Morgunblaðið - 17.08.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2008 37
MINNINGAR
✝ Guðrún HelgaCarlsdóttir Han-
sen fæddist í Reykja-
vík 9. janúar 1935.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
28. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Carl
Ólafsson ljósmynd-
ari, f. 22. desember
1887, d. 14. janúar
1953 og Anna María
Guðjónsdóttir hús-
freyja, f. 21. nóv-
ember 1900, d. 7.
október 1997.
Guðrún Helga, eða Dósla eins og
hún var alltaf kölluð, lauk grunn-
skólanámi í Reykjavík og gagn-
fræðaprófi frá Héraðsskólanum á
Laugavatni.
Dósla giftist síðar Olav Martin
Hansen (Úlla) offsetprentara, f. 16.
apríl 1920, d. 4. september 1994.
Hann var sonur hjónanna Guð-
rúnar Gísladóttur húsfreyju, og
Sophusar Hansen kyndara. Olav
átti 4 bræður, Geir Hafstein, Gísla,
Rúnar og Gunnar.
Dósla hóf prentnám í Iðnskól-
anum í Reykjavík og rak með Úlla
prentsmiðjuna Endurprent. Þau
seldu hana upp úr 1990 og keyptu
sér litla íbúð í Skipholti 42 þar sem
hún bjó alla tíð síðan. Heilsu Dóslu
hrakaði mikið síðastliðna 12 mán-
uði og var hún því meira og minna
á sjúkrahúsi.
Dósla var staðföst í sinni kaþ-
ólsku trú og starfaði mikið í Kven-
félagi kaþólska safnaðarins.
Jennifer, sonardóttir Dóslu, kom
frá Reno í Nevada til að heimsækja
ömmu sína 25. júlí sl. og náði að
vera með henni hálfan dag heima
og var til hinstu stundar við dán-
arbeð hennar á Landspítalanum.
Dóslu var sungin sálumessa í
Kristskirkju í Landakoti 12. ágúst.
Dósla giftist árið
1954 Jake Vander-
ziel, f. í Kaliforníu
1930 og eignuðust
þau tvo syni, Carl, f.
22. október 1953 og
Allen, f. 13. desember
1956. Carl á þrjú börn
og ellefu barnabörn
og Allen á fimm börn
og þrjú barnabörn.
Eru þau öll búsett í
Bandaríkjunum.
Dósla og Jake
bjuggu í Kaliforníu
og Nevada en þau
slitu samvistum og kom hún alkom-
in heim til Íslands árið 1975. Hóf
hún þá störf hjá Sláturfélagi Suð-
urlands, en hún hafði numið og
fengið réttindi sem kjötiðn-
aðarmaður í Bandaríkjunum.
Í dag kveðjum við vinkonu okkar,
Doslu, eftir áratuga kynni. Kynni
okkar hófust þegar mágur okkar og
frændi, Olav Martin Hansen (Úlli),
kvæntist Doslu. Mikill samgangur
hafði ætíð verið milli þeirra bræðra,
Geirs og Úlla, og ekki breyttist það
eftir að Úlli kvæntist Doslu. Voru þau
bæði tíðir gestir á heimili okkar í
gegnum árin. Eftir að Úlli dó hélst
sambandið og samgöngur voru tíðar,
einkum milli Unu og Doslu hin síðari
ár og var Dosla ákaflega dugleg að
hafa samband við Unu eftir að heilsu
Unu hrakaði, bæði símleiðis og með
heimsóknum, og með þessari hinstu
kveðju viljum við þakka Doslu þá
ræktarsemi og trúmennsku.
Þegar Dosla kynntist Úlla hafði
hún búið í Bandaríkjunum um langt
skeið og átti þar börn og barnabörn.
Því voru ferðir þeirra vestur yfir haf
tíðar lengi vel, en heilsa þeirra setti
strik í reikninginn er á leið. Þegar við
minnumst Doslu kemur upp í hugann
brosandi og myndarleg kona, sem
talaði með mjúkum hreim og var
þægileg í umgengni allri. Þó hafði líf
hennar ekki ætíð verið dans á rósum.
Síðustu árin átti hún við mikil veik-
indi að stríða en tókst á við þau af
æðruleysi og ekki hætti hún ræktar-
semi við þá sem hún hafði samband
við. Einnig minnumst við allra jóla-
ballanna hjá kaþólska söfnuðinum,
sem Úlli og Dosla, og seinna Dosla
ein, buðu Geir Elvari, Unnari Inga og
Helgu Jónu á í gegnum tíðina, sú
minning er greypt í þeirra huga.
Margar góðar minningar eigum
við fjölskyldan um samskiptin við
Doslu og viljum við þakka henni góðu
stundirnar. Ættingjum hennar vott-
um við dýpstu samúð. Hvíl í friði.
Una G. Jónsdóttir, Rúna S.
Geirsdóttir Hansen, Gylfi Páls-
son, Geir Elvar Gylfason, Unnar
Ingi Gylfason og Helga Jóna
Gylfadóttir.
Í dag verður borin til hinstu hvíld-
ar frá kirkju Krists konungs í Landa-
koti kær vinkona okkar, Guðrún
Helga Carlsdóttir, sem hefur verið
tryggur félagi í okkar hópi undanfar-
in ár og var kölluð Dósla meðal vina
sinna.
Hún var dóttir Carls Ólafssonar
ljósmyndara og konu hans, Önnu
Guðjónsdóttur.
Hún fluttist til Bandaríkjanna á
ungum aldri og eignaðist þar tvo syni,
Carl og Allen. Þar bar fundum henn-
ar löngu síðar saman við Olav Han-
sen prentara, sem dvaldist þar
skamma hríð í eigin erindum. Fluttist
hún hingað heim með honum og
stofnuðu þau sameiginlegt heimili.
Þau höfðu bæði tekið kaþólska trú
og störfuðu í kaþólska söfnuðinum
hér meðan þeim entist aldur til. Olav
andaðist fyrir nokkrum árum og bjó
Dósla síðan einsömul.
Hún var félagi í Kvenfélagi Krists-
kirkju sem starfað hefur síðan 1921
og tók virkan þátt í allri starfsemi
þess þau ár sem hún átti ólifuð.
Það félag er ekki stórt að félaga-
tölu en traust vináttubönd tengja það
saman. Síðari árin hefur það haldið
fundi vikulega frá hausti og fram á
vor og efnt til kaffiveitinga og basara
árlega og varið hagnaðinum af þeirri
starfsemi til styrktar kirkjunni. Þar,
eins og annars staðar þar sem Dósla
lagði hönd að verki, vann hún heils
hugar af tryggð við kirkju sína og vini
sem hún mat mikils, enda verður hún
þeim minnisstæð fyrir hið góða
hjartalag sitt.
Sonardóttir hennar var hér stödd
þegar lát hennar bar að höndum og
var hún viðstödd útför ömmu sinnar.
Við samhryggjumst henni og öðrum
afkomendum Dóslu innilega um leið
og við kveðjum góða vinkonu okkar
og samstarfskonu.
F.h. Kvenfélags Kristskirkju,
Ólöf Helga Benónýs, formaður.
Dósla mín. Nú er komið að kveðju-
stund eftir nær aldarfjórðungs kynni
og vinskap.
Þú kynntist eiginkonu minni Sjöfn
Haraldsdóttur skömmu eftir að þú
fluttir heim frá Bandaríkjunum og
urðuð þið bestu vinkonur frá þeim
degi sem þið hittust fyrst.
Eftir að þú misstir Úlla eiginmann
þinn varðst þú fljótlega eins og ein af
fjölskyldunni og varst hjá okkur á öll-
um hátíðis- og tyllidögum og varst
orðin heiðursamma barnabarna okk-
ar, sem nú syrgja þig sem ömmu sína.
Þið vinkonurnar höfðuð þann sið að
hittast alltaf á föstudagseftirmiðdög-
um og þá stundum fleiri saman og
rædduð það sem efst var á baugi á
þeim tíma og skemmtuð ykkur vel.
Eftir að Sjöfn dó árið 2001 hafið þið
Dóra vinkona þín heiðrað minningu
hennar með því að heimsækja mig á
föstudögum og mun ég ætíð minnast
trygglyndi þíns og hversu vel þú
reyndist henni í veikindum hennar.
Guð geymi þig, Dósla mín, og
blessuð veri minning þín.
Þórarinn.
Guðrún Helga
Carlsdóttir Hansen
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
RÓSA EIRÍKSDÓTTIR,
Hæðargarði 33,
áður Miðdal í Kjós,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
19. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á MS-félagið.
Davíð Guðmundsson,
Fanney Þ. Davíðsdóttir,
Hulda Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Grímsson,
Kristín Davíðsdóttir, Gunnar Rúnar Magnússon,
Guðbjörg Davíðsdóttir,
Katrín Davíðsdóttir, Sigurður Ingi Geirsson,
Sigríður Davíðsdóttir, Gunnar Guðnason,
Guðmundur H. Davíðsson, Svanborg A. Magnúsdóttir,
Eiríkur Þ. Davíðsson, Solveig U. Eysteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg fóstra mín og systir,
GUÐRÚN BERGRÓS TRYGGVADÓTTIR,
Svertingsstöðum I,
Eyjafjarðarsveit,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, hinn
1. ágúst, verður jarðsungin frá Kaupangskirkju
laugardaginn 23. ágúst kl. 13:30.
Fyrir hönd vandamanna,
Hansína María Haraldsdóttir,
Haraldur Tryggvason.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNÍNA S. SNORRADÓTTIR,
áður til heimilis að Bauganesi 14,
Skerjafirði,
sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
9. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 19. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
Rauða Kross Íslands njóta þess.
Snorri Aðalsteinsson, Martha Sverrisdóttir,
Eggert Aðalsteinsson, Guðrún E. Bjarnadóttir,
Gunnar Aðalsteinsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
INGVI JÓN RAFNSSON
veitingamaður,
Framnesvegi 20,
Reykjavík,
lést föstudaginn 8. ágúst á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
21. ágúst kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
reikning til styrktar fjölskyldu hans: 137-05-066031, kt. 040959-4089.
Innilegar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans og deildar 11E
og starfsfólks hjá Caritas.
Þóra Helga Jónsdóttir,
María Ósk Ingvadóttir, Ólafur Helgi Ólafsson,
Dagur Rafn Ingvason,
Agnes Líf Ingvadóttir.
✝
Systir okkar,
KRISTÍN ÁSTA FRIÐRIKSDÓTTIR
(Stella)
frá Siglufirði,
lést á elliheimilinu Grund miðvikudaginn 13. ágúst.
Jarðarför fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn
21. ágúst kl. 13.00.
Gréta Friðriksdóttir,
Steinunn Friðriksdóttir,
Bragi Reynir Friðriksson,
Gunnur Salbjörg Friðriksdóttir,
Fjóla Guðrún Friðriksdóttir.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason