, en tvíburadæt- ur þeirra, f. 24. nóv. 1977, létust sama dag. Sambýliskona Friðgeirs er Ásdís Geirsdóttir. Afkomendur Ingunnar og Valtýs eru nú 62. Ingunn fékk barnaskólafræðslu þess tíma. Hún gekk í Húsmæðra- skólann á Staðarfelli. Ingunn og Valtýr byrjuðu sinn búskap í Kópavogi og í Reykjavík, áttu heima þar í Skerjafirði og á Fálka- götu. Þau fluttu í Stykkishólm 1950 og áttu þar heima síðan. Útför Ingunnar fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Salome bjó þar áfram með börnum sínum, sem öll kom- ust upp, þau eru: 1) Ingunn, sem hér er minnst, 2) Friðgeir, f. 1919, d. 1952, 3) Gestur, f. 1920, d. 1980, 4) Sigurjón, f. 1922 d. 1994, 5) Kristinn, f. 1924, 6) Jófríður Halldóra, f. 1926, 7) Ólöf Þórunn, f. 1929, d. 1998, 8) Baldur, f. 1931, 9) Steinar, f. 1932, d. 1981, og 10) Kristján, f. 1934. Ingunn giftist 3. ágúst 1940 Valtý Guðmundssyni trésmíða- meistara frá Níp á Skarðsströnd, f. 12. október 1914, d. 31. desem- ber 2004. Börn þeirra eru: 1) Val- gerður, f. 26. okt. 1940, maki Sæ- björn Jónsson, f. 19. okt. 1938, d. 7. ágúst 2006, þau eiga fjögur börn. 2) Sveinlaug Salome, f. 27. ágúst 1942, maki Rögnvaldur Lárusson, Ég minnist ömmu minnar, Ing- unnar Sveinsdóttur, með virðingu og þakklæti. Er ég nú sit og hugsa um hana finn ég fyrir sérkennilegri blöndu af gleði og söknuði. Ég á eftir að sakna símhringinganna frá henni og bréfanna – ég dáist enn að því hversu ötul hún var að skrifa – og ég á eftir að sakna heimsókn- anna til hennar í Stykkishólm. Ég viðurkenni fúslega að ég á ekki eft- ir að sakna þeirra stunda þegar ég sat með gestabókina hennar fyrir framan mig og gruflaði vel og lengi yfir því hvaða andans fleygu orð ég ætti nú að skrifa þessu sinni, því sjaldnast lét sá andi á sér bera. En ég á eftir að sakna þeirrar tilfinn- ingar sem þessar stundir gáfu í raun og veru, því þegar allt kom til alls þótti ömmu alltaf jafnvænt um það sem maður hripaði í blessaða bókina, þótt ekki væri nema eig- innafnið eitt. Því verknaður þessi var fyrst og fremst tákn um það sem hún mat meira en flest annað, nálægðina við ættingja og vini. Því í þessari nálægð nærðist sú sterka umhyggja sem hún bar fyrir öðrum. Ég á eftir að sakna þessarar um- hyggju. Ég veit að söknuðurinn á alltaf eftir að vera til staðar, en það sem meira er um vert er sú tilfinning sem framar öðrum situr eftir í hug- anum er ég hugsa um hana ömmu mína: Það er einfaldlega góð tilfinn- ing. Það er sú góða tilfinning sem gott fólk vekur hjá samferðafólki sínu. Og það er gleði og stolt yfir því að vera afkomandi þessarar kjarnmiklu og frómu konu. Ég hugsa um ömmu mína og á andlit- inu birtist bros og hjartað umlykst hlýju. Ósvikin gleði. Margt kemur upp í hugann er ég leiði hugann að öllum þessum árum sem ég naut nálægðar hennar, en af einhverjum ástæðum leiðist hug- urinn iðulega að einhverju matar- kyns. Það kann að hljóma hjákát- lega, en ég sé bara einfaldlega fyrir mér hlaðin borð af tertum og kök- um og alls kyns kræsingum á sama tíma og ég hugsa um hana ömmu mína. Einhvern veginn lifir það svo sterkt í minningunni að hún var ávallt með borðið fullt af slíku góð- gæti þegar maður kom í heimsókn, þrátt fyrir þá einkennilegu stað- reynd að á minni 40 ára ævi sá ég hana aldrei nokkurn tíma baka! Hugsanir af þessu tagi vekja gleði, jafnvel kátínu, og ég veit að amma sjálf, með sína ríku kímni- gáfu, hefði getað hlegið að þessu með mér. En þessar hugleiðingar segja líka annað og meira, því þær minna á þá miklu umhyggju sem hún amma bar fyrir sínu fólki. Sjálf ólst hún síður en svo upp við alls- nægtir og þurfti virkilega að vinna baki brotnu til þess að fjölskylda hennar hefði í sig og á. Umhyggjan fyrir því að hinir nánustu nærðust réttilega var því sterk. Þessi sama umhyggja var til staðar þegar hún á árum áður bauð manni eitthvert góðgæti um leið og maður kvaddi hana, eitthvert nesti til að maula á leiðinni. Ég er enn að maula þetta góð- gæti. Það veitir mér stöðuga nær- ingu í farvegi lífsins. Þess vegna minnist ég ömmu minnar nú með virðingu og þakklæti. Ég er inni- lega þakklátur fyrir allt það vega- nesti sem hún í örlæti sínu gaf mér. Blessuð sé minning hennar. Rúnar M. Þorsteinsson. Ingunn Sveinsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ing- unni Sveinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.