Morgunblaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 33
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
TALANDI TRÉ - flytjandi og höfundur Erna Ómarsdóttir (Söguloft)
Sun 17/8 kl. 16:00
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 23/8 kl. 15:00
Lau 23/8 kl. 20:00
Sun 24/8 kl. 16:00 Ö
Fös 29/8 kl. 20:00
Lau 30/8 kl. 15:00
Lau 30/8 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 15:00
Lau 6/9 kl. 20:00 Ö
Sun 7/9 kl. 16:00
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning)
Fös 15/8 kl. 15:00 U Fös 15/8 kl. 20:00 U
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 4/9 kl. 20:00 Fim 11/9 kl. 20:00 Fim 18/9 kl. 20:00
Lýstu eigin útliti. 56% hommi, 35% vöðvar og 9% hár og
skegg.
Hvaðan ertu? Úr Hafnarfirði.
Ætlar þú að fylgjast mikið með Ólympíuleikunum og ef
svo er hvaða íþrótt fylgist þú mest með? (spyr síðasti að-
alsmaður, Örn Arnarson, sundkappi) Neuch! Ég fylgdist
einmitt með honum og held því áfram! Tek á móti honum í
Leifsstöð! Velkominn heim Örn! Komdu bara í sjósund
með okkur Halla Jóns, Möggu Blöndal og Begga „Upp-
erbody“! Það fær þig til að gleyma öllu ólympíuruglinu!
Hver er uppáhaldsforsetinn þinn? President Bongo.
Prodigy eða Chemical Brothers? Gluteus Maximus.
Íslenskar konur í fimm orðum: Linda, Linda, Linda, Linda
og Linda.
Íslenskir karlmenn í fimm orðum: Sætir, kynæsandi, töff,
brosmildir og fyndnir
Styðurðu ríkisstjórnina? Pfiff, lýðræði
er úrelt, virkar ekki.
En borgarstjórn? Eru það þeir sem
þrifu allt hátt og lágt, máluðu gráan
(lýsandi fyrir ástandið) lit yfir allt og
tóku niður öll plakötin sem ég var
nýbúinn að hengja upp til að auglýsa
tónleikana með Sebastien Tellier 28.
ágúst? Nei takk. Út af lóðinni! NÚNA!
Ég er búinn að horfa á svartan plast-
poka og klósettpappír uppí tré á móti
glugganum mínum á Laugavegi í allt
sumar. Ekki tóku þeir hann niður! Og
ég hringdi borgarstjórn í vor og harð-
neitaði að horfa á þennan poka meðan
sumarið væri að taka við sér. Þeir tóku
klósettpappírinn (eftir 7 daga) en
skildu pokann eftir. Hann var „of“ hátt
uppi í trénu. Og er þar enn. Ég hef
samt tröllatrú á JFM! Hann hlýtur að
láta taka pokann niður þannig að
haustið geti komið óáreitt inn í forseta-
höllina!
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálf-
an þig? Að ég get synt í sjónum án þess að fara að gráta.
Svo söng ég líka „Ríðum, ríðum“ með Helga Björns í
bílastæðapartíi. Vissi ekki að ég kynni það lag fyrr en ég
fór í gang!
Uppáhaldsbíómynd? Raising Arizona eftir Cohen bræður.
Hún er einhvernveginn alltaf best … og svo líka Blazing
Saddles. Get ekki valið …
Hlustarðu á Sigur Rós? Nei, en endurhljóðblandaði þá með
Gluteus Maximus og ég hlusta á þá endurhljóðblöndun. Ég
er samt rosaskotinn í Kjartani … nei, Jónsa … hmm þeir
eru allir sætir. Einar Örn er samt kóngurinn …
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór? 100 kg.
Hvaða plötu ertu mest að hlusta á þessa dagana? Er að
gera plötu með GusGus og endurhljóðblanda Trentemöller
með Gluteus Maximus. Það er það eina sem ég hlusta á
þessa dagana … og svo Minilogue,
Prosumer og nýju barnaplötuna (cdr)
sem Kiddi í Hjálmum gaf mér um dag-
inn … Þar eru Bó og Egill Ólafs að
metast hver er besti pabbinn! Æðisleg
plata!
Hvaða bók lastu síðast? Traktor
Scratch Manual … og fæ ekki einu
sinni forritið í gang!!
Helstu áhugamál? Linda … og
Schnitzel.
Hver myndi leika þig í ævisögulegri
bíómynd? Michael Bolton áður en
hann klippti sig.
Er „David“ besta danslag Íslandssög-
unnar? Biddu, leimmér að hugsa …
Hverju mega menn eiga von á á NASA
á laugardagskvöldið? Týna öllu sem
þeir eiga þ.e.a.s. ef þeir ná sér í miða.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Ef stofnaður yrði Mútusjóður til að
hjálpa „ákveðnum“ stjórnmálamönn-
um að taka réttar ákvarðanir og hætta
að tala með afturendanum, myndir þú
leggja honum lið? 5.000 kall eða svo?
PRESIDENT BONGO
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER ANNAR AF TVEIMUR
FORSPRÖKKUM HLJÓMSVEITARINNAR GUSGUS
SEM HELDUR TÓNLEIKA Á NASA ANNAÐ KVÖLD.
Bongo Segir að Michael Bolton
gæti kannski leikið sig.
Morgunblaðið/Ómar
Fyrirsögnin á þessum pistlier fengin úr viðtali viðnokkra útskriftarnema
Myndlistar- og handíðaskólans sem
birtist í DV, að mig minnir, árið
1991. Einn útskriftarnemanna lét
þá þessa setningu falla, sem blaða-
maður greip á lofti og setti yfir
greinina. Þótti mér við hæfi að
endurnota hana í kjölfar umræðu
um húsnæðismál Listaháskóla Ís-
lands, en vinningstillaga +Arkí-
tekta að húsakynnum skólans hef-
ur valdið talsverðum usla.
Hefur umræðan þó helst snúist
um húsavernd, borgarmynd og
hvort Laugavegur geti borið þetta
mikla starfsemi. Hins vegar vekur
áhuga minn í þessu máli hvað
vinningstillagan segir okkur um
stefnu skólans sem snýr að mynd-
list.
Listaháskóli Íslands er aka-demía, tengd vissum skyldum
menntakerfis og þurfa nemendur
að skila af sér margskonar fræði-
legum verkefnum. Það þóttu því
tíðindi þegar Reykjavíkurborg gaf
Listaháskólanum lóð í Vatnsmýr-
inni í fyrra, en með byggingu þar
ætti Listaháskólinn frekara sam-
neyti með Háskóla Íslands og enn
ríkari tengsl hefðu getað myndast
á milli listgreina og fræðigreina,
en það hentar allavega vel fyrir
myndlistarnám.
Hins vegar væri alltaf hætta á
að LHÍ aðlagaðist sama kerfi og
ríkismenntastofnanir lúta. En
sjálfstæði skólans er lífsnauðsyn-
legt sökum þess að myndlistarnám
er á skjön við menntakerfið sem
nú ríkir í landinu, þar sem mynd-
listin sjálf hvetur nemandann til að
afla sér þekkingar gegn um eigin
skapandi ferli. Og hann býr í raun
til sína eigin „kennslubók“.
Hin listakademíska mótsögn
felst þá í því að listmenntun skuli
vera óháð menntakerfinu sem hún
stólar á.
En myndlist er auðvitað baraein deild af mörgum innan
LHÍ og í nýju húsnæði er markmið
að allar deildir sameinist undir
einu þaki. Listgreinar skerast í
auknum mæli og renna jafnvel
saman í einn skapandi graut.
Margir hentu gaman að þessu
markmiði sem var strax ljóst eftir
stofnun skólans og kölluðu það
„Fame drauminn“ í höfuðið á vin-
sælli kvikmynd á níunda áratug
síðustu aldar.
Miðað við vinningstillöguna við
Laugaveg má segja að „Fame-
draumurinn“ hafi verið staðfestur
því þarna eiga að vera uppákomur
fyrir gesti og gangandi, opinn sýn-
ingarsalur, tónleikasalur, leiks-
alur, kaffihús og verslun. Við er-
um því ekki bara að tala um
menntastofnun heldur líka menn-
ingarsamkomuhús, eða einhvers-
konar listmenntakringlu við
Laugaveg.
Þessi stefna stjórnar skólans ersvosem í ágætum takti við
þróun myndlistar síðustu ára í átt
til „artentainment“(„fagurlistir“
og „skemmtiefni“ sett saman í eitt
orð). Nú er það popúlisminn sem
blífur og augljóst að stjórnin vill
feta þá leið. Skólinn skal vera þar
sem fjörið er, ekki fræðin.
Það hefur líka verið stefna
stjórnarinnar að auka tengsl á
milli listakademíunnar og almenn-
ings og þjónar vinningstillagan
þeim markmiðum út frá arkítek-
tónísku sjónarhorni. Hins vegar
þarf akademían að vera virk í
garð almennings, skapa „gang-
virkni“, til þess að þessi tengsl
hafi eitthvað upp á sig. Og duga
kaffihús og verslun þá ekki til.
Virknin felst fyrst og fremst í
framkvæmdum þeirra sem koma
að akademíunni, þ.e. þeirra sem
eru í forsvari fyrir hana, prófess-
ora, lektora, jafnvel stundakenn-
ara og ekki síst nemenda. Skiptir
þá engu hvort skólinn er við
Laugaveg, í Vatnsmýrinni eða
annarsstaðar, því eins og áður seg-
ir, þá er skóli ekki hús.
ransu@mbl.is
Skóli er ekki hús
AF LISTUM
Jón B.K. Ransu
» Við erum því ekkibara að tala um
menntastofnun heldur
líka menningarsam-
komuhús, eða einhvers-
konar listmennta-
kringlu við Laugaveg.
Bitbeinið „Miðað við vinningstillöguna við Laugaveg má segja að „Fame-draumurinn“ hafi verið staðfestur.“
www.listvinafelag.is
Alþjóðlegt orgelsumar
í Hallgrímskirkju
MATTIAS WAGER
frá Stokkhólmi
leikur norræna orgeltónlist, verk eftir m.a.
Walton, Guillou og Messiaen og spuna.
Laugardaginn 16. ágúst kl. 12
Sunnudaginn 17. ágúst kl. 20