Morgunblaðið - 15.08.2008, Síða 32
Við erum með húm-
orinn í lagi í vinnunni
og það léttir róðurinn … 36
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„ÉG ER náttúrulega annálaður let-
ingi, það er aðalástæðan,“ segir Guð-
mundur Andri Thorsson mér um
ástæður þess hve langt er á milli
bóka, en Náðarkraftur kom út 2003.
„En ég hef reyndar verið að vinna að
tveimur öðrum skáldsögum um leið,
sem hefur aðeins tafið mig, en verð-
ur vonandi til þess að þetta verður
aðeins þéttara,“ bætir hann við, en
sagan sem kemur út nú í haust heitir
Segðu mömmu að mér líði vel og er
undirtitill bókarinnar „Ástarsögur“.
„Þótt hún sé ekkert mjög löng þá
er dálítið erfitt að lýsa henni. Það má
segja að blærinn á henni og tónninn
líkist helst fyrstu bókunum mínum
tveimur [Mín káta angist og Íslenski
draumurinn].“
Margs konar ástarsögur
Um undirtitilinn segir Andri að
þetta séu margar ástarsögur innan
sömu sögu, ástarsögur aðalpersón-
unnar sem og fólksins í kringum
hann. „Þetta eru ýmsar myndir ást-
arinnar, ást milli tveggja ein-
staklinga, vinátta æskufélaga, ást
milli foreldra og barna, meira að
segja ást milli manns og hunds,“
segir höfundurinn og hugsar sig ögn
um áður en hann bætir við dul-
arfullur: „Það er kannski hægt að
segja að þessi bók hafi að geyma ást-
arsögur úr hljómsveitarbransanum.
Það væri eiginlega alveg satt en
samt ekki rétt lýsing.“
Ég spyr hvort aðalpersónan sé
hugsanlega rokkstjarna en það er
ekki svo einfalt. „Nei, hann er mjög
órokklegur karlmaður á miðjum
aldri sem býr með föður sínum í
Vesturbænum.“
Þótt Andri lýsi yfir leti hefur hann
haft nóg að gera við útvarps-
þáttagerð, pistlagerð og ritstjórn
bóka undanfarið, auk spilamennsku
með Spöðum. Hann segir þó að
Spaðar muni hafa hægt um sig á
næstunni og að yfirlestri bóka sinni
hann aðeins í lausamennsku núna,
þannig að það er aldrei að vita nema
að hann gefi sér tíma í að klára hinar
bækurnar tvær fljótlega.
Aftur til upprunans
Morgunblaðið/Ásdís
Með músík í eyrunum Ástir í hljómsveitarbransanum koma við sögu í
nýrri bók Guðmundar Andra, Segðu mömmu að mér líði vel.
Guðmundur Andri með fyrstu skáldsöguna í fimm ár
Eins og fram
kemur í Morg-
unblaðinu í dag
hefur Sena keypt
Einar Bárðar út
úr viðburðafyr-
irtækinu Concert
sem rekið hefur verið sem sjálf-
stæð eining innan Senu undanfarin
tvö ár, nú síðast undir forystu Ís-
leifs Þórhallssonar. Um er að ræða
kaup á 40% hlut Einars í fyrirtæk-
inu en Einar hélt því fram í
Fréttablaðinu í gær að tilboðið
hefði verið of gott til að hafna því.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hafði Sena leitað leiða
til að koma Einari út úr fyrirtæk-
inu í þónokkurn tíma enda hafi
mönnum þar innanhúss enn sviðið
undan kaupunum fyrir tveimur ár-
um þegar Sena keypti 60% hlut í
fyrirtækinu. Sýndist mörgum þá
að Sena hefði fest kaup á dýrustu
símanúmerabók Íslandssögunnar.
Hið skrítna í málinu nú er hins
vegar að Einar fær að ganga út
með vörumerkið Concert sem Sena
keypti á sínum tíma fyrir háar
fjárhæðir. Og þá spyrja menn sig:
Hvað er það eiginlega sem Sena
fær fyrir hlut Einars, ef ekki við-
skiptavild út á vörumerkið sjálft?
Dýr yrði Einar
Bárðarson allur
Þrátt fyrir að
aðsókn á Innipúk-
ann hafi verið
töluvert minni en
skipuleggjendur
bjuggust við, svo
ekki sé minnst á
vonbrigði tónleikagesta þegar ekk-
ert varð af tónleikum Megasar,
fengu allir nóg fyrir sinn snúð þeg-
ar Geir Ólafs steig á svið í Iðnó og
hóf upp raust sína, eins og honum
einum er lagið. Sjálfur var Geir allt
að því hrærður yfir viðtökunum á
Púkanum og lýsti sig viljugan til að
endurtaka leikinn að ári.
Þeir sem geta ekki beðið svo
lengi ættu hins vegar að skella sér
norður á Græna hattinn þar sem
Geir kemur fram annað kvöld, 35
ára gamall og heilum tveimur dög-
um betur.
Geir á Græna hattinum
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA verður bara svona týpísk
Ladda-plata,“ segir Þórhallur Sig-
urðsson, Laddi, sem ætlar að senda
frá sér nýja sólóplötu í haust. Á plöt-
unni verða ný lög úr smiðju Ladda.
„Þetta eru lög sem ég var að
semja, og eru alveg sjóðheit. En svo
verðum við líka með erlend lög sem
eru meira svona grínlög sem ég ís-
lenska bara,“ útskýrir hann, en bæt-
ir því við að einnig verði um eitthvað
leikið efni að ræða. „Það er alltaf
spennandi að vera með það með,
svona inn á milli. En það er í mót-
un.“
Í viðtali sem Arnar Eggert Thor-
oddsen tók við Ladda og birtist í
Morgunblaðinu hinn 9. desember
síðastliðinn lýsti Laddi áhuga sínum
á að gera „alvarlega“ plötu. Er þetta
hún?
„Nei, ekki beint, þótt það hafi allt-
af staðið til að gera þannig plötu, en
þetta verður að vera í bland,“ segir
hann. „En við erum annars að velja
lögin, ég og Bjöggi Halldórs. Ég var
að koma úr fríi og áður en ég fór út
lét ég hann fá tíu lög eftir mig til að
pæla í,“ segir Laddi, en Björgvin
Halldórsson er upptökustjóri nýju
plötunnar. En mun hann jafnvel
taka nokkur lög með Ladda á plöt-
unni? „Það veit maður aldrei, Bjöggi
hefur stundum tekið bakraddir og
svona, en það er aldrei að vita því
það verður ýmislegt á þessari plötu
sem má kannski ekki segja frá alveg
strax, en mun örugglega koma á
óvart,“ segir Laddi leyndardóms-
fullur, en eins og margir eflaust
muna voru Laddi, Björgvin og Halli
bróðir Ladda í HLH flokknum forð-
um daga. Laddi útilokar ekki að
flokkurinn komi saman á nýju plöt-
unni. „Maður þorir ekki að segja
neitt, en við erum með ýmsar hug-
myndir í gangi. Kannski verð ég
með eitt lag með Halla og hver veit
nema Bjöggi vilji vera með okkur í
því. En það er ekkert búið að ákveða
í þessu ennþá.“
Laddi 62
Aðspurður segir Laddi að nýja
platan muni höfða til breiðs aldurs-
hóps, líkt og fyrri plötur hans.
„Þetta verður plata fyrir alla, alveg
niður í litlu krakkana. Eiríkur Fjal-
ar kemur til dæmis eitthvað inn í
þetta og svona,“ segir hann, en áætl-
að er að platan komi út í nóvember.
Á síðasta ári sendi Laddi frá sér
plötuna Hver er sinnar kæfu smið-
ur, en á henni má finna safn bestu
laga hans síðustu þrjá áratugina eða
svo. Platan seldist gríðarlega vel og
var til að mynda í efsta sæti tónlist-
ans svo vikum skipti. Þá hefur verið
fullt hús á sýningunni Laddi 6-tugur
síðan hún var frumsýnd í febrúar í
fyrra, en sýningin fer aftur á fjalir
Borgarleikhússins í október. En
þarf Laddi ekki að fara að breyta
nafni sýningarinnar? „Það er sí-
breytilegt, hún heitir eiginlega
Laddi 61 plús núna af því að ég er
orðinn 61 og hálfs núna. Svo verður
það bara Laddi 62,“ segir hann í
léttum dúr.
Laddi er annars nýkominn heim
úr sumarfríi á Spáni. Aðspurður
segist hann lítið hafa „djammað og
djúsað“ þar syðra, líkt og segir í lag-
inu. „Við fórum bara saman stór-
fjölskyldan og vorum að sóla okkur í
rólegheitum. Svo fór ég aðeins í golf
og svona,“ segir Laddi sem hélt
áfram í golfinu þegar hann kom
heim. „Já já, það fyrsta sem maður
gerir daginn eftir að maður kemur
er að skella sér á þriggja daga Ís-
landsmót öldunga,“ segir hann og
hlær.
Endurkoma HLH?
Laddi sendir frá sér nýja plötu sem unnin er í samstarfi við Bjögga Halldórs
Útilokar ekki að Halli bróðir sinn muni einnig koma að plötunni
Morgunblaðið/Sverrir
Leyndardómsfullur „Kannski verð ég með eitt lag með Halla og hver veit
nema Bjöggi vilji vera með okkur í því,“ segir Laddi m.a. um nýju plötuna.
Deió - 1981
Allt í lagi með það - 1983
Einn voða vitlaus - 1985
Ertubúnaðverasvonalengi? - 1987
Of feit fyrir mig - 1990
Bestu vinir aðal - 1990
Jólaball með Dengsa og
félögum - 1991
Hver er sinnar kæfu
smiður - 2007
Jóla hvað? - 2007
Helstu plötur
Ladda